Morgunblaðið - 19.06.1953, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 19.06.1953, Blaðsíða 9
Föstudagur 19. júní 1953 MORGUNBLAÐIÐ 9 Endurmmniiigar frá blóðvöllum Berllnar Ósegjanleg kúguni og þjáning kniýr verkaiýðinn til opinberra mótmæla Eftir Þorstein Ó. Thorarensen ÞÚSUNDIR verkamanna í Austur Berlín lögðu niður vinnu og söfnuðust saman á strætunum í miðborginni. Þeir gengu i þéttri fylkingu um Friedrichstrasse og stefndu til stjórnarbygging- anna. Þeir lögðu undir Walter Ulbricht íþróttaleikvanginn. Þeir hrópuðu: — Við erum verkamenn en ekki þrælar! Burt með stjórn kommúnista! Við heimtum frjálsar kosningar! Rússneskir skriðdrekar æða inn í borgina. Vélbyssuskothríð á Potsdamer-torgi. Skriðdrekarnir rússnesku, sem vega 40 tonn aka vægðarlaust á múginn í Friedricksstrasse og hold þýzkra verka- manna er kramið undir stálplötum skriðdrekanna. Leikurinn er ójafn — berir vinnulúnir hnefar alþýðunnar gegn stáli, blýi og dýnamiti kommúnista. FYRSXI LEIÐANGUR MINN AUSTUR FYRIR JÁRNTJALD Þessar fréttir síðustu daga vekja upp endurminingar mínar frá s. 1. sumri. Þá gafst mér tækifæri til að skoða þessar slóð- ir í nokkrum ferðum austur fyr- ir járntjald. Það vakna upp end- urminningar um strætin, sem nefnd eru í fréttum og um hnefa fólksins, sem eru krepptir af hatri, þegar ég var þar þá mest- megnis í leyni, niðri í vösum, nú síðustu daga eru þeir enn kreppt- ir en sá er munurinn, að nú einu sinni hafa menn steytt hnefana opinberlega og í fullu dagsljósi framan í hina hötuðu kúgara. Fyrstu ferð mína til Austur Berlínar fór ég í fylgd með þýzkri húsfrú. Sjálf bjó hún og maður hennar sæmilega góðu búi í Vestur Berlín. En bróðir hennar, ásamt konu og tveimur börnum, höfðu flúið frá Austur Þýzkalandi fyrir hálfu ári. Hann var ,,óviðurkenndur“ flóttamað- ur, fékk því ekki að flytjast til Vestur Þýzkalands og mátti ekki taka sér vinnu í borginni. Fjölskyida hans lifði því ein- göngu á hinum opinbera fátækra styrk, sem er mjög naumur. Til að nýta það fé sem bezt, fór systir hans vikulega til Austur Berlínar til að kaupa brauð. Nú, hvað er þetta? kann les- andinn að spyrja. Er brauðið ódýrara í Austur Berlin en í Vest ur Berlín? Nei miðað við laun almenn- ings er það um það bil þriðj- ungi dýrara. En flóttamaðurinn fékk sinn styrk greiddan í Vest- ur þýzkum mörkum og þau gat hann notað til að kaupa Austur- þýzk mörk á svörtum markaði fyrir aðeins V\ hluta af skráðu gengi. Og með þessu móti verð- ur brauðið sem keypt er í Aust- ur Berlín næstum helmingi ódýr ara en það sem keypt er vestan megin járntjalds. Jæja, hin þýzka húsfrú var að leggja af stað í brauðleið- angur og hún bauð mér að fylgja með. Gætið að yður! Þér yfirgefið Vestur Berlín eftir 50 metra. — Þannig hljóðaði tilkynningin við gangstéttina á Potsdamer stræti. Og eftir 50 sekúndur vorum við í Austur Berlín. LOKAÐAR SOLUBUÐIR Fyrst gengum við að svo- nefndu Columbus-húsi við Pots- damer-torg. í ríkisverzluninni þar (HO) ætlaði konan að kaupa brauðið. En dyrnar voru læstar og hlerar fyrir gluggum. Til- kynning fest upp þar sem á stóð: Lokað, næsta sölubúð er í Leipzigertrasse 19. Og við þang- að. — En hvað þar. — Annað skilti mætir okkur þar: — Lokað — næsta sölubúð er í Friedrich- strasse 194. Brauðið fengum við að sjálfsögðu á endanum. En í þessu mætti okkur eítt • helzta einkenni Austur-Berlínar, þ. e. vöruskorturinn, sem veldur því að sölubúðir eru ekki opnar nema eftir hentugleikum. I MIÐBORGINNI Leiðin,.sem við fórum, lá fyrst einmitt um það svæði, þar sem rósturnar voru mestar nú síð- ustu daga. Frá Potsdamer-torgi gengum við austur Leipziger- strasse, e. t. v. þúsund metra. Þar sker Friedrichstrasse hina fyrr- nefndu götu og stefnir móti norðri, að ég held alla leið norð- ur í Pankow, þar sem stjórnar- aðsetrin eru. Við gengum norð- ur Friedrichstrasse en beygðum austur Unter den Linden og austur á Alexanderstorg. Nú ætla ég í fáum orðum að lýsa þessari borg, þar sem komm- únisminn ræður, eins og hún kom mér fyrir sjónir. Það var mér að sjálfsögðu mikil nýjung að sjá hana og reyndi ég að hafa augu og eyru opin fyrir öllu. Sumsstaðar blandast e. t. v. inn í frásögnina það sem ég kynnt- ist í siðari ferðum. GLÆPUR AÐ BERA VESTRÆN BLÖÐ Það er tvennt sem þú mátt ekki hafa með þér, þegar þú ferð til Austur Berlínar. 1) Blöð frá Vestur Berlín. 2) Ljósmynda- vél. Þau eru orðin mýmörg dæm- in um að menn eru dæmdir í 3ja—5 eða 7 ára fangelsi vegna þess að þeir höfðu í vasanum blaðið Telegraf eða Tagesspiegel. Fréttir af slíkum dómum standa skýrum stöfum í blöðum komm- únista sjálfra. Þegar þú hinsvegar kemur austur fyrir takmarkalínuna, verða blaðsalar kommúnista mjög þakklátir þegar þú kaupir af þeim blöðin, því að almenn- ingur í borginni. kaupir þau ekki, vill frekar engin blöð lesa en áróður kommúnista. /* ÁRÓÐUR KOMMÚNISTA Á HVERJUM HÚSVEGG Það fyrsta, sem maður rekur augun í þegar til Austur Berlín- ar kemur eru hinar óteljandi á- róðursauglýsingar kommúnista. Þær eru hæstum því á hverj- um húsvegg. Þær eru málaðar á veggina sem bönd, ýmist blá eða rauð og síðan hvítir bókstafir á böndin. Þau eru á hverjum hús- gafli, rústaveggjum, milli glugga- raðanna, handriðum þeirra fáu brúa, sem eftir standa. Á hlið- um þeirra fáu sporvagna, sem hökta skröltandi eftir auðum strætunum. Yfir inngangi í neð- anjarðarbrautirnar, utan á eim- reiðunum, utan á fúnum hliðum hestvagnanna — bókstaflega um allt. Nokkur sýnishorn: — Lifi vináttan við Pólland og hið volduga forusturíki, • Sovét- Rússland. Við öreigar allra landa berj- umst hlið við hlið fyrir friði undir forustu hins volduga Sovét-Rúss- lands. Undir merki Marx, Engels, Lenins og Stalins fram í barátth fyrir friði, éiningu, lýðræði og sósíaiisma. Lifi hinn þýzki verkalýður, sem hefur úrslitáaflið í þjóðern- is- og þjóðfélagsbaráttu þýzku þjóðarinnar. Fram til sósíalismans. Stalin lengi lifi. Wilhelm Pieck forseti lengi lifi o. s. frv. o. s. frv. Allur almeningur kaupir alls ekki blöð þau, sem kommúnist- ar gefa út. Kvikmyndahús eru heldur ekki sótt. Fólkið orðið hvekkt á sífelldum áróðurskvik- myndum. FÓLKIÐ SKAL HEYRA ÁRÓÐURINN En valdhafarnir hafa ráð í sínu pokahorni. — Fólkið skal heyra áróðurinn og hvernig koma þeir því í kring. Jú, enn eitt einkenni Austur Berlínar. Á öllum götuhornum MATARSKAMMTUR VERKALÝÐSINS OG SKAMMTUR „HUGSUÐANNA“ Ég hef margsinnis látið í ljós við fylgdarkonu mína að mig langi til að tala við einhverja. Og eftir að hún hefur sagt mér að það sé óhætt að tala við hvern sem er, af því fólki sem er fátæk- lega til fara, hittum við eina slíka konu. Hún var að fara í inn kaup og það sem liggur henni mest á hjarta, er að segja frá matvælaskortinum. — Jú, það er til brauð en það er dýrt. En kjötskammturinn á mánuði er 1 kg og ef maður kaupir bein- iaust kjöt eða pylsur þá er dreg- ið frá 25%. Smjörskammturinn á mánuði er 150 gr. Og ennþá verra er að vörurnar fást ekki nema endrum og eins og fólk verður að standa í biðröðum svo klukkustundum skiptir. Mjólkur- Brandenborgarhliðið með hinum rauða fán kommúnista. Hinn 17. júní klifu tveir unglingar upp á hliðið og tóku fánann niður. Fólk- ið sem hjá stóð reif hinn rauða fána í tætlur og brenndi hann. rísa staurar líkastir ljósastaur- um. En þeir bera ekki ljósa- krónu, heldur stóran hátalara. Og þegar kemur fram yfir há- degi, glymur áróðursútvarp kommúnista um allar götur. Fólk kemst ekki hjá að hlusta á það. Þar er dásemdum sósíalismans lýst frá hádegi til miðnættis. — Sömu slagorðin og á áróðurs- böndunum eru þulin. Hinni „stórkostlegu viðreisn" lýst með fögrum orðum og staðhæft að hin mikla dásemd og sæla komm únismans sé hinum dýrðlega for- ingja Stalin að þakka. En mér virðist að þessi áróður sé mjög neikvæður fyrir sjálfa valdhafana. Því að fólkið, sem á hlustar, lifir í öðrum heimi en hinar fögru lýsingar eiga við. TVEIR FRÁBRUGÐNIR HEIMAR í SÖMU BORG Maður verður sleginn af að ganga um götur Austur Beriín- ar. Fyrir klukkutíma var ég staddur á Kurfiirstendamm í Vestur Berlín. Hundruð og þús- und nýrra biia þutu um göturn- ar. Vörubílar með múrsteina og steinlím uku áfram. Verkamenn og iðnaðarmenn í góðu skapi og raulandi dægurlög, hlóðu upp mprsteinum í háa húsveggi. í hádeginu tylltu menn sér niður á gangstéttar veitingahús og supu bjórglas. Stórir búðarglugg- ar í risamagasínum glömpuðu móti sólinni fullir af hverskonar vörum. Svo er ég kominn hér skammri stund síðar. Það er sama borgin en það er önnur veröld. Göturn- ar eru næstum auðar. Einn og einn einmana bíll með rússneska hermenn á vörupalli ekur um þær. Og ég furða mig á því, hve óhreinindin eru mikil. Húsarúst- irnar liggja óhreyfðar og sand- urinn frá þeim liggur út yfir gangstéttina. Fólkið sem eigrar um göturnar er líka óhreint og fátæklegt. Það brosir aldrei, mælir varla orð frá munni. lítrinn kostar 2 mörk, þ. e. um 8 kr. En mjólk er erfitt að fá. Sumir fá, hinsvegar miklu stærri skammt. Það eru vinnu- hetjurnar og „die intellektuell- en“, þ. e. hugsuðurnir. Þessir skammtar eru ætlaðir fyrir broddana í kommúnistaflokkn- um. Friedrichstrasse var áður aðal verzlunar og viðskiptagata Ber- línar. Nú hafa allir, sem þar unnu, flúið til Vestur Berlínar. Handelsorganisation (HO) hefur tekið fyrirtækin eignarnámi án þess að greiða nokkrar eignar- námsbætur. AÐEINS SÝNINGARVARA Þar sem áður voru stórar sýn- ingarrúður hafa nú verið settár timburhlerar en á þeim miðjum er lítill gluggi. Út í þann íitlfi giugga er .raðað reyktum bjúg um, eplum eða appelsínum, nið- ursoðinni síld, brjóstsykri og súkkulaði. En yfir - þessari sýningu hangir skilti þar sem á stendur: Nur Ausstellungsware Verkauf in kúrze in unseren konsum verkaufsstellen. Þetta þýðir svo mikið sem: Aðeins sýningarvara. Seld innan skamms í okkar kaupfélags söiubúðum. En þessi spjöld hafa verið svo mgi í glugganum, að þau eru upplituð af elli. VERZLUNARHUS AUÐSTÉTTARINNAR Norður í Pankow — þar eru ráðherrabústaðirnir og bækistöðv ar kommúnista. Byggingai; þcirfa eru nýjar og fagrar. Þeir aka í gljáfægðum bifreiðum. Og þeir hafa efni á að verzla í HO- húsinu á Alexanderplatz. I því stóra verzlunarhúsi fæst hér um bil allt milli bimins og jarðar. Amerískir nylonsokkar, radíógrammófónar, Meissen postulín, dýrindis persnesk gólf- teppi, gull- og silfurmunir, dem- antar, kavíar og kampavín. En verðið er svo himin hátt að það er ekki fyrir almenning. Það er aðeins fyrir hina nýju óhófs- og auðstétt kommúnistaríkisins, fyr- ir hina pólitísku hlaupagemlinga Moskvavaldsins. Hér hef ég mest lýst hinu efna- lega ástandi fólksins í Berlín. En þá má ekki gleyma því, hve mikil kvöl hin andlega kúgun er mannlegri sál. Kúgunin, sem breytir sólríkum degi í drunga í hugum fólksins. Þannig kom Austur Beriín mér fyrir sjónir í fyrrasumar og ekki virðist ástandið hafa batnað. Þ. Th. Héðan mátti greiða andstæðing- um kommúnista þung höggog stór ALLIR kannast við ummæli | Með þessum ummælum sann- Brynjólfs Bjarnasonar, þau er ar Brynjólfur að hann villi hann mælti á Alþingi 1941, að að ísland verði árásarstöð, þaö- á íslandi mætti „skjóta án misk- . an sem andstæðingum kommún- unnar“, aðeins ef það kæmi Rúss- ista verði „greidd þung högg og um að gagni í viðureign þeirra stór.“ við Þjóðverja. Manndómur Brynjólfs er ekki meiri en svo, að hann hefur reynt að hlaupa frá þessum ummæl- um sínum og neitar að hafa við- haft þau. Slíkt stoðar hann ekki; þau standa skýrum stöfum skráð í Alþingistíðindum. Flokksmenn hans sumir hafa fært honum til afsökunar að hann hafi sagt þetta í fljótræði en ekki meint það. Sú afsökun þýðir ekki, því að í Rétti 1941, s. 133, segir hann orðrétt: „íslenzka þjóðin, sem ann frelsi sínu öllu framar og er stolt af menningararfi sínum og sögu, er vissulega reiðubúin til að leggja fram sinn skerf til þess að fasisminn, sem frelsi hennar og sjálfstæði stafar mest ógn af, megi verða að velli lagð- ur. íslenzka þjóðin fagnar þeim aðgerðum, sem gerðar eru í þessu skyni og hún mundi sízt harma þótt fasismanum yrðu greidd þung högg og stór frá landi því, sem hún ein hefuf byggt í þúsund ár og ein vill byggja um alla framtíö." Hvernig )íst mönnum svo á, að þeir, sem þessa skoðun hafa, halda áfram að berja sér á brjósl., og láta svo sem þeir hafa ætrð- verið dyggir fylgismenn hlut- leysisstefnunnar, vegna þess aÁ» hún sé íslandi örugg vörn og megni að halda landinu utan vtí* styrjaldir? Hræsnina í þvílíkum kenning- um kommúnista hefur Stalin bezt afhjúpað með orðum þeim, sem Réttur 1939 hefur eftir hon- um á s. 27: „I raun og veru ýtir hlutleysis- stefnan undir. árásir, glæðu* stríðslogana og stuðlar að út. breiðslu stríðs allt til heims- styrjaldar.“ Og á síðu 30 þessi ummæli: „Allur ófriður, hversu tak - markaður sem hann er og hversu afskekktan útkjálka jarðar, sem hann snýst um, er hættulegur fyrir friðsömu ríkin.“ Engum, sem allt þetta athug- ar getur blandazt hugur um, að tilgangur þeirra nú er sá,- að Rússar geti náð hér fótfestu til að greiða iýðræðisþjóðunum héð- an „þung högg og stór.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.