Morgunblaðið - 19.06.1953, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 19.06.1953, Blaðsíða 16
Veðurútlit í dag: A og NA kaldi, skýjað, víðast úr- komulaust. J1EorflmtWaí>tð 134. tbl. — Föstudagur 19. júní 1953. AUSTUR-BERLÍN Sjá grein á bls. 9. 4 Héraðsmót Sjálfstæðisfl. í Gallbringusýslu í kvöld ‘HÉRAÐSMÓT Sjálfstæðisflokksins í Gullbringusýslu verður haldið i Ungmennafélagshúsinu í Keflavík í kvöld kl. 8.30 síðd. Stuttar ræður flytja: Ólafur Thors, form. Sjálfstæðisflokksins og Jóhann Hafstein alþm., en skemmtikraftar verða leikararnir Alfreð Andrésson og Haraldur Á. Sigurðsson ,er flytja leikþátt og syngja gamanvísur, og norska söngkonan Jeanita Melín syngur með aðstoð C. Billich. Að síðustu verður stiginn dans. Þátttaka tilkynnist til eftirtalinna aðila: Skrifstofu Sjálf- stæðisflokksins í Keflavík, Björns Finnbogasonar, Gerð- mn, Axels Jónssonar, Sandgerði, Jóns Jónssonar, Hvammi, Höfn- um, Jóns Benediktssonar, Vogum og Jóns Daníelssonar, Grindavík Prestastefnan hefst í dag með vígslu í DÓRtkirkiunni (O .1 'HIN ÁRLEGA prestastefna íslands, Synodus, hefst hér í Reykja- vík í dag kl. 10,30 með guðsþjónustu í Dómkirkjunni en þar fer jafnframt fram prestvígsla. — Prestar landsins munu vera all- fjölmennir á ráðstefnu þessari, sem ljúka mun á sunnudaginn. Sæmd FálkeorSunni 17. júní ' FORSETI ÍSLANDS saamdi, að tillögu orðunefndar, þtssa menn Fálkaorðunni 17. jánaá: Ásgrím Jónsson, Tjwafessor, list- málara, Reykjav-ik, shjörnu stór- riddara. Pétur Á. Jónsjgm:, Ægjemsöngv- ara, Reykjavik, stðrriddara- krossi. Jón Þórðars.crri, íyrrverandi skipstjóra, VatoHsyrsi, riddara- krossi. Karl Strand, IMraá. London, riddarakrossi. Moniku Helgadffitaör, húsfreyju að Merkigili í Skægafirði, ridd- arakrossi. Snorra Sigfúss»n, námsstjóra, Akureyri, riddarakrwssí. Þorstein J. Eyfírðing, skip- stjóra, Reykjavík, ríddarakrossi. (Frétt frá orðuritara). 17. júní : .. 'ATHOFNIN I DÓMKIRKJUNNI Við athöfnina flytur séra Jón Auðuns, dómprófastur, sýnódus- piédikun og lýsir jafnframt vígslu. — Biskupinn yfir íslandi, dr. Sigurgeir Sigurðsson, vígir guðfræðikandidatinn, sem er Ingimar Ingimarsson og vígist til Raufarhafnarprestakalls. — OPróf. Ásmundur Guðmundsson, séra Jakob Jónsson, séra Birgir Snæbjörnsson, Æsustöðum og séra Björn Jónsson í Keflavík vcrða allir vígsluvottar. — Við athöfnina þjónar fyrir altari scra Friðrik A. Friðriksson, pró- fastur í Húsavík og séra Björn .Tónsson í Keflavík. Hinn ný- vígði prestur mun svo flytja ræðu, en athöfninni lýkur með altarisgöngu. Prestastefnan verður sett í há- tiðasal Háskólans kl. 2 síðd. í dag. Biskup landsins mun þar flytja skýrslu um störf og hag Icirkjunnar á liðnu sýnodusári. ERINÐI Klukkan 5 flytja þeir fram- söugerindi um kirkjubyggingar- mál, séra Sigurður í Holti og séra Jakob Jónsson. -— í kvöld kl. 6 flytja þeir séra Sveinbjörn Högnason prófastur að Breiða- bólstað og séra Þorgrímur V. Sigurðsson að Staðarstað fram- söguerindi um prestsetrin. í kvöld kl. 8,20 verður svo opin- bort erindi flutt í Dómkirkjunni um kirkjuna og fræðslumálin og flytur það séra Árelíus Níelsson. Lýst eftir sjó- marmi i gær I GÆRKVÖLDI lét rannsóknar- lögreglan lýsa eftir 35 ára göml- um sjómanni, Magnúsi Ólafssyni, Ásabraut 15 í Keflavík. Ekki j hefur spurzt til ferða Magnúsar frá því 1. maí síðastl. Þann dag i kom hann í heimsókn til móður sinnar, sem býr á Eyrarbakka. Hann fór svo þaðan síðdegis sama dag með áætlunarvagni á- leiðis til Reykjavík. Hafi einhver orðið Magnúsar var eftir 1. maí, er sá beðinn að gera rannsóknarlögreglunni við- vart. — Magnús er einhleypur maður. f-kmes vann KR 4:0 ÚRSLITALEIKURINN í II. riðli Údandsmótsins í knattspyrnu fór fiam í gær milli Akraness og KR. Leikar fóru þannig, að Akur- nesingar unnu með 4:0. Skoruðu þeir sín tvö mörkin í hvorum hálfleik. Akranes keppir því til úrslita við það lið, sem efst verður í I. riðli, en það verður annaðhvort Valur eða Víkingur. Á FUNDI bæjarstjórnar í gær, var samþykkt að fela bæjarráði, að fjalla um kjörskrárkærur, kjördeildaskipun, skipun undir- kjörstjórna og því falið að á- kveða kjörstaðina í bænum við væntanlegar alþingiskosningar 28. þ. m. • RÆssta fh'gslys, sem orðið hefir TÓKÍÓ, 18. júní — í dag varð mcsta flugslys, sem orðið hef- 1 ir, er bandarísk vélfiuga hrap-1 aði í grend við Tókíó og 128 | manns fórust. Vélflugan var af Globemaster-tegund. Hrapaði hún rétt eftir flug- tak og stóð þegar í ljósum logum. Með henni voru 120 eða 121 farþegi, en áhöfn var 7 manns. Enginn komst af. Flestir voru farþegar banda- rískir hermenn, sem voru að fara úr leyfi til Kóreu. Annað stærsta flugslys, sem orðið hefir, varð í Washing- ton-ríki í desember í fyrra, er 87 fórust. Globemaster-fluga hrapaði þar einnig. I marz 1950 fórust 80 manns, er brezk farþegafluga hrapaði í Suður- Wales. — Reuter-NTB. Bæjarstjórn í sumarleyfi A FUNDI bæjarstjórnar í gær var samþykkt tillaga frá borgarstjóra þess efnis, að síðari fundur bæjarstjórnar í júlímán- uði og fyrri fundur í ágústmán- uði skuli báðir niður falla. Forseti íslands, Ásgeir Ásgeirsson, og forsætisráðherra, Stein- grímur Steinþórsson, ásamt stúdínunum tveimur fyrir framan styttu Jóns Sigurðssonar á Austurvelli, er forsetinn hafði lagt þar blómsveig. — Sjá frá hátíðahöldunum á bls. 6. (Ljósm. Mbl.: Ól. K. M.) Fyrirhugað að stofna hér félag lækna og presta Slík félög njóta vinsælda víða erlendis FYRIRHUGAÐ er að stofna nýtt félag hér á landi, sem vinna á að meiri samvinnu milli lækna og presta. Eru slík félög starfandi víða erlendis og hafa gefið góða raun. Verður stofnfundurinn hald- inn í 1. kennslustofu Háskólans n. k. sunnudagskvöld kl. 20.30 ög framhaldsstofnfundur n. k. mánudagskvöld kl. 20.30, einnig í 1. kennslustofu Háskólans. — í tilefni af þessari félagsstofnun hefúr tveimur mönnum verið boðið hingað til að skýra frá tilhögun og störfum hliðstæðra félaga erlendis. — Eru þeir báðir frá Dan- mörku, Dr. med. Jörgen Madsen, yfirlæknir við St. Hansen sjúkra- húsið í Hróarskeldu, og síra Willy Baumbæq. Sókn hert SAIGON, 18. júní: — Franski hershöfðinginn, sem nýskipaður } er I Indó-Kína, hefir tilkynnt, að hann muni beita sér fyrir að reka styrjöldina með meiri at- orku eftirleiðis. Um 600 manns á HéraDsmóti Sjálfstæðismanna ú Breiðabliki STYKKISHÓLMI,- 15. júní — Héraðsmói Sjálfstæðismanna í Snæfellsness- og Hnappadals- sýslu var haldið að Breiðabliki í Miklaholtshreppi, sunnudaginn 14. júní s. 1. og hófst kl. 4 e. h. — Hreppstjóri Miklaholtshrepps, Páll Pálsson, setti mótið með snjallri ræðu og stjórnaði því. Aðrir ræðumenn voru Gunnar Fundur í Gurði is.k. sniQDúdag SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN boðar til fundar í samkomuhúsinu í Garðinum sunnudaginn 21. þ. m. kl. 9 síðd. • ■Framsöguræðu flytur Ólafur Thors, formaður Sjálfstæðis- flokksins. ! Thoroddsen, borgarstjóri og Sig- urður Ágústsson, alþm. Var ræð- um þeirra tekið með miklum fögnuði. Skemmtiatriði voru þau, að Haraldur Á. Sigurðsson og Alfreð Andrésson fóru með gam- anþætti og gamanvísur, við mikla hrifningu áheyrenda. Norska kabarettsöngkonan, Jeanitta Melin söng, og var henni sér- staklega vel fagnað. Varð hún að syngja mörg aukalög. — Carl Billich lék á orgel og aðstoðaði hina skemmtikraftana. Lúðra- sveit Stykkishólms undir stjórn Víkings Jóhannssonar lék milli atriða. — Á eftir var dans stig- inn til klukkan 1. Hljómvseit Stykkishólms lék. Mótið fór hið bezta fram og var hið ánægjulegasta í alla staði. Er talið, að um 600 manns hafi sótt það. —Á. H. FUNDUR HALDINN í FYRRA ' í fyrra var haldinn fundur presta og lækna til þess að ræða nánari samvinnu þessara tveggja stétta. Var síra Magnús Guð- mundsson í Ólafsvík aðal hvata- maður þessa fundar. Á fundi þessum var kosin undirbúnings- nefnd undir væntanlega félags- stofnun lækna og presta og áttu þeir sæti í henni, Kristján Þor- varðsson, læknir, Alfreð Gísla- son, læknir, síra Magnús Guð- mundsson og síra Jakob Jónsson. SKIULÖGÐ SAMVINNA Að vísu hefur nokkur sam- vinna milli lækna og presta átt sér stað hérlendis, en hún hefur verið með öllu óskipulögð, og þykir m. a. af þeim ástæðum nauðsyn bera til slíkrar félags- stofnunar, sem hér um ræðir. — Skýrðu hinir dönsku gestir fréttamönnum svo frá, að slík samvinna ætti miklu fylgi að fagna á hinum Norðurlöndunum, og væri megintilgangurinn með henni sá að stuðla að auknum kynnum með prestum og lækn- um, gefa þeim tækifæri til að miðla hver öðrum af þekkingu sinni og sérmenntun, svo að sjúklingar og aðrir gætu notið góðs af, og vera í stöðugu og nánu sambandi við stéttarbræð- ur sína erlendis. 19. júní kaffi í Hafnarfirði HAFNARFIRÐI — Eins og und- anfarin ár hefir Húsmæðraskóla- félag Hafnarfjarðar á boðstóln- um kaffi í dag 19. júní. Félagið hefir haft þennan hátt á 19. júní ár hvert til styrktar hinum fyr- irhugaða húsmæðraskóla í Firð- inum. — Selt verður kaffi og ljúffengar heimabakaðar kökur í Sjálfstæðishúsinu allan daginn. Eru Hafnfirðingar hvattir til að líta inn og fá sér kaffisopa og styrkja þannig félagið. — G. Sjálfstæðisflokksins KOSNINGASKRISTOFUR Sjálfstæðisflokksins í Rvík eru í Sjálfstæðishúsinu. Sími 7100 og í VR, Voriarstræti 4 (utankjör- staðakosning. — Símar 7100 og 2938. Skrifstofurnar eru opnar frá 9 árd. til 10 síðd. daglega. Utankjörstaðakosningin fer fram í skrifstofu borgarfógeta i Arnarhvoli (nýja húsinu) frá 10 til 12, 2 til 6 og 8 til 10 dag hvern. Á öðrum stöðum á landinu er kosið hjá hreppstjórum, sýslumönn- um og bæjarfógetum. Þeír kjósendur, sem búast við að dvelja fjarri lögheimilum sín- um á kjördag, eru minntir á að kjósa sem allra fyrst. LISTI SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS ER D-LISTINN.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.