Morgunblaðið - 19.06.1953, Page 12
12
MORGU1SBLAÐ1Ð
Föstudagur 19. júní 1953
Oviliandi kom ungfrúin upp
um þvætfing b!aí
LÆRDÓMSDEILD Verzlunar-
skóla íslands var slitið 16. júní
af skólastjóra, Jóni Gíslasyni að
viðstöddum kennurum, nemend-
um og allmörgum gestum. Að
þessu sinni voru brautskráðir 16
stúdentar. Hlutu 9 1. einkunn, en
7 hlutu 2. einkunn. Hæstu eink-
unn í stúdentsprófi hlaut Örn
Arnar 1. 7,31 (eftir Örsteds eink-
unnarkerfi). Önnur varð Anna
Soffía Sturlaugsdóttir með 1.
einkunn 7,05. Þriðji varð Þor-
varður Alfonsson frá Hnífsdal, 1.
7,00. Sérstaklega athyglisvert
námsafrek má það teljast að Örn
Arnar hlaut ágætiseinkunn í fjór-
um erlendum tungumálum: —
latínu, þýzku, ensku og frönsku.
Nú skal greina nöfn hinna nýju
stúdenta.
Anna Soffía Sturlaugsdóttir,
Alfþór Brynjar Jóhannsson
Bergur V. Jónsson
Guðjón Þorvarðsson
Guðlaugur Sæmundsson
Guðmundur Gíslason
Halldór Sigmundsson
Hervör Hólmjárn
Sigurður Asmundsson
, Sólrún Kjartansdóttir
Þorkell Valdemarsson
Þorvarður Alfonsson
Þórir S. Gröndal
Þórunn B. Gröndal
Örn Arnar
Emil Pálsson (utanskóla).
Örn Arnar, sem hæstur var á
stúdentsprófi, hlaut bókaverð-
laun frá skólanum, auk þess
hlaut hann bókaverðlaun frá
þremur félögum hér í bæ: Alli-
ance Francaise, Anglia og
Germania. Anna Soffía Sturlaugs
dóttir og Þorvarður Alfonsson
hlutu einnig bókaverðlaun frá
skólanum. Að lokum ávarpaði
skólastjórinn hina nýju stúdenta
og mælti til þeirra nokkur hvatn
ingar- og árnaðarorð. Mættir
voru við þessa athöfn nokkrir
fulltrúar þeirra nemenda, sem
brautskráðir voru fyrir 40 árum.
Hafði herra Teitur Þórðarson orð
fýrir þeim. Færðu þeir skólanum
að gjöf málverk af Ólafi G. 'Syj-
ólfssyni, sem var fyrsti skóia-
Stjóri Verzlunarskólans, frá 1905
til 1915. Að lokum þakkaði skóla-
stjórinn fyrir þessa veglegu gjöf
og benti í því sambandi á, hve
ræktarsemi gamalla nemenda sé
þýðingarmikil fyrir viðgang
skólans._____________
Norðlenzkur kvenna
kór á ferð hér
NORÐLENZKUR kvennakór er
nú á ferð hér um Suðurland. —
Kórinn er úr kvennadeild SVÍF
á Akureyri. Söngstjóri er Áskell
Snorrason, en frk. Sesselja Eld-
járn er formaður deildarinnar og
fararstjóri.
f gærdag söng kórinn á Akra-
nesi, en í kvöld syngur hann í
Reykjavík í Gamla Bíói og hefst
söngskemmtunin kl. 7 e. h. Að-
göngumiðar eru seldir hjá Sig-
fúsi Eymundssyni í dag og eftir
kl. 6 í Gamla Bíói. Er vonast til
að menn og konur, er unna slysa-
varnarmálum, fjölmenni.
Á laugardaginn fer kórinn um
Hafnarfjörð austur að Selfossi og
þar verður sungið um kvijJdið.
Komið verður við í Stranda-
kirkju. — Á sunnudag fara svo
slysavarnarkonur úr Reykjavík í
skemmtiferð með norðlenzku
konunum að Gullfossi og Geysi
og um Þingvöll heim. Farmiðar
að skemmtiförinni eru seldir í
verzl. Gunnþórunnar Halldórs-
dóttur í Hafnarstræti.
Aðalbraufarréftur
Borgartúns
Á FUNDI bæjarstjórnar í gær,
var samþykkt að aðalbrautar-
réttur skuli settur um Borgar-
tún, en áður hafði umferðar-
málancfnd gert samþykkt þess
efnis að mæla með því við bæj-
aryfírvöldin. — Munu þessi for-
réttindi umferðarinnar um göt-
una verða þannig á mótum Borg-
artúns og Laugarnesvegar, þar
sem Sundlaugavegurinn kemur
í beinu framhaldi af Borgartúni,
að umferð um Sundlaugaveg og
Borgartún hafi forgangsrétt.
Umræðulsusl sam-
þykkt í bæjsrstjórn
, UMRÆÐULAUST, með 10 atkv.
! gegn 5 (atkvæðum kommúnista
og Framsóknarfulltrúans) voru
tillögur bæjarráðs í sambandi við
mál Kolsýruhleðslunnar h.f. sam-
þykktar á fundi bæjarstjórnar í
gærdag.
Fyrir skömfnu var gerð hér í
blaðinu ítarlega grein fyrir til-
lögum bæjarráðs, en þær voru á
þá leið, að það taldi ekki unnt að
svipta fyrirtækið lóðinni. En jafn
framt var samþykkt að láta gera
leiksvæði milli Framnesvegar og
Seljavegar og halda lóð vestast
við Vesturgötuna opinni fyrst
um sinn.
Pjoðviljmn
meðgenpr
KEFLAVÍK, 14. júní: — Sagt |
var í frétt frá Keflavík, fyrir i
skömmu, að bifreiðar rússneska!
sendiráðsins væru að aka þjón-
um sínum um Suðurnesin og
einnig efni og tækjum til áróð-
ursstarfsemi þeirrar, sem MÍR
rekur nú í Keflavík.
„Þjóðviljinn“ reynir að sletta
svolítið úr klaufunum um leið og
hann staðfestir sannleiksgildi
þess, er»fréttin hér í blaðinu
greindi frá. — Að vísu telur
„Þjóðviljinn“ það ekki frétt-
næmt eða neitt, sem segja þurfi
frá, þó „starfsmaður frá rúss-
neska sendiráðinu komi á kvöld-
skemmtun, sem MÍR hélt í Kefla-
vík“.
Hverjir eru starfsmenn rúss-
neska sendiráðsins?
Undir það falla allir þeir, sem
sendiráðið skipuleggur til áróð-
urs fyrir Rússa og kommúnista
útibú þeirra hér, innan MÍR fé-
laganna.
Opinberar eru bifreiðar sendi-
ráðsins og aka þessu fólki um'
Suðurnesin.
Innan okkar lýðfrjálsa þjóðfé-
lags hafa þeir fullt leyfi til að
aka sínu fólki í sínum bifreiðum
eftir sinni vild — og við hinir,
sem ekki erum í þjónustu Rússa,
höfum líka fullt loyfi til að taka
eftir þessum svörtu fallegu bif-
reiðum.
Af hverju er „Þjóðviljinn"
svona viðkvæmur fyrir þessu? —
Eru bifreiðar rússneska sendiráðs
ins í einhverjum öðrum erindum
á Suðurnesjum, en að aka sínu
fólki? Vill „Þjóðviljinn" upplýsa
næst, hver annar tilgangur er
með þessu flakki rússnesku sendi
ráðsbifreiðanna hingað suður
með sjó?
Hinn nýi „sendiherra" Rússa
í Njarðvíkum, Oddbergur Eiríks-
son, Moskvafari, skýrir ef til vill
frá þessu á sama MÍR-fundinum
og hanr>. skýrir frá dómsmorð-
unum, læknapyndingunum og
öðrum álíka „menningartengsl-
um“, sem honum og öðrum MÍR
félögum þykja svo æskileg fyrir
ísland.
Helgi S.
BÆJARFULLTRÚI kommún-
ista, Nanna Ólafsdóttir, lét á
bæjarstjórnarfundi í gær hirta
blað flokks snís, „Þjóðviljann“.
Auðvitað óviljandi. — Forsaga
máls þessa er sú, að hinn 11.
júní síðastl. birti ,,Þjóðviljinn“
í gífurfréttastíl sínum fregn þess
efnis — yfir þvera forsíðuna —,
að Sjálfstæðisflokkurinn hefði
sent lögreglu til að hindra hús-
næðislaus hjón með 3 ung börn
í að leita hælis í húsi! Öll bar
þessi fregn „Þjóðviljans“ það
með sér að hún myndi vera
meira og mina á misskilningi
byggð eða hreinn uppspuni.
Fyrir fundi bæjarráðs daginn
eftir lá skýrsla um þessar „lög-
regluaðgerðir" frá Ólafi Svein-
björnssyni, skrifstofustjóra. —
Þar kemur allt annað fram, eins
og við mátti búast, um gang
þessa máls og aðdraganda þess.
Á fundi bæjarstjórnar í gær
fór kommúnistafulltrúinn, Nanna
Ólafsdóttir, fram á að bæjar-
Framhald af bls. 2
þess að rekja hina pólitísku ref-
ilsstigu krata og framsóknar, því
þar kynntumst við vinnubrögð-
um þeirra.
Upp úr forsetakosningunum
síðustu var mjög í alvöru um
það rætt meðal svokallaðra
vinstri sinnaðra framsóknar-
manna og kratabroddanna að
beita sér fyrir nýjum pólitískum
samtökum er stefnt væri gegn
aðalóvininum, Sjálfstæðisflokkn-
um. En til þess að þau samtök
gætu náð tilgangi sínum, var al-
veg nauðsynlegt að viðhafa
vinnubrögð kommúnista og hafa
meinlausa sakleysingja á oddin-
um, menn sem auðvelt væri að
blekkja með því að veifa fram-
an í þá skorinorðum greinum og
á yfirborðinu í anda sjálfstæðis-
manna.
Hin gömlu samtök Jónasar
Þorbergssonar og Hermanns Jón-
assonar hafa nú verið endurreist
og eru allir aðalmennirnir ó-
læknandi framsóknarmenn og
kratar, þeir sem ekki eru haldn-
ir miklu alvarlegri sjúkdómum.
Blaði þeirra, „Varðbergi", er
stjórnað af Jónösunum þremur
frá skrifstofu Vilhjálms Þór, en
alþýðuvinirnir Gunnar Hall og
Helgi Lárusson frá Klaustri,
vikapiltar Hriflujónasar í ára-
tugi, eru ábyrgðarmenn bak við
tjöldin.
Mun auðvelt að sanna um 80%
af efni blaðsins upp á þessa póli-
tísku vandræðagemlinga, sem nú
hafa í hótunum við minningu
hins mætasta sjálfstæðismanns,
Jóns heitins Þorláksjonar.
Vissulega munu fylgjendur
sjálfstæðisstefnunnar verjast
leyniskyttum framsóknar og
krata ekki síður nú en áður og
láta Jónasana þrjá um að dýrka
sína afguði í næði.
Gamall Þjóðólfsmaður.
stjórn fengi að heyra skýrslu þá
er skrifstofustjórinn hefði gefið
bæjarráði um mál þetta. — Varð
borgarstjóri við þeirri ósk ung-
frúarinnar. Las hann upp skýrsl-
una, sem er svohljóðandi:
Reykjavík, 12. júní 1953.
ÚT af grein í Þjóðviljanum þann
11. þ. m., um lögregluvörð við
íbúðina nr. 77 við Höfðaborg vil
ég taka þetta fram:
Fyrir skömmu síðan skýrði
leigutakinn í þessari íbúð mér
svo frá, að hann hefði fest kaup á
íbúð í húsinu nr. 87 við Hverfis-
götu en gæti ekki flutt í hana
þar sem þar væri fyrir sonur
seljandans með konu og þrjú
börn, sem yrði húsnæðislaus
vegna sölunnar. Fór leigutaki
fram á, að fólki þessu væri leigð
íbúðin í Höfðaborg 77 þegar í
stað svo að hann gæti flutt í
ibúð sína á Hverfisgötu 87. Enn-
fremur gat leigutakinn þess, að
hann hefði endurbætt íbúðina í
Höfðaborg og teldi sig eiga kröfu
til endurgjalds fyrir það, og væri
hinn væntanlegi leigutaki fús til
að greiða fyrir endurbæturnar
eins og upp væri sett.
Ég svaraði þessari málaleitun
neitandi og taldi útilokað, að
bærinn gæti fallist á að leigja
Höfðaborgaríbúð fólki, sem yrði
húsnæðislaust vegna þess að fað-
ir væri að selja íbúð ofan af syni
sínum og fjölskyldu hans.
IJm svipað leyti kom sonur
húseigandans hingað við annan
mann með sömu málaleitun og
fékk sömu svör. — Hafði hann
þá í hótunum um að flytja inn
í íbúðina án leyfis bæjarins.
Seint að kvöldi þess 9. þ. m.
bárust mér fregnir af, að verið
væri að flytja búslóðir milli
Höfðaborgar 77 og Hverfisgötu
87 og að sumir af íbúum í Hverfis
götu 87 væru gengnir til náða
í Höfðaborgaríbúðirini.
Ég gerði þá samstundis ráð-
stafanir til, að götulögreglan
hindraði frekari flutning þá um
nóttina og bað um, að lögreglu
vörður yrði látinn gæta íbúðar-
innar til næsta dags er fógeta-
réttur tæki við málinu.
Ráðstöfun þessa taldi ég svo
sjálfsagða, að ég hafði ekki sam-
ráð við neinn um hana.
Virðingarfyllst,
Ólafur Sveinbjörnsson.
SKiPAÚTGeRÐ
RIKISINS
vestur um land í hringferð hinn
25. þ.m. Tekið á móti flutningi
til áætlunarhafna vestan Þórs-
hafnar í dag og 4 mánudag. —
Farseðlar seldir á þriðjudag.
„Skaftfei!inyur“
til Vestmannaeyja í kvöld. Vöru-
inóttaka daglega.
Esja
M A R K Ú S Eftir Ed Dodd 6*—?
oh, mo... m rrrr m
EVEN MARCIEO f ;
r HAO A G! K L. J
ONce-euT síte ]
MAPP'.ED AíiOTMF.O |
1) — Frank er dásamlegur sinni giftur. Ég var einu sinni
drengur, Valborg. Og mér þykir lofaður stúlku, en hún giftist
mjög vænt um hann. j öðrum manni.
2) — Áttu nokkur börn, 3) — Elskaðir þú hann mikið?
Markús? Nei, ég er ekki einu Já, Valborg. Ég er meira að
segja hræddur um, að ég elski
hana mjög heitt enn.
4) — Þú hlýtur að finna ein-
hverja aðra.
— Ég efast um það, Valborg.
Ég er nefnilega einn af þeim
mönnum, sem ekki elskar nema
eina konu.