Morgunblaðið - 21.06.1953, Síða 11
Sunnudagur 21. júní 1953
MORGUNBLAÐIÐ
M
17 júní hátíðahöld á SelfossL
SELFOSSI, 18. júní. — Hátíðahöld fóru hér fram í gær á Þjóð-
hátíðardeginum. Hófust þau með skrúðgöngu. Samkoma var í
Tryggvagerði og guðsþjónusta var haldin. Þá var keppni í iþrótt-
Um og skemmtun um kvöldið. Öll hátíðahöldin fóru hið bezta
fram og voru öllum, bæði hátíðarnefnd og þátttakendum til sóma.
Kl. 13,30 safnaðist fólk saman
á torginu við Selfossbíó til að
taka þátt í skrúðgöngu um þorp-
ið. Fyrstir í skrúðgöngunni gengu
íþróttamenn með ísl. fána, þá
kvenskátar, mikill fjöldi barna og
fullorðinna og báru börnin litla
fána. Um 300 manns tóku þátt
í skrúðgöngunni. Kl. 2 hófst sam-
koma í Tryggvagarði, með setn-
ingarræðu Snorra Árnasonar,
fulltrúa, formanns hátíðarnefnd-
ar. Þá hófst guðsþjónusta, séra
Jóhann Hannesson kristniboði,
prédikaði. Þá flutti Sigurður I.
Sigurðsson, forstjóri, ræðu, Karla
kórinn Söngbræður og kirkjukór
Selfosskirkju sungu. Að því
loknu kom fjallkonan fram,
ásamt tveimur litlum stúlkum
í íslenzkum hátíðabúningi. Þá
var íánahylling og kórarnir
sungu þjóðsönginn. Fór samkoma
þessi hið bezt fram, enda hjálp-
aðist að hið ákjósanlegasta veður
og fagurt umhverfi. Er Tryggva-
garður, sem liggur í miðjum bæ,
nú orðinn tilvalinn staður fyrir
slíkar samkomur sem þessa,
vegna hins þroskamikla trjágróð-
urs síns, sem þó er ekki eldri
en 10 ára.
Eftir að háítðinni lauk um kl.
15,30, var drukkið kaffi í veit-
ingasal Selfossbíós, en þar seldu
kvenfélagskonur á staðnum kaffi
til ágóða fyrir Selfosskirkju, sem
nú er í Bmiðum.
Kl. 5 hófst keppni í frjálsum
íþróttum á íþróttavellinum, poka
hlaup, reiptog milli Sandvíkur-
hrepps- og Selfossmanna, sem
endaði með sigri Selfyssinga og
að síðustu knattspyrnukappleik-
ur milli starfsmanna Mjólkurbús
Flóamanna og U.M.F. Selfoss.
Sigruðu U.M.F-menn eftir
skemmtilegan leik 4:1. Er þetta
fyrsti knattspyrnukappleikur, er
háður er á hinum nýja íþrótta-
velli.
Kl. 20,30 hófst skemmtun í Sel-
fossbíói með dagskrá, söng, sýnd
Selfosskvikmynd, keppt í skyr-
áti, við mikinn fögnuð áhorfenda,
síðan dans íil kl. 1. A.
Sinicníuhljémsveiiin
leikur annað kvöld
SINFÓNÍUHLJÓMSVEITIN
heldur tónleika fyrir styrktarfé-
laga Tóniistarfélagsins, annað
kvöld og þriðjudagskvöld í Þjóð-
leikhúsinu. Efnisskráin er nýstár
leg að því leyti að flutt verða
verk eftir tvö nútíma tónskáld,
forleikur að óperunni „Matthías
málari", eftir Paul Hindemith, en
hann er álitinn eitt mesta tón-
skáld sem nú er uppi, og „Hári
János‘‘-svítuna eftir urgverzka
tónskáldið Zoltán Kodály. Auk
þess er á efnisskránni Serenata
fyrir 12 blásturshlióðiæri og
kontrabassa eftir Mozart og
„Moldá“ eftir tékkneska tónskáld
ið Shiatana. — Ekkert af þessum
verkum hefur verið flutt hér áð-
ur. Hinn snjalli þýzki hljómsveit-
arstjóri' 'Hertnann Hildebrandt
stjórnar. —
Samsöngur karla-
kórasambands
Heklu á Akureyri
AKUREYRI, 16. júní. — Eins og
gert hafði verið ráð fyrir hófst
söngmót karlakórasambandsins
Heklu s.l. laugardag og er það
7. söngmót sambandsins. Var það
stofnað haustið 1934.
Söngur kóranna á laugardag-
inn fór fram í Akureyrarkirkju
kl. 4 e. h. og svo aftur um kvöld-
ið kl. 9.
Karlakórarnir sem sungu nú
voru Karlakór Mývetninga, söng-
stjóri Jónas Helgason, Karlakór
Reykdæla, söngstjóri Páll H.
Jónsson, Karlakórinn Þrymur á
Húsavík, söngstjóri Sigurður
Sigurjónsson, Karlakórinn Heim-
ir í Skagafirði, söngstjóri Jón
Björnsson, Karlakórinn Geysir,
Akureyri, söngstjóri Ingimundur
Árnason, Karlakór Akureyrar,
söngstjóri Áskell Jónsson.
Alls voru söngmennirnir um
200 að tölu. Einsöngvarar voru
Egill Jónasson, Stefán Þ. Jóns-
son, Jóhann Konráðsson, Eiríkur
Stefánsson, Eysteinn Sigurjóns-
son og Pétur Sigfússon. — Hver
kór söng 2—3 lög undir stjórn
síns söngstjóra. Auk þess sungu
kórarnir 10 lög sameiginlega og
skiptust þá söngstjórarnir á um
að stjórna þeim og auk þeirra
þrír fyrrverandi söngstjórar, þeir
séra Friðrik Á. Friðriksson, Ás-
kell Snorrason, tónskáld og Sig-
urjón Pétursson.
Þau lög, sem kórarnir sungu
sameiginlega voru eftir þessa
höíunda, Sigfús Einarsson, Björg-
vin Guðmundsson, Sigurð Þórð-
arson, Jóhann Ó. Haraldsson, Pál
H. Jónsson, Sigvalda Kaldalóns,
Reissiger og Sveinbjörn Svein-
björnsson. — í lok samsöngsins
sungu karlakórarnir sameigin-
iega þjóðsönginn.
Aðsóknin að samsöngnum var
ágæt og þótti söngurinn takast
vel. Um kl. 11 f. h. á sunnudag
var haldið til Skagafjarðar og
sungið að Varmahlíð og á Sauð-
árkróki. — H. Vald.
56 þús. lönmnar-
veikisjúklingar
LUNDÚNUM 20. júm. — I
skýrslu Alþjóðaheilbrigðis-
stofnunarinnar er frá því
skýrt, að lömunarveikisjúkl-
ingum hafi fjölgað um helm-
ing á síðasta ári (1952) sam-
an borið við næst liðið ár á
undan.
★
Voru þá 32 þús. lömundar-
veikisjúklingar í Evrópulönd-
unum, en þau lönd, sem eink-
um urðu fyrir barðinu á þess-
ari skæðu veiki, voru Dan-
mörk, Holland og Vestur-
Þýzkaland. Einnig má geta
þess, að tala lömunarveiki-
sjúklin.ga í Bretlandi jókst um
helming á þessu tímabili.
★
Hvergi er lömunarveikin þó
eins útbreidd og í Bandaríkj-
unum, en þar hefur hún gert
geysilegan usla. Á s.I. ári
voru 56 þús. lömunarveiki-
sjúklingar þar í landi.
— NTB-Reuter.
Sjállslæéismenn!
SJÁLFSTÆÐISMENN, sem
vilja vinna við skriftir í sjálf-
boðaliðsvinnu í dag, eru beðn-
ir að hafa samband við skrif-
stofu flokksins, sími 7100.
99
Islendingnr verðn nð vinnn
iA
Ræfi við F. Köhler landliðsþjálfara um knallspyrnu
S. L. 10 daga hefur valinn
hópur austurrískra knatt-
spyrnumanna verið við æfing
ar á glæsilegu og ágætu
íþróttasvæði um 80 km utan
Vínarborgar. Menn þessir eru
í sumarleyfi sínu, og munu
dveljast þarna í 14 daga und-
ir ströngum aga. Síðan ferð-
ast þeir norður á bóginn og
leika landsleik í knattspyrnu
við íslendinga mánudaginn 29.
júní n. k.
Mennirnir sem valdir hafa ver-
ið til landsleiksins við ísland
eru ágætir knattspyrnumenn,
sagði Franz Köhler, hinn austur-
riski landsliðsþjálfari íslendinga,
sem dvaiið hefur hér um tæpl.
3 mánaða skeið, er tíðindamað-
ur Mbl. ræddi við hann á dög-
unum.
— Ég þori að fullyrða, hélt
hann áfram, að austurríska liðið,
sem hingað kemur er sterkara
en lið það er mætti á Ólympíu-
leikjunum fyrir Austurríki. Af
þeim 17 knattspymumönnum
sem hingað til lands koma eru
12 „erster ltlasse" leikmenn.
Leikmenn í þessum flokki
knattspyrnumanna mundu leik-
menn hérlendis skoða sem nokk-
urs konar atvinnumenn, en sam-
kvæmt alþjóðareglum eru þeir í
hópi áhugamanna.
AUSTURRÍSKA LIÐIÐ
Franz Köhler dró upp blaða-
úrklippu með nöfnum hinna
austurríski leikmanna sem nú
eru við æfingar fyrir íslands-
förina. Þar eru tveir markmenn,
Gilly og Lindenberger, báðir í
„erster klasse“, 4 bakverðir.
Frich, Zorko, Kandler og Lam-
berger. Tveir þeir síðarnefndu
eru í „erster klasse“. Þá eru 5
framverðir, Colp, Fendler, Pus-
hnigg, Senokovitsch og Weiss og
9 framherjar, Baumgartner,
Böhme, Gollnhuber, Grohs, Halla
Kafer, Kölly, Praschak og Schind
lauer. Af þessum 19 mönnum
koma 17 eins og fyrr er sagt.
Fararstjórn verður skipuð þrem-
ur mönnum, Rauschner, vara-
formanni austurríska knatt-
spyrnusambandsins, Walch verk-
fræðingi og Hierlander, sem er
þjálfari liðsins.
Blaðið notaði nú tækifærið og
spurði Köhler frekar um knatt-
spyrnumál. Köhler er um fimm-
tugt og horfir því á knattspyrn-
una með augum hins reynda
manns, sem um áratugi hefur
ýmist leikið eða kennt knatt-
spyrnu. Hann tók snemma ást-
fóstri við knattspyrnuiþróttina,
náði miklum árangri, komst ung-
ur í landslið Austurríkis sem
markvörður og lék um langt ára-
skeið, unz hann slasaðist svo í
leik, að hann varð að yfirgefa
knattspyrnuvöllinn, — sem leik-
maður. I stað þsss að kenna íþrótt
ina, tók hann nú að kenna hana
og er talinn í fremstu röð aust-
urrískra þjálfara, hefur verið
eftirsóttur víða um lönd, farið
víða og allsstaðar náð árangri.
Það er þess vegna kannske eng-
in tilviljun að austurrísk blöð
taka það fram með feitu letri,
er þau rita um landsleikinn við
ísland: — Varið ykkur. — Köhler
er á íslandi.
FLJÓTIR AÐ LÆRA
— Hvert er álit yðar á íslenzk-
um knattspyrnumönnum?
■— í mínu samstarfi við þá,
finnst mér ég hafa orðið var við
það, ekki sízt, hve fljótir þeir
Franz Köhler.
eru að læra og hve námfúsir
þeir eru. Æfingar okkar hafa
gengið vel, þó fámennt hafi ver-
ið á sumum þeirra, en þeir sem
mæta ekki á réttum tíma, taka
ekki þátt í æfingunni.
Fyrirkomulagið á æfingum
hefði mátt vera betra. Með meiri
samvinnu forráðamanna félag-
anna í Reykjavík og á Akranesi,
hefði mátt fá betri félagslegan
anda í starfið. Náin kynni knatt-
spyrnumannanna og samfélag
þeirra jafnt á leikvelli sem utan
hans, eiga mikinn þátt í þeim
árangri sem næst. Frá mínum
bæjardyrum séð er ,félagspólitík‘
mjög hættuleg. Beztu knatt-
spyrnumennirnir verða að æfa
saman og æfa vel fyrir lands-
leikinn. Það starf sem þeir leggja
af mörkum, er unnið FYRIR
ÍSLAND og þegar tillit er tekið
til þess, er kappleikur milli
tveggja félaga hér heima auka-
atriði og ætti aldrei að geta
orðið til þess að stofna skipan
landsliðs í hættu. Þéss vegna
verður að stöðva félagaleiki hæfi-
legum tíma fyrir landsleik.
Allir knattspyrnumennirnir eru
jafn nauðsynlegir. „Stjarna“ er
nafn, sem ekki ætti að vera til.
Þeir eru allir jafnir og það lið,
sem er skipað jöfnum og góðum
mönnum sem treysta hver öðr-
um er vel skipað.
ÞJÁLFUNIN
— Hvernig hagið þér kennsl-
unni?
— Ég tek drengina bæði á úti-
aifingar og inniæfingar, skýri
fyrir þeim á töflu sóknar- og
varnaraðferðir. Ég hef reynt að
setja þá inn í hvernig austur-
rískir knattspyrnumenn leika,
hvérnig þeir haga sóknarleik og
varnarleik. Það er skylda mín,
þó að ég sé Austurrískismaður.
Gangi íslendingunum vel, er það
gott fyrir mig einnig, gangi þeim
illa, er álit mitt sem knattspyrnu-
þjálfari í veði.
UNGLINGARNIR
VANRÆKTIR
— Hvað finnst yður mest vanta
hér í sambandi við knattspyrn-
una?
— Það er að leggja meiri rækt
við unglingana. Hér eru þeir van-
ræktir meðan unglingar í öðrum
löndum eru taaldir nauðsynleg-
astir allra. Hvert lið í Austurríki
hefur á að skipa aragrúa ung-
lingaliða á ýmsum aldri og þar
er alltaf valið Unglingalandslið.
Það vantar og að gera knatt-
spyrnullífið allt umfangsmeira. í
borg, sem er eins stór og Reykja-
vík, þyrftu að vera fleiri félög
og á íslandsmóti þyrfti að vera
ekki færri en 10 lið sem kepptu.
FÉLÖGIN
— Hvað finnst yður um þau
knattspyrnuufélög, sem hér
leika?
— Lið Akraness og Vals eru að
mínu áliti í sama flokki. Þau eru
skipuð jöfnum og góðum leik-
mönnum, sem alltaf er hægt að
treysta. í næsta flokki er KR-
liðið, sem þó býr yfir þeim eig-
inleika, að geta gert stóra hluti.
Það félag er til fyrirmyndar um
félagsanda og samheldni kapp-
liðsmanna. Með það að bakhjarli
getur liðið oft komið á óvænt og
unnið stóra og óvænta sigra, þó
það þess á milli geti átt lélega
leiki. Loks má svo skipa Fram
og Víkingsliðinu í enn einn flokk.
Þau eiga hvorfchim sig örfáa ein-
staklinga, sem eru meginstyrkur
liðsins, sem að öðru leyti er fyllt
upp með ungum og óreyndum
leikmönnum.
8 DAGAR TIL STEFNU
— Hvernig viljið þér hafa
landslið íslands skipað?
- — Ég hef haft ágætt samstarf
við landsliðsnefndina um það mál
og meðal hennar verður það mál
vel rætt. Mín skoðun er sú, að
landsliðið eigi að vera ákveðið
minnst 8 dögum fyrir landsleik-
inn og á þeim tíma vil ég að liðið
leiki tvívegis við úrvalslið ann-
arra knattspyrnumanna. Það
yrði góð æfing fyrir liðið og síðan
mæta þeir Austurríkismönnunum
samstilltir og með sigurvilja,
leika í 90 mínútur FYRIR ÍS-
LAND.
A. St.
Góður árangur á
frjálsíþróllamóllnu
ÁRMANN og ÍR gengust fyrir
frjálsíþróttamóti s. 1. laugardag.
Fór fram keppni í 12 íþróttagrein
um. Árangur varð yfirleitt góður
og ágætur í sumum greinum,
enda góð veðurskilyrði. Helztu
úrslit urðu þessi:
100 m hlaup: Hilmar Þorbjörns
son, Á, 11,2 sek. — 400 m hlaup:
Guðm. Lárusson, Á, 49,5 sek. —
1500 m hlaup: (A-flokkur) Sig-
urður Guðnason, ÍR, 4:06,0 min.
— 110 m grindahlaup: Ingi Þor-
steinsson, KR, 15,6 sek. — 4x100
m boðhl.: Sveit Ármanns 45,0
sek. — Þrístökk: Daníel Hall-
dórsson, ÍR, 13,29 m. — Kúlu-
varp: Gunnar Húseby, 15,42 m.
— Spjótkast: Jóel Sigurðsson,
ÍR, 58,89 m. — Hástökk: Sigurð-
ur Friðfinnsson 1,75 m. Sleggju
kast: Þórður B. Sigurðsson, KR,
45,03 m. — Kringlukast: Þor-
steinn Löve, UMFK, 46,30 m. —
1500 m hlaup, B-flokkur: Slcúli
Skarphéðinsson, UMSK, 4:37,2
mín.
Kosningaskrifslofa
Kosningaskrifstofa Sjálfstæð-
isf lckksins . í Strandasýslu er hjá
Kristjáni Jónssyni í Hólmavík,
sími 15.