Morgunblaðið - 23.06.1953, Síða 7
Þriðjudagur 23. júní 1953
MORGUNBLAÐIÐ
Endurskoðun skettalayánna
hefiir strandað
S. L. SUNNUDAG innrammar Tíminn á fremstu síðu blekk-
ingarvaðal um afstöðu flokkanna til skattamálanna. Stefna
og afstaða Sjálfstæðismanna í þeim málum liggur ljós
fyrir og verður ekki hrakin.
★
1. Sjálfstæðisflokkurinn er eini flokkurinn, sem vill og
getur lækkað skattabyrðar landsmanna, ef hann fær meiri-
hluta á þingi. Það er fyrst og fremst vegna þeirrar megin-
stefnu Sjálfstæðisflokksins, að ríkið hætti hinum marg-
háttuðu afskiptnm sínum af málefnum borgaranna, sem hafa
sívaxandi útgjöld í för með sér, en lama athafnaþrá ein-
staklinganna.
Sjálfstæðismenn vilja afnám haftanna, styrkjalausan at-
vinnurekstur, jafnvægi í efnahagsmálunum, sem tryggir
blómlegt atvinnulíf og forðar frá atvinnuleysi.
★
2. A Alþingi 1951 var samþykkt þingsályktunartillaga frá
Sjálfstæðismönnum um heildarendurskoðun skattalöggjaf-
arinnar. Samkvæmt þeirri ályktun var ríkisstjórninni fal-
ið að ljúka þessari endurskoðun og leggja tillögur fyrir
síðasta Alþingi. Endurskoðunin hefur tafizt og strandað á
fjármálaráðierra Framsóknarflokksins.
★
3. Þegar sýnt þótti á síðasta Alþingi, að fjármálaráð-
herra myndi engar tillögur leggja fyrir þingið, fluttu Sjálf-
stæðismenn skattalagafrumvarp, sem tók til einstaklinga en
ekki félaga. Fól það í sér lækkun skatta á fjölskyldufólki
og lágtekjum og skattfríðindi í sérstökum tilfellum, svo sem
við stofnun heimilis.
★
4. I sambandi við lausn allsherjarverkfallsins í dag, lagði
bæjarstjórn Reykjavíkur undir forystu Sjálfstæðismanna,
sinn skerf til lausnar þeirrar deilu með því að ákveða við
álagningu útsvara stórkostlega hækkaðan persónufrádrátt,
skattfrelsi á lágmarkstekjum og fleiri'fríðindi almenningi
til handa.
Nú ætlar S.Í.S. að skjéta sér bak
við gervifélög sín í New York
Brask á heimsmælikvarða
ÞEIM spurningum Mbl. hvað gróði S.Í.S. af leigu skipsins
Perryville hafi numið miklu og hvert hann hafi runnið, er
enn ósvarað.
„Tíminn“ hefur algjörlega skotið sér undan að svara þeim.
Mbl. hefur upplýst að S. í. S. starfrækti tvö geríifélög í
New York, sem hafi það hlutverk að vera milliliðir fyrir
S. í. S. í farmgjaldabraski þess og hirða ágóða.
„Tíminn“ hefur eklti fengist til að gefa neinar upplýsingar
um þessa „erlendu aðila“, þrátt fyrir áskoranir Mbl.
Hér sést hluti fundarmanna við vígslu Sjálfstæðishússins á
Akranesi. —
Glæsilegt Sjálfslæishús
risiðafgrunni á Akranesi
VÍGSLA Sjálfstæðishússins á
Akranesi hófst s.l. sunnudags-
kvöld kl. 9 Sóttu hana á fimmta
hundrað manns. Hvert sæti var
skipað og margir stóðu frammi á
svölunum.
VERKIN LOFA
MEISTARANN
Jón Árnason formaður Sjálf-
stæðisfélagsins á Akranesi setti
samkomuna og stjórnaði henni.
Bauð hann' alla viðstadda vel-
komna, heimamenn og gesti og
lýsti síðan tildrögum og fram-
kvæmd þessarar myndarlegu
byggingar. Aðalverkstjórn og
umsjón með verkinu í heild ann-
aðist Jón Guðmundsson bygging-
armeistari. Fyrir málun hússins
hafa staðið málarameistararnir
Einar Árnason og Lárus Árnason.
Raflagnir og lýsingu rafvirkja-
meistararnir Ármann Ármanns-
son og Sveinn Guðmundsson,
múrhúðun Aðalsteinn Árnason
og Eiríkur Þorvaldsson. Pípu-
lagnir og uppsetningu hreinlætis-
tækja hefir annazt Þórður Egils-
son pípulagningameistari. Spegl-
ar og ýmislegt smálegt frá Gler-
slípun Friðjóns Runólfssonar.
Gluggatjöld, rúmfatnaður og
dúkar hafa að mestu leyti verið
saumað undir stjórn Sigríðar
Einarsdóttur saumakonu og allt
unnið í sjálfboðavinnu af félags-
konum og öðrum velunnurum
hússins.
Þakkaði Jón Árnason öllum,
sem lagt hefðu fram starfskrafta
sína í þágu hússins en það hefir
risið upp á ótrúlega skömmum
tíma eða tæpu misseri síðan haf-
izt var handa um byggingu þess.
Næstur tók til máls Pétur
Ottesen alþm. Valdi hann sem
kjörorð sjálfstæðisstefnunnar:
„Öryggi, frelsi, framkvæmdir“.
„Minnumst þess“, sagði Pétur,
„að sigur Sjálfstæðisstefnnunnar
ef sigur þjóðarinnar“.
Þá talaði næstur Bjarne Bene-
diktsson, dómsmálaráðherra. Hóf
hann mál sitt með því að flytja
kveðju frá formanni Sjálfstæðis-
flokksins, Ólafi Thors. Ræðan öll
rann frá brjósti Bjarna traust
sem stuðlaberg. Lofaði hann mjög
verðleika Péturs Ottesens og tók
undir hið ágæta kjörorð hans.
Næsti ræðumaður, Gunnar Thor-
oddsen borgarstjóri, tók mjög í
Framh. á bls. 12
Það virðist augljóst að SIS
hugsi ekki til að skila þeim
gróða, sem orðið hefur af Perry-
ville. Það er nú ríkjandi skoðun
meðal þeirra, sem fremst standa
í olíubraskinu hjá SÍS, að það
hafi verið hið mesta glappaskot
af SÍS að endurgreiða hagnað af
skipsleigu „Sabrína“ á sínum
tíma, heldur hefði SÍS átt að
standa sem fastast og skila ekki
neinu. — Nú á að viðhafa þessa
aðferð í sambandi við gróðann
1 af Perryville. Þar á engu að
' skila. Leppfélagið Union Gulf
| Inc. er að nafni til aðili að leigu-
1 samningnum en hitt leppfélagið,
Cosmotrade Inc. (Leifur Bjarna-
son, Agnar Tryggvason), tók á
móti greiðslunni fyrir skipið. Nú
á engin endurgreiðsla að fara
fram til kaupenda olíunnar held-
ur á að kyrrsetja hagnaðinn vest
ur í New York.
En hver fær raunverulega
hagnaðinn? Hvernig skiptist
hann á milli þeirra, sem að
braskinu standa? Trúlega verð-
ur „Tíminn“ tregur til að svara
þeirri spurningu.
í sambandi við hið síðasta sem
fréttst hefur af olíubraski SÍS
er rétt að rifja upp tildrög þess
að SÍS neyddist til að skila aftur
af því fé, sem það ætlaði að
stinga undan vestur í Ameríku
út af leigu „Sabrína". j
COSMOTRADE INC. KEMUR I
TIL SÖGUNNAR. '
Hinn 9. febrúar var skipið
„Sabrína" leigt til olíuflutninga
til íslands fyrir 3,93 dollara á
smálestina. Var þvi haldið
leyndu þar til 13. maí s.l. að samn
ingurinn um skip þetta væri
gerður fyrir milligöngu félags
nokkurs, sem héti Cosmotrade
Ins.
Hinn 16. febrúar sótti Olíufé-
lagið h.f. um gjaldeyrisyfir-
færslu frá Landsbankanum
vegna greiðslu flutningsgjalda á
brennsluolíum og skyldi upp-
hæðin, sem var 110 þús. dollarar
eða 1,8 millj. ísl. kr. greiðast til
Cosmotrade Inc. Tveim dögum
síðar eða 18. febrúar leigði Olíu-
félagið af Cosmotrade Inc. skipið
„Sabrína" til íslandsferðar, fyrir
8 dollara flutningsgjald á smá-
lestina og hinn 20. febrúar veitti
svo Landsbankinn umbeðið yfir-
færsluleyfi að upphæð kr. 1.795.
200.00.
Hinn 18. marz kom svo skipið
„Sabrína“ til íslands.
RANNSÓKN HEFST
Þann 16. april er hafin athug-
un á farmgjaldagreiðslum S.Í.S.
og þann 18. apríl staðhæfir Olíu-
félagið h. f. við verðgæzlustjóra
að það hafi greitt 8 dollara á smá-
lestina í flutningsgjöld með e.s.
Sabrína. Þann 27. apríl leggur
forstjóri Olíufélagsins h.f. fram
farmsamning við Cosmotrade
Inc., sem sýnir að farmgjaldið sé
8 dollarar og fullyrti, að þétta
væri hin raunverulega leiga fyrir
skipið. En daginn eftir fær verð-
gæzlustjóri í hendurnar erlend-
ar skýrslur, sem sýna að
„Sabrína“ var ekki leigt til ís-
landsferðar fyrir 8 dollara heldur
fyrir aðeins 3.93 dollara.
GRÓÐINN FLUTTUR FRÁ
COSMQTRADE Á REIKNING
S.Í.S. í LANDSBANKANUM
Nú tók málið að vandast fyrir
S.Í.S. og Olíufélagið h.f. Rann-
sókn var hafin á farmgjalda-
braskinu og það var orðið full-
komlega upplýst að leigan fyrir
Sabrína hafði verið talin miklu
hærri en hún raunverulega var.
Voru nú góð ráð dýr og var grip-
ið til þess að skila hinum leynda
hagnaði aftur. Samkvæmt
skýrslu, sem fulltrúi Framsókn-
armanna i Fjárhagsráði lagði þar
fram hinn 13. maí telur S.Í.S. sína
eign þann bagnað, sem orðið hafi
af leigu „Sabrína" og hafi sá
hagnaður veríð þann 6. maí „yfir-
færður til Landsbankans á venju-
legan hátt“, eins og það er orðað
í skýrslunni.
Þegar Jón ívarsson leggur
fram skýrslu sína í Fjárhagsráði
þann 13. maí er þetta ekki lengra
komið en svo að S.Í.S. staí\iæfir
að það eigi hagnaðinn, sem orðið
hafi af leigunni á „Sabrína" og
er ckki annað að sjá en að þessi
gróði hafi átt að lenda hjá S.Í.S.
hér heima úr því ekki þótti leng-
ur fært að fela hann vestur í
Ameríku hjá Cosmotrade Inc.
GRÓÐINN FLUTTUR FRÁ S.Í.S.
OG ENDURGREIDDUR
En það leið ekki á löngu áður
en þeim hjá S.Í.S. og Olíufélaginu
var ljóst, að þetta mundi ekki
vera nóg. Brask þeirra var af-
hjúpað til fulls og gagnvart al-
menningsálitinu og kaupendum
olíunnar var það ekki nóg að
flytja gróðann heim og skrifa
liann hjá S.Í.S. Nýtt skref var
þessvegna stigið og þann 15. mai
var viðskiptavinum Olíufélagsins
h.f. tilkynnt, að þeir fengju vevð-
lækkun á olíunni, sem kom með t
„Sabrína" sem næmi þeim gróða, j
sem S.Í.S. hafði neyðst til að
flytja heim og var tæpar 700 þús.
krónur.
Málið liggur því Ijóslega þann-
ig fyrir að e.s. „Sabrína" er raun-
verulega leigt fyrir 3.93 dollara
en ekki 8 dollara en ætlunin var
að láta mismuninn ,,hverfa“ vest-
ur í Ameríku. Þegar svo þessi
svikamylla varð öllum ljós af er-
lendum skýrslum, sem ekki var
unnt að véfengja var gróðinn
fyrst fluttur heim og loks greidd-
ur kaupendum olíunnar, þegar
engrar undankomu var auðið.
NÚ Á AÐ SKJÓTA SÉR BAK
VIÐ GERFIFÉLÖGIN í
NEW YORK
Nú munu herrarnir hjá S.Í.S.
telja að þeir komist undan því að
endurgreiða vegna leigunnar á
Perryville.
Þrátt fyrir það þótt leigan á því
skipi sé svo há að slíkt hefði
verið talið til stórtíðinda meðal
skipaleigjenda erlendis hefur
ekkert erlent rit um skipaleigur
birt neitt um leigumálann á
Perryville og hefur honum þann-
ig verið haldið leyndum. Það cr
aðeins samningurinn milli S.Í.S.
og leppfélags þess, sem upplýst
er um. Það hefur því enn ekki
verið upplýst, á sama hátt og var
um „Sabrína“ hve miklu það
nemur, sem S.Í.S. bæri raunveru-
lega að endurgreiða vegna Perry-
ville en þó er vitað að munurinn
hlýtur að nálgast 1 milljón ísl.
króna. S.Í.S. mun telja að nú sé
óþaríi að hafa sömu aðferðina og
við „Sabrína" heldur sé nú unnt
að skjóta sér bak við leppfélögin
og endurgreiða alls ekkert.
,,Tíminn“, sem er málgagn
S.Í.S. er óspart á að nota orðið
„braskari" um alla aðra en þá,
sem eru tengdir hinu pólitíska
samvinnuskipulagi. Á máli „Tím-
ans“ er allur einkarekstur eitt og
hið sama og brask. Nú hefur
„Tíminn" hitt sjálfan sig fyrir.
Nú er upplýst að sjálft S.Í.S. víl-
ar ekki fyrir sér að stofna lepp-
félög erlendis til að reka fyrir
sig milliliðastarfsemi og viðhafa
brask á heimsmælikvarða.
kosinn form. Bsnda-
Sjállstæðismentt, sem
ekki helur náðst til, en
vilja iána bíla á kjör-
dag, eru beðnir að gela
sig Iram í síma 710®
BANDALAG íslenzkra lists-
manna hélt aðalfund sinn 15.
þ. m. Fundur hafði frestazt,
vegna þess að beðið var eftir að-
rithöfundafélögin tvö raunda
sameinast, en það varð ekki.
Fráfarandi stjórn skýrði frá
stör-fum bandalagsins á síðasta.
starfsári og fjárhag þess. Tillög-
ur um endurskoðun á skipulag*
bandalagsins voru ræddar, og var
vísað til frekari athugunar t»V
hinnar nýju stjórnar. Formaður
og ritari, þeir Valur Gíslason,
leikari og Sigurður Guðmunds-
son arkítekt, báðust undan end-
urkosningu. Kosnir voru í stjórn,
einróma:
Formaður: Páll ísólfsson, org-
anleikari.
Varaformður: Valur Gísla-
son, leikari.
Ritari: Helgi Hjörvar, rithöf-
undun
Gjaldkeri: Helgi Pálsson, tón-
skáld.
Meðstjórnendur: Ásmundur
Sveinsson, myndhöggvari, frú
Sigríður Ármann listdansari og
Gunnlaugur Halldórsson, arkí-
tekt.
Fundurinn fól stjórninni m. ».
að vinna að því við ríkisstjórrv
og Alþingi, að felldir verði nið-
ur tollar á hljóðfærum til list-
ræns tónflutnings, hráefnum til
myndlistar o. fl. Þá samþykkt*
fundurinn áskoranir til ríkisút-
varpsins um skipti á tónlist við>
útlendar útvarpsstöðvar o. fl.
Fundurinn hyllti Ásmund
Sveinsson myndhöggvara í til-
efni af sextugsafmæli hans nú
fyrir skömmu.