Morgunblaðið - 11.07.1953, Qupperneq 12
Veðurútiif í dag:
Sunnan gola, dálítil rigning.
Happdrætfi
Háskólans. Sjá blaðsíðu 2.
Foryslumenn norrænna
vinnuveitendasamtaka koma
saman til fundar hér
Af íslands hálfu sifja fundinn tíu fulKrúar
Á SUNNUDAGSKVÖLD koma hingað með Gullfaxa, umboðs-
menn vinnuveitendasambanda á Norðurlöndum, því að hér skal
haldinn fundur samtaka norrænna vinnuveitenda fyrsta sinni.
Fundir samtakanna standa hér yfir dagana 13,—17. júlí. Kjartan
Thors, formaður Vinnuveitendasambands íslands og varaformaður
sambandsins, Guðmundur Vilhjálmsson, skýrðu fréttamönnum fra
þessu í gær.
ÍSL. SAMTÖKIN YNGST
Áður hafa slíkir fundir verið
háðir á hinum Norðurlöndunum
öllum, og hefir Vinnuveitenda-
samband íslands öðru hverju
sent fulltrúa á fundina síðan 1938
Vinnuveitendasamband íslands
er yngst á Norðurlöndum, stofn-
að 1934. Elzt er vinnuveitenda-
samband Danmerkur stofnað
1896. Hin Norðurlöndin koma svo
hvert af öðru. Formaður Vinnu-
veitendasambandsins gat þess, að
alla tíð, síðan sambandið var
stofnað, hefir það notið aðstoðar
og samvinnulipurðar bræðrafé-
laganna á Norðurlöndum, þótt
atbeina þeirra hafi aldrei verið
leitað í vinnudeilum.
LANDIH KYNNT
Auk fundarhalda, verður hin-
um erlendu gestum boðið að
skoða ýmsa markverða staði, svo
sem Þingvelli og Sog, þar sem
snæddur verður hádegisverður í
boði borgarstjórans í Reykjavík.
Heildarsamtök vinnuveitenda
njóta mikils trausts og álits á
Norðurlöndum, og eru talin ein
veigamestu samtök þar.
ÁRLEGIR FUNDIR
Hingað koma 3 fulltrúar ásamt
frúm, frá hverju vinnuveitenda-
félaganna á Norðurlöndum, Dan-
mörku, Finnlandi, Noregi og
Svíþjóð, en af íslands hálfu sitja
fundina 10 fulltrúar.
Fundir, sem þessir, þar sem
forustumenn samtakanna ræða
þau mál sem efst eru á baugi á
hverjum tíma, eru haldnir ár-.'
lega.
Auk skýrslna, sem gefnar eru
á fundum um gang mála í hverju
landi um sig, siðan síðasti fund-
ur var haldinn, eru rædd þau
mál, sem úrlausnar bíða í svip.
GESTIR VERÐA ÞESSIR:
Danmörk: Hans L. Larsen og
frú, H. Tuxen, Carl Plum og frú.
Finnland: Arno Solin, V. A. M.
Karikoski, Wilhelm Sjöberg og
frú.
Noregur: Christian Erlendsen,
ásamt dóttur sinni, frk. Sheila
Erlendsen, K. Meinich-Olsen og
frú, A. P. Östberg.
Svíþjóð: Axel Enström og frú,
Bertil Kugelberg og frú, Gullmar
Bergenström og frú.
Friðrik Ólafsson
í úrslitunum?
KHÖFN, 10. júlí — Það líður nú
að leikslokum í forkeppni á skák
mótinu hér. Búið er að tefla sjö
umferðir af níu. I sjöundu um-
ferð tapaði Júgóslavinn Ivkov
fyrstu skákinni á mótinu. Friðrik
Ólafsson gerði jafntefli í þessari
umferð á móti Percitz, Israel.
Boey sigraði Keller, Sviss og
Barda, Noregi, vann Reichel,
Austurríki, Mellberg sigraði
Siemms, Kanada og Panno, Arg-
entínu, vann Ivkov.
Eftir þessa umferð minnkaði
bilið milli Ivkovs og Friðriks, en
Jgóslavinn hefur nú 5 Vá vinning
og Friðrik 5. Þá kemur Panno
með 4V2, Barda 4, Keller og Per-
zits með 3V2, Boey 3, Reichel
2V2, Siemms 2 og Mellberg IV2.
Friðrik Ólafsson er eini kepp-
andinn í A-riðli, sem ekki hefur
tapað neinni skák enn. Má nær
fullvíst telja nú, að hann komist
í úrslitin um heimsmeistaratitil-
inn, en um hann keppa alls átta
lönd af þe'im 20, sem þátt taka
í keppninni.
Lokaskák Friðriks í riðlinum
verður við Ivkov, en í dag mun
áttunda umferðin verða tefld. —
Tefla þeir þá Friðrik og Keller.
Almennur kirkju-
fundur haldinn
í hausf
ALMENNUR kirkjufundur verð
ur haldinn í Reykjavík í haust
dagana 17.—19 okt. Verður hann
með sama sniði og að undan-
förnu.
Aðalmál fundarins verða að
þessu sinni: kristindómurinn og
fræðslumálin, ríki og kirkja og
kristniboð.
Hhorfendur dæma utm
gildi góðhestunna
KEYKJUM 7. júlí: — Hestamannafélagið Hörður heldur hinar ár-
legu kappreiðar sínar við Arnarhamar sunnudaginn 19. júlí. Sú
nýlunda verður þar upp tekin að leikskránni fylgir atkvæðaseðill
*em hver áhorfandi fær og greiðir hann síðan atkvæði um hver
góðhestanna sé beztur.
Áreiðanlegt er að þetta mun
vekja mikinn áhuga og jafnframt
spenning. Á þennan hátt fær
hver einstaklingur tækifæri til
I>ess að verða þátttakandi í því
tem fram fer.
Þá er það eins og venja er til
350 og 300 m. stökk, 250 m. skeið
*>g síðan einskonar nýliðahlaup þ.
e. fyrir hesta, sem ekki hafa ver-
ið reyndir á kappreiðum fyrr.
Útlit er fyrir að þátttaka verði
góð þar mæta væntanlega góð-
hestar þeirra bræðra Jóns í
Varmadal og Þorgeirs í Gufu-
nesi, auk annrra. Víst má telja
að góðhestar verði nú fleiri en
áður þegar þetta fyrirkomulag
er haft með dóma. — J.
'Séra ííristinn
iDaníe-s^oa iézt
í gæœorgun
Sr/ KRISTINN DANÍELSSON
præp. lion., sem mun hafa verið
annar elzti prestur landsins, and-
aðist í gær að heimili sínu, Útskál
um við Sucurlandsbraut, hér í
Reykjavík. Hsnn var 92 ára að
aldri. Séra Kristinn var biiinn að
vera lengi rúmfastur, en langt
frarn á efri ár hafði hann daglega
fótavist.
1 Séra Kristinn varð stúdent ár-
ið 1882, en fæddur var hann á
Hrafnafrili í Eyiafirði árið 1861.
í prestskapartíð sinni þjónaði
hann i Dýrafirði, Útskálum og
( prófastur í Kialarnesþingi, á ár-
unum 1913—1916, er hann lét af
prest.skap. Séra Kristinn átti sæti
á Alþingi á árunum 1914—’17 og
var þá forseti Sameinaðs þings.
Fjörmörgum opinber störf hafði
séra Kristinn með höndum.
j Séra Kristinn Daníelsson var
mikill áhugamaður um sálarrann
sóknir og starfaði mikið í Sálar-
rannsóknarfélagi Islands.
j Þótt séra Kristinn næði svo há-
um aldri og líkamskraftar hans
væru litlir orðnir, þá hélt hann
sálarþreki sínu óskertu.
Sviplegt slys á
Þórshöfn
ÞAÐ SVIPLEGA slys varð á Þórs
höfn á Langanesi s.I. þriðjudag,
að fjögurra ára drengur, Guðmund
ur Kristinn Ragnarsson, varð
undir bíl og beið bana.
Slys þetta varð á söltunarplan-
inu. Litli drengurinn mun hafa
verið þar að leik undir planinu,
en stungið höfðinu upp um smá-
gat, sem þar er, rétt í því, er bíll-
inn bar að. Litli drengurinn lézt
strax, er hann varð undir bílnum.
Röðul! kom með um
70 tonn í gær
HAFNARFIRÐI — Togarinn
Röðull kom af saltfiskveiðum í
fyrradag með um 70 tonn af
fiski. Hann var um 11 daga á
veiðum, og var sæmilegur afli
framan af, en dróg heldur úr hon
um síðustu dagana. Röðull fer
ekki fyrst um sinn á veiðar, því
að hann á að fara í slipp.
Togararnir Surprise, júní, Júlí
og Bjarni riddari hafa legið hér
um alllangan tíma. Og er enn
ekki ráðið á hvernig veiðar þeir
fara.
Vélbáturinn Hafnfirðingur,
sem er á reknetjaveiðum, kom í
gær með um 35 tunnur af síld,
sem hann fékk djúpt út af
Jökli. Aðrir reknetjabátar komu
ekki inn sökum lítils afla. — G.
Byrjað ú grafa fyrir Hjúkrun-
srskélar® við Landsspítalánn
Hairn á að rxma 1C9 hjúkrunarncma
SKAMMT frá Landsspítalanum er byrjað að grafa fyrir grunni
hins væntanlega Hjúkrunarkvennaskóla fslands, sem þar verður
í miklum og góðum húsakynnum.
Hjúkrunarkvennaskólir.n er *>
við það miðaður að þar verði
hægt að veita 100 hjúkrunarnem-
um skólavist í senn. Nemarnir
munu búa í heimavist skólans og
verður þessi hluti skólabygging-
arinnar nú byggður ásamt íbúð-
um þriggja kennara.
60 sklp komu II!
ÍSglufjarðar í gær —
iörundur með 1000
iunnur
SIGLUFIRÐI, 10. júlí: — í
dag komu hingað inn rúm-
lega 60 skip með síld, allt frá
100 upp í 1000 tunnur. Jörund
ur var efstur með 1000 tunn-
ur, en Garðar frá Rauðuvík
kom næstur með 600. Hin skip
in voru með mun minna. Öli
þessi síld verður söltuð.
í gær komu hér alls 12
skip með 7 þús. tunnur. Var
það allt saltað nema 550 tn,
sem voru frystar.
Ágætt veður var í kvöld og
fóru skipin út jafnóðum og
þau höfðu verið losuð.
— Guðjón.
□----------------------n
Seint í gærkvöldi bárust
þær fréttir frá Siglufirði, að
nokkur skip hefðu þá þegar
fengið nokkra síld, allt frá
200—400 tunnur. Kom síldin
nú fyrr upp en í fyrrakvöld.
□-----------------1----□
Grunnflötur hússins verður
alls um 700 ferm. í skólanum
verða þegar hann er fullgerður,
tvær stórar kennslustofur, fyrir-
lestrasalur, rannsóknarstofa,
kennslueldhús, bókasafn og lestr
arsalur, þá verða dagstofur, borcS
salur og fleira.
Nokkur hluti byggingarinnar
verður tvær hæðir á kjallara, en
aðalálman verður þrílyft. Teikn-
ingar að Hjúkrunarkvennaskól-
anum hafa verið gerðar hjá húsa
meistara ríkisins, Einari Erlends-
syni.
Hæstu \mnin»-
arnir á ^/4-rniða
í GÆR var dregið í 7. flokki
Happdrættis Háskólans. I þessum
flokki eru 752 vinningar, alls kr.
392.200,00.
Hæztu vinningarnir þrír komu
nú allir á fjórðungsmiða og svo
einkennilega vildi til, að hæsti
vinningurinn, 25.000 krónur og
þriðji hæsti vinningurinn 5.000 kr.
komu á miða sem var hjá sömu
umboðsmönnum og efsti vinning-
urinn.
25.000 kr. vinningurinn kom á
M-miða nr. 21.633. Einn þeirra
var hjá Guðm. Gamalíelssyni, ann
ar hjá Marenu Pétursdóttur, sá
þriðji á Hólmavík og fjórði aust-
ur á Hvolsvelli. 10.000 kr. vinn-
ingurinn kom á 14-miðann nr.
2177. Tveir miðanna eru. hjá
Mareni Pétursdóttur og hinir tveir
hjá Arndísi Þorvaldsdóttur. Þá
kom 5.000 kr. vinningurinn á 14-
miðann nr. 21645.
Frá jþiitgi norrænno bá
lásindamaniDa í Höin
Skyndiviðlal við Guðmund á Hvanneyri
GUÐMUNDUR Jónsson skóla-
stjóri á Hvanneyri er nýkominn
heim frá þingi norrænna bú-
vísindamanna, sem haldið var í
Kaupmannahöfn 29. júní til 2.
júlí. Á þessu þingi voru saman-
komnir rúmlega 600 fulltrúar frá
öllum Norðurlöndunum.
ÍSLENZKU FULLTRÚARNIR
íslenzkir fulltrúar á þinginu
voru auk Guðmundar, þeir Árni
G. Eylands stjórnarráðsfulltrúi,
Gunnar Árnason skrifstofustjóri,
Runólfur Sveinsson sandgræðslu-
stjóri, Gísli Kristjánsson ritstjóri
og Sturla Friðriksson magister.
Guðmundur skýrði svo frá að
þingið hafi verið opnað 29. júní
í hinu nýja ráðhúsi Frederiksber.
Próf. Tovborg-Jensen setti þing-
ið. Forsætisráðherra Dana, Erik
Eriksen flutti ávarp og próf.
Bondorff hélt aðalræðuna.
MÖRG ERINDI FLUTT
Eftir það skiptist þingið niður
í 10 deildir. Komu þær saman
í búnaðarháskólanum og voru
fleiri og færri erindi ílutt dag-
lega í hverri deild. Þarna komu
saman, sagði Guðmundur, helztu
fræðimenn Norðurlandanna á
sviði landbúnaðarins. Skiptust
þeir á skoðunum og auk þess er
viðkynningin alltaf mikils virði
á svona fundum.
Eftir fundinn voru farin nokk-
ur ferðalög um Danmörku til
kynningar á landbúnaði þjóðar-
innar. Merkilegt var einnig, seg-
ir Guðmundur skólastjóri, að
vera viðstaddur hin miklu árlegu
landbúnaðarsýningu Dana á
Bellahöj. Það er í útjaðri borg-
arinnar og er þar aðallega sýnt
búfé og landbúnaðarvélar.
ÁVÖRP ALLRA
NORÐURLANDANNA
Tvær veizlur voru haldnar,
önnur á Vivax og hin í Hilleröd.
Voru um 900 manns samankomn-
ar í þessum gildum. Á annarri
þeirra fluttu fulltrúar allra Norð-
urlandaþjóðanna erindi og talaði
Árni G. Eylands fyrir okkar
hönd, sagði Guðmundur að lok-
um.