Morgunblaðið - 18.07.1953, Page 8
ttíORGUNBLAÐIÐ
Laugardagur 18. júlí 1953
Æskuiýðslieimili
H$N forna sáðkornslíking Nýja-
tgstamentisins hlýtur að standa
glöggt fyrir hugskotssjónum
allra þeirra, er einhverja hug-
mynd hafa um fjársjóðu Biblí-
unnar. Líkingin nær æ víðar, og
rrfpnn eru löngu hættir að binda
h$na við ákveðin svið lífsins. —
Mfcnnum verður það ljósara með
hýerjum deginum, sem líður, að
ti} góðrar uppskeru þarf alltaf
og alls staðar góðan, vel undir-
býinn jarðveg. Allt það, sem
fijamtíð skal í, verður að vaxa í
gijfum jarðvegi.
•„Æskan er framtíð þjóðarinn-
aij“, hrópa menn á háum stöðum
oi þurfa þó ekki ýkja mikía
sdeki til.. En staðreynd er það,
aq vinna þarf af alhug að heill
hennar, ef við viljum eiga heil-
bíigða æsku og þar með hrausta
þióð.
Œn menn eru ekki alltaf sam-
rríála um aðferðirnar til að undir
bíia jarðveginn, sem sáðkorninu
slíal sáð í. Ýmsar fagrar hug-
sjpnir hafa aldrei orðið að veru-
leáka vegna skammsýni þeirra,
erf með völdin hafa farið á hverri
tíð.
(Nú eru liðin þó nokkur ár síð-
a4 hugmyndin um allsherjar
æ^kuheimili í Reykjavík var
b<$rin fram. Hún hefur átt erfitt
uýpdráttar, en fyrir óbilandi
þijautseigju forystumanna þessa
m£ls eru framkvæmdir þó hafn-
4-
(En þratt fyrir það, er enn
rdynt að drepa þetta mál, og ríð-
ur' nú á að Reykvíkingar og eins
þjóðin öll, skipi sér saman um
þ.essa göfugu hugsjón og geri
hana að verídeika, veruleika,
sem vex við hverja raun.
Æskulýðshöllin eða æsku-
heimilið, eins og ég vil kalla það,
á skilið að verða óskabarn þjóð-
arinnar allrar. En þar sem mál
þetta hefur fengið nokkurn and-
byr ,mun ég reyna að færa rök
fyrir máli minu.
Þó skulum við fyrst gera okk-
ui; ljóst, hvað í æskuheimilinu
á |að vera. Þar á fyrst og fremst
að rísa stór íþróttasalur og
skautasalur. Þörfin fyrir slíkar
byggingar er nú svo brýn orðin,
að um þetta eru allir sammála.
Þ$ssa sali mætti einnig nota til
hlpómleikahalda, t.d. þegar stórar
hljómsveitir heimsækja landið,
og’ hefur verið tekið tillit til slíks
í úppdráttum að byggingunni.
En síðan á að rísa stórt tóm-
stundaheimili, sem á að geta
sameinað innan sinna veggja allt
þáð sem unglingar vilja eyða
tómstundum sínum í og heilbrigt
Fallegar hendur þurfa sér-
lega góða hirðingu. — Séu
hendurnar blá-rauðar, gróf
ar og þurrar, er bezta ráð-
ið, í hvert sinn þegar hend-
urnar eru þvegnar, að nota
RósóI-GIycerin. Núið því vel
inn í hörundið. Rósól-Glyce-
rin hefur þann eiginleika,
að húðin drekkur það í sig
og við það mýkist hún. Rós-
ól-GIycerin fitar ekki og er
því þægilegt í notkun. Mikil-
vægt er að nota það eftir
hvern handþvott, við það
verða hendurnar hvítar, húð
in mjúk og falleg. Er einnig
gott eftir rakstur.
Rósól-Glycerin
getur talizt. Og það, sem sýkzt
hefur af sjúklegum nautnum á
þar að fá að njóta sín, heilbrigt
og fagurt. Þarna á að verða alls-
herjar samkomustaður reyk-
vískrar æsku og miðstöð oð sam-
nefnari allrar æskulýðsstarfsemi
landsins.
En þá koma mótbárurnar og
þær helztu mun ég nú leitast við
að telja hér upp: Þetta verður
alltof stórt, það er miklu betra
að reisa smærri félagsheimili út
um bæinn. Svo þýðir lítið að tala
um að bæta skemmtanalífið,
segja sumir, þetta er aðeins fá-
nýtt hjal um fagra framtíð.
En ég vil nú segja það, að gam-
an væri nú að sjá þann bónda,
sem hamaðist við að byggja pen-
ingshús sín sitt í hverju túns-
horni. Heldur yrði það óburðug
útkoma.
! Félagsheimilin sem slík eru al-
gerlega ófullnægjandi, einkum
með tilliti til framtíðarinnar. —
Þar yrði allt ófullkomnara og
kotungslegra og svo yrðu þau í
heild sinni mun dýrari í rekstri
en æskuheimili á einum stað,
! sem fullnægði sem bezt kröfum
tímans.
Eftirtektarvert er það einnig,
að talsmenn smærri félagsheim-
ila í Reykjavík, eru einkum þeir
sem mest græða á skemmtunum
þeim, sem unga fólkið sækfr nú
— í neyð.
i Félagsheimilin hafa auk þess
ailtaf þá hættu í för með sér, að
þau auki félagsríg og klíkuskap
og mikil hætta er einnig á að
ýmsir verði þar útundan. Þetta
eru aftur á móti hlutir, sem ekki
koma til greina við æskuheim-
ilið.
Þá eru þeir einnig til, sem
segja, að þeim milljónum sem í
æskuheimilið fara, væri betur
varið með því að búa betur að
híbýlum heimilanna, sem unga
fólkið elst nú uþp á, en þeim
mönnum er fljótsvarað, því að
ekki er allt undir húsnæði komið
heldur aðstöðu til að rækta heil-
brigt félagslíf.
Nú vil ég hvetja alla unga
menn til að vinna þessu máli
framtíðarinnar allt. Við sjáum
hverju SÍBS fær áorkað með
samúð og stuðningi allra lands-
manna. Eins og allir vilja styðja
sjúka til sjálfsbjargar, þá hljóta
allir að vera fúsir til að leggja
sinn stein í vörðuna við veg
æskumannsins, ef ekki fyrir sitt
eigið barn, þá fyrir börn náunga
sinna og bræðra, því að andi
Krists skal alls staðar ríkja.
Við viljum reisa allsherjar-
heimili, þar sem andi Jesú Krists
ræður ríkjum — þar sem vinátta
og bróðurhugur einkenna starf
og leik — þar sem efla skal heil-
brigða sál í hraustum líkama,
þvi að þar verður vissulega heil-
brigð æska að hraustri þjóð. —
Með drenglund til dáða.
Þórir Stephensen, stud. theol.
Aukið viðskiptin!
Auglýsið í IWorgunblaðimi!
Steig á bensínið og
ók undir pál!
vörubíls
KEFLAVÍK, 14. júlí: — Á 11.
tímanum í gær var árekstur á
Faxabraut í Keflavík.
Áreksturinn varð með þeim
hætti, að vörubíllinn G-217 kom
akanc^i upp götuna. Þegar hann
kom á móts við hús nr. 3 var
fólksbifreið ekið þaðan af stað.
Kona, sem sat við stýri fólks-
bifreiðarinnar, mun hafa fipast,
þegar hún sá vörubílinn, svo að
i staðinn fyrir að stíga á heml-
ana, steig hún á benzíngjöfina
og ók beint undir pall vörubif-
reiðarinnar.
Fólkbifreiðin, sem er ný af
gerðinni De Soto ’53, skemmdist
furðu lítið. Eigandi hennar er
amerískur starfsmaður á Kefla-
víkurflugvelli. — Ingvar.
- Úr daglega lífinu
Framh. af bls. C
A þessari fróðlegu göngu okk-
ar höfum við sannfærzt um, að
hér ríkir þrifnaður og regla í
hvívettna. Við getum treyst
Mjólkurstöðinni. sem nú er að
hefja 5. starfsárið, að leysa hlut-
verk sitt tíl fullnustu, þ. e. taka
aðeins við góðri vöru og senda
hana enn betri frá sér.
Framhald af bls. 2
— Ég hef fallið þrisvar sinn-
um, segir Walther Alardi. í tvö
skiptin meiddist ég lítið, en í
þriðja skiptið náði ég ekki að
falla rétt og beinbrotnaði og
skrámaðist meira. Annars höfum
við ekki tíma til að vera hrædd-
ir. Allt gerist þetta í einni svip-
an og væri nokkuð hik eða tauga
óstyrkur á manni, þá væri slys
eða dauði vís.
MARGRA ÁRA ÆFING
Annars er það í sjálfu sér ekki
mikið erfiðara að standa á hönd-
unum upp í 8 metra hæð en
niðri á jafnsléttu. Við æfum okli-
ur jafnan á jörðinni. Mesti vand-
inn er í byrjun, þegar upprenn-
andi fjöllistamenn eru t. d. að
læra að standa á höndunum.
Þeir verða að ná fullkomnu val-di
yfir líkama sínum, svo þeir haíi
það algerlega á tilfinningunni
hvar þungamiðja hans er. Þann-
ig tekur það marga mánuði að
læra að standa á höndunum,
fyrst eins og flestir íþróttamenn
standa með boginn hrygg, siðan
tekur marga mánuði að æfa
handstöðu með beinan hrygg. Þá
tekur aftur marga mánuði að
komast yfir á það stig að geta
staðið á einni hendi o. s. frv.
KYNNA LANDIÐ
Auk þess, sem Þjóðverjarnir
sýna hér listir sínar, þá hafa þeir
mikinn áhuga fyrir að kynnsst
íslandi og þjóðinni. Hafa þeir
ljósmyndavélar með sér og munu
þeir birta myndir frá Islandi í
kunnum þýzkum myndatimarit-
um, en þannig hafa þeir áður
kynnt nokkur lönd fyrir þýzkurn
blaðalesendum.
um íþróttum verður á Akureyri
AKUREYRI, 17. júlí. — íslandsmótið í frjálsum íþróttum 1953,
verður haldið hér á Akureyri dagana 14.—17. ágúst n. k.
Fyrsta Super
Constellation
flugvél KLM
HOLLENZKA flugfélagið KLM,
hefur nú fengið fyrstu Super
Constellation farþegavélina. Er
það jafnframt fyrsta flugvélin
af þessari gerð, sem flugfélag í
Evrópu eignast, en KLM samdi
við verksmiðjuna um kaup á 13
slikum flugvélum.
Er hún kom til Schipolflug-
vallar í Amsterdam 29. júní s.l.,
var þessi glæsilega flugvél með
65 farþega innanborðs og hafði
flogið frá Bandaríkjunum, New
York, á 14 klst.
Mikill mannfjöldi fagnaði vél-
inni á flugvellinum.
Framhald af bls. 7
undir vængi þegar krýningu
drottnlngar var sjónvarpað. For-
mælendur benda á hversu millj-
ónir manna gátu notið þess, sem
fram fór, úr fjarlægð. Andmæl-
endur hinsvegar hafa notað sér
þann atburð, er amerísk einka-
stöð skaut auglýsingu um þef-
eyðandi lyf inn í krýningarsjón-
vafpið, rétt eftir að kórónan var
sett á höfuð drottningar. Sú aug-
lýsingastarfsemi mæltist ekki vel
fyrir í Bretlandi.
Nú hefir stjórnin ákveðið að
svæfa málið a. m. k. til hausts.
Og lítill vafi er á því að hún
verður ekkert sérstaklega áfjáð
að vekja það af blundi á ný.
Stjórn íþróttabandalags Akur-
eyrar hefur falið Knattspyrnu-
félagi Akureyrar að sjá um mót-
ið og annast nauðsynlegan undir-
búning þess. Er hann þegar haf-
inn og fer mótið fram á hinu
nýja íþróttasvæði Akureyrar,
neðrn Brekkugötu.
Laugardaginn 14. ágúst hefst
íslandsmótið kl. 8 um kvöldið.
Tilhögun mótsins verður sú að
keppt verður í flestum greinum
mótsins á laugardagskvöld og
sunnudag. Á mánudag og þriðju-
dag verður tugþrautarkeppnin,
3000 m hindrunarhlaup og 10 km
hlaup.
Olympíukvikmyndin frá leik-
unum 1952 í Helsingfors verður
sýnd.
Þátttöku skulu félög tilkynna
fyrir 2. ágúst n. k. til Haraldar
Sigurðssonar, Hafnarstræti 90,
Akureyri.
Presfar leystir
ur
BERLÍN, 16. júlí: — í byrjun
júní-mánaðar létu kommúúistar
handtaka fjölmarga presta lúth-
ersku kirkjunnar í landinu vegna
þess að þeir voru ekki nægilega
samvinnuþýðir við valdhafana.
Nú hafa menn fregnir af því að
sumum prestunum er sleppt úr
haldi. Hefur 17 prestum verið
sleppt úr haldi, en fjölmargir eru
þó enn í fangelsum. — dpa.
Morgunblaðið
er helmingi útbreiddara en
nokkurt annað íslenzkt blað.
Bezta auglýsingablaðið. —
Guð blessi alla þá, sem minntust mín á sjötugs afrræli
mínu með blómum, gjöfum, skeytum og heimsóknum.
Sigríður Benediktsdóttir,
frá ísafirði
nú á 6. deild Landsspítalans.
LOKAÐ
frá 18. júlí til 10. ágúst vegna sumarleyfa
Magnús Víglundsson, heildverzlun h.f.
Bi;æðraborgarstíg 7.
'—M A R K Ú S Eftir Ed Dodd
1) — Nú er aðeins einn dagur mjöðminni lengur. Það er þó róðurinn í gær. ! í að ..
þangað til ég sé Valborgu. | alltaf bót í máli. Annars geturl 3) -- Á meðan: Valborg, við 4) — Ég er hræddur um, að
2) — Mér líður ekki sérlega verið að þessi verkur hafi komiðjskulum vona að Markús komi í Frank litli þoli þetta ekki mikið
vel, en þó finn ég ekkert til í af því að ég hafi ofreynt mig við dag, að öðrum kosti er ég efinn lengur.