Morgunblaðið - 23.10.1953, Side 2

Morgunblaðið - 23.10.1953, Side 2
2 MORGUNBLAÐIÐ Föstudagur 23, okt. 1953 Læknisráð vikunna?: Nýrnasteinar oy drykkjuvenjur NÝRNASTEINAR myndast í J>eim hluta nýrans sem kallast nýrnaskálar (nyrebækkenet). Halda þeir kyrru fyrir þar ellegar þeir færast niður eftir þvaggöngunum og setjast þar að ellegar fara alla leið niður í blöðruna. í>ar geta þeir festst og ný stein- efni hlaðist utan á þá, svo að þeir stækka og geta orðið allt að því eins stórir og hænuegg. En steinarnir geta haldið áfram alla leið út um þvagrásina og það gera þeir oftast. Ef nýrnasteinn heldur lengi kyrru fyrir í nýrnaskálum, og verði hann ekki með tímanum stærri og stærri, verður fólk oft- ast ekkert vart við hann nema er hann veldur nýrnaskálabólgu. En ef steinninn fer á hreyfingu, finna menn til hans og þá veldur hann verkjum, stundum mjög sárum og samanherpandi. Grenilegustu einkenni um stein i þvagrásinni eru einmitt hinir sérkennilegu verkir. Þessir verk- ir koma með sprettum og leggur þá oft niður í blöðruna, jafnvel ■út í þvagrásina. En stundum valda nýrnasteinar óljósum þrýst ingsverk á nýrnastað. Menn geta líka fengið verki ef steinar eru í blöðrunni. Eink- um ef hann hreyfir sig. Eru sér- stök brögð að því ef menn aka cftir holóttum og ójöfnum vegum. Verða þessir verkir einkum til- finnanlegir ef steinarnir eru ekki ávalir en hafa skarpar brúnir og odda. Eftir slík mikil sársaujra- köst gætir oft blóðs í þvaginu vegna þess að steinninn rispar slímhimnurnar svo að blæðir úr þeim. Sé mikið blóð í þvaginu er hægt að sjá það með berum augum. I»vagið verður þá gruggugt og brúnleitt að lit. En þó ekki séu mikil brög'ð að blóði í þvági geta læknar fundið það, annað hvort með efnafræðilegri rannsókn eða undir smásjá. Ef þvaglát stöðvast skyndilega nokkrum dögum eftir mikil sárs- aukaköst, má búast við, að steinn inn komi alla leið út um þvag- rásina. Þá er þýðingarmikað að ná í steininn því mikils er um vert að geta rannsakað hann og fá að vita hverrar tegundar hann er. Hvort' þetta er oxalatsteinn, þvagsýrusteinn eða fosfatsteinn. Hægt er að komast að því, með því að rannsaka steininn efna- fræðilega, því að eftir tegund steinsins verður oft að haga lækn ingunni. Gamall vinur minn er mjög var magur og grannholda, þótti ákaflega gott að borða súkkulaði. Hann hafði þjáðst af nýrnastein- nm og læknir hans bannað hon- tim að borða súkkulaði. Mörgum árum seinna kom það í ljós að steinarnir voru fosfatsteinar. Ar- nm saman hafði hann neitað sér um súkkulaðiát og varð því hinn versti við lækninn, þegar kom í ljós að steinarnir voru fosfat- steinar og súkkulaði því mein- laust fyrir hann. Með röntgenrannsókn er hægt að ganga úr skugga um hvort steihn sé í þvagfærunum, með þeim hætti að sprauta efni í æð- ar sjúklings svo greinileg mynd sjáist af þvaggöngunum. Hafi menn tilhneigingu til steinmyndunar í þvaggöngunum verða menn að sjá um að þvagið verði aldrei megnt. Þess vegna eiga menn að drekka mikið. Og hvað eiga menn að dreltka? T. d. mikið af vatni, fullt vatns- glas kvölds og morgna í viðbót við það sem menn annars eru vanir að drekka. Að sjálfsögðu má drekka annað t. d. saftblöndu Mikil hjátrú er ríkjandi um það hvað menn eigi og ekki eigi að gjöra til að forðast nýrna- steina. I Viti' íríehn' hvers" köfiar steinar myndast í sjúklingnum, þá er rétt að benda honum á, hvers konar fæðu hann verður að forð- ast eða draga við sig að neyta, t. d. rabarbara ef um er að ræða oxalsteina, en innmat sláturdýra ef það eru þvagsýrusteinar sem myndast. Einnig vita menn að með ákveð inni tegund bólgu í þvaggöng- unum verður mönnum hættara við myndun steina. Þess vegna verða menn að fá vissa meðferð þegar um bólgur er þar að ræða. En annars eru margskonar ástæð- ur fyrir því, að læknisráð þurfa þar að koma til greina. Ef menn losna ekki við stein af sjálfu sér eða með því að drekka mjög mikið, verða menn oftast að láta taka steininn á annan hátt. Læknar nú á dögum eru svo fingraliprir og hafa svo nákvæm og vel útbúin tæki, að þeir geta oft náð steininum úr blöðrunni eða jafnvel úr þvaggöngunum þótt steinninn sé ekki kominn lengr niður. En að því getur rek- ið að gera þarf uppskurð til að ná steininum. Það kemur fyrir að svo margir og stórir steinar eru. í mannsnýra að nauðsynlegt verður að taka nýrað. En þá mega menn ekki halda að þeir séu að dauða komn ir, því nýrað sem eftir er getur tekið við því hlutverki sem nýr- un bæði unnu fyrir líkamann. Og þetta er ekkert sem ég sjálf ur hef búið til. Því ég veit það líka af persónulegri reynslu. Fyr ir 25 árum var tekið úr mér annað nýrað og alla stund síðan hef ég verið hinn brattasti. sijornm rÉistiiii 13 mi a ís vnrspurn a J 8 mgi HVE miklu fé hefur ríkisstjórnin varið til að bæta úr at- vinnuörðugleikum í landinu samkvæmt heimild í fjárlögum. Hverjum hefur verið veitt fé í þessu skyni, hve mikið hverj- um, hvaða skilyrði hafa verið sett fyrir framlögum ríkissjóðs og hvaða framlög hafa komið á móti? Þessi var fyrirspurn Haraldar Guðmundssonar í Sameinuðu þingi í gær til ríkisstjórnarinnar og varð Steingrímur Steinþórs- son fyrir svörum. Atvinnumálanefnd, sem í eru m. a. fulltrúar frá A.S.Í. og Vinnu veitendasambandinu var skipuð 1952, sagði ráðherrann og hefur ríkisstjórnin farið eftir ráðiegg- ingum hennar varðandi þessi mál. Atvinnumálanefndin vinnur nú að víðtækri athugun varðandi atvinnumál í landinu, og mun álit hennar liggja fyrir um ára- mótin. 3JA ÁRA ÚTHLtJTUN Á árinu 1951 úthlutaði ríkis- i stjórnin kr. 1.217.646,80 til at- vinnubóta. Árið 1952 hefði 1 verið veitt kr. 6.490.987,12 í j sama skyni og 1953 kr. j 4.944.845,51. Núverandi ríkis- | stjórn hefði veitt 443 þús. kr. til að bæta úr atvinnuástandi. í fjárlögum 1953 var aðeins heimild fyrir ríkisstjórnina til að ráðstafa 5 millj. kr. til að Framh. af bls. 1. Ekki náðist neitt samkomulag um allshcrjar reglu um stærð landhelgi. o ALLT LANDGRUNN OG AÐRAR ÁKVARÐANIR Nú skal sagt frá stærð land- helgi nokkurra fleiri ríkja: Argentína, Chile, Mexikó og Perú helga sér allt landgrunnið. Landhelgi Ecuador er 15 mílur. Egypzka og gríska landhelgis- línan er ýmist og til skiptis þrjár og sex mílur. Franska landhelgis- línan er allt frá 3 mílum upp í 20, eftir því hvort um er að ræða landhelgi við heimalandið eða nýlendurnar, Noregur hefur haft fjögurra mílna landhelgi síðan 1745 og Rússar halda fram að minnsta kosti 12 mílna landhelgi. Þessi upptalning sýnir enda þótt hún sé ekki tæmandi, hve mikil fjarstæða það er að halda því fram að nokkur al- heimsregla sé til um stærð landhelgi. ÍSLENDINGAR FARA AÐ LÖGUM Þessu næst rekur greinarhöf- undur nokkuð fiskveiðisamning- inn 1901 milli Dana og Breta og skýrir frá því að íslendingar hafi sagt þessum samningi upp á lög- mætan hátt. Síðan heldur hann áfram: Að jafna réttmætri uppsögn íslendinga á samningnum víð at- burðina í Persíu og olíumálið er bæði rangt og illgirnislegt. Sumir hafa leyft sér að stimpla íslendinga á þessum röngu for- sendum sem óþokka, lögbrjóta og þorpara af verstu gráðu. Allt er þetta byggt á tómum rang- færslum og lygum. Er einmitt rétt að benda á það að af öllum þjóðum hvíta kynstofnsins, þá eru íslendingar hin löghiýðnasta þeirra, að þeir virða lög og rétt og að lagaseíning þeirra og virð- ing fyrir réttinum hefur þróazt frá því árið 930. bæta úr atvinnuástandi. Hefði því rikisstjórnin gripið til þcss að ráðstafa fé upp á væntan- lega heimild í fjárlögum fyrir næsta ár. Það sem veitt hefnr verið á þessu ári í þessu skyni eru sumpart styrkir og sumpart lán gegn tryggingu. Ekki er vitað að svo komnu máli um mótframlag í öllum tilfellum, en alls staðar hefur þess verið krafizt. Styrkir og lán hafa verið veittir til ræktuijar, vél- bátaútgerðar, breytingar fisk- hjalla og fiskiðjuvera, hafn- arbóta og fleira. Þeir sem fer.gið hafa styrki og lán eru þessir: Eyrarsveit, Snæf.nesi 250 þús. kr., Stykkishólmur 200 þús. kr., Ólafsvík 100 þús., Flateyjar- hreppur 228,855,51, Suðureyri 225 þús. kr., Eyrarhreppur 60 þús., Grunnavíkurhreppur 100 þús., Bolungarvík 120 þús., Hnífs- dalur 90 þús., Súðavíkurhreppur 50 þús., ísafjörður 150 þús. kr., Drangsnes 90 þús., Hólmavík 125 í 3 sl árnin til atyinnubóta þús., Árneshreppur (Ströndum)j 30 þús., Höfðahreppur 120 þús, kr., Kaupfél. Skagafj. 250 þús., Súðahreppur 50 þús., Ásólfs- hreppur 50 þús., Siglufjörður 750 þús., Hrísey 110 þús., Hauganea 30 þús., Dalvík 100 þús., Ólafs- fjörður 30 þús., Akureyri 125 þús., Húsavík 90 þús., Raufarhöfn 250 þús., Seyðisfjörður 250 þús., Nes- kaupstaður 100 þús., Mjóafjarð- arhreppur 15 þús., Eskifjörðup 75 þús., Búðahreppur 40 þús., Fáskrúðsfjarðarhreppur 15 þús., Stöðvarfj.hreppur 70 þús., Reyð- arfj.hreppur 45 þús., Djúpivogup 60 þús., Búlandshreppur 130 þús., Hafnarhreppur 200 þús., Hvamma hreppur (V.-Skaft.) 60 þús., Vest mannaeyjar 75 þús., Álftanes- hreppur 6 þús. kr. Auk þess hefðu Suðureyrar- hreppi, Höfðakaupstað, Djúpa- vogi og Kaldaðarneshreppi ver- ið veitt samtals 443 þús. kr. lán til þess að bæ'ta úr atvinnúlífi á þessum stöðum. Öll lánin eru veitt með 5V2% vöxtum Og flest til 10 ára. Trygg- ing er yfirleitt veð í þeim fram- kvæmdum sem lagt er í, eða að öðrum kosti liggja eignir við- komandi hrepps til tryggingar greiðslu lánsins. Haraldur Guðmundsson þakk- aði ráðherra greinargóð svör og kvaðst einskis frekar hafa að spyrja að svo komnu máli. Vaxandi siðspilling og þvesr- andi þjóðemisvitund í kjölfar minnkandi kristindómsfræðslu Allar ákvarðanir nm mál- efni kirkju gerðar með ráði klerkdomsins EINS OG frá var skýrt hér í blaðinu, hélt hinn almenni kirkju fundur áfram störfum s.l. sunnu- dag og mánudag. Hlýddu fundar- menn messu í Dómkirkjunni á sunnudag og voru til altaris. — Eftir hádegi var skoðuð hin ný- uppsetta kirkjugripadeild Þjóð- minjasafnsins í boði þjóðminja- varðar, en kl. 16 hófust svo fund- arstörf í Fríkirkjunni, þar sem Sigurður Óli Ólafsson alþm. flutti erindi um kirkjubygging- ar og skýrði frumvarp sitt um það mál. Lýsti alþingismaðurinn þeim erfiðleikum, sem söfnuðir landsins ættu við að stríða, þegar um byggingu eða endurbætur kirkna væri að ræða, þar sem lán úr hinum alm. kirkjusjóði hrykkju skammt. Gerðu fundar- menn mjög góðan róm að máli ræðumanns, sem sýndi raun- sæi, velvilja og' skilning í garð kirkjunnar. Um kvöldið flutti sr. Jóhann Hannesson er- indi um kristniboð og rakti sögu- lega þróun þess. Á mánudagsmorgun hófust fundarstörf að nýju og flutti sr. Ingólfur Ástmarsson morgun- bænir. KRISTINDÓMSFRÆÐSLAN í SKÓLUM Tcknar voru til umræðu tillög- ur fræðsiunefndar um kristin- dómsfræðslu í skólum og ,var eftirfarandi tillaga í þrem liðum samþykkt í einu hljóði'- Almenni kirkjufundurinn bein-' ir þeirri áskorun til kennslu- j málastjórnarinnar að taka nú þegar til athugunar, hvort ekki sé hægt að búa kristindóms- fræðslunni vegiegri sess og gera hana notadrýgri með því, að taka upp sérstaka kennslu í kristnum fræðum í yngstu bekkjum barnaskólanna í stað þess að hafa hana með átthaga- fræði, eins og nú tíðkast; að haga kennslu í barnaskól- unum þannig um námsefni og stundafjölda, að umferð sé lokið í námsefninu, þegar gagnfrseða- skólarnir taka við; að kennsla sé í kristnum fræð- um í tveim fyrstu bekkjum gagnfræðaskóianna ekki minni en tvær stundir á viku og ráð- stafanir gerðar til þess, að hæfi- legar námsbækur og kennslutæki séu til á hverju stigi námsferils- ins. FRESTUR FYRIR SJÚKRAIIÚSIN Epnfremur var samþykkt eft- irfarandi tillaga, sem vísað hafði verið til alisherjarnefndar, um sjúkrahúsprest: Hinn almenni kirkjufundur í Reykjavík 1953 telur mjög æski- legt, að skipaður verði sem allra fyrst sérstakur prestur við sjúkrahús og fangelsi Reykjavík- ur til að annast guðsþjónustur og sálgæzlu. RÍKI OG KIRKJA í málinu ríki og kirkja vaí samþykkt svofelld tillaga: Hinn almenni kirkjufunduí heitir á stjórnarvöld landsins, að láta kirkju þjóðarinnar njóta réttar síns í hvívetna, sem henni ber samkv. stjórnarskránni, svd að hún verði þess megnug með fullum stuðningi ríkisvaldsins, stjórnar og alþingis að inna afi höndum hið mikla hlutverk I þjóðlífi íslendinga, sem henni er falið og hún hefur köllun til. Heyrir hér til m. a., að fullur stuðningur sé veittur til kirkju- bygginga, svo og að allar ákvarð- anir um mál þjóðkirkjunnar séil gerðar með ráði fulltrúa lderk- dómsins og safnaðanna. *'■ UNDIRBÚNINGSNEFND Þá var gengið til kosninga f undirbúningsnefnd kirkjufund- anna. Samkvæmt lögum kirkju- fundanna áttu að ganga úr að þessu sinni 3 aðalmenn og jafn margir varamenn, en sökum þesg að einn nefndarmanna, herrai biskupinn, lézt á kjörtímabilinu, voru kjörnir 4 aðalfulitrúar og 3 til vara. Kjörnir voru sem að- almenn þeir: Gísli Sveinsson fv. sendiherra, sr. Sigurbjörn Á'. Gíslason, Páll Kolka héraðslækn- ir og sr. Þorgrímur Sigurðsson. Fyrir voru í nefndinni þeir: sr. Sigurjón Guðjónsson, Hanneg Guðmundsson, stud. theol. og Sigurbjirn Þorkelsson forstjóri. Til vara voru kjörnir í nefndina þeir: sr. Pétur Sigurgeirsson, sr. Þorsteinn Björnsson og sr. Jakotí Einarsson, en fyrir voru í ncfnd- inni þeir: Frímann Ólafsson for- stjóri, Gísli Jónasson skólastjóri, Jóhannes Sigurðsson prentari og Ólafur B. Björnsson ritstjóri. Ýmis mál fleiri voru rædd á fundinum, án þess þó að fundur- inn tæki afstöðu til þeirra. j Framh. á-bls. 4. !

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.