Morgunblaðið - 03.11.1953, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 03.11.1953, Blaðsíða 16
Veðurúfli! í dag; Stinnings kaldi, allhvass SA. — Rigning. Hofielirídáarinn Sir Winston Churchill. Sjá grein á bls. 9. Takmax-kið er: Sundlaug í Vestur- bænum n.k. sumur SAMTÖK íbúa í einstökum bæjarhlutum í því skyni að hrinda í framkvæmd einhverju sameiginlegu hagsmunamáli eru sjaldgæf í Reykjavík. Reykvíkingar hafa verðskuldað fengið á sig orð fyrir íð vera gjöfulir og fljótir til að koma bágstöddum til hjálpar, þegar því var að skipta. Nú eru að hefjast samskot — aðallega meðal Vesturbæinga — í því skyni að reisa sundlaug í Vesturbænum. Má telja það mál hagsmunamál allra Vesturbæinga og mun því vart þurfa að hvetja þá til að leggja fram sinn skerf til þess að: Sundlaug Vesfurbæjar rísi ALMENN ÞÁTTTAICA NAUÐSYNLEG Reykjavíkurbær hefur sýnt sundlaugarmáli Vesturbæinga vin- semd mikla. Hefur bærinn þegar veitt 75 þús. krónur til ,augar- byggingarinnar. Nú er knmið að Vesturbæingum að sýna, hvað þeir vilji leggja í sölurnar til þess að fá sína eigin sundlaug. Það er ekki nauðsyn að leggja fram stór- ar f járupphæðir. Hitt er nauðsyn- legra að allir leggi eitthvað af mörkum. Mál þetta snertir fyrst og fremst Vesturbæinga. Þeirra verð- Tir sundlaugin. En að sjálfsögðu koma fjárframlög Austurbæinga að góðum notum. Má minna þá á, að með því geti þeir sýnt þakklæti fyrir að þeir fengu sundlaugarnar sem byggðar hafa verið. — Auk þess verður mjög létt á Sundhöll- inni því um 2000 skólabörn í Vest urbænum munu, er Vesturbæjar- laugin er upp komin, hætta að sælcja Sundhöllina og fá þá Aust- urbæingar aukin afnot hennar. AUGLÝSINGARIT IBR skipaði í sumar f járöflun- arnefnd vegna Vesturbæjarlaugar innar. f henni eru Gunnar Frið- riksson, form., Páll S. Pálsson, Andreas Bergmann, Erlendur Pét ursson, Sveinn Þórðarson tiln. af Reykvíkingafél. og Guðm. Bene- diktsson tiln. af Reykjavíkurhæ. Nefndin hefur nú látið prenta auglýsingarit. Þar birtist ávarp nefndarinnar og Jónas B. Jónsson fræðslufulltrúi gerir glögga grein fyrir sundiðkunum bæjarbúa al- mennt og þörf Vesturbæinga og þá sér í lagi skólabarna í Vestur- bænum fyrir bætta aðstöðu til sund iðkana. Þá eru í ritinu auglýsingar frá ýmsum fyrirtækjum í Vesturbæn- nm er þau hafa greitt vel fyrir, og vilja með því sýna stuðning sinn við málið. Má og taka það /ram að hvarvetna þar sem nefnd armenn hafa Ieitað stuðnings fyr- irtækja, hefnr þeim venð tekið mjög vel og fengíð góðan stuðn- ing. — FJÁRSÖFNUNIN Auglýsingaritinu verður dreift um bæinn í dag. Er ætlunín að það nái til allra íbúa í Vesturbænum. Inn í því er laust blað og á það að útfyllast, ef menn vilja leggja eitthvað af mörkum til sundlaug- armálsins. Á sunnudaghm kemur ganga kvennaskólameyjar í húsin og safna saman fjárframlögunum. Söfnunarlistarnir verða uð söfn un lokinni bundnir inn í sérstaka bók, sem væntanlega verður geymd í húsakynnum sundlaugar- innar til minningar um áhuga og góða liðveizlu Vesturbæinga við að hrinda sundlaugarbyggingunni í framkvæmd. Ástæða er til að ætla að ef þessi samskot ganga vel n.k. sunnudag, er sundlaugarmálið komið langleið ina í höfn. Því sýni Vesturbæing- ar áhuga sinn, má ætla að bærinn styrki málið enn betur en orðið er og síðan leggur íþróttasjóður ríkisins fram veglega fjárupphæð til byggingarinnar. En til þess að svo verði vcrða Vesturbæingar að vera örlátir á snnnudaginn. Flokksráð Sjáll- sfæðlsmanna í Gullbringusýslu FUNDUR verður haldinn í flokksráði Sjálfstæðisflokks- ins í Gullbringusýslu fimmíu- daginn 5. þ. m. kl. 8.30 e. h. Frummælandi á fundinum verður þingmaður kjördæmis- ins, Ólafur Thors, forsætis- ráðherra. Leikfélag Reykjavíkur frum- sýnir gamanleik anna^ kvðld Annar gamanleikur í æfingu - vænfanlega frumsýndur um miðjan mánuðinn NÆSTKOMANDI miðvikudags- kvöld frumsýnix Leikfélag Reykja víkur bandaríska gamanieikinn „Undir heillastjörnu", eftir Hugh Herbert, er nefnist á frummálinu „The moon is blue“, í þýðingu Þor steins Ö. Stephensen. — Leikstjóri cr Einar Pálsson, en leikendur eru þau hjónin Margrét Ólafs- dóttir og Steindór Hjörleifsson, Þorsteinn Ö. Stephensen og Brynj ólfur Jóhannesson; JEins og áður segir er þetta gam anleikur, og gerist hann nú á tím- um. — Þá er franskur gamanleikur í æfingu hjá félaginu, og nefnist hann „Skattaframtalsskólinn", eft ir Georges Berr og Louis Ver- neuil, í þýðingu Páls Skúiasonar ritstjóra. Leikstjóri þess er Gunn- ar R. Hansen, en Alfreð Andrés- son fer með aðalhlutverkið. Aðrir leikendur eru 12. — Verður þessi gamanieikur væntaniega framsýnd ur utn miðjan nóvember. Hér eru myndir frá hinum miklu húsum við Skúlagötu, scm Eimskipafélag íslands lceypti af Kveld- úlfi og hefur nú tekið í notkun. Gólfflöturinn er rúmlega 4300 ferm., en alls eru lóðirnar yfir 7500 fprm. að flatarmáli. — Á efri myndinni sést húsið að utan, en neðri myndirnar eru teknar inni í þvi og eru af hluta af geymslurýminu. veikihóluefsti irú -----------------~———# • • 011 saltsíMm eg frysti fiskuriim STYKKISHÓLMI, 2. nóv. — Danskt farmskip siglir héðan í kvöld áleiðis til Rússlands, með alla þá Faxasíld sem hér var söltuð. Stóðst síldin fyllilega mat hinna rússnesku síldarmats- manna og síldarmatsmanna ríkis- ins. Hér er um að ræða 2000 tunnur síldar. Þ Iestaði Dettifoss hér fyrir helgi allar þær fiskbirgðir sem voru í hraðfrystihúsinu, en það voru milli 3000—4000 pakkar af flökum. —Árni. Heill á húfi í Vestmanriaeyjum Á SUNNUDAGINN lét ránnsókn arlögreglan lýsa eftir manni að nafni Björgvin Magnússon, Knox búðum E 11 hér í bæ. Hafði hann farið að heiman frá sér um miðj- an dag á föstudag. Síðan hafði ekkert um hann spurzt. Nánustu vandamenn voru farnir að ótt- ast um afdrif Björgvins, er þeir leituðu til rannsóknarlögreglunn ar. Nokkru eftir að tilk. hafði verið lesin í útvarpið, bárust fregnir um það frá Vestmanna- eyjum, að Björgvin væri þar heill á húfi. Sfjómmálaskóli Sjálfstæðisflokkslns MÆLSKUÆFING frá kl. 5—6 í dag. Kl. 6—7 flytur Sigurð- ur Bjarnason, alþm., fyrirlest- ur um stjórnmálaflokkana. — f kvöld kl. 8,39 flytur Gunnar Helgason erindi: Fundarsköp og íélagssíarf. Leifiif ¥ifi að bölusefja allar glmhrar sínar MIKIÐ fagnaðarefni mun það vera öllum bændum og jafnframt öllum landslýð, ef sú verður raunin á, sem austfirzkir bændur em farnir að vona, að bóluefni það, sem Ksldnamenn liafa reynt á sauðfé á Ausíurlandi geri féð ónæmt við hinni skæðu garnaveiki. Fregnir hafa horizt að austan um það að eftir þær tilraunir, sem gerðar hafa verið með hið nýja bóluefni gegn garnaveikinni, í Fljótsdal og víðar, telji bændur að hættan af garnaveikinni sé þar , liðin hjá“, svo þeir geti gert sér vonir um að takast mcgi að komja fjárstofninum upp þar að nýju. Um þessi stórtíðindi ritar tilraunastjóri Jónas Pcturs-on að Skriðuklaustri eftirfarandi fréttapistil. — Kemst Jónas svo að orði: „Garnaveiki hefir, s:m kunn-' ugt er, herjað í sauðfé bænda á Austurlandi undanfarin ár, og sífellt breiðst meira og meira út. — BYRJADI FYRIR ÞREM ÁRUM Fyrir þremur haustum var byrjað að bólusetja lömbin, sem sett voru á vetur með bóluefní, sem gera átti þau ónæm fyrir veikinni. Var slíkt gert sem til- raun fyrsta haustið hjá allmörg- um taændum. Annað haustið var nokkuð lát- ið af bóluefni til bænda utan tilraunanna og síðastliðið haust mun hvert lamb eða svo að segjá, á öllu Austurandi, hafa verið bólusett. TELJA NÆRRI ÖRUGGT Niðurstaða eða árangur til- raunanna er mér ekki kunnur, en það er almenn skoðun bænda, að bólusetningin sé miidl vörn, eða nær fullkomið öryggi gegn garnaveiki. Verður þess nú glögglega vart að mönnum cr aftur að aukast trú á sauðfjár- ræktina. Flestar gimbrar eru látnar lifa hér um slóðir, líka þar, sem garnaveiki hefir lítið orðið vart ennþá. Er ætlun bænda að ala sér upp ónæmt sauðfé og farga því eldra áður en garnaveikinni gefst kostur á að höggva í það skarð. AUKIN TStÚ Á FRAMTÍDINA j Slík öryggistilfinning, sem bólusetningin skapar hjá bænd- jum gegn garnaveikinni er ákaf- lega mikilsverð, því að trúin á Iframtíðina er öflugasta driffjöð- ur athafna og framfara. | Ekki veit ég um fjölda lamba, sem sett verða á vetur' að þessu sinni, t. d. í Fljótsdal, en full- yrða má, að þau séu fleiri era verið hafa um fjölda ára, og hafa þó Fljótsdælingar lítt. kennt á garnaveikinni til þessa. Eni þeir, sem höfðu misst meiri hlut- ann af fé sínu, þeir finna mun- inn bezt. Þeirra viðhorf til sauð- fjárræktunar hefir breyzt mest. ! ÁIÍERZLA LÖGÐ Á NÝJAN STOFN I stuttu máli má segja: Það er aimenn skoðun bænda hér eystra, byggð á þeirrl reynslu, sem fengizt hefir, að bólusetningin gegn garnaveikinni skapi svo mikið öryggi að ekki sé orð gerandí á hugsanlegum vanhöidum af hennar völdum. Þess vegna képpast bændur og búlausir við að eignast gimbrar og bólusetja þær og byggja af- komu sína í framtíðinni á sauð- fjárrækt, eins og verið hefir i þessum Iandshluta sjálfsagt frá því er byggð hófst, og öll rök hníga tiL — J. P. ,

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.