Morgunblaðið - 06.12.1953, Síða 16

Morgunblaðið - 06.12.1953, Síða 16
/ Veðurútli! í dag: Allhvass veslan. El. 10 dagar til jóla 279. tbl. — Sunnudagur 6. desember 1953. Fjórum millj. kr. þegur vurið til loítvurnu í TÍMANUM í gær er skýrt frá því að ráðstafanir til loftvarna hefðu kostað 3 millj. króna, en enginn vissi til hvers fénu hefði verið varið. Er Morgunblaðið spurði lögreglustjóra í gær um þessi mál, sagði hann m. a.: FJÓRAR MILLJÓNIR «>-------------------- Kostnaðurinn mun vera orðinn talsvert meiri en Tíminn telur. Til ráðstafana vegna loftvarna hefur þegar verið varið yfir 4 milljónum króna. Við Hjálmar Blöndal, framkvæmdastjóri loft- varnanefndar, erum einmitt nú að semja skýrslu um störf nefnd- arinnar og fyrirætlanir til loft- varna. Munum við kalla á blaða- menn til viðtals einhvern næstu daga og skýra þeim frá þessum málum. NEFNDARMENN í nefndinni eru auk lögreglu- stjóra sem er formaður hennar, borgarstjóri, Jón Axel Pétursson bæjarráðsmaður, slökkviliðs- stjóri, borgarlæknir og yfirverk- fræðingur Landssímans. Nefndin tók til starfa á miðju 4 ári 1951. HJÚKRUNAR- €G LÆKNINGATÆKI Mestu af fjárframlögunum hefur verið varið til kaupa á hjúkrunar- og lækningatækjum, eldvarnartækjum, aðvörunar- kerfi, ýmis konar björgunartækj- um og útbúnaði fyrir loftvarna- birgi. Próf.MagiiúsJóns- son gef ur ekki kost á sér MAGNÚS JÓNSSON, prófessor, skýrði Mbl. svo frá í gær, að hann myndi ekki gefa kost á sér til biskupskjörs. —• Bað hann blaðið að birta eftirfarandi: Út af prófkosningu þeirri, sem fram hefur farið til undirbúnings væntanlegu biskupskjöri, vil ég láta þess getið, að ég mælist ein- dregið undan því, nú sem fyr. að takast þett.a embætti á hendur, þó að ég ætti kost á því. Þetta tel ég rétt að gera nú þegar kunnugt áður en kosning hefst, um leið og ég þakka innilega þeim, sem hafa sýnt mér það traust að vilja láta mig koma til greina við skipun í þetta virðu- lega embætti. Tvær komir slasast í TVEIM umferðarslysum, sera urðu hér í bænum í gær, urðu meiðsli á tveim konum, en ekki munu þær hafa hlotið alvarleg meiðsl að því er talið var. Annað þessara slysa varð á horni Hringbrautar og Njarðar- götu, laust eftir hádegi, en þar rákust tveir bílar saman af miklu afli. — Kona að nafni Sigrúrs Óskarsdóttir, sem var í öðrum bílanna, R—-5285, skarst á höfði og hendi af glerbrotum og var flutt til læknis. Hitt slysið var í gærkvöldi um kl. hálf niu. — Kona varð fyrir bíl í Suðurgötunni og féll í göt- una. Hún hlaut áverka á höfði og heilahristing og var flutt í Landsspítalann. — Tokio. — Fyrsti sendiherra Norðmanna í Japan Herslev Foght kom til Yokohama í dag. Skipsmaslur sem Eagið hefur i rúm 40 ár á hafsbolni minnismerki í RÁÐI er að næsta vor verði reist óvenjulegt minnismerki vestur á Bíldudal, yfir sjómenn þaðan úr kauptúninu, sem fórust með skipi sínu fyrir rúmlega 40 árum. 10 SJÓMENN AÐ KOMA < ÚR RÓÐRI Atburður þessi át.ti sér stað vorið 1910 er fiskibátur frá Pétri Thorsteinssyni útgerðarmanni, sem Gyða hét, fórst er hann var að koma úr róðri og með honum 10 menn. Var talið fullvíst að báturinn, sem var einmöstrung- ur hefði kollsiglt sig er hann var kominn inn fyrir Lokinhamra. MASTUR í RÆKJUNÓT Fyrir stuttu kom mastur upp i rækjunót báts frá Bíldudal. — Einnig fanst brak úr léttbáti. — Mastrið var flutt í land. Við at- hugun kom í ljós að hér var um •að ræða mastur fiskibátsins Gyðu. Það sér ekki mikið á því eftir öll þessi ár í sjó. Hrúðurkallar hafa sezt á það. Það er 14 m. langt. MINNISMERKIÐ Mastrið verður sennilega reist jjæsta vor í miðju kauptúninu, skammt frá minnismerkinu um Pétur Thorsteinson. Nöfn mann- anna tíu, sem fórust með skip- inu, verða grópuð í mastrið. — Árni Jónsson stórkaupmaður hér í Reykjavík missti bróður sinn með skipinu og er Árni aðal- hvatamaðurinn og hefur um það forgöngu að þetta minnismerki verði reist. 11 stiga hiti 10 vmdstig í GÆR var hlýtt veður um land allt. Víðast var 9 stiga hiti, en heitast var á Galtárvita 11 stig og mestur hiti hér í Reykjavík var 10 stig í gær. Snjó tók mjög upp í gær. — Hvasst var hér í Reykjavík, 8 vindstig, en hvass- ast 10 vindstig í Vestmannaeyj- um. — Þar var skyggni mjög slæmt. ★ Vilja ekki simasamband Berlín. — Hernámsyfirvöld Rússa neituðu í dag tillögu Vest- urveldanna um það að beinu símasambandi yrði komið á milli ^iusturs og vfestur Berlínar. Piófkosning í Kópavogi SJÁLFSTÆÐISMENN í Kópa- vogshreppi efna í dag til próf- kosninga í sambandi við fram- boð flokksins til hreppsnefndar- kjörs í janúar næstkomandi. — Prófkosningin fer fram í skrif stofu Sjálfstæðisflokksins 1 hreppnum, að Neðstutröð 4 milli kl. 2—5 í dag. Eru allir Sjálf- stæðismenn í hreppnum hvattir til að taka þátt í prófkosningum þessum. Við þennan árekstur, á gatnamótum Laugarnesvegar og Sigtúns, réði tilviljun ein því, að ekki varð stórslys á fólki. Tjón eiganda bifreiðarinnar varð um 13 þúsund krónur, en auk þess þurfti trygg- ingarfélagið að greiða yfir 11 þúsund krónur fyrir viðgerð á bif- 1 reiðinni, sem þessi rakst á. Sjðmaður feílnr 12 m nlðisr í skíoslesl - Heiddist líliðshállar KEFLAVIK, 5. des. — I gær- kvöldi vildi það slys til við höfn- ina hér, að Kristján Blöndal frá Sauðárkróki, háseti á frystiskip- inu Drangajökull, féll úr bómu skipsins og niður í lestina Var það hátt fall, eða álíka hátt og af þaki Alþingishússins niður á gangstéttina, en Kristján slasað- ist ekki alvarlega. UPP í BÓMUNA Laust eítir klukkan 9 í gær- kvöldi, kom Drangajökull hing- að og átti að taka 60—70 tonn af hraðfrystri síld, til Rússlands. Þar sem rigning var, þurfti að byrgja lestina, en það er gert með stóru segli, sem halað er I upp í bómu skipsins. Varð fyrst : að koma fyrir blökk í enda bóm-' unnar. Var Kristján Blöndal send ur upp með blökkina, sem er all- þung, tvískorin tréblökk. Krist- ján var halaður upp í togvindu- vírnum, en tréblökkina hafði hann bundna yfir um sig í kaðli. Þegar Kristján var kominn upp, greip hann yfir bómuna með annarri hendi, en með hinni reyndi hann að'krækja blökkinni upp á bómuendann. Virtist hann eiga erfitt með að lyfta hinni þungu blökku upp fyrir sig. Kallaði hann þá niður til félaga sinna, að hann gæti ekki krækt blökkunni upp á bómuna. í því og hann kallaði missti hann takið af bómunni og reyndi um leið að grípa í tog- vinduvírinn, en náði ekki í hann. Féll hann niður í lestina, scni var opin og því nær tóm. Mun fallið hafa verið 11—12 metrar. Kom Kristján niður á bakiö, en rétt á eftir skall blökkin, sem bundin var við hann, skammt frá honum. — Lá Kristján algjörlega hreyfingalaus nokkurn tíma vegna heilahristings. — Var kallað á lækninn, Björn Sig- urðsson og kom hann strax á vett vang. — Taldi hann Kristján ekki mikið slasaðan. Var hann fluttur í sjúkrahúsið á Keflavík- urflugvelli og rannsakaður þar. Síðan var hann fluttur til Reykja víkur. Á Hitlerskvikmynd sýnd Bonn. — Það þykir nú Ijóst að nokkur eintök af Hitlerskvik- myndinni „Fimm mínútur yfir tólf“ hafa komizt til Svisslands. Er kvikmyndin sýnd þar, þótt hún sé bönnuð í Þýzkalandi. Karlakór Keflavíkur KEFLAVÍK, 5. des. — í gær- kvöldi var stofnaður Karlakór á Keflavík. Stofnendur kórfélags- ins voru 20. Undirbúningur að stofnun var sá að þriðjudaginn 1. desember komu saman á fund hér í bænumt nokkrir áhugamenn, sem ákváðu að beita sér fyrir því að stofna Karlakór Keflavíkur. — Var þá ákveðið að boða til frarnhalds- fundar á föstudaginn og sem fyrr segir var sá fundur haldinn í gær og gengið endanlega frá stofnun kórfélagsins. I stjórn kórsins voru kosnir þeir: Jón Tómasson, formaður, Kristján Helgason, gjaldkeri, Ingvar Guðmundsson, ritari, og meðstjórnendur þeir Böðvar Páls son og Jón Olsen. — Endurskoð- endur voru kosnir séra Björn Jónsson og Jakob Indriðason. Á stofnfundinum gerðist Olaf Olsen í Njarðvíkum ævifélagi kórsins, en styrktarfélagar hafa 35 gerzt. Tilgangur kórfélagsins er að viðhalda og efla söngmennt í Keflavík og Njarðvíkum. Söngstjóri kórsins verður Guð- mundur Nordahl. — Ingvar. Sýning Þorvaldar Skúlasonar W ■k Umferðarslys í Svíþjóð Stokkhólmur. — Umferðar- slys kostuðu 750 manns lífið í Svíþjóð s.l. ár. 2500 manns meidd ust alvarlega en um 10 þúsund fengu skrámur. Dregið í 12. flokki í happdrætti SIBS í GÆR var dregið í 12. flokki vöruhappdrættis Sambands ísl. berklasjúklinga. — Hæsti vinn- ingurinn í þessum flokki kom á miða nr. 14387 og er miðinn í umboðinu að Grettisgötu 26. — Þrír 10,000 kr. vinningar komu á miða nr. 7380 í umboðinu Aust- urstræti 9, 24699 í Vestmanna- eyjum og 29965 í Austurstræti 9. Sex 5,000 kr. vinningar komu á miða nr. 11185, 28195, 28696, 39587, 40274 og 45633. Frá sýningu Þorvaldar Skúlasonar, sem nú stendur yfir í List- vinasalnum við Freyjugötu. Sýningin hefur verið fjölsótt að undan- förnu og vakið athygli meðal listunnenda. Nú þegar hafa selzt 6 myndir. — Á bls. 2 birtist gagnrýni um sýninguna eftir Valtý Pétursson. Sýningin er opin daglega kl. 2—10 síðdegis. — Ljósm. Mbl.: G. R. Ó. Skákeinvígi MbL: Akraues-Keflavík KEFLAVIK AKRANES 22. leikur Akraness: Rh4—Í5

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.