Morgunblaðið - 11.12.1953, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 11.12.1953, Blaðsíða 2
MORGUNBLAÐIÐ t Föstudagur 11. des. 1953 j Yígsla Norðltmgs- kirkju NÝ KIRKJA í Norðtungu var vígð sunnudaginn 6. desember s. 1. Vígsluna framkvæmdi biskup inn, séra Bjarni Jónsson. — Var sóknarmönnum það mikið gleði- cfni, að biskupinn, þrátt fyrir mikinn veðurofsa, skyldi takast ferð þessa á hendur og allir hon- um mjög þakklátir fyrir komuna. Starfandi við vígsluna, auk biskupsins, voru prófasturinn sr. Bergur Björnsson, Stafholti, sr. Einar Guðnason, sóknarprestur í Reykholti og sr. Árni Sigurðsson, prestur á Hvanneyri. — Söng- stjórn höfðu á hendi þeir bræð- ur, Sverrir Gíslason, hreppstjóri í Hvammi og Björn Gíslason bóndi i Sveinatungu. Kirkjukór Hvammssóknar, sem telur um 20 manns, annaðist sönginn með prýði. Vígsluræðuna flutti biskup inn, viðstaddir prestar lásu upp ritningarkafla og að því loknu vígði biskupinn kirkjuna. Þá prédikaði sóknarpresturinn og að ræðu hans lokinni fór fram fyrsta ihelgiathöfnin í hinni nývígðu kirkju, er biskupinn skirði 2 börn. Guðsþjónustunni lauk með því, að sr. Árni Sigurðsson flutti bæn og blessun frá altari. — Á annað hundrað manns komu til kirkjuvígslunnar og nutu allir frábærrar gestrisni á heimilinu í Norðtungu, þar sem veitingar voru fram bornar. Kirkja þessi, sem er fögur bygging, er reist fyrir framúr- skarandi fórnfýsi og gjafir hins fámenna safnaðar. Hafa sóknar- menn sýnt brennandi áhuga í máli þessu, engan opinberan styrk hlotið, en glaðst yfir gjöf- um nokkurra vina. Að smíði kirkjunnar hið ytra vann Skúli Þórarinsson, bóndi í Sanddalstungu, að smíði innan- liúss Ólafur Jónsson á Kaðalstöð- um og EIís Ólafsson, Kvíum, með aðstoð Björns Kristjánssonar frá Steinum. Við alla smíði aðstoð- aði og mjög rækilega Ólafur Eggertsson, bóndi í Kvíum, gjafa dagsverk voru um 150. Múrvinnu •önnuðust þeir Stefán Jónsson frá Vatnsholti og Árni Björnsson, Akranesi, málningu Arinbjörn Magnússon, Borgarnesi. Þess skal og getið, að ónefndur maður gaf raflögn í kirkjuna, en verk það annaðist Ragnar Stefánsson bóndi í Svignaskarði. Norðtungu- hjónin, þau frú Andrea Davíðs- dóttir og Magnús Kristjánsson, hafa stutt að framkvæmd þessa máls með mikilli ósérplægni, ekki talið á sig erfiði og fyrir- j höfn og ætíð reynt að greiða fram úr hverskonar vanda. Jón Ásmundsson frá Norð- tungu gaf á þessum vígsludegi kirkjunni sálmabækur með skrautrituðu ávarpi til minning- ar um Ebbu Runólfsdóttur frá Norðtungu. í sóknarnefnd Norðtungukirkju eru eftirtaldir menn: Magnús Kristjánsson, bóndi í Norðtungu, Ólafur Eggertsson, bóndi í Kví- um og Bergþór Magnússon, bóndi á Höfða, og í byggingarnefnd: Magnús Kristjánsson, Ólafur Eggertsson og Daniel Eysteins- son, Högnastöðum. lelander hefir fyrirgerf réffi sínum fii að bera presfskfæði - voru síðustu orð í ræðu sækjandans. i Einkaskeyti til Mbl. frá Rcuter-NTB STOKKHÓLMI, 10. des. — Sækjandinn í máli sænska biskupsina Helanders lauk í dag ákæruræðu sinni með því að fara fram á það við réttinn að Helander yrði dæmdur frá biskupsembætti, fyrir að rita níðbréfin um samstarfsmenn sína. EKKERT SKEMMTISTARF Sækjandinn sagði í niðurlagi ræðu sinnar að það hefði ekki verið neinum manni ánægjuefni að sækja slíkt mál, sem hér hefði verið fjallað um. í fyrsta lagi vegna þess að sækjandinn gekk að því vísu, er hann hóf starf sitt að hver sem endalok málsins yrðu hefði málið haft mjög ör- lagarík áhrif á líf Helanders og starf. í öðru lagi hefði saksókn- in verið erfið vegna þess að alls staðar hefðu menn rekið sig á svo mikla varmennsku, þar sem menn hefðu vænzt þess að finna fyrir löghlýðni og göfugmennsku. Helander biskup hefur fyrirgert rétti sínum tii þess að bera prests klæði, sagði sækjandinn síðastra orða. RANNSÓKN MÁLSINS Fyrr í ræðu sinni rakti sækj-< andinn hvernig rannsókn málsx ins hefði gengið fyrir sig. Lög* reglan hefði ekki viljað hand-< taka neinn fyrr en sök viðkom- andi væri ótvíræð. Böndin hefðu snemma beinst að Helander og sá grunur hefði æ styrkzt ec rannsókn málsins miðaði áfram. íbúðarhúsin, sem byggð voru í sumar (Ljósm. Árni Matthíasson). Oerir S.I.S. iklur bygglngariram osti og öðrum kvæmdir í inlisásl “ bup á Nýll barnaskóiahús og kapella í smíðum. í SUMAR hafa verið miklar byggingarframkvæmdir í Hnífsdal. Eins og kunnugt er fauk barnaskóli kauptúnsins af grunni með börnum og kennurum í ofviðri meðan á kennslu stóð s.l. vor. —- Meiddust þá nokkur barnanna ásamt skólastjóranum. Var mesta mildi að ekki skyldi verða stórslys að þessum einstæða atburði. NYTT BARNASKOLAIIUS OG KAPELLA í sumar hefur verið unnið að því að byggja nýtt barnaskóla- Gölur og torg skírð í höfuð Síbelíusi HELSINGFORS, 9. des. — Síbel- íus, hið kunna tónskáld Finna, átti 88 ára afmæli í dag. Var liann heiðraður á margan hátt. Að sjálfsögðu voru Síbelíus tónleikar haldnir um gervallt1 landið og dagskrá finnska út- varpsins helguð honum. En finnsku þjóðinni fannst ckki nóg að gert í því að sýna gamla manninum ást og virðingu. Heldur voru samtök um það í nokkrum borgutn að gefa aðal- •torgum og aðalgötum heiti tón- skáldsins. Bera nú um 50 torg í Finnlandi nafn tónskáldsins. sfofnað í Gaulaborg SÍÐASTLIÐIÐ haust tók Ferða- skrifstofa ríkisins, af íslands hálfu, þátt í „SVENSKA MÁSSAN“, en það er alþjóðleg haustsýning, sem fyrirtæki og stofnanir frá 20 þjóðum tóku þátt í. Ferðaskrifstofa ríkisins lagði áherzlu á að kynna ísland sem ferðamannaland svo og heimilis- iðnað. Aðsókn að sýningarsal ís- lands var mjög góð og vöktu myndir og munir mikla athygli sýningargesta; sérstaklega dáðist fólk að prjónavarningi og víra- virkinu. í sambandi við sýninguna var sýnd kynningarmynd Ferðaskrif- stofunnar, „Jewel of the North“, og ennfremur ákveðið að stofna sænskt íslandsvinafélag. Nú fyr- ir stuttu var formlega gengið frá stofnun þessa félags eða 1. des. s. 1. I stjórn voru kjörnir: Form. Peter Hallberg, docent, varaform. Bjarni Sigurðsson, arkitekt, ritari Eric Borgström, forstjóri, gjaldkeri Allan Sáther- ström, forstjóri og meðstjórnend- ur: Björn Lagerström, verkstjóri, A. M. Gabrielsson, ræðismaður, Ture Johannisson, prófessor, frú Sigrún Emilsson, Harry Larsson, Nils Billgren, verkfræðingur, Ragnar Emilsson, verkfæðingur, Torgny Lundquist, stýrimaður. Félagið hefur það fyrst og fremst á stofnskrá sinni að kynna ísland meðal íbúa Gautaborgar og nágrennis og vinna að því að fá beinar satngöngur milli ís- lands og Gautaborgar, minnsta kosti yfir sumarmánuðina. hús. Er það nú komið undir þak og er hin myndarlegasta bygg- ing. Áföst við það er kapella, þannig að unnt verður að nota skólahúsið jafnframt sem kirkju. En Hnífsdælingar hafa lengi haft áhuga fyrir að koma sér upp guðshúsi. í hinu nýja skólahúsi verður auk þess bókasafn byggð- arlagsins og leikfimissalur. TVÖÍBÚÐARHÚS í SMÍÐUM Þá eru tvö íbúðarhús í smíð- um í kauptúninu. Byggingu þeirra er nú langt komið. Er hér um að ræða smáíbúðir, sem eru mjög vandaðar og fullkomnar. Á þessu ári var einnig lokið við byggingu tveggja íbúða í verkamannabústöðum í Hnífs- dal. TÍMINN og fleiri blöð hafa und- anfarið gert út af því mikið veð- ur, að Magnús Th. S. Blöndal h.f. hafi flutt inn svo nefnt „Cheese spread", til smurnings á brauð en í því er ostefni, meðal annara efna. Hér var um lítið magn að ræða, sem var flutt inn án allrar launungar og með þeim leyfum, sem töldust þurfa, eins og sést á yfirlýsingu verzlunarinnar, sem birtist hér í blaðinu s.l. sunnu- dag. „Tíminn“ telur að þessi inn- flutningur hafi yerið „óþ.jóðleg- ur“ og annað blað, sem mjög fylgir „Tímanum" telur þetta „tilræði við landbúnaðinn“!! Auð vitað hefði hvorugu þessara blaða dottið í hug að gera slíkt veður út af þessu „cheese spread“ ef ekki ætti heildverzlun þarna hlut að máli enda hefur ekki ver- ið sparað að láta á því bera í stórum fyrirsögnum að hér væri „heildsali“ að verki. En úr því „Tíminn“ er farinn að tala um „óþjóðleg“ kaup á Álþingi Rannsaka á sannleíkssfildi o sögmmar LUNDÚNUM 10. dcs. — Sett hefur verið á laggirnar sérstök rannsóknarnefnd til þess að komast að því hvort sá sögu- burður eigi við rök að styðjast að brezkir hermenn í Kenía hafi þegið fjárupphæðir fyrir að drepa Mau-Mau menn. Komu sögur um þetta efni upp eftir réttarhöld yfir brezk um liðsforingja í Kenía, Nefndin á að rannsaka hvort boð hafi verið látið ganga út um það meðal her- mannanna að þeir fengju grciddar þeim mun hærri f jár hæðir eftir því sem þeir dræju flciri Mau-Mau menn. Jafn- framt að athuga hvort keppni hafi verið komið á stað milli íbúa ýmissa héraða í Keníu um að drepa sem flesta Mau- Mau menn. — Reuter-NTB. Framh. af bls. 1. erlendis, eins og t. d. í Englandi, stuðlar ríkisvaldið að því, að ný iðnfyrirtæki rísi fremur upp í smærri bæjum en í stórborg- unum. Á undanförnum árum hefur orðið vart við verulegt atvinnu- leysi í mörgum kauptúnum og bæjarfélögum, sérstaklega um vetrarmánuðina. Með stofnun og starfrækslu nýrra iðnfyrirtækja á þessum stöðum kæmi aukin at- vinna og betri lífskjör fyrir fólk- ið, sem nú býr við erfiðar að- stæður. ! HVAÐ ER UNNT AÐ GERA? I Með tillögu þessari er ætlazt til þess, að ríkisstjórnin láti at- ■ huga sem fyrst, hvað unnt sé að gera til þess að auka iðnaðinn utan höfuðstaðarins. Tillögumenn i telja, að ný iðnfyrirtæki í kaup- I túnum og bæjum, sem búið hafa við atvinnuleysi, muni ekki hvað sízt stuðla að jafnvægi í byggð landsins og jafnari afkomu lands- manna. | Tillögumenn telja, að meðal annars komi til greina að veita nýjum iðnfyrirtækjum nokkur skattfríðindi fyrstu árin, fyrir- greiðslu um útvegun lánsfjár með hagstæðum kjörum, auk ó- ! keypis tækilegrar aðstoðar. Má I að sjálfsögðu benda á fleira. vöru, sem að nokkru leyti er ostakyns, er ekki úr vegi að Tím- inn upplýsi eftirfarandi: Er það rétt að skip Sambands íslenzkra samvinnufélaga kaupi til sinna þarfa í erlendum höfn- um allskonar útlendar landbún- aðarvörur svo sem smjör, kjöt og osta? Rík ástæða er til að að halda að slík kaup S.Í.S. hafi farið fram í talsverðum stíl og hafa þó skipin nóg kælirúm og þyrftu þessvegna ekki að kaupa slíkar vörur í Danmörku, Hollantíi eða öðrum viðkomulöndum. Sé svo að S.f.S. geri slí'; „ó- þjóðleg“ kaup á landbúnaöaraf- urðum er rétt að Tíminn úiskýri af hverju þau eru gerð. Þess skal jafnframt getio að unnt mun að spyrja „Tímann‘s fleiri spurninga, af ekki ósvipuðu tagi, ef svar hans við ofanrituð- um spurningum gefur efni til. Það er annars gamalt mál, að þeir sem búa í glerhúsi eigi ekki að vera að kasta grjóti. Lækkun á kosfnsð- innar nauðsynleg FISKIÞINGIÐ samþykkti cftir- farandi tillögu varðandi afkomu sjávarútvegsins: 22. Fiskiþing lítur svo á, að afkomu sjávarútvegsins sé þann veg komið, að gera verði ráð- stafanir til lækkunar á hinum ýmsu kostnaðarliðum útgcrðar- innar. Þá vill Fiskiþingið vekja eftir- tekt á því, að mjög mikill mis- munur virðist vera á afkomu skipa, bæði innbyrðis í ver- stöðvum og milli verstöðva, mið- að við svipað eða sama nfla- magn. Virðist augljóst, að þeir útvegsmenn, sem verka afla sinn sjálfir eða í félagi við fleiri útvegsmenn, og þeir, sem vegna aðstöðu og fyrirhyggju kaupa inn nauðsynjar útvegsins án ó- þarfa milliliða, hafa betri af- komu. Fiskiþingið leggur því til, að Alþingi og ríkisstjórn geri ráð- stafanir til þess, að auðvelda út- vegsmönnum verkun á afla báta sinna, og innkaup nauðsynja á sem hagfeldastan hátt.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.