Morgunblaðið - 12.12.1953, Page 11
Laugardagur 12. des. 1953
MORGUNBLADIÐ
11
-Æ
— Loftvarnir bæjarins
Framh. af bls. 9.
kostnað og óþægindi, sem
bygging sérstakra byrgja
hefði í för með sér, hefir loft-
varnanefnd nú til athugunar,
hvaða Iíkur eru á því, að nýj-
ar byggingar verði reistar við
miðbæinn í náinni framtíð. í
þeim mætti sennilega fá full-
nægjandi loftvarnabyrgi fyrir
miðbæinn, ef tekið er tillit til
þess áður en byggingafram-
kvæmtlir hef jast. Mætti hugsa
sér, að hið opinbera veitti ein
hverja sérstaka fyrirgreiðslu
í þessu efni. |
Auk hinna opinberu loftvarna- '
byrgja er gert ráð fyrir, að ein-
stakir húseigendur láti gera á
sinn kostnað skýli fyrir íbúa húsa
sinna og fyrirtæki, fyrir starfs- j
fólk sitt, og ef til vill viðskipta- l
vini. Slík einkabyrgi yrðu gerð
án annarrar íhlutunar af opin-
berri hálfu, en hvatningar um j
að útbúa þau þar sem það á við
og leiðbeiningar um tilhögun ör-
yggisráðstafana. Unnið hefir
verið að tillögum um fyrirkomu-
lag öryggisráðstafana fyrir skóla,
söfn, almenna samkomustaði og
aðrar slíkar stofnanir.
Loftvarnanefnd fylgist með
ráðagerðum annarra landa til
verndar borgurunum gegn ný-
tízku hernaðartækni (atóm-
vopnum o. fl.) og eru þau mál
þar ennþá á rannsóknar og til-
raunastigi.
SKIPULAGNING
HJÁLPARSTARFS
Skipulagning hjálparstarfs er
mjög yfirgripsmikið verkefni,
sem kostar óhjákvæmilega mikla
vinnu, rannsókn á aðstæðum og
öflun upplýsinga. Hefir frá upp-
hafi verið unnið að þessum mál-
um jöfnum höndum við önnur
verkefni.
Reykjavík hefir verið skipt í
fjögur umdæmi. Við þessa skipt-
ingu var þess gætt að hafa um-
dæmin sem jöfnust að íbúatölu
og flatarmáli. Umdæmum þess-
um er þannig háttað, að þau ná
hvert um sig frá úthverfum inn
í miðbik borgarinnar. Umdæm-
unum er skipt í hverfi og er
stærð hverfis meðal annars mið-
að við að sem næst 500 íbúar séu
í hverju þeirra. Verða hverfin
fyrst um sinn 130 að tölu. Hafn-
arsvæðið og flugvöllurinn verða
sérstök umdæmi.
í Reykjavík verður ein aðal-
stjórnstöð og mun heildarloft-
varnaaðgerðum Jiér í bænum
verða stjórnað þaðan. Aðalstjórn
stöðinni hefir verið valinn stað-
ur og er unnið að innréttingu
hennar.
í hverju umdæmi er undir-
stjórnstöð, en þær hafa verið
staðsettar í útjöðrum umdæm-
anna í traustbyggðum húsum,
sem flest eru í opinberri eign. í
undirstjórnstöðvunum verða
hjálparsveitir og loftvarnatæki.
í hverju hverfi verða bæki-
stöðvar fyrir hverfahjálpar-
flokka.
Valdir hafa verið og útbúnir
nokkrir útsýnisstaðir hér í bæn-
um, þar serri varðmönnum er
ætlað að hafa aðsetur á hættu-
tímum.
VÖRUGEYMSLUHÚS
Loftvarnanefnd hefir fengið til
umráða hjá Reykjavíkurbæ tvær
húseignir fyrir birgðageymslur.
Hefir nefndin lagt fram allmikið
fé til endurbóta á húsum þess-
um. Með þeirri ráðstöfun hefir
nefndin tryggt hinum verðmætu
vörubirgðum góða og örugga
geymslu um nokkurt árabil.
FJÁRMÁL
Samkvæmt lögum greiðist
kostnaður af loftvörnum til
helminga úr ríkissjóði og bæjar-
sjóðum. Reykjavík er eina bæj-
arfélagið á landinu, sem til þessa
hefir lagt fram fé til loftvarna-
ráðstafana eða samtals 2.25 millj.
króna á 2V2 ári, eða til ársloka
1953 gegn jafnháu framlagi úr
ríkissjóði. Nefndin hefir því haft
til ráðstöfunar 4.5 milljónir
króna.
Fjárframlögum þessum hefir
verið varið hlutfallslega til hinna
ýmsu greina loftvarnanna sem
hér segir miðað við árslok 1953:
Aðvörunarkerfi ......... 6.1%
Hjúkrunarmál og lækna-
tæki ................. 35.3%
Eldvarnir............... 22.1%
Fjai;skiptaþjónusta .... 8.3%
Loftvarnabyrgi ........... 4.5%
Útbúnaður hjálparsveita 10.2%
Stofnkostnaður og birgða-
geymslur ................ 4.9%
Launagreiðslur, skrif-
stofukostnaður og ann-
ar rekstrarkostnaður 8.6%
Eins og sjá má af skýrslu
þessari hefir loftvarnanefnd
lagt megin álierzlu á, að lagð-
ur yrði grundvöllur að upp-
byggingu loftvarnakerfis, er
veitt gæti borgurum þessa
bæjar sem mest öryggis á
hættutímum.
Jafnframt hefir verið aflað
ýmissa hinna brýnustu nauð-
synja á mörgum sviðum þessa
umfangsmikla verkefnis.
Framkvæmdir í því efni tak-
markast þó að sjálfsögðu af
fjárframlögum á hverjum
tíma. Framundan er að byggja
áfram á þessum grundvelli,
fullkomna það, sem þegar er
byr jað á og ráða fram úr þeim
úrlausnarefnum, er enn bíða,
eftir því sem nauðsyn krefur
og fjárveitmgar til þessara
mála leyfa.
Söluskattur og Draupnisútgáfa
Blaðinu barst í gær eftirfar-
andi frá fjármálaráðuneyt-
inu:
ÚT AF blaðaskrifum, sem orðið
hafa um stöðvun atvinnurekstrar
hjá Draupnisútgáfunni vegna
vanskila á söluskatti hefir ráðu-
neytið fengið skýrslu tollstjórans
í Reykjavík um þetta mál og fer
hún hér á eftir:
Út af fyrirspurn ráðuneytisins
varðandi stöðvun atvinnurekstr-
ar Draupnisútgáfunnar í Reykja-
vík vegna vanskila á söluskatti
vil ég leyfa mér að taka þetta
fram:
Samkvæmt 3. gr. laga nr, 112
frá 1950, sbr. lög nr. 107 frá 1951,
lög nr. 106 frá Í952 og lög nr. 100
frá 1948, ber fyrirtækjum sem
reka söluskattskyld viðskipti að
skila söluskattinum ársfjórðungs
lega til innheimtumanns ríkis-
sjóðs og telst skatturinn inn-
heimtufé hjá fyrirtækjunum, þar
sem gert er ráð fyrir að þau inn-
heimti hann hjá viðskiptamönn-
um sínum, sbr. 4. gr. laga nr. 112
frá 1950.
Fyrirtækjunum ber að skila
skattinum fyrir hvern ársfjórð-
ung innan 15 daga frá lokum
hans, én hafi skatturinn ekki
verið greiddur innan mánaðar
frá þeim tíma má láta lögregluna
stöðva atvinnurekstur þess, sem
í vanskilum er, þar til full skil
eru gerð, með því meðal annars
að setja verkstofur, útsölur, tæki
og vörur undir innsigli. Þar sem
veruleg brögð hafa verið að því,
að menn hafi vanrækt að skila
innheimtum og áföllnum sölu-
skatti hefur orðið að leita aðstoð-
ar lögreglunnar til að stöðva at--
vinnurekstur þeirra, svo ekki
yrði óhóflegur dráttur á skilum
söluskattsins.
Hefði fyrri upphæðin að réttu
lagi átt að greiðast eigi síðar en
15. jan. 1952 og hin síðari eigi
síðar en 15. jan. 1953, ef skil
hefðu verið gerð eins og lög gera
ráð fyrir.
Haustið 1952 var lögreglustjóri
beðinn að stöðva atvinnurekstur
margra fyrirtækja vegna van-
skila á söluskatti, þ. á m. Draupn-
isútgáfunnar. Var þá ekki af
stöðvun hjá Draupnisútgáfunni
þar sem það þótti vandkvæðum
bundið að loka húsakynnum henn
ar á Skólavörðustíg 17, vegna
þess að blaðið Frjáls þjóð hafði
einnig afnot af húsakynnunum.
Þegar ég í síðastliðnum mánuði
bað lögreglustjóra að láta stöðva
atvinnurekstur margra fyrir-
tækja, er þá áttu vangreiddan
söluskatt 3. ársfjórðungs 1953 og
viðbótarsöluskatt fyrir árið 1952,
var Draupnisútgáfan einnig með-
al þeirra.
Þar sem dráttur Draupnisút-
gáfunnar á greiðslu söluskattsins
var þá orðinn einstakur, bað ég
um athugun á því hvort ekki
væri unnt að stöðva atvinnurekst
ur Draupnisútgáfunnar án baga
fyrir blaðið Frjálsa þjóð og kom
í ljós við athugun að það væri
fært. Var stöðvunin síðan fram-
kvæmd í gær eins og ráðuneyt-
inu er kunnugt, og án þess að
séð verði að það geti verið blað-
inu til baga.
Út af auglýsingu Draupnisút-
gáfunnar í blöðum bæjarins í dag
um að lögreglustjórinn í Reykja-
vík hafi í gær gert bækur útgáf-
unnar upptækar, skal á það bent
að þetta er að sjálfsögðu alger-
lega rangt, þai' sem aðeins var
um stöðvun atvinnurekstrar að
ræða.
Eigi hefir enn þótt ástæða
til að kveðja borgarana til
staría í þágu loftvarnanna, en
gert er ráð fyrir að fjöldi
manna og kvenna verði kvadd
ir til þeirra starfa, auk þeirra,
sem stöðu sinnar vegna taka
sjálfkrafá þátt í þcim svo sem
er um ýmsa opinbera starfs-
menn. Helztu hjálparliðin
verða hjúkrunar- og líknar-
lið, slökkvilið, löggæzlulið,
björgunarlið og tæknilið.
Námskeið verða haldin fyr-
ir þetta starfsfólk, þegar að-
stæður leyfa og undirbúningi
er lokið.
Iljálparliðin þurfa margs-
konar útbúnað og tæki við
störf sín. Hefir allmikið verið
keypt af slíkum útbúnaði.
Samkvæmt síðustu málsgrein
3. gr. iaga nr. 112 frá 1950 .frest-
ar áfrýjun skattákvörðunar eða
deila um skattskyldu ekki ein-
daga skattsins né neinum þeim
viðurlögum, sem lögð eru við
vangreiðslu hans. Samkvæmt
þessu hefur mönnum ekki verið
veittur frestur á greiðslu sölu-
skatts síðan ákvæði þessi komu
í gildi, þó deila hafi verið um
skattákvörðun.
Draupnisútgáfan skuldar eftir-
stöðvar af viðbótarsöluskatti fyr-
ir árið 1951, sem álagður var með
bréfi skattstofunnar 9. okt. 1952,
að upphæð kr. 8.513.00. Einnig
skuldar fyrirtækið viðbótarsölu-
skatt fyrir árið 1952, að upphæð
kr. 12.000,00, álagðan af skattstof-
unni með bréfi dags, 19. okt. 1953,.
Ég vil einnig taka fram, að
beiðnina um stöðvun atvinnu-
rekstrar Draupnisútgáfunnar
sendi ég með beiðnum um stöðv-
un hjá fjölmörgum öðrum fyrir-
tækjum eins og að framan segir
og án sérstakra afskipta fjármála
ráðherra eða ráðuneytisins. Hún
var aðeins ein af mörgum, sem
senda varð til þess að jafnt gengi
yfir alla.
Kröfur Draupnisútgáfunnar
um endurgreiðslu á eldri sölu-
sköttum, sem eru umdeildar,
hefur mér ekki verið heimilt að
taka til greina og er mér ekki
fyllilega kunnugt um hverjar
þær eru.
■
Bólstaðir og búendur \
■
■-
í Stokkseyrarhreppi [
Hin gagnmerka bók GUÐNA JÓNSSONAR, sem er ;
■
brautryðjendaverk í ritun héraðssagna og höfundurinn :
ver í dag til doktorsnafnbótar, fæst hjá öllum bóksöl- ■
um. — Þar sem upplagið er takmarkað ættu menn að ■
tryggja sér bókina sem fyrst. :
Þetta er bók, sem allir unnendur :
þjóðlegra fræða þurfa að eignast. j
■
■
■
Stok'kseyringafélaigið j
SELFOSS
Lækningastofu opna ég í dag í nýja Landsbankahúsinu
(austurdyr), Selfossi. — Viðtalstími fyrst um sinn kl.
11—12 f. h. og 5—6 e. h. Laugardaga aðeins kl. 11—12.
Sími 78.
Jón Gunnlaugsson, læknir.
Laus Ijósmóðurstaða
Sarhkvæmt samþykkt bæjarstjórnar Hafnarfjarðar, er
hér með auglýst eftir ljósmóður að fæðingardeildinni í
Sólvangi í Hafnarfirði, með umsóknarfresti til 1. janúar
næstkomandi.
Umsóknir ásamt meðmælum ef fyrir hendi eru, skulu
sendar undirrituðum.
Bæjarstjórinn í Hafnarfirði, 9. des. 1953.
Helgi Hannesson.
íslenzk framleiðsln
Alullar gólfdreglar. — Gólftepparenningar og gólf-
mottur, ávallt til í mjög fjölbreyttu og miklu úrvali.
Sérstaklega falleg og smekkleg mynstur og litir.
Framleitt af VEFARINN H.F., Reykjavík.
Saumum saman teppi og földum og bryddum dregla
og gólfmottur.
Látum á stiga, tökum mál og sníðum.
Öll vinna framkvæmd af fagmönnum.
íslenzk ull — íslenzk vinna.
Aðalumboð
Gólfteppagerðin h.f.
Barónsstíg — Skúlagötu — Sími 7360.
BÓKAUPPBOÐ
Allar bækur, aðrar en forlagsbækur, í Bókaverzlun
Guðmundar Gamalíelssonar, verða seldar við opinbert
uppboð í bókaVferzluninni sjálfri í Lækjargötu 6 A, og
hefst uppboðið mánudaginn 14. desember 1953, kl. 10 árd.
Greiðsla fari fram við hamarshögg.
Uppboðshaldarinn í Reykjavík.
■ Frá og með mánudeginum 14. des er sími ■
■ > ;
Búiraðarfélags Islands
8-2200
Torfi Hjartarson.