Morgunblaðið - 13.01.1954, Síða 2

Morgunblaðið - 13.01.1954, Síða 2
2 MORGUNBLAÐiÐ Miðvikudagui' 13 jan. 1954 STAKSTEIIUAR © —ö © ® MANNAMUNUR VIÐ síðustu bæjarstjórnarkosn- ingarnar var Sigfús heitinn Sig- urhjartarson efstur á framboðs- lista kommúnista. Varð hann síð- ar aðalfulltrúi þeirra í bæjar- stjórn og bæjarráði. Fráfall Sigfúsar Sigurhjartar- sonar var mikið áfall fyrir komm únista. Hann var sá maður í flokki þeirra, sem iangmest vit hafði á úæjarmálum. Hann hik- aði heldur ekki við að eiga nána samvinnu við bæjarstjórnarmeiri hlutann um hagsmunamál bæjar- húa. Það er líka á almannavitorði að hann lilheyrði ekki þeirri deild kommúnistaflokksins, sem aUtaf telur það æðstu skyldu sína að dansa á línunni frá Moskvu. Framboð kommúnista við þess- ar bæjarstjórnarkosningar er því jmiklu veikara en við kosningarn- ar 1950. Nú skipa harðsoðnir línu kommúnistar fjögur efstu sæti lista þeirra. Þar er enginn iðnað- armaður, sjómaður, verkamaður eða verzlunarmaður. Ilöfuðstéttir bæjarfélagsins eiga í stuttu máli sagt engan fulltrúa i efstu sætum kommúnistalistans. Megináherzla «r lögð á að þau séu skipuð rök- heldum Moskvamönnum. EKKI VÆNLEGT TIL SIGUKS - ÞETTA er ekki vænlegt til sig- urs fyrir hinn fjarstýrða flokk. Almenningur í Reykjavík er far- inn að kynnast ofsatrú hinna koinmúnísku leiðtoga á hið aust- ræna stjórnaifar. Fólkið hefur af atburðunum austur þar séð, hvert er hið raunverulega eðli hins svokallaða „alþýðulýðræðis“ sem kommúnistablaðið hér hefur vegsamað hátt og í hljóði. Hin rússnesku læknamál og síðar handtaka og líflát Lavrenti Bería hafa lyft járntjaldinu frá augum f jölda fólks. En mennirnir, sem skipa efstu sæti framboðslista kommúnista við þessar bæjarstjórnarkosning- 3.r láta ekki slíkt smáræði á sig bíta. Þeir halda áfram að lof- ■syngja „alþýðulýðræðið" og „réttaröryggið“ í Rússlandi. Það •er einmitt slíkt „lýðræði“ og slíkt „réttaröryggi“, sem þeir herjast fyrir að koma á á íslandi. Þegar við þetta bætist, að eng- inn þeirra hefur nokkra þekk- íngu á bæjarmálum Reykjavíkur er varla von að listi þeirra geti haft mikla sigurmöguleika. Allt bendir þessvegna til þess að fylgið muni hrynja af komm- únistum við þessar bæjarstjórn- arkosningar. Við síðustu kosning- ar fengu þeir fjóra fulltrúa kjörna. Nú lítur út fyrir að þeir tapi a. m. k. einum fulltrúa og e. t. v. tveimur. Fólkið hafnar linukommúnistunum og Rússa- dekri þeirra. L HROSSAKAUPASTEFNAN OG REYKVÍKINGAR TÍMINN, blað flokksins, sem barðist gegn hitaveitunni og fyrstu virkjun Sogsfossa, Ieggur iiú ofurkapp á að sanna Reykvík- ingum nauðsyn þess að hverfa frá meirihlutastjórn í bæjarfélagi þeirra og taka upp samstjórn fjögra minnihlutaflokka undir forystu kommúnista. Þetta er engin tilviljun. Tíma- liðar hafa alltaf haft ofurást á hverskonar hrossakaupum. Reyk víkingar hafa hinsvegar viljað hafa ábyrga stjórn eins flokks í bæjarfélagi sínu. Kosningasigrar Sjálfstæðismanna á s. 1. sumri sýna einnig greinilega að fleiri og fleiri íslendingar eru orðnir þreyttir á pólitísku braski sam- Btjórnarskipuiagsins. Þessvegna vann Sjálfstæðisflokkurinn fjög- ur ný kjör dæmi við síðustu al- þingiskosningar. Reykvíkingar telja hvorki Svar við Neskirkju GUÐMUNDUR Ulugason, rann- sóknarlögreglumaður skrifar greinarstúf í laugardagsblað Morgunblaðsins með fyrirsögn- inni: Hvar er Neskirkja. Hann byrjar á skáldsögum um sóknar- nefndina og mig. Því næst fer hann að lýsa Neskirkju hinni fornu. Við Nessóknarmenn vit- um þetta allt um Neskirkju hina fornu, og sennilega löngu fyrr en Guðmundur. Nafnið Neskirkja var ákveðið á hinni nýju kirkju strax og sóknin var mynduð 1940, vegna þess að Melar, Skerja- fjörður og Seltjarnarnes var allt ákveðin ein sókn, en af þessari sókn er Seltjarnarnesið með höf- uðbólinu Nesi elzta og sögufræg- asta byggðin. Eðlilegast var því, að sóknin öll og nýja kirkjan bæri Nesnafnið. Á greininni er helzt að sjá, að höfundi sé illa við þessa kirkjubyggingu. Hann talar um það, að hægt sé að messa j bæði í Háskólanum og Melaskóla. Þar með er aðeins hálf sögð saga ( og lýsir þetta ókunnugleika hans | í kirkjumálum sóknarinnar. Ég er honum sammála í því. að kirkjan stendur lágt og marg-1 ir betri staðir voru til. En Einar | Sveinsson húsameistari Reykja- | víkurbæjar mUn svara Guðmundi í sambandi við skipulag bæjar- ins. í slíkum efnum hefur sókn- arfólkið engu ráðið. En beinn veg ( ur mun í framtíðinni liggja utan af Nesi og inn til kirkjunnar, og telja allir það vel róðið. Geta má þess, að vegna lægð- arinnar, sem kirkjan stendur í, er þess meiri nauðsyn, að klukkna- hús kirkjunnar í turninum verði sem stærst og rúmbest og opið til allra höfuðátta, og hefur for- ráðamönnum kirkjunnar borizt þessi krafa frá öllum sóknar- mönnum kirkjunnar, sem fylgj- ast með byggingu hennar. Ég kveð svo Guðmund Illugason vinsamlega og óska honum góðs árs og þess, að rannsóknir hans hjó lögreglunni verði haldbetri og sannleikanum samkvæmari en rannsóknir hans á sóknarnefnd- armönnum Neskirkju. J. Th. Listi Sjálfstæðis- maima á Sandi SANDI, 8. jan.: — Við hrepps- nefndarkosningarnar, sem fram fara um mánaðamótin, hefur Sjálfstæðisflokkurinn lagt fram lista sinn og er "hann skipaður þessum mönnum: Sveinbjörn Benediktsson símstöðvarstjóri, Björn Kristjánsson oddviti, Rögn valdur Ólafsson framkvæmdastj., Benedikt S. Benediktsson kaup- maður, Kristján Guðmundsson bílstjóri, Þorkell Guðmundsson skipstjóri, Magnús Arngrímsson útgerðarm. Kristján Hafliðáson smiður, Lárus Dagbertsson verka maður og Hjörtur Jónsson hrepp stjóri. ^Vinstri flokkarnir ganga sam- eiginlega til kosninganna með einn lista. Sjálfstæðismenn eru staðráðnir í að gera sigur sinn sem glæsilegastan' og óttast hvergi rauðu samfylkinguna. — Fréttaritari. Þremur fiskimönnum bjargað STOKKHÓLMUR, 12. jan. — Þrír fiskimenn á bátkænu voru teknir um borð í þýzkt skip fyrir austurströnd Svíþjóðar. Þeir lentu í ofviðrinu mikla og hafði verið saknað. „oddaaðstöðu“ Framsóknar né forystu kommúnista fyrir fjórum minnihlutafiokkum í bæjarstjórn þeirra líklega til þess að skapa heilbrigðara stjórnarfar í bæjar- félagi þeirra. Þeir telja þvert á móti, að brýna nauðsyn beri til þess að samhentir menn veljist til þess að stjórna málefnum höf- uðborgarinnar. — Skólamálin Framh. af bts. 1. vikuna", sem haldin var í fyrsta skifti í vetur til kynningar milli skóia og foreldra. Þessa „viku“ sóttu á 5. þúsund gestir og vakti hún almenna athygli. Ýms nýmæli hafa verið tekin upp í skólunum og önnur verið nánar útfærð. Má í því sambandi minna á, að tekinn hefur verið upp framburður erlendra mála ó segulband og keypt tæki til þessa fyrir alla skólana og all- mikið safn af segulböndum. Eru ýmsa»' aukningar og endurbætur á þessu í vændum, enda hefu: kennsla, með hjálp slíkra tækja reynzt mjög vel. Hér er ekki rúm til að teijs upp fjölmargt af því, sem. geri er til að bæta kennslu og skóla- líf, cn mikill áhugi ríkir meðal Sjálfstæðismanna um að hlynna sem aílra mest að skólunum. IIEILSUVERND BARNANNA Sú spurning hlýtur að vera mjög ofarlega, hvað sé gert af bæjarfclagsins hálfu til að hlynna að heilsufari skólanemenda, en sú starfsemi er mjög merkur þáttur í skólarckstri Reykjavik- urbæjar. Forráðamönnum þess- ara mála er ljóst, að heilsa æsk- unnar er það dýrmætasta og er hvorki sparað fé né fyrirhöfn til að hlynna að líkamshreysti barn- anna jafnframt kennslustarfinu. Á sviði heilsuverndar barn- anna er margt gert og merkilegt. Alkunnar eru lýsisgjafirnar, en flest börn fá lýsi ókeypis, nema þau þoli það ekki, skv. dómi læknis, eða fái það í heima- húsum. Síðan fá öll börn ljós- böð, sem að dómi skólalæknis þurfa slíkt og eru ljósastofur í öll um barnaskólunum. Þá eru tann- lækningar í hverjum skóla, sem fastráðinn læknir fer með og eru tveir slíkir læknar í Austurbæj- arskólanum. — Tannlæknastofa Langholtsskóla tekur til starfa á næstunni. Allmörg börn koma í skólann með skekkju í baki og hrygg og er þeim veitt ókeypis leikfimi t*l lækningar. Sama er um börn með ilsig. Á þetta er lögð mikil áherzla með því að bezt þykir að taka fyrir slíka kvilla þegar í byrjun og er mikl- um vanda létt af heimilunum ó þennan hátt. Við hvern skóla starfar sérstakur skólalæknir og hjúkrunarkona, sem hafa eftir- lit með heilsu barna og fram- förum. í Laugarnesskóla er starf- rækt lieimavist fyrir 23 heilsu- veil börn, sem ekki eru fær um að sækja skóla að heiman. Eru það telpur annan veturinn en drengir hinn. Þegar hin myndarlega heilsu- verndarstöð tekur til starfa nú á næstunni, verða heilsuverndar- mál skólanna tekin til athugunar í heild og skipulögð með tilliti til þeirrar starfsemi, sem þar fer fram. Foreldrar í Reykjavík mega meta það mikils, sem gert er fyrir börn þeirra, hvað heilsu- vernd viðvíkur í skólum bæj arins. Þessi starfsemi eykst me? ári hverju. IJÖLBREYTT VIÐLEITNI BÆJARFÉLAGSINS Skylt því, sem hér hefur ver- ið drepið á að ofan, er ýmis- legt, sem af bæjarins hálfu er gert fyrir börnin. Á Jaðri er starfræktur heimavistarskóli fyr- ir börn, sem ekki eiga samleið með öðrum skólabörnum. Einnig er hugsað um þau börn, sem ekki geta sótt skóla vegna heilsu- brests og eru sendir kennarar á heimili þeirra til kennslu þar. (Nýlega hefur verið ráðinn kennari til að athuga, hve mörg börn séu málhölt og er rannsókn hans á því senn lokíð. Mun þá verða tekin upp sérstök kennsla fyrír þessi börn. Hér verður að öðru leyti ekki rakið það, sem bæjarfélagið ger- ir til að lyfta skólabrag og gera BieiIsuveFndarstarfsemi í barnaskólunum Börn í Ijósböðum 'J Leikfimi til lækningar á ilsigi ) skólalíf fjölbreyttara svo sem er t. d. um skíðakennsluferðir á vetrum, vorferðalög, sem eru styrkt af bænum o. s. frv. Þess má geta, að árlega er varið yfir 200 þús. kr. til að flytja börn til skóla, sem eiga langt að sækja og 2 bílar flytja að staðaldri börn til og frá úthverfum til náms í Laugarnesskóla. Þá má minna á starfsemi Náms flokka Reykjavikur, sem miða starfsemi sína að því að veita þeim, sem atvinnu stunda, hvort sem ungir eru eða gamlir, mögu- leika til aukinnar menntunar. í vetur stunda þar nám um 840 nemendur í 42 flokkum í 12 námsgreinum. Námsflokkarnir eiga miklum vinsældum að fagna hjá bæjarbúum og vex aðsókh með hverju ári. Hér er aðeins. um fá dæmi að ræða um það, sem gert er af hálfu bæjarfélagsins til að létta undir með heimilunum í sam- band’ við nám barna þeirra, en þessi dæmi verða að nægja að sinni. VELFERÐ ÆSKIINNAR ER VELFERB REYKJAVÍKUR Eins og hér hefur verið rakið, sparar bæjarfélagið lítt til að gera skólana, sem vistlegasta og hollasta fyrir börnin. En íramundan er mikið átaö í skólamálum bæjarins, einkura hvað viðvíkur nýjum skólatygg* ingum. Nú era um 6700 fræðslux skyld börn alls í bænum. TaliJ er, að veturinn 1958—59 verði ung 9009 fræðsluskyld börn á barna* fræðslustigi. , Það er þvi augljóst, að kostn« aður bæjarfélagsins . af skóla« byggingum og skólahaldi muni fara mjög vaxendi hin næstu ár< Sjálístæðismenn en| ákveðnir í að stefna að þv| að fullnægja þörfum bæj« arbúa að þessu leyti senj bezt. Sjálfstæðismenn en| lska ákveðnir í að haldai áfram að hafa aðbúnaðl barna og unglinga í skól« unum sem fullkomnastarjg og að vakað verði yfie heilsu þeirra og velferð | samvinnu við foreldra og lieimili. í skólunum er hin ungaí Keykjavík að vaxa upp. SjálfstæðisflokkurinH hefur ekki sí/t opin auguní fyrir þörf þeirrar æsku* því hún er framtíðin, híuj á að erfa ríkið og velferij æskunnar er í einu og ölltl velferð Reykjavíkur. , :

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.