Morgunblaðið - 22.01.1954, Qupperneq 1
16 síður
Orkuverin við Sog. írafossvirkjunin fremst og í fjarska Ljósa-
fossstöðin. T.h. er einn af stálturnum nýju háspennulínunnar.
— Sjá grein borgarstjóra um raforkumálin á bls. 9.
22 þúsund fanga
Eiiféfa frelsi sitf
Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter.
SEOUL OG PANMUNJOM, 21. janúar. — Um þessar mundir er
verið að gefa um 22 þúsund föngum í Kóreu frelsi. Komu fyrstu
hópar þeirra til Panmunjom. Sumir þeirra hafa dvalizt nær þrjú
ár í fangabúðum bak við gaddavírsgirðingar og hafa margir dáðst
að því þreki, sem þessir fangar hafa sýnt, er þeir síðustu mánuði
hafa fremur kosið að sitja áfram í fangabúðunum en að hverfa
aftur undir stjórn kommúnismans.
Sem kunnugt er hafa kommún-ust þeir þess fyrst að mega yfir-
istar í Norður Kóreu og Kínaheyra þá og telja um fyrir þeim,
margsinnis mótmælt því að föng-svo að þeir vildu aftur þýðast
um þessum sé gefið frelsi. Kröfð- , Framh á bls. 6
Kosningaundirbúningur Rúts
í lépuvogshreppi ógildur
Bæjaríulltrúi Framsóknar neyð-
ist til oð mótmæla innflntn-
ingi SÍS ú hollenzku grjóti
Til að forðasl endurtekningu
á mjólkurhneyksli sínu
MAGNÚS ÁSTMARSSON bæjarfulltrúi bar á fundi bæjarstjórn-
ar í gær fram svohljóðandi tillögu:
„Bæjarstjórn Reykjavíkur mótmælir eindregið innflutningi
steinsteyptra húsa, sem hafinn er, og skorar á ríkisstjórnina
að gera þegar ráðstafanir til þess, að sá innflutningur verði
stöðvaður með öliu. Telur bæjarstjórnin það óhæfu, að útlend-
um aðilum sé fengin vinna, sem upplýst er, að íslenzkir iðnað-
armenn treystast til að inna af hendi með lægra verði, sömu-
leiðis, að flutt sé til landsins byggingarefni, eins og sandur og
möl, auk þess, sem rennt er blint í sjóinn með það, hvort hia
útlendu hús henti íslenzkum staðháttum“.
Hreppsnefndarkosningu
þar aflýst 31. janúar
Einstæður skollaleikur kommúnisia, sem
sýnir ótia þeirra við kjósendur.
BINRÆÐISBUÖLT Finnboga Rúts og annara kommúnista í sam-
bandi við merkingu framboðslista við hreppsnefndarkosningarnar
í Kópavogshreppi hefur nú fengið þann endi, að samkvæmt úr-
skurði sýslumannsins í Gullbringusýslu hefur kosningaundirhún-
iiigurinn verið ógiltur og yfirkjörstjórn hreppsins fyrirskipað að
aflýsa kosningunni 31. janúar og auglýsa síðan hreppsnefndar-
kosningu að nýju með lögmætum fyrirvara.
RÚTUR HEIMTAÐI D
Aðdragandi þessa máls er sá,
að Finnbogi Rútur krafðist þess
er framboðslistar voru fram
komnir í Kópavogshreppi, að listi
kommúnista yrði merktur D.
Hafði Rútur reynt að dulbúa
kommúnistaeðli hans með því að
kalla hann „lista óháðra kjós-
enda, stuðningsmanna meirihluta
fráfarandi hreppsnefndar". —
Byggði hann allar sigurvonir sín
ar á því, að geta náð í listabók-
staf Sjálfstæðismanna á þetta af-
kvæmi sitt.
Sjálfstæðismenn mótmæltu að
sjálfsögðu þessu atferli og kærðu
það til félagsmálaráðuneytisins.
Reyndi ráðuneytið að koma vit-
inu fyrir Rút. En það reyndist
árangurslaust. Kom deilumál
þetta að lokum fyrir sýslumann-
inn í Gullbringusýslu, sem kvað
upp fyrrgreindan úrskurð. Sam-
kvæmt honum skal framboðslisti
Alþýðuflokksins merktur A , listi
Framsóknarmanna B., listi Sjálf-
stæðismanna D og listi Rúts og
„Óháðra kjósenda, stuðnings-
manna meirihluta fráfarandi
hreppsnefndar" G listi.
MIKIÐ ÁFALL
Er þetta mikið áfall fyrir Rút
vesalinginn. Hann hefur misst af
D-inu og fengið G. í staðinn.
(Mun draga nafn af gamalli konu
sem hét Gróa á Leiti). Sennilega
finnst honum það þó heldur
skárra en ef hann hefði orðið að
merkja lista sinn C. Við þann
bókstaf, sem er hinn rétti lista-
bókstafur kommúnista er hann
logandi hræddur.
SKELFINGU LOSTNIR
Þessi skollaleikur kommún-
ista í Kópavogshreppi sem nú
Framh. á bls. 6.
BÆJARFULLTRÚA SÍS
VERÐUR HEITT
Nú varð bæjarfulltrúa Fram-
sóknarflokksins (Sambands ísl.
samvinnufélaga) nokkuð heitt.
Hann minntist ófaranna frá því
á dögunum, er hann gekk á móti
hagsmunum Reykvíkinga út af
mjólkurmálunum, þegar hann
vildi ekki mótmæla reglugerð
Framsóknarráðherrans um að
mjólkin í Reykjavík yrði gerð að
enn meira glundri en hún er nú.
Hvernig átti Framsóknarfull-
trúinn að snúa sig út úr því, að
hér var stefnt að hinu nýja húsa-
braski S.Í.S. Varð bæjarfulltrú-
anum, Þórði Björnssyni, það fyrir
að bera fram breytingartillögu
um, að komið skyldi í veg fyrir
„innflutning húshluta, sem fram-
leiða má hér á landi með jafn-
góðum árangri, hvað verð og
gæði snertir“. Ætlaðist bæjar-
fulltrúi SÍS auðsjáanlega til
þess að sín brcytingatillaga yrði
samþykkt, en tillaga Magnúsar
hyrfi hljóðlega úr sögunni,
Guðm. H. Guðmundsson bæjar
fulltrúi, tók til máls og lýsti því,
að sarntök iðnaðarmanna hefðu,
á ýmsum vettvangi, mótmælt
húsainnflutningi S.Í.S. og væri
mikill ávinningur, að þetta mál
væri tekið fyrir í bæjarstjórn.
Urðu stuttar umræður áður en
gengið var til atkvæða. Bar
fundarstjóri bæði tillögu Magnús
ar og Þórðar fram sem sjálfstæð-
ar tillögur, eins og rétt var, og
reyndi nú til þrautar á bæjar-
fulltrúa Framsóknar. Þegar hann
sá, að hér var ekkert undanfæri
að taka hreina afstöðu, greiddi
hann atkvæði með tillögu Magn-
úsar um að mótmæla innflutningi
S.Í.S., og þótti þá mörgum, sem
farin væru að gerast tíðindi.
BÆJARFULLTRÚI
KLEMMDIST
Bæjarfulltrúi Framsóknar
hafði þarna vafalaust tvennt fyr-
ir augum, í fyrsta lagi hans eigið
mjólkurhneyksli frá síðasta fundi
og í öðru lagi árásir Tímans á
Bárð Daníelsson. Bæjarfulltrúan-
um mun hafa fundizt ósamræmi
milli þess annarsvegar að greiða
atkvæði gegn tillögu Magnúsar
um hið nýja brask S.Í.S og vand
Framh. á bls. 6,