Morgunblaðið - 22.01.1954, Síða 5
pRRsr
Fðstudagur 22. janóar 1954
MORGUNBLAÐIÐ
i B
Bx^e>oe>^ie>orv9
ÖRVAMÆLIR
SAGAN UM BÆJAR-
HRAFNANA
Í>AÐ er ekki ófróðlegt fyrir
iteykvíkinga að sjá viðbrögð
rauðu flokkanna, innbyrðis, út af
því, að Bárður Daníelsson féll út
af lista Þjóðvarnarmanna. Öll
rauðu blöðin ráðast á Bárð í fall-
inu. Aðfarirnar minna helzt á
gömlu sögurnar um hrafnaþingin
á haustin rlrafnar sveitarinnar
komu saman og skiptu sér á bæ-
ina. Ef einn varð afgangs réðust
hinir á hann og gerðu út af við
hann. Síðan flugu þeir hver á
sinn bæ.
Þjóðvarnarflokkurinn býður nú
i fyrsta sinn fram við bæjar-
Btjórnarkosningar í Reykjavík.
Hinum rauðu flokkunum finnst
að með tilkomu þessa fjórða
flokks sé orðið einum of mikið.
Kommúnistar, Framsókn og Al-
þýðuflokkurinn ráðast svo að
þessum afgangshrafni og fella
hann. Þeim finnst, að Þjóðvarn-
armenn eigi ekki að hafa neinn
hæjarhrafn í Reykjavík, heldur
eigi þeir þrír að sitja að bæn-
Um ef Sjálfstæðismenn vinna
ekki meiri hluta á ný.
FTRIR KOSNINGAR
OG EFTIR
Reykvíkingar mega sjá hverju
þeir og bærinn allur á von á, ef
rauðu flokkarnir verða einum
fleiri í næstu bæjarstjórn en þeir
eru nú. Þá munu bæjarhrafn-
arnir fyrst byrja að kroppa. Fyr-
ír kosningar kroppa þeir augun
hver úr öðrum, eftir kosningar
munu þeir kroppa utan í Reykja-
Tík. Það sér auðvitað hver heil-
Tita maður að flokkar, sem haga
feér, hver gagnvart öðrum, eins
iog rauðu flokkarnir hafa gert nú
fyrir kosningar, þeir koma sér
ekki saman um neitt eftir kosn-
Ingarnar. Þá fá Reykvíkingar
fyrst, fyrir alvöru, að sjá hvað
það mundi kosta þá, beint og
ábeint, ef til þess kæmi að deila
Jierfanginu — Reykjavík.
! INNBYRÐIS VfG
' ÞEIRRA RAUÐU OG
' SJÁLFSTÆÐISMENN
Þjóðviljinn er hneykslaður á
því í morgun, að Mbl. skuli ekki
hafa rifið Bárð Daníelsson í sig
6 sama hátt og rauðu blöðin þrjú.
JVTbl. sagði frá því, sem gerzt
þafði og taldi það nóg. Sjálf-
gtæðismenn telja sér enga skyldu
Bð taka þátt í innbyrðis vígaferl-
ium þeirra rauðu. Þar eigast þeir
einir við, sem Sjálfstæðismenn
hirða ekki um þó þeir felli hvern
fennan. Sjálfstæðismenn standa
áralangt frá hrafnaþingi rauðu
flokkanna utan um Reykjavík.
Sjálfstæðismenn berjast gegn
því með öllum sínum mætti að
ffjórir flokkshrafnar rífi bæinn í
6ig, eftir kosningar. En þó þeir
Sðeili og felli hvern annan fyrir
Itosningarnar þá er það þeirra
fnál og Mbl. þarf í því sambandi
(ekki að gera meira en benda
fleykvíkingum á leikinn og hvers
þærinn geti átt von.
lÆgilegt járn
brantarslys
*<
fCARACHI 21. jan.: — Ægilegt
fiárnbrautarslys varð í Pakistan
I morgun. Pakistan-pósthraðlest-
In ók með 100 km. hraða á klst.
á flutningavagn, sem losnað hafði
Bf sporum. Á flutningavagninum
yar stór benzíntankur. Helltist
logandi benzín yfir fremstu far-
þegavagnana. Logaði enn í lest-
Snni fjórum klst. eftir árekstur-
inn. 60 manns hafa látið lífið og
50 særzt alvarlega. Zafrullah
Khan utanríkisráðherra Pakistan
Isat í aftasta vagni lestarinnar og
[varð hann ekki fyrir meiðslum.
I — Reuter,
flúmlega 10 þús. tonn af fiskflök-
um farín á markað í Rússlandi
Uniiið að flaka-frystngu fyrir ýmis
lönd - Taka þarf upp samninga við
Israel - Samfal við Elías Þorsteinsson
SÖLUMIÐSTÖÐ hraðfrystihúsanna hefur nú lokið við að frysta
og sent til Sovét-Rússlands 10,000 tonn af hraðfrystum fiskflökum.
Er hér um að ræða fyrri helming þess magns, sem samið var um
sölu á austur þangað. — Frystihúsin eru nú að vinna að frystingu
þeirra 11.000 tonna, sem eftir er að frarrileiða fyrir Rússland.
Upp í þetta magn var í gær'
búið að afskipa 2000 tonnum með
Dettifossi, sem er nýkominn úr^
Rússlandsför og Drangajökull er
nú á leið þangað.
A TÆPUM 3 MANUÐUM
Það mun taka hraðfrystihúsin
tæpa þrjá mánuði að vinna að
frystingu umræddra 11000 tonna,
jafnhliða annari framleiðslu, sem
samið hefur verið um og búast
má við að á næstunni verði samið
framleiðslu á.
FYRIR TEKKOSLOVAKIU
Flías Þorsteinsson framkvstj.,
sagði Morgbl. frá þessu í gærdag
í stuttu samtali. Gat hann þess,
að nú væru frystihúsin einnig að
vinna að frystingu fyrir Tékkó-
slóvakíu, en þangað var í nóv-
ember samið um sölu á 2000
tonnum af fiskflökum.
ÁÞÝZKALAND
Þá er búið að semja við Austur
Þýzkaland um sölu á 1300 tonn-
um af flökum, sagði Elías, en
Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna
hefur mikinn hug á auknum við-
skiptum við Austur-Þjóðverja.
MARKAÐURINN
í BANDARÍKJUNUM
Um næstu mánaðamót fer skip
héðan væntanlega vestur til
Bandaríkjanna með 1400—1500
tonn af fiskflökum af þessa árs
framleiðslu. Þa ðer mikið atriði
fyrir okkur, sagði Elías, að geta
boðið fisk þar vestra svo snemma
á árinu. í sambandi við Amer-
ikuferðina skýrði Elías svo frá
að óvissa væri ríkjandi um áfram
haldandi markað í Bandaríkjun-
um fyrir hraðfrystar rækjur, því
Japanir, sem eru erfiðir keppi-
nautar, hafa sent rækjur á mark-
að vestra. Þetta hefur haft í för
með sér verulegan samdrátt í
rækujframleiðslunni hér hjá okk-
ur.
ISRAEL VILL FISK
Elías Þorsteinsson kvað mjög
aðkallandi að teknir yrðu upp
samningar við ísrael, því þeir
munu nú þess fýsandi að gera
við okkur samning um kaup á
hraðfrystum fiski. Innan skamms
munu fleiri þjóðir láta til sín
taka þar syðra við fisksölur, sagði
hann.
Öryggi bermaima
á Súez
LONDON 21. jan.: — Tveir brezk
ir hermenn voru myrtir á Súez-
svæðinu í gær. Þeir fundust fyrir
utan járnbrautarstöðina í Mosca.
Báðum hafði verið misþyrmt.
Höfðu þeir fengið höfuðhögg og
margar stungur í kviðinn. Brezku
hernaðaryfirvöldin hafa í hyggju
að gera gagngerðar ráðstafanir til
að tryggja öryggi hermanna við
Súez-skurðinn. — Reuter.
Ólafur Þórðarson Varmalandi
Fimmlugur
FIMMTUGUR er í dag Ólafur
Þórðarson, garðyrkjubóndi að
Varmalandi í Mosfellsdal. Ólafur
er sonur Þórðar Jónssonar og
Kristínar Vigfúsdóttur, konu
hans, er lengi bjuggu á Æsu-
stöðum í Mosfellsdal.
Árið 1935 byggði Ólafur ný-
býli við laugarnar neðst í Æsu-
staðatúninu og nefndi Varma-
land, en Hjalti, bróðir hans, situr
heimajörðina. Hóf Ólafur síðan
ræktun í gróðurhúsum á býli
sínu og hefur stundað þann bú-
skap síðan með góðum árangri.
Ólafur Þórðarsonjer einn hinna
sjálfstæðu landnámsmanna í
gróðurhúsagarðræktinni, er vald
ið hafa ótrúlegustu hlutum síð-
ustu áratugina tvo. Meðfædd
greind, áhugi og verklægni hefur
gert honum fært að nema garð-
yrkjufræðin, án skólagöngu, af
lestri góðra bóka, með því að
horfa í kringum sig vökulum
augum og með því að reyna og
reyna aftur, ef eigi féll tré við
fyrsta högg. Islenzk bændastétt
á þeim mönnum mikið að þakka
er þannig brjóta ísinn.
Ólafur á Varmalandi — eða
Óli á Æsustöðum — eins og
hann er venjulega nefndur í
vinahópi, hefur verið tryggur og
dugandi áhugamaður í ung-
mennafélagsskap sveitar sinnar
og þar á hann enn heima í sjón
og raun, þó að önnur félagsmál
kalli nú á hann sem bónda og
heimilisföður.
Kvæntur er Ólafur Kristínu
Árnadóttur frá Vopnafirði, sem
reynzt hefur árvökul húsmóðir á
nýbýlinu og borið sinn hluta
starfsbyrðanna. — Þau eiga
3 mannvænleg börn, elzti
sonurinn, Þórir, stundar nú nám
við Menntaskólann á Laugar-
vatni.
Allir sveitungar þeirra hjóna,
og margir aðrir, munu í dag
hugsa hlýtt til heimílisins að
Varm i?rdi i' óska þeir, að Mos-
fell 1( ngí að njóta
handtaka þeirra og heilinda í
bústaru og félugsmálum, og þau
sjálf verka sinna og vinsælda.
1 Á. G. E.
Lentu í hrakningum og lágu
í sn jóhúsi við ilk vist |
Frétíabréf úr Borgarfirði eysfra.
BORGARFIRÐI, 16. jan. — Árið!
1953 mun verða talið hér eitt-
hvert það hagstæðasta hvað
veðráttu snertir, sem menn muna
því að þar fór allt saman. Vetur
frá áramótum ’52 og ’53 góður
þó að undir vorið kæmi 6 vikna
snjóáfelli. Vorið var mjög hag-
stætt, sumarið framúrskarandi
gott og grasspretta og uppskera
garðávaxta með eindæmum mik-
il. Haustið er ágætt og vetur til
ársloka sérstaklega mildur. Síðan
um áramót hefur jörð verið al-
auð þar til í gær að þunna snjó
slettu lagði yfir. Flesta daga hef-
ur verið þíðviðri og frost er lítið
í jörðu, þó hefur ekki verið hægt
að vinna að jarðabótum síðan
fyrir jól.
Sauðfé gekk að mestu sjálfala
til áramóta en síðan hefur það
verið við hús og yfirleitt ekki
gefið mikið og sumstaðar hefur
fé ekki verið gefið neitt, sem
heitir enn.
BRÆÐUR I HRAKNINGUM
Fyrir miðjan nóvember og aft-
ur um mánaðamótin nóv. og des.
gerði hér allhörð hríðaráhlaup
en hvorugt stóð nema fáa daga.
Bæði þessi áhlaup sköpuðu mönn
um erfiði við að ná saman fé,
en ekki urðu neinir fjárskaðar.
í hinum síðari veðragarði voru
tveir bræður frá Húsavík hætt
komnir er þeir voru í fjárleit.
Það mun hafa verið snemma dags
hinn 1. des. að þeir Ólafur og
Ragnar Þorsteinssynir í Húsavík
fóru heiman frá sér, suður á Innri
Álftavík að leita kinda. Snjórytju
veður var þá og fór versnandi er
leið á daginn. Þeir héldu þó
áfram suður á víkina og var dag-
ur að kvöldi kominn er þeir
hugðu til heimferðar, var þá kom
in blindhríð svo ekkert sá frá sér
og birtu tekið að bregða. Leið sú,
sem þeir höfðu komið er um
brattar skriður og því snjóflóða-
hætt þegar snjór er ný fallinn.
Töldu þeir því óráð að fara hana
aftur eftir að dimmdi, svo að
ekki var hægt að rekja sig fram-
hjá hættulegustu stöðunum, enda
höfðu þeir heyrt snjóflóð falla
þar öðru hverju. Tóku þeir það
ráð að fara inn dal er liggur
upp af víkinni, upp úr honum
liggur skarð í gegnum kletta-
belti og stundum farið um það
og yfir fjallgarðinn til Húsavík-
ur. Er sú leið hættuminni hvað
snjóflóðahættu snertir, en vand-
ratað þegar dimmt er. Brátt
komu þeir uppundir klettana
norðan við dalinn, en ekki tókst
þeim að finna skarðið. Óttuðust
þeir þó að þeir væru eitthvað
viltir og töldu óráðlegt að halda
lengur áfram, því stórhættulegt
er að villast á þessum slóðum
þar sem skammt er að hengi-
flugum. Varð-það því ráð þeirra
að grafa sig í fönn og höfðu
hunda sína hjá 'sér og létu þá
liggja á fótum sér. Þá mun klukk
an hafa verið hálf sex eftir há-
degi.
á eftir og gættu þeir þess atf
sofna ekki eftir það. Hírðust þehr
þarna þar til bjart var orðið uia
morguninn, þá brutust þeir út
úr förinni. Var þá enn bylur Og
frusu nú mjög föt þeirra, seixv
voru rennandi blaut er þeir stóðv»
upp. Ragnar hafði girt sokkana
utanyfir buxurnar, en er þaðt
fraus þá kipptist það- í sundur
og urðu berir leggirnir á milli
og fékk hann ekki bætt úr þvl.
Strax og þeir bræður höfðu lit-
ast um séu þeir að þeir voru á.
réttri leið og fundu nú skarði??
upp af víkinni. En ekki höfða
þeir lengi farið er þeir viltust og
vissu ekki fyrir víst hvar þeir
voru staddir, þó héldu þeir áfram.
en mjög tók nú að draga af þeim.
og fór nú sulturinn að segja
óþægilega til sín. En nesti sitt
höfðu þeir etið skömmu áður en.
þeir lögðust í fönnina. Færð var
slæm og köfuðu þeir til skipti»
fyrir eftir því sem þrek þeirra
leyfði. Er þeir höfðu farið svo
um hríð urðu allt í einu éljaskil
svo að þeir sáu ofan í Húsavík-
ina og tóku þeir þá beina stefnu.
á bæinn Dalland og þangað náðu
þeir um kl. 11 f. h. Veður var
mikið betra niðri í byggð Og'
höfðu Húsvíkingar hafið lert
strax með birtu, en farið á mi»
við þá en komu að lokum á för
þeirra og röktu þau heim um
síðir. Ekki varð þeim bræðrum.
meint við þessa svaðilför, enda
eru þeir báðir hin mestu hraust-
menni og nú upp á sitt bezta.
Ólafur er rúmlega þrítugur af?
aldri, þrek og karlmennskumað-
ur, vanur erfiðum ferðum við
fjárleitir og aðdráttarferðir.
Hann hefur legið úti áður, þó*
eigi við viðlíka erfiðar aðstæður.
Ragnar er aðeins 19 ára, en sér-
lega kjark og tápmikill ungling-
ur.
ILL VIST í SNJÓHÚSINU
Framan af degi var frost-
laust og snjórinn blautur voru
þeir bræður því gegnblautir er
þeir fóru í fönnina, en með kvöld
inu gerði frostkul og kom þeg-.
ar klakahús yfir þá, en inni í
því var snjórinn krapkenndur.
Varð vistin því hin versta og
sótti mjög á þá kuldi, enda voru
þeir ekki mikið búnir og heitir
af göngunni. Ekki var langt liðið
á nótt esy á.þá tók mjög að sækja
svefn, reyndu þeir að verjast
svefni með því að sitja uppi og
syngja, en þó fór svo að þeir
dottuðu aðeinu en mjög stutta
stund og var þeim mun kaldara
SAUÐFJÁRRÆKTARFÉLAG
í síðastliðnum mánuði tók hér
til starfa nýstofnað sauðfjárrækt-
arfélag. Stofnendur þess eru um.
20 fjáreigendur hér í hreppi. For—
maður félagsins er Björn Jóns-
son bóndi í Geitavik. MikilL
áhugi er hér hjá mönnum um
að efla sauðfjárræktina, eftir aS
vonir hafa vaknað um að sigrast
verði að miklu leyti á garna-
veikinni með hinni nýju bólu-
setningu, sem virðist gefa góða.
raun þó ekki sé hún algerlega
örugg.
FJÖRUGT FELAGSLIF
Félagslíf hefur verið hér fjör-
ugt síðan um jól, enda eins gött
með samgöngur og um hásumar.
Á þriðja í jólum hélt Lestrar-
félagið almenna skemmtisam—
komu, tveim dögum síðar var
haldin barnasamkoma, strax eft—
ir nýárið voru hér sýndir tveii*
sjónleikir tvö kvöld í röð á veg-
um ungmennafélagsins hér og á.
Þrettándanum var haldinn álfa-
dans fyrir forgöngu Verkamanna
félagsins. Þorrablót er fyrirhug-
að með Þorrakomu.
I. I.
Mikií
saia í happ-
drættismiðunum
SVO SEM kunnugt er, var urn
síðustu áramót fjölgað miðum í
Happdrætti Háskóla ísland$ um
5000 stykki. — Er dregið vár I
1. flokki 15. janúar s.l., höfðu
helzt 85% þessaar miða, en ef
að líkum lætur, sagði skrifstofa
Happdrættisins í gær, þá munu
95% miðanna hafa selzt, er drcg-«
ið verður 10. febrúar n.k. .