Morgunblaðið - 22.01.1954, Síða 12
12
MORGVNBLAÐIÐ
Föstudagur 22. janúar 1954
Engin hrossakaup
PARÍS 21. jan. — Á fundi
frönsku stjórnarinnar s.l. kvöld
var ákveðið að Frakkar myndu
ekki fara í nein hrossakaup við
Rússa um að neita þátttöku í
Evrópuhernum. En frá því hefur
verið skýrt að undanförnu að
Rússar hafi heitið Frökkum
vopnahlé í Indó-Kína gegn því
að Frakkar verði ekki aðilar að
Evrópuhernum. — Reuter.
Skipasfigi um
Skf. Lawrance
WASHINGTON 21. jan.: — Öld-
ungadeild Bandaríkjanna sam-
þykkti í dag frumvarp um sam-
starf við Kanada um byggingu
skipastiga upp eftir St. Lawrence
fljóti. Frumvarpið var samþykkt
með 54 atkv. gegn 33. Þegar
skipastigar þessir hafa verið
byggðir geta stór úthafsskip siglt
inn á stóru vötnin og til Chicago
frá Atlantshafi. — Reuter.
— Æskulýðssíða
— Eigið heimili
Framhald af bls. 7
byggt stefnu sína á því, að lofa
hinu Og þessu, sem ekki er hægt
að sanda við, svo sem kommún-
istar og aðrir óábyrgir andófs-
flokkar bæjarstjórnarinnar gera,
og það veit að í mörg horn er
að líta Og ekki geta allir fengið
samtímis sinnt þessu sínu hags-
munamáli. Það gerir sér hins-
vegar Ijóst, að það er lífsskilyrði
flokksins að vinna að hagsmun-
um fjöldans. Það veit Og, að flokk
urinn hefur sýnt hagsmunamál-
um æskufólksins skilning og mun
gera það framvegis.
Það veit, að húsnæðismálin,
brýnasta hagsmunamál hinna
ungu kjósenda, verða þá að-
eins leyst farsællega, að Sjálf-
stæðisflokkurinn hafi meiri
hlutavald til að koma fram
stefnu sinni í þeim málum.
ÞESS VEGNA FYLGIR ÆSKU-
LÝÐURINN SJÁLFSTÆÐIS-
FLOKKNUM SEM FYRR.
— Þegar báfarnir....
Framh. af bls. 7.
„ÉG SEGI ÞAÐ EKKI“
Þarna sé ég lítinn snáða, son
Margrétar, hjá henni.
— Hvað ertu gamall?
— Fimm ára.
— Ætlar þú að vinna í hrað-
frystihúsinu eins og mamma þín,
þegar þú ert orðinn stór?
— Nei.
— Ætlarðu kannski að verða
skipstjóri á stórum bát og fara
út á sjó og fiska?
— Nei — ekki heldur.
— Hvað ætlarðu þá að gera?
— Ég segi það ekki.
— Jæja, þú um það vinurinn.
En nú má ég ekki tefja lengur.
Ég þakka Margréti og samstarfs-
fólki hennar fyrir upplýsingarnar
og skemmtilegar móttökur og
óska öllum gleðilegs árs — mik-
ils og góðs fisks — og nógrar at-
yinnu á nýja árinu.
sib.
Magnus Thorlacius
hœstaréttarlögmaður,
Máll' lutningsskrif stof a.
Aðalstræti 9. — Sími 1875.
Frakkar hefja
sókn i Indó-Kína
• SAIGON 21. jan.: — Franski
sambandsherinn í Indó-Kína
hefur byrjað mikla sókn í
suðurhluta landsins, þar sem
uppreisnarsveitir kommún-
ista hafa ráðið lögum og lof-
um síðan 1946. Hafa komm-
únistar búið sterklega um
sig þar og vænta Frakkar
þess að margir mánuðir líði
áður en mótspyrna þeirra
verður brotin á bak aftur.
Frakkar hófu sóknina bæði
á sjó og landi og beita fjölda
hernaðarflugvéla. Fóru land-
göngusveitir inn í sjálfa Tuy
Moa höfuðborg Phuyen-fyik-
is, sem hefur verið aðalbæki-
stöð kommúnista. Var land-
gangan svo skyndileg að
kommúnistar veittu litla mót
spyrnu.
• Samtímis þessu berast fregn-
ir frá Laos og Mið-Indó-Kína
að frönsku hersveitirnar ráði
nú allri Thakek-borg. Búa
þeir sig nú undir að taka
fjallavirkið Vien Bien Phu.
Sjálfsfæðisflokkurinn
í Keflavík gefur út blað
KEFLAVÍK, 18. jan. — Sjálf-
stæðisfélögin hér í bænum hafa
gefið út kosningablaðið Heimi,
fyrir Keflavík og nágrenni. Er
þetta allmikið blað, sem flytur
greinar um ýmiss bæjarmál svo
og stefnu Sjállfstæðisflokksins í
bæjarmálum Keflavikur. í rit-
stjórn blaðsins eru Guðjón Hjör-
leifsson, Ingvar Guðmundsson,
Jóh. Pétursson, Ragnar Friðriks-
son og Tómas Tómasson. Blaðið
er prentað í prentsmiðju Hafnar-
fjarðar.
0E-S>E>®«S>«>S>e>C««>S-5>S>«>ff>«>S>‘i>S-5>S>'5>S>SN^«>S>«>S>,8>C-e;<S>«>C'S>S>«>S>SS*3<8<S<5r^<S<3<S!
VÖRÐUR — HVÖT — HEIMDALLUR — ÓÐINN
KVÖLDVAKA
Sjálfstæðisfélögin í Reykjavík efna til kvöldvöku n. k. sunnudag
24. þ. m. kl. 8,30 síðdegis í Sjálfstæðishúsinu.
Dagskrá:
1. Ávarp: Bjarni Benediktsson, ráðherra.
2. Ávarp: Tómas Guðmundsson, skáld.
3. Einsöngur: Þuríður Pálsdóttir.
4. Harmónikuleikur: Bragi Hlíðberg.
5. Leikþáttur: Áróra Halldórsdóttir og Emilía Jónasdóttir
6. Sígeunasöngvarinn Coras.
7. Baldur og Konni.
8. Einsöngur: Guðmundur Jónsson, óperusöngvari.
9. D a n s .
Hljómsveit Aage Lorange. Söngvari: Haukur Morthens
Aðgöngumiðar verða seldir í skrifstofu Sjálfstæðisflokksins í dag. Verð kr. 15.00.
Sjálfstæðismenn, tryggið ykkur miða í tíma.
^iáÍLtœhi
í Í^euLiavíL.
ifatfólceöLój'eioým i r\eyRfavLL. K
<^j«®^>S«S>Ee<re<5e<í>í«4S>S>e€>®«Se«>Sí£>í<S-í>Pe«í>i>í>S>í>E'í>S>í>i<i>»<i>»<3<M<^
MANILA 21. jan.: — Magsaysay
forseti Filipseyja ákvað að sér-
hver íbúi eyjanna mætti senda
símskeyti ókeypis með kvörtun-
um um slæma framkomu opin-
berra starfsmanna. Svo mikið
flóð af skeytum hefur borizt að
héðan í frá mega skeyti þessi
ekki vera yfir 50 orð.
Kvöldvoka
Stúdentafélags Reykjavíkur
í Sjálfstæðishúsinu í kvöld kl. 9.
Aðgöngumiðar seldir frá klukkan 6 e. h.
V erkamannaf élagið
Dagsbrún
Allsherjaratkvæðagreiðsla
um stjórnarkjör fer fram í skrifstofu félagsins í Alþýðu-
húsinu dagana 23. og 24. janúar 1954. — Laugardaginn
23. janúar hefst kjörfundur kl. 2 e. h. og stendur til kl.
10 e. h. — Sunnudaginn 24. janúar hefst kjörfundur kl.
10 f. h. og stendur yfir til kl .11 e. h. og er kosningu
þá lokið.
Kjörstjórn Dagsbrúnar.
Bátafélagið Björg
og Slysavarnafélag íslands halda sameigin-
legan fræðslufund
í fundarsal Slysavarnafélagsins, Grófin 1, sunnudag
24. jan. klukkan 5,30 e. h.
Fundarefni:
1. Öryggismál sjómanna á smábátum.
2. Fræðslukvikmynd.
Félagsmenn í Bátaféiaginu Björg eru eindregið hvattir
til að fjölmenna á fundinn.
STJÓRNIN
Leikfélag Hveragerðis:
Fjalla Eyvíndur
Sýning að Hlégarði í Mosfellssveit laugardag kl. 21.
Aðgöngumiðapantanir í Hlégarði. — Bílferð í sambandi
við sýninguna kl. 20.15, frá Ferðaskrifstofunni.
I. B. R.
H. K. R. R.
BÆ JARKEPPNI
milli Hafnarfjarðar og Reykjavíkur í handknattleik hefst
í kvöld klukkan 8. Þá keppa:
2. flokkur kvenna Hafnarfj. og Reykjavíkurmeist. Þróttur
3. fl. karla Hafnarfj. og Reykjavíkurmeist. K. R.
2. fl. karla Hafnarfj. og Reykjavíkurmeist. Valur.
Komið og sjáið spennandi keppni.
Hvor sigrar?
MARKÖS Eftir Ed Dodd ---
Gísli Einarsson
HéraðsdómsiögmaSur.
Mólf lutningsskrifatof a
Laugavegi 20 B. — Sími 82631.
HJÖRTUR PJETURSSON
cand. oecon,
löggiltur endurskoðandi.
HAFNARVOLI — SÍMI 3028.