Morgunblaðið - 03.02.1954, Síða 1
16 síður
41. árgangur.
27. tbl. — Miðvikudagur 3. febrúar 1954
Prentsmiðja Morgunblaðsins
lörn og fullorðnir
frfóis I hel í Evrópu
JárabrauEir eru grafnar í snjó.
Einkaskcyti til Mbl. frá Reuter-NTB
PARÍS, 2. febr. — Vetrarhörkur og frost ganga nú yfir Evrópu án
ai'láts. í Sviss var í dag 22 stiga frost, mesti kuldi síðan 1942, og
í Júralfjöllum var frostið 27 stig. Snjór teppir járnbrautir og sam-
göngur og jafnvel í Marokko og Túnis hefur verið snjókoma.
FOLK FRYS I HEL
í Frakklandi hafa allmargir
frosið í hel. Eru íréttirnar
af iíðan fólksins meir sláandi
fyrir Það, að meðal þeirra er
látizt hafa eru börn allt frá 3
vikna gömlum til 5 ára. —
Fjöidi fólks liggur hverja nótt
á götum úti í Par's, en alls
staðar þar sem skjól er að
finna er þyrping fólks. Fólk
þetta er ekki allt lieimilislaust
ag staðaldri, heldur befur því
verið sagt upp húsnæði vegna
dráttar á húsaleigugreiðslum.
— Kona ein fannst í morgun
stíffrosin í dyragætt einni. í
hönd hennar var reikningur-
inn yfir húsaleiguskuld henn-
ar — reikningurinn, sem gerði
hana heimilislausa.
UMFERÐAHÖMLUR
Á Bretlandseyjum þar sem ver-
ið hefur hörkufrost, er nú spáð
meiri kulda og frekari snjókomu.
í París aka bifreiðarnar með
frosna snjóköggla á þaki og vél-
arhúsi, lítið er um fólk á götum
úti, kvikmyndahús, skemmtistað-
ir og næturklúbbar lítið sem ekk-
ert sótt.
Hraðlestin frá París til Belgrad
situr föst í snjó, 40 km frá Bel-
grad. Sama er að segja um hrað-
lestina sem fór frá Belgrad til
París og 2 aðrar járnbrautarlest-
ir júgóslafneskar. Sitja þær fast-
ar í snjósköflum á Colubince-há-
sléttunni. — Á Ítalíu eru járn-
brautarlestir einnig tepptar í
snjósköflum.
Viðskiptamál
LUNDÚNUM — Yfir hafa staðið
viöræður um efnahagssamvinnu
Breta og Norðmanna. Hefur ár-
angur oiðið allgóður. Ákveðið er
að samninganefndirnar hittist
aftur í Osló í sumar til framhalds
viðræðna.
22
Sjálfstæðismenn fengu nær
atkvæði í öllum kaupstöðunum
þií
us.
Páfinn er
sneð hiksta
RÓMABORG 2. febr. — Líðan
Píusar páfa 12. var betri í dag, að
því er hans nánasti ráðgjafi
skýrði frá.
Óstaðfestar fregnir herma að
það sé hiksti, sem páfinn hefur
kvalizt af að undanförnu. —
Fréttastofa Vatikansins tilkynnti
að hvílan sem páfinn hefði verið
lagður í hefði reynzt honum mjög
vel.
Orsck hikstans er sögð vera
truflun í meltingarfærum páfa.
— Reuter-NTB
liin
þjóð í Evrópu af nál.
hefir meiri her en á
styrialdartimunum
Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter-NTB
BERLÍN, 2. fehr. — Annar þáttur Berlínarráðstefnunnar er hafin
og sitja nú ráðherrarnir á ráðstefnu í sendiherrabústað Rússlands
í Austur-Berlín. Eden var í dag í forsæti. Molotov setti í gær fram
nýja áætlun um Þýzkalandsmálin, en áður hafði Eden gert slíkt
hið sama og var þeirri áætlun vel tekið bæði af stjórnarflokki
Adenauers í Þýzkalandi, svo og af stjórnarandstæðingum.
Alþýðuflokkurinn tapaði
fimm bæjarfulltrúum en
kommúnistar fjórum
1 ÞEIM 11 kaupstöðum, þar sem stjórnmálaflokkarnir buðu
fram sér framboðslista við bæjarstjórnarkosningarnar hefur
atkvæðamaign þeirra samtals orðið, sem hér segir:
Sjálfstæðisflokkurinn,
Kommúnistaflokkurinn,
Alþýðuflokkurinn,
Framsóknarflokkurinn,
Þjóðvarnarflokkurinn,
21230 atkvæði eða 45,7%
8529 — — 18,4%
8063 — — 17,3%
4730 — — 10,3%
3876 — — 8,3%
í tveimur kaupstaðanna var samvinna milli flokka um
framboðslista. Á Akranesi buðu Alþýðuflokksmenn, komm-
únistar og Framsókn fram saman og hlaut listi þeirra sam-
tals 760 atkvæði eða tveimur færra en þessir flokkar hlutu
allir við bæjarstjórnarkosningarnar árið 1950. Listi Sjálf-
stæðismanna á Akranesi hlaut hinsvegar 612 atkvæði og var
það 152 atkvæðum fleira en við síðustu bæjarstjórnarkosn-
ingar. í Húsavík buðu Sjálfstæðismenn og Framsóknarmenn
fram sameiginlegan lista.
SOMU HOMLUR OG
í LEPPRÍKJUM
Molotov vill samkvæmt hinni
Þjóðverja við „lögreglulið, landa
mæraverði og loftvarnalið". Allt
þetta eru takmarkanir, sem ekki
nýju áætlun, setja snmu hömlur t hafa komið til umræðu áður, og
á hernaðarmátt sameinaðs Þýzka- eru ekki líklegar til þess að hljóta
lands, eins og herjum Búlgaríu, fylgi stuðningsmanna Adenauers
Rúmeníu og Ungverjalands voru í Þýzkalandi. — Hins vegar er
settar með friðarsamningunum á það bent, að þessi áætlun Molo-
1946. Vill hann takmarka her 1 Framh.1 á bls 2
Sækja ii!
höfuðborgarinnar
SAIGON 2. febr.: — 12000 manna
lið Viet-Mihn uppreisnarmanna
sótti enn í dag fram í áttina til
Luang Prabang, höfuðborgar
Laosríkis. Á sama tíma hóf stór-
skotalið uppreisnarmanna skot-
hríð á fjallvirki Frakka við Bien
Phu, á landamærum Laos og
Yonking.
Yfirherstjórn Frakka tilkynnir
að Frakkar hörfi skipulega. Upp-
reisnarmenn hafa tekið bæ einn
130 km. frá Luang Prabang og
eiga nú ófarnar um það bil 6
dagleiðir til höfuðborgarinnar.
SKIPTING BÆJAR-
FULLTRÚANNA
Samtals skiptast bæjarfulltrú-
ar í öllum kaupstöðunum milli
flokka sem hér segir:
Sjálfstæðisfl.
Alþýðuflokkur
Kommúnistar
Framsóknarfl.
Þjóðvarnarfl.
47 bæjarfulltr.
27 —
20 —
20 —
3 —
KOSNINGAÞATTTAKAN
Kosningaþátttakan var mest á
ísafirði. Þar kusu 93% kjósenda
á kjörskrá. í Hafnarfirði kusu
92,1%, Húsavík 91,4% og Nes-
kaupstað 90,4%. Minnst var kosn
ingaþátttakan á Seyðisfirði, 80%.
f Reykjavík kusu 89,1%. Er það
ein mesta kosningaþátttaka, sem
hér hefur verið.
í Reykjavík var fylgi flokk-
anna sem hér segir:
Setning Fjórveldafundarins
Myndin er tekin er utanríkisráðherrarnir komu saman við samningaborðið í Berlín. Eden cr merktur með 1, Molotov með
2; Dulles með 3; Bidault með 4.
Sjálfstæðisflokkur 49,5%
Kommúnistaflokkur 19,3%
Alþýðuflokkur 13,5%
Þjóðvarnarflokkur 10,3%
Framsóknarflokkur 7,3%
ALÞÝÐUFLOKKURINN OG
KOMMÚNISTAR TAPA
Alþýðuflokkurinn tapaði sam-
tals 5 sætum í bæjarstjórn. Einu
til Sjálfstæðismanna í Hafnar-
firði, einu til Sjálfstæðismanna á
Siglufirði^ einu til Sjálfstæðis-
manna á Ólafsfirði, einu til Þjóð-
varnar á Akureyri og einu til
Framsóknar á Seyðisfirði.
Kommúnistar töpuðu fjórum
sætum. Einu í Reykjavík til „Þjóð
varnar", einu á ísafirði til Fram-
sóknar, einu í Neskaupstað til
Framsóknar og einu á Siglufirði
til Framsóknar.
Framsóknarmenn Unnu þannig
þrjú sæti en töpuðu einu. Var
það í Vestmannaeyjum, þar sem
Framsókn hrundi og fékk rúm-
lega helmingi færri atkvæði en
við síðustu bæjarstjórnarkosning-
ar.
Sjálfstæðismenn' unnu eins og
áður er sagt þrjú sæti, öll af Al-
þýðuflokknum.
' Sjálfstæðismenn hafa hrein
an meirihluta í tveimur kaup-
stöðum, Reykjavík og Ólafs-
firði. Kommúnistar hafa hrein
an meirihluta í Neskaupstað
en töpuðu þar samt einu sæti.