Morgunblaðið - 03.02.1954, Qupperneq 16
Veðurúflif í dag:
Allhvass sunnan. — Rigning
öðru hverju.
Merkuslu skáídin þrjú
Sjá grein dr. II. Stangerups á
bls. 9.
Meiri hlýindi á íslandi en
nokkru öðru Evrópulandi
MEÐAN miklar frosthörkur ganga yfir Evrópu, grimmdarkuldi og
Ju-íðarveður er við Miðjarðarhafið, hefir blíða verið slík hér á
landi, að menn muna tæpast eftir öðru eins veðurfari. Veðurstofan
^kýrði Mbl. frá því í gær, að þá hafi verið hlýjast á Loftsstöðum
í Mýrdal, 7 stiga hiti. í Reykjavík var hitinn 6 stig.
*HLÝ SUÐLÆG HAFÁTT
Metta undarlega veðurfar staf-
«r af því að kyrrstætt háþrýsti-
ívæði er yfir Norðurlöndum.
Veldur það norðan og austan átt
■vm Evrópu, svo að kaldir straum-
,ar frá Norðurlöndum og Norður-
Upphaflega var félagsskapur
þessi stofnaður 31. okt. 1947, á
afmælisdegi dr. Ólafs Daníelsson-
ar, en hann er eins og kunnugt
er mestur stærðfræðibrautryðj-
andi hér á landi. Markmið félags-
skaparins var sá, að stuðla að
aamstarfi og kynnum þeirra
ínanna, sem lokið hafa prófi í
stærðfræðilegum efnum hér á
landi.
FÉLAGIÐ HLAUT NAFN 1952
RÚsslandi seilast æðilangt suður
á bóginn.
Hér á landi er hinsvegar suð-
læg hlý hafátt. Taldi Veðurstof-
an allt útlit fyrir að þetta sama
veðurfar héldist enn um sinn, því
að háþrýstisvæðið yfir Norður-
löndum er kyrrstætt.
félagsjns eru nú 21. Þar af er einn
búsettur í Ameríku, prófessor
Bjarni Jónsson. Þess má einnig
geta, að ekki hafa allir félags-
menn stundað stærðfræðinám við
háskóla, t. d. er einn þeirra bóndi
sem fyrir fjörutíu árum lagði
stund á verzlunarnám og gerðist
fyrir nokkru meðlimur félagsins.
í stjórn félagsins eru þeir Árni
S. Björnsson aktúar og Björn
Bjarnason menntaskólakennari.
Sæmdir FálkaorS-
unni í sambandi við
SO ára afmæli
sfjómarráðsins
í SAMBANDI við háTCnar aldar
afmæli Stjórnarráðs íslands hef-
ur forseti íslands — að tillögu
orðunefndar — sæmtt jxssa menn
heiðursmerki fálkasarðannar:
Stefán Jóh. Stefánssan, fyrrv.
forsætisráðherra, stérStrossi.
Björn Ólafsson, fyxrw. ráðherra
stórriddarakrossi ns«S5 stjiörnu.
Emil Jónsson, íym.v. ráðherra,
stórriddarakrossi með stjömu.
Jón Hermannsson, fyrrv. toll-
stjóra, stjörnu stóriiddara. Jón
varð skrifstofustjóri á Stjórnar-
ráði Islands við stofnun þess fyrir
50 árum og er einn á iífi þeirra
manna, er þar störftiðiu fyrstir.
(Frétt frá orðuritara)
líekla tafðist rnjög
í Karaehi
HEKLA, millilandaflugvél Loft-
leiða, tafðist alllengi af óviðráð-
anlegum ástæðum austur í Kar-
achi, í Pakistan, er hún var á
leið frá Hong Kong til Reykja-
víkur í fyrri viku. f ráði var því
að leigja norska Skymastervél
til að fara til New York, en um
það leyti sem sú flugvél var ferð
búin í Stavangri, kom í ljós að
Hekla myndi geta náð til Noregs
á svipuðum tíma og ráðgert var
að hin flugvélin legði upp hingað.
Var þá hætt við að taka norsku
flugvélina á leigu. — Hekla kom
svo hingað til Reykjavíkur í gær,
klukkan 2,30, fullhlaðin farþeg-
um og vörum. Hélt flugvélin héð-
an til Bandaríkjanna
Tvö merk sfærðfræðiri! gefin
r
úf af Islenzka slærðfræðafél.
ÍGÆR skýrðu þeir Björn Bjarnason menntaskólakennari og Leifur
Ásgeirsson prófessor fréttamönnum frá tveimur merkilegum stærð-
íræðiritum, sem út hafa komið síðastliðið ár á vegum íslenzka
^tærðfræðafélagsins. Rit þessi eru, Mathematica Scandinavica, sem
komið hefur út í tveimur heftum og fjallar um æðri stærðfræði,
*en hitt er Nordisk matema tidskrift í þremur heftum og er það
alþýðlegt fræðirit um stærðfræði.
Allt fram til ársins 1952 var
iélag þetta nafnlaust. Það ár
Jilaut það nafnið íslenzka stærð-
íræðafélagið og gerðist þá með-
limur í samnorrænni tímaritaút-
^áfu sem fimm stærðfræðifélög
Uorðurlanda nú standa að. Á
stofnfundi var ákveðið, að eigi
^kyldu haldnir færri en tveir
lundir ár hvert, en strax á fyrsta
■ári urðu fundirnir sex. Á fund-
nm félagsins eru haldnir fyrir-
lestrar um stærðfræðileg efni og
rætt um þau mál. *
TRYGGINGAFÉLÖGIN
MÁTTARSTOÐ ÚTGÁFUNNAR
Útgáfa þessara rita er miðuð
*við það, að sem flestir vísinda-
jnenn á sviði stærðfræða geti
motið sín sem bezt hér á landi, en
jSÍðastliðin fimmtíu ár, hefur þjóð
lífið færzt í það horf, að þörfin
•cykst jafnt og þétt fyrir vísinda-
jnenn hér, svo sem verkfræðinga,
•eðlisfræðinga, tryggingafræðinga
o. s. frv. Hafa tryggingafélögin
Jiér brugðizt vel við útgáfunni og
lagt fram mikið fé henni til
«tyrktar.
MEÐLIMUM FÉLAGSINS
FER FJÖLGANDI
Meðlímir íslenzka stærðfræða-
363 kr, fyrir 9 réfla
SÍÐUSTU 3 vikurnar hefur fjöldi
réttra ágizkana ekki farið yfir 9
;xétta leiki, vegna þess hve úrslit
hafa verið óvænt. Á laugardag
komu flest úrslitanna á óvart og
voru 11 um að ná 9 réttum ágizk-
unum. Hæsti vinningur var 368
ki'. fyrir 2/9 og 6/8 í kerfi. Vinn-
ingar skiptust þannig;
1. vinningur; 97 kr. fyrir 9
vétta (11)
2. vinningur: 29 kr. fyrir 8
jrétta (72)
Sex Isfirðingar taka þátt
í skíðaheimsmeistaramóti
Métið hoísl 13. febrúar n.k.
Á SKÍÐAÞINGINU 1953 var stjórn SKÍ falið að hefja undirbúning
að þátttöku íslands í heimsmeistaramóti í skíðaíþróttum er fara
á fram í Svíþjóð 13. febr.—7. marz n. k. Hefur stjórn Skíðasam-
bandsins nú samþykkt þátttöku eftirtalinna kvenna og karla í mót-
inu: Martha B. Guðmundsdóttir, Jakobína Jakobsdóttir, Haukur O.
Sigurðsson, Jón Karl Sigurðsson og Steinþór Jakobsson, sem keppa
í svigi, bruni og stórsvigi, svo og Oddur Pétursson er keppir í 15
km og 30 km göngu. Keppendur þessir eru allir ísfirðingar.
SÓTT UM STYRK
Stjórn SKÍ var frá upphafi ljóst
að þar sem tekjur sambandsins
byggjast eingöngu á lágum fc-
lagsgjöldum meðlima þess, væri
því algjörlega um megn að greiða
kostnað af þátttöku í þessu mik-
ilvæga móti. Stjórnin gaf því öll-
um skíðaráðum og héraðssam-
böndum innan vébanda sambands
ins kost á að senda keppendur
ef þau treystust til að bera kostn-
aðinn af því og tilnefndir kepp-
endur hefðu tilskilda þjélfun fyr-
ir slíká keppni.
Þá sótti stjórnin um styrk til
ÍSÍ úr utanfararsjóði, en það er
eini aðili er SKÍ getur sótt til
um fjárhagslegan stuðning. Er
umsóknin í athugun hjá ÍSÍ.
UMSÓKNIR
ísafjörður, Siglufjörður og Ak-
ureyri óskuðu þegar eftir að
koma til greina með að senda
keppendur og síðar kom sams-
konar beiðni frá Ásgeiri Eyjólfs-
syni, Reykjavík. Sú varð svo
raunin, að aðeins ísafjörður gat
sent keppendur til mótsins og
samþykkti stjórnin áðurnefnda
ísfirðinga sem þátttakendur í
mótinu af íslands hálfu.
Keppendurnir allir hafa dvalið
við æfingar í Svíþjóð undan-
farið.
GÓÐUR UNDIRBÚNINGUR
Alþjóða skíðasambandið fól
Skíðasambandi Svíþjóðar að sjá
um heimsmeistaramótið. Hefir
mikil vinna verið lögð í undir-
búning þess og virðist hann vera
með ágætum undir öruggri stjórn
Sigge Bergman.
25 þjóðir úr 3 heimsálfum hafa
tilkynnt þátttöku og munu allir
færustu skíðamenn heimsins taka
þátt í mótinu. Það hefst í Falun,
en þar er keppt í norrænum grein
um og stendur yfir frá 13.—21.
febr. í Áre fer svo fram keppni
í alpagreinum og stendur hún
yfir frá 27. febr. til 7. marz. Há-
tíðleg setningarathöfn fer fram
bæði í Falun og Áre og verða
fánar þátttökuþjóða bornir fyr-
ir keppendum.
Allir ofangreindir keppendur
íslands munu væntanlega einnig
taka þátt í Holmenkollenmótinu
í Noregi. — Vignir.
Nýr bátur til Hornaf jarðar
1 ÞETTA er hinn nýi bátur Horn-
firðinga, Gissur hvíti, sem er
sænsk-byggður og kom austur
þangað frá Svíþjóð fyrir
skömmu. Þessi mynd er tekin af
bátnum er hann fór' í reynsluför
sína, en hann var byggður í Raa.
Guðni Jóhannsson skipstjóri
sigldi bátnum heim, fyrir eigend-
urna Oskar Valdimarsson og Ár-
sæl Guðjónsson. — Systurskip
báts þessa er að verða fullsmíð-
aður í Raa. Hann eiga Hornfirð-
ingar einnig. — Gissur hvíti er
knúinn 150 hestafla June-Munk-
tellvél. — Guðni sagði Mbl. í gær
að þetta myndi vera fyrsta vélin
j í fiskibát hér á landi, sem ræst
er með rafmagni og ekki þarf að
hita upp. — Er vélin í sambandi
við 1000 wátta ræsi. — Stýris-
húsið, gólf í vélarúmi, stigar og
fleira er úr alúmíníum, sem er
nýjung við byggingu fiskibáta.
Guðni kvaðst álíta að léttmálmur
þessi myndi nú ryðja sér til rúms
við bátabvggingar. Hornfirðingar
binda miklar vonir við þessa
báta, sem eru hin beztu skip,
eins og reynslan af Gissuri hvíta
sýnir. — Þeir Gísli Johnsen og
Sverrir Júlíusson veittu mikil-
væga aðstoð við bátakaupin.
Stórsigur Sjálfstæðis-
flokksins í Hveragerði
Fékk ihreinan meirihluta
Gunnar Benediklsscn féll vegna úfsfrikana
HVERAGERÐI, 2. febr. — Sjálfstæðisflokkurinn hér í hreppnum
vann stórmikinn kosningasigur við hreppsnefndarkosningarnar á
sunnudaginn. — Flokkurinn, sem til þessa hefur aðeins átt einn
mann í hreppsnefnd, fékk nú hreinan meirihluta í henni. — Er
þetta tvímælalaust einn stærsti kosningasigur flokksins við kosn-
ingar þessar.
Rússar skipa
sendiherra hér
HINN 19 janúar féllst ríkisstjórn
íslands á það, að ríkisstjórn Ráð-
stjórnarríkjanna skipaði herra
Pavel Konstantinovitsh Ermoshin
sendiherra Ráðstjórnarríkjanna á
íslandi.
Hr. Ermoshin hefur síðan 1952
verið sendiráðunautur í sendiráði
Ráðstjórnarríkjanna í Stokk-
hólmi.
^ÚRSLITIN
Við kosningarnar greiddu 259
manns atkvæði og af þeim fékk
listi Sjálfstæðismanna 116 atkv.,
en við síðustu kosningar 74. —•
Sameiginlegur listi Framsóknar
og Alþýðuflokksins fékk 65 atkv.
og einn fulltrúa (93 við síðustij
kosningar og 2 menn). Kommún-
istar nú 77 atkv. og einn fulltrúa,
en fengu síðast 80 atkv. og 2 full-
trúa.
HAFNAKFJÖRÐUR
VESTMANNAEYJAB
12. leikur Vestmannaeyja
h4xBg5
GUNNAR FELL
Vitað Var að óánægja ríkti 8
rauðu fylkingunum. Efsti maður-
inn á lista kommúnista, Gunnar
Benediktsson prestur, sem eins og
allir vita er algjör línukommún-
istí, var strikaður svo mjög út,
að hann féll fyrir öðrum manni
listans, Rögnvaldi Guðjónssyni.
Það var einnig allmikið una
útstrikanir og tilfæringar á
sambræðingslista krata og Fram-
sóknar, en aðeins ein á lista Sjálf-
stæðisflokksins.
IIREPPSNEFNDIN
Af lista Sjálfstæðismanna vora
kosnir þeir: Grímur Jósafatsson,
kaupfélagsútibússtjóri, Gunnar
Björnsson, garðyrkjubóndi og
Eggert Engilbertsson, verkamað-
ur. — Fulltrúi Framsóknar og
krata er Þórður Jóhannsson og
sem fyrr segir er Rögnvaldur
Guðjónsson fulltrúi kommúnista.