Morgunblaðið - 16.02.1954, Síða 1
16 síður
Æsilegur bardagi fyrir Búizt við nýjum straumi þýzkra
stofudyrum Molotovs flottamunna vestur ú bóginn
Svíi rrmeð barnsh]ar!a,r sló 5 aiþýðulögreglumenn
í rot áður en hann var borinn ofurliði
Kaupmannahöfn, 15. febr.
UM SEINUSTU mánaðamót reyndi Albert Hilding Kinberg, sem
er sænskur að þjóðerni og forstjóri að starfi, að ná fundi Molo-
tovs, þar sem hann dvaldist í rússneska sendiráðinu í Berlín. Lík-
lega hefir Albert ekki gert boð á undan sér eða ráðherrann a. m. k.
ekki búizt við honum, því að hörðustu sviptingar tókust þegar með
honum og varðmönnum Molotovs.
riMM MEÐVITUNDARLAUSIR
Virðist Svíinn hafa ærna
krafta í kögglum, enda á bezta
aldri, 37 ára gamall og raumur
á vöxt. Er ekki að orðlengja það,
en hann notaði allt, sem tiltækt
var í þeirri orrahríð, sem nú
tókst. Er í frásögur fært, að hæg-
indastóll hafi flogið út um glugga
og ýmis önnur húsgögn hafi ver-
ið höfðu að vopni. A. m. k. 5
kempur úr alþýðulögreglu
kommúnista lágu meðvitundar-
lausar í valnum áður en yfir
lauk, en við mikið ofurefli var
að etja. Tylft lögreglumanna
tókst loks að buga Svíann. Hann
var fluttur í fangabúðir.
ILLA ÚT LEIKINN
Austur-þýzkur læknir, sem
flýði vestur á bóginn fyrir
nokkrum dögum, sá Albert
snöggvast, þegar komið var með
hann úr bardaganum. Segist hann
aldrei hafa séð átakanlegri sjón.
Föt hans öll voru í henglum og
hann allur hræðilega útleikinn
eftir þung barefli.
KEFLAÐUR OG í
JÁRNUM
Sænskir stjórnfulltrúar í Ber-
lín leggja nú allt kapp á að fá
manninn lausan, ekki sízt svo
að honum verði hjúkrað, en
kunnugt er, að fyrst í stað var
hann hafður í járnum og keflað-
ur og er svo e. t. v. enn.
Fullvíst þykir, að Svíi þessi
verði sakaður um tilræði við
Molotov, en þetta kvað þó vera
mesti meinleysismaður, en um
leið eldheitur hugsjónamaður og
„með barnshjarta.“ Mun erindi
hans við ráðherrann hafa verið
að fá hann til að sýna sanngirni
á Berlínarfundinum. Hefir hann
ætlað að hvetja hann til að láta
af fjandskap við heimsfriðinn. —
Einhverjir kynnu að ætla, að
maður þessi hafi verið ölur, en
svo var ekki að sögn læknis þess,
er fyrr greinir.
------------------------
Beria f jarlægður
með rakblaði
STOKKHÓLMUR, 15. febr. —
Áskrifendur að hinni sitóru
rússnesku alfræðiorðabók,
fengu nýlega senda undarlega
orðsendingu frá stjórn orða-
bókarinnar f Rússlandi, en slík
orðsending er send öllum á-
skr'fendum að orðabókinni.
— Gerið svo vel að skera
út, helzt með rakblaði blað-
síðurnar 21, 22, 23 og 24, ásamt
brjóstmyndinni, sem er á milli
bls. 22 og 23 í kaflanum, sem
hefur einkennisstafina BER.
Hér fylgja með ný blöð til að
líma inn í staðinn.
Það kom í Ijós, þegar flett
var upp í bókinni, að blaðsíð-
urnar, sem að skera átti út,
fjölluðu um „Hinn trygga
lærisvein og nánasta samstarfs
manna Stalins, Lavrentii Ber-
ía. Á blaðsíðunum, sem komu
inn í staðinn var mjög ýtarleg
lýsing á Beringshafinu, ásamt
myndum af því.
Víðförlar agnir
HEIDELBERG — Fundizt hafa
geislavirkar agnir, sem stafa frá
kjarnorkusprengingum vestur í
Bandaríkjum, á tindi fjallsins
Königstuhl við Heidelberg í
Bíil með 2 mönnum hrapar 65 m í
Giijareit — Búðir sluppu liiandi
Fundi utanríkisráðherr-
anna lýkur á fimmtudag
Berlín, 15. febr. (Reuter-NTB)
IDAG sátu þeir 22. fund sinn utanríkisráðherrar fjórveldanna.
Stóð hann 4—5 stundir. Enn hefir enginn árahgur náðst á
fundum fjórveldanna, og vonuðu menn þó í lengstu lög, að draga
mundi til samkomulags, er friðarsamningar við Austurríki kæmu
a dagskrá.
Vetrarríki
mikið
í Danmörku
KAUPMANNAHOFN 15. febr.
— Vetur lagðist seint að í Dan
mörku, en því þyngri varð
hann, er á leið. Um helgina
var snjókoma um mestan
hluta landsins, og veðurfræð-
angar spá þar frosti næstu
sólarhringa. ís á siglingaleið-
um er nú alvarlegur farar-
tálmi.
Allir ísbrjótar landsins eru
önnum kafnir, jafnvel í Stóra
belti og Eyrarsundi er leið ó-
fær að kalla nema með aðstoð
ísbrjóta. Margar eyjar lands-
ins hafa einangrazt með öllu,
sumar vikum saman, vegna ísa
laga. Ilvergi virðist þó hallæri
fyrir dyrum. Brýnustu nauð-1
synjar má alltjent flytja með
vélflugum. Hópar manna una
nú hag sínum betur en oft
endra nær, íþróttamenn, sem.
leita sér afþreyingar við skíða
göngu og skautahlaup.
ÞÓF í HÁLFA FIMMTU >
STUND
Á fundinum í dag var aðallega
rætt um öryggismál álfunnar.
Lenti í þófi, og snerist Molotov
öndverður við öllum tillögum
Vesturveldanna eins og hans er
vandi.
Bidault bað Molotov að svara
því afdráttarlaust, hvort hann
teldi Atlantshafssáttmálann ósam
rýmanlegan tillögum sínum um
öryggismál álfunnar. Molotov
vékst undan að svara því beint.
Molotov spurði ráðherra Vestr
| urvelda, hvort þeir væru hlynnt-
ir öryggi allrar álfunnar. Dulles
varð fyrir svörum og sagði: „Við
viljum öryggi alls heimsins."
Þegar á fundinn leið, tóku ráð-
herrar Vesturveldanna að þjarma
ótæpilega að Rússanum. Sá hann
þá sitt óvænna og bað, að fundi
væri slitið.
FIMMVELDARÁÐSTEFNA
Fyrir hádegi í dag áttu ráð-
herrarnir með sér fund fyrir
luktum dyrum. Annar slíkur
fundur verður haldinn á mið-
vikudag. Fjalla fundir þessir um
hugsanlega fimmveldaráðstefnu
með aðild kínverskra kommún-
ista.
Utanríkisstefnu ráðherranna
fjögurra lýkur á fimmtudag.
Þangað til verður m. a. rætt um
Þýzkalandsmál.
Bílstjórinu varð að skilja við félaga
siirn og sækja lijálp 8 km, leið
ílla til reika
AKUREYRI, 15. febr.
ÞAÐ SLYS varð um kl. 8,30 í morgun vestur á Öxnadalsheiði, í
hinum landskunna Giljareit, að vörubifreið rann út af vegin-
um og' steyptist niður í Heiðarárgljúfur, en það er 65 metra fall,
í beinni línu. Einn farþegi var í bílnum ásamt bílstjóranum. —
Komust þeir báðir lífs af, en ílla til reika. Ofsarok var er slysið
varð og er það talin meginorsök þess. Bíllinn er að sjálfsögðu stór-
skemmdur, vörur og brak úr honum í allt að 150 m fjarlægð frá
þeim stað, sem hann hafnaði á í árgljúfrinu.
Kafað niður á nimlega
fjögurra
Ferðín tók fimm stundir
París, 15. febrúar.
SAGT ER, að Frökkum hafi tekizt að fara í málmkúlu niður á
meira dýpi en dæmi eru til fyrr. Var tilraun þessi gerð undan
ströndum Vestur-Afríku, í hafinu milli Dakar og Kapverde-eyja.
Komst kúlan á meira en 4 km dýpi.
EINN FARÞEGI —
EITT TONN AF VÖRUM
Kl. 7 í morgun fór vörubíllinn
A-37, sem er með sex manna far-
þegahúsi og er tjaldað yfir vöru-
pallinn með segli, en hliðar palls-
ins eru jafnháar húsinu, á leið
til Reykjavíkur, með um 1 tonn
af vörum og átti að sækja varn-
ing suður.
Bílnum ók Þór Árnason, en
farþeginn var Stefán Jónsson,
báðir ungir piltar héðan úr bæn-
um. — Álitið er að bíllinn hafi
verið kominn vestur í Giljareit á
Öxnadalsheiði um kl. 8.30 í morg-
un en færi er nú gott á vegum
hér nyrðra.
Hér á Akureyri var veður gott,
en þegar vestar kom var á ofsa-
rok. Má til dæmis nefna, að við
lá, að stafn fyki úr gripahúsi á
Fremri Kotum í Norðurárdal, að
sögn bóndans þar.
RANN AFTUR Á BAK
ÚT AF VEGINUM
Skammt vestan Reiðgils í Gilja-
reit var talsverð svellbunga á
veginum en ekki talinn hættu-
leg yfirferðar. Þar fer billinn
út af. sem fyrr segir. Er talið
að hið ofsalega veður hafi feykt
bílnum upp úr hjólförum, sem
myndazt hafa upp á svellið, hann
síðan runnið fram af vegbrún-
inni, og hafi afturendinn verið
á undan. Síðan hafi bíllinn enda-
stungizt ofan í gljúfrið. Talið er
eð þeir félagar, Þór og Stefán,
hafi verið í bílnum alla leiðina
niður, sem er 65 m frá vegar-
brún.
Framh. á bls 2.
METI PICCARDS
HNEKKT
Hefir þannig verið hnekkt því
meti, sem prófessorPiccard setti
s. 1. sumar, er hann fór í djúp-
kúlu sinni niður á 3150 m dýpi
í Miðjarðarhafi. Prófessorinn átti
líka einu sinni annað met, komst
hann fyrir nokkrum árum hærra
upp í himingeiminn en öðrum
hafði þá tekizt.
FIMM STUNDIR
í KAFI
Djúpkúla þeirra Frakkanna var
um 10 smálestir og smíðuð að
fyrirsögn Piccards. Áhöfn henn-
ar var tveir liðsforingjar. Virtu
þeim umhverfi í hafinu fyrir sér
í sierkum ljósum.
Það tók um fimm stundir frá
því kafað var, unz aftur var
komið upp á yfirborð.
Þungt lóð var neðan í kúlunni.
Rafsegull hélt því við botn henn-
ar. Þegar lagt var af stað upp,
var lóðinu sleppt. Talið er, að
þrýstingur hafi verið 405 kg á
hvern fersm kúlunnar, þegar
hann var mestur.
BREYTT VIÐHORF
Rætt er nú mjög um, hver áhrif
það muni hafa, að fundurinn hef-
ir farið út um þúfur. Telja menn
m. a., að flóttamannastraumur
frá kommúnistum vestur á bóg-
inn muni stórum aukast. En mjög
dró úr honum eftir að til mála
kom, að háð yrði fjórveldaráð-
stefna um Þýzkalandsmál.
Þá þykir hætt við, að von-
leysi muni grípa almenning í
Austur-Þýzkalandi, þar sem
hann búist við margra ára áþján
kommúnista, eftir að fundurinn
■hefir farið út um þúfur.
Biðsf undan
endurkosningu
Árás uppreisiarmanna
í Laos hrundið
PARÍSARBORG, 15. febrúar. —
Franska herstjórnin segir, að
hrundig hafi verið áhlaupi upp-
reistarmanna í Indó-Kína um
16 km. norðan Luang Prabang,
höfuðborgar Laos. Tókst snarpur
bardagi, og varð nokkurt mann-
tjón á báða bóga.
Meginherafli uppreistarmanna
er tæpa 50 km. frá höfuðborginni.
TAIPEH, 15. febr. — Miðstjórn
kínverska þjóðernissinnaflokks-
ins samþykkti í dag að tilnefna
Sjan Kai-sék frambjóðanda við
fousetakjör. Gerði miðstjórnin
þessa samþykkt eftir að forset-
inn hafði beðizt undan endurkosn
ingu. Hins vegar kveðst hann fús
til að taka við embætti forsætis-
ráðherra. Víst er, að miðstjórnin
leggur fast að honum að gefa
kost á sér.
Forsetakosningar verða háðar
kringum 20. marz n.k.
— Reuter-NTB.