Morgunblaðið - 16.02.1954, Page 11
Þriujudagur 16 febrúar 1954
MORGVNBLA9IÐ
11
Sexfug í dag:
Frú Kristín Arnadóttir
Ragnhildarstöðura í Flóa
o
í DAG á Kristín Árnadóttir hús-
freyja að Ragnheiðarstöðum í
Fióa sextugs afmæli.
Ég get búist við því, eftir því
sem ég þekki Kristínu, að henni
finnist á því lítil þörf að mannst
sé á þessum vettvangi þessara
tímamóta í ævi hennar, svo dul er
hún og lítt fyrir það gefin að
halda sínu merki á lofti.
Engrar afsökunar ætla ég þó
að biðja á því að ég vel þennan
kost til þess að koma kveðju
minni til hennar á þessum heið-
ursdegi hennar, en væri sæmra
að afsaka að þetta verða of fá-
íækleg orð til þess að varpa að
nokkru ráði ljósi yfir það merki-
lega starf er Kristín hefir af
hendi leyst. ,
Ekki er hennar starf merki-
legt vegna þess að hún hafi um
dagana eytt dýrmætum tíma sín-
um í mannfundasnatt og kröfur á
hendur öðrum, heldur fyrir það
að hún hefir heil og skipt helgað
heimili sínu krafta sína, lagt sig
alla fram um að skapa manni sín-
um og börnum traust og fagurt
heimili, og búa þau svo undir lífs
baráttuna að þeim mætti veitast
gangan á hinni grýttu götu lífs-
ins greiðari. í.þessu göfuga starfi
sínu hefir Kristín að sjálfsögðu
notið styrkrar stoðar síns ágæta
eiginmanns, en þá um leið síns
hugvits, þreks og æðruleysis og
bjargfastrar trúar á sigur þess
góða í lífinu.
Kristín er fædd 16. febrúar árið
1894 að Seljatungu í Gaulverjar-
bæjarhreppi, dóttir hjónanna
Margrétar Guðmundsdóttur,
prests á Stóru-Völlum í Lands-
sveit og Árna Halldórssonar söðla
smiðs frá Syðri-Rauðalæk í Rang
árvallasýslu. Kornung var hún
tekin í fóstur af föðursystur sinni,
Kristínu Halldórsdóttur og manni
hennar Steini Eiríkssyni að Odd-
hól í Rangárvallasýslu, og ólst
hún upp hjá þeim ágætu hjónum.
Eigi er Kristín langskólagengin
fremur en títt var um æskufólk
í alþýðustétt þeirra tíma, þó var
hún einn vetur í unglingaskóla
og annan í Kvennaskóla Reykja-
víkur og hefur sú vera hennar
þar án efa orðið henni notadrjúg,
þótt að hinsvegar fuilyrða megi
að sá skóli er henni hefur orðið
notadrýgstur, — svo og fleirum
sem gott upplag er í — sé æsku-
heimili hennar í Oddhól þar sem
hún á uppvaxtarárunum lærði
fyrst og fremst þau lífssannindi
er þá voru í hávegum höfð meðal
dugandi fólks, að til þess að verða
að manni, sjálfum sér og öðrum
til liðs og styrktar í lífinu, þurfti
að ástunda trúmennsku og sam-
viskusemi í hverju starfi, og að
engin laun voru betri en ánægj-
þeirra er verkin þáðu yfir vel
unnu verki. Árið 1919 giftist
Kristín Sighvati Andréssyni frá
Hemlu í Landeyjum og hófu þau
það ár búskap að Grímsstöðum
í Vestur-Landeyjum, en fluttust
þaðan að ári liðnu að Ártúnum
<og bjuggu þar til ársins 1939 er
þau fluttust að Ragnheiðarstöð-
nrn í Flóa. Heimili þeirra hefur
alla tíð verið umfangsmikið og
stórbrotið, þar sem gestum og
gangandi hefur jafnan verið
tveim höndum tekið.
Sighvatur, maður Kristínar. er
og stórhuga svo að af ber. Bjart-
sýnn og áræðinn og vílar ekki um
hlutina þótt á bátinn gefi, og á
móti blási um stund. Hann heldur
feínu stryki þótt aðrir séu með úr-
tölur. Má hikiaust um hann segja
að hann er sjálfstæður til orða
iDg athafna.
Þau hjón hafa einast níu börn
tog eru átta þeirra á lífi og upp-
komin, er það eigi lítið dagsverk
Bem að baki liggur að ala upp og
Bjá farboða svo stórum barnahóp
tog hafa þau til þess ekki notið
r.eins ríkisstyrks, eins og nú tiðk-
Bst orðið að láta barnmörgu fólki
S té og þarf varla að barnahópur-
£nn sé stór þar sem hjónum er
yfirleitt ekki treyst án ríkisað-
stoðar að ala upp tvö börn.
Börn þeirra Kristínar og Sig-
hvatar eru:
Hólmfríður, búsett í Reykja-
vik, Andrés, er stundar atvinnu
við bifreiðaakstur við heimili
sitt á Ragnheiðarstöðum, Stein-
dór, er einnig vinnur við sömu
atvinnu, Kristín, gift í Reykjavík,
Árni, vélvirki í Reykjavík,
Margrét, er dvelur hjá foreldrum
sínum, Ester, starfsstúlka í
Reykjavík og Bjarney, starfs-
stúlka í Reykjavík.
Öll eru þau systkinin mann-
kostamenn hinir mestu og hverj-
um og einum er þeim kynnist
þykir vænt um þau, sakir
fölskvalausrar tryggðar og glað-
lyndis. Er og ekki að efa að slík
móðir, sem Kristín Árnadóttir er
hefir iagt þeim til veganesti er
hverjum örlegum manni er hollt
að hafa.
Kristín á Ragnheiðarstöðum
hefir eins og svo allof margir
aðrir orðið að þola heilsubrest
og anað mótlæti er lífið leggur
svo mörgum á herðar. Öllu því
hefir hún samt tekið með mestu
stillingu og hetjulund, sem ein-
kennir allt hennar dagfar. Hún
er góð kona í fyllstu merkingu
þess orðs, vill hverjum og ein-
um greiða gjöra og færir jafn-
an flest til betri vegar, en læt-
ur annað er henni lýkar miður
kyrrt liggja.
Aldraðri móðir sinni, er um
langan tíma hefir hjá henni dval-
ið, hefir hún jafnan sýnt staka
umhyggju og tillitssemi, og ef
til vill er sú fagra framkoma
hennar bezta sönnunin fyrir því
hversu mikil mannkosta mann-
eskja hún er.
Þessar línur sulu nú ekki hafð-
ar fleiri en ég vildi að endingu
færa Kristínu beztu afmælis-
óskir. Megi gæfa fylgja henni,
heimili hennar og fjölskyldu
allri. Gunnar Sigurðsson.
heldur h!ufavef!u
KVENFÉLAGIÐ Hringurinn efn-
ir á sunnudaginn kemur til hluta
veltu í Listamannaskálanum til
ágóða fyrir Barnaspítalasjóðinn,
Ónefndur kaupsýslumaður
sýndi Hringnum þá rausn í fyrra
að gefa félaginu nokkur hundruð
gripi, sem hann hafði keypt inn,
í því skyni að stofna sérverzlun.
Stofnun verzlunarinnar fórst fyr-
ir, en munina, sem eru nýir og
verðmætir gripir, gaf hann
Hringnum til hlutaveltuhalds.
Má meðal þeirra nefna muni úr
postulíni silfurplett, kertastjaka
o. fl.
Af ýmsum ástæðum hefur tími
orðið rnjög stuttur til undirbún-
ings þessari hlutaveltu, en Barna
spítalinn á marga velunnara, og
ef þeir vildu gefa muni á hluta-
veltuna, verður þeim þakksam-
lega veitt móttaka í Listamanna-
skálanum miðvikudag og fimmtu
dag kl. 4—7 e.h.
Hjálpumst öll að því að búa
upp litlu, hvítu rúmin í Barna-
spítalanum!
Barátta við hindurvitni
Starfsfólk Heilbrigðisstofnunar
Sameinuðu þjóðanna, sem starf-
ar meðal Asíu-þjóða, rekst oft á
það sem vestrænar þjóðir myndu
kalla hjátrú og hindurvitni. í
Indó-Kína drekka menn t. d. ekki
kúamjóik. Starfsfólk Barnahjálp-
ar Sameinuðu þjóðanna, hefir
farið framhjá þessu með því að
kalla mjólkina, sem gefin er börn
um „fugla-mjólk“. Mjólkin, sem
flyzt þarna austur á vegum Barna
hjálparinnar er aðallega niður-
soðin
HÚSMÆÐCR
MAN-O-TILE plastdúkurinn
er kominn aftur
fer frá Kaupmannahöfn 19. febr.
til Færeyja og Reykjavíkur. —
Flutningur óskast tilkynntur rem
fyrst til skrifstofu Sameinaða í
Kaupmannahöfn.
Frá Reykjavík fer skipið 26.
febr. til Færeyja og Kaupmanna-
hafnar.
Skipaafgreiðsla Jes Ziemsen.
— Erlendur Pétursson. —
MAN-O-TILE er mjög auðvelt að hreinsa, þolir
sápulút og sóda án þess að láta á sjá
MAN-O-TILE fæst í mörgum litum.
MAN-O-TILE er ódýrt.
MAN-O-TILE er límdur á vegginn með gólfdúkalími.
IHálning & Járnvörur
Sími 2876 — Laugaveg 23.
■■■■■■■■■•■•■■
jpCtatÍHA JchJAch
• lOCCIlTU« SKJALA>TÐANOl OC OÖMTOlKU* f (M<KU 0
KIRKJUHVOU - SÍMI 81655
Vi! leigja eða kaupa
húsnæði, sem væri hentugt fyrir iðnað.
Þyrfti að vera 70—100 ferm. að stærð. Þarf ekki að
vera fullgert. — Tilboð leggist inn á afgr blaðsins fyiir
19. þ. m., merkt: „Leiga eða kaup —22“.
3
Bezt að auglýsa 1 Morgunblaðiðinu —
Byggingavörur
Varanlegar
□ruggar fyrir eldi
Ódýrar
ashest-steinlími
Veggplötur fyrir ytri klæðningu —
Þilplötur í skilveggi og innri kiæðn-
ingu — Báru-plötur á þök — Þak-
hellur — Þrýstivatnspípur og frá-
rennslispípur, ásamt tengingum og
millistykkjum.
Framleitt af:
Czechoslovak Ceramics Lto ,
Prag, Tékkóslóvakíu
Einkaumboðsmenn:
Wars Trading
Company
Klapparstíg 26 — Sími 7373