Morgunblaðið - 26.02.1954, Síða 1
16 sáður
41. árgangur.
47. tbl. — Föstudagur 26. febrúar 1954.
Prentsmiðja Morgunblaðsins
NAGIB: — Farinn frá
NASSER: — Tekinn við
fr
(iriíin frú
36 ára hðrshöiðingi orðinn forsætis-
réSherra Egypialands
KAIRO og Lundúnum 25. febr. ■—- Tilkynnt var í Kairó snemma
í morgun að Nagíb hershöfðingi hefði sagt af sér forsetaembætti
og öllum öðrum skyldustörfum er hann gegndi í Egyptalandi. Herma
fregnir að Nagíb sé nú í stofufangeisi á heimili sínu í úthverfi
Kairóborgar og engum sé heimilað að sjá hann eða hitta. Hersveitir
eru á verði við helztu byggingar í Kaíró, en engar fregnir hafa
borizt af óeirðum í borginni.
Hin opinbera tilkynning sagði að Nagíb hefði verið leystur
frá embætti forsætisráðherra og frá formennsku í Byltinga-
ráðinu. Við embætti hans hefði tekið varaforsætisráðherrann
Nasser hershöfðingi. Embætti forseta er óskipað.
7 KLUKKUSTUNDIR
Fundur Byltingaráðsins hinn
síðasti stóð yfir í 7 klukkustund-
ir. Eftir þann fund var sagt, að
Nagíb .hefði farið fram á að fá
meiri völd í hendur en aðrir fé-
lagar í Byltingaráðinu. Sagði að
síðustu 10 mánuði hefði hann
stöðugt farið fram á meiri og
meiri völd sér til handa. Loks
hefði hann farið fram á að geta
sniðgengið allar ákvarðanir Bylt-
ingarráðsins og að geta að eigin
I vild skipað ráðherra landsins. —
' Þetta gengi einræði næst, sagði
í tilkynningu Byltingarráðsins.
SAGÐI AF SÉR
1 Nagíb sagði síðan af sér em-
bættum og þá kom kreppan í
Kairo. Fréttaritarar benda á að
Nasser hafi síðustu mánuði verið
driffjöður í öllu stjórnmálalífi
Egyptalands. Hann er 36 ára
gamall og var aðalmaðurinn í
Framh. é bls. 2.
Brunatryggingar bæjarins
-----.,-®
verða boðnar út
■ ■
LUNDUNUM, 25. febr. — Um-
ræða um utanríkismál fór fram
í brezka þinginu i dag. — Gerði
Eden grein fyrir viðræðunum á
Berlínarfundinum.
Meðal annara ræðumanna var
Churchill. Kvaðst hann enn hafa
trú á að fundur fulltrúa fimm-
veldanna gæti haft árangur í för
með sér. — Reuter—NTB.
KAUPMANNAHOFN, 25. feb.
— Enn eitt morð hefur verið
framið í Kaupmannahöfn og
hefur það slegið óhug á Kaup-
mannahafnarbúa.
Eftir hádegi í dag fundu
menn Iík 12 ára gamallar
stúlku á stíg er liggur inn í
skemmtigarð einn. Hafði hún
verið myrt með 5 hnífstung-
um.
Lögreglan óttast að gcðveik-
ur maður hafi framið morð
þetta og hefur verið send út
tilkynning til mæðra um að
láta börn sín ekki vera úti ein
síns liðs. —NTB.
He? naðaraðstoð
KARACCHI, 25. febr. — Til-
kynnt hefur verið að undirrit-
aðir hafi verið samningar um
hernaðaraðstoð Bandaríkjanna
við Pakistan.
Jafnframt hefur Eisenhower
forseti skrifað Nehrú forsætis-
ráðherra Indlands og boðið hon-
um samskonar aðstoð.a —Reuter.
Áfengisfrumvarpið fer lítt
í gegnum 2. umræðu
Vilji efri deiidar er að veHingahús fái
vínveiffngaleyfi, en (búar ráði hvor!
útsölusiaður áfengis skuli opinn
FRUMVARPID til nýrra áfengislaga kom til atkvæðagreiðslu í
efri deild í gær eftir 2. umræðu í deildinni. Þetta er i fyrsta
sinn sem þetta frumvarp, sem er gamall kunningi innan deildar-
veggjanna kemur til atkvæðagreiðslu þar, og af því leiðir að nú í
íyrsta sinn fæst svolítið yfirlit yfir vilja deildarinnar í þessu máli.
Frumvarpið virtist í þessari fyrstu atkvæðagreiðslu njóta í stærstu
dráttum fylgis meirihluta þingmanna cfri deildar. Á því voru ekki
gerðar neinar stórkostlegar breytingar. Þær helztu breytingar sem
við atkvæðagreiðsluna eftir 2. umræðu voru samþykktar eru þessar:
Tilgangur laganna er að vinna
gegn misnotkun áfengis í
landinu og útrýma því böli,
sem því er samfara. En áður
var í frumvarpinu sagt að til- .
gangur þess væri að stuðla að
hóflegri meðferð áfengis og .
vinna gegn misnotkun þess. i
Vökvi þarf að innihalda meira !
en 3'A% vínanda að þunga til
þess að hann teljist áfengi, í
stað þess að í frumvarpinu
var takmarkið 214% af vín-
anda að rúmmáli.
Óheimilt er að flytja 01 til
landsins,
Óheimilt er að gefa veitinga-
mönnum afslátt að ákveðnu
útsöluverði tií almennings.
Heimilt er að setja upp útsölu-
staði áfengis í kaupstöðum
að undangenginni atkvæða-
greiðslu íbúanna.
ic Dómsmálaráðherra getur veitt
veitingahúsum, einu eða fleiri
í kaupstöðum þar sem áfengis-
útsala er, leyfi til vínveitinga,
ef veitingahúsið hefur mat og
óáfenga drykki á boðstólum
og ef það er fyrsta flokks og
þjórfé er ekki greitt.
ic Lögreglustjórum er heimilt að
loka áfengisútsölu eða banna
vínveitingar á veitingastöðum,
sem vínveitingaleyfi hafa,
fyrirvaralaust um lengri eða
skemmri tíma.
Áfengisvarnarráð verður ekki
stofnað, en í frumvarpinu var
gert ráð fyrir að það yrði skip-
að 5 mönnum og hefði yfir-
umsjón með áfengisvörnum í
landinu. Hins vegar verður
skipaðaður sérstakur áfengis-
ráðunautur ríkisstjórnarinnar.
í öllum skólum, er opinbers
styrks njóta, skal fara fram
fræðsla um áhrif áfengis-
nautnar.
Framh. á bls. 2.
bærinn tekur að sér
innheimtu og afgreiðslu
Frá bæjarstjómarfundi í gær
AAUKAFUNDÍ, sem haldinn var kl. 11 árdegis í gær í bæjar-
stjórn Reykjavíkur, var samþykkt tillaga frá meirihluta bæj-
arráðs um að bjóða út brunatryggingar á öllum húseignum í lög-
sagnarumdæmi bæjarins. Gerði Gunnar Thoroddsen borgarstjóri
við það tækifæri grein fyrir gangi þessa máls og efni þeirrar til-
lögu um útboð, sem lögð var fram á fundinum.
UPPSOGN TRYGGINGANNA
Borgarstjóri vakti í upphafi
athygli á því, að hinn 5. febrúar
Páfinn
nærist ekki
RÓMABORG 25. febrúar—Þján-
ingar hins heilaga föðurs Píusar
páfa hafa enn aukizt. Læknar
skýrðu svo frá í dag, að hann
hefði ekkert getað nærzt síðustu
þrjá sólarhringana.
Önnur frétt frá Vatikanríkinu
í dag hermir, að þar sem páfinn
hefði nú verið alvarlega þjáður
í rúmar 4 vikur, hefði hann
ákveðið að kalla saman kardínála
ráð sitt einhvern næstu daga.
Benda kunnugir á að tilgangur
páfa með því geti verið tvenns-
konar.
1. Að skýra þeim frá veikind-
um sínum.
2. Að ræða um eftirmann í
stöðu hins heilaga föðurs.
Læknar skýra svo frá, að enn
sé þeim ekki að fullu kunnugt
um, hvað þjái páfa. Hann hefur
ekki verið nægilega hraustur til
þess að af honum hafi verið hægt
að taka röntgenmynd, en kvill-
inn er í maga. Munu læknar, ef
unnt reynizt, skera páfa upp, til
þess að reyna að komast fyrir
hver meinsemdin er.
1953, hefði bæjarstjórn sam-
þykkt að segja upp samningum
við Almennar tryggingar um
brunatryggingar í bænum. — í
samræmi við þessa ákvörðun
hefði verið haldið á þessum mál-
um síðan. Samningum hafði ver-
ið sagt upp og hagfræðingi bæj-
arins falið að athuga málið og
gera um það tillögur til bæjar-
ráðs og bæjarstjórnar. Þessi at-
hugun hagfræðingsins, dr. Björns
Björnssonar, hefði svo leitt til
þeirrar tillögu um útboð á
brunatryggingunum, sem lögð
hafði verið fram.
ENGIN BREYTING
Á GRUNDVELLI
TRYGGINGANNA
Borgarstjóri gerði því næst
grein fyrir útboði því, sem fyrir
lá. í því er gert ráð fyrir að bær-
inn taki rekstur trygginganna,
inn á við, í sínar hendur. Er það
nokkur formsbreyting frá því,
sem nú er, engin breyting á
grundvelli trygginganna, þar eð
bærinn hefur um langt skeið ráð-
stafað tryggingunum í umboði
húseigenda og þeim gert að
skyldu að tryggja hjá þeim aðila,
sem samið hefur verið við um
tryggingarnar. Hér er ekki um
það að ræða að bærinn sé að
setja á fót tryggingastofnun, er
hafi tryggingarstarfsemi með
höndum. Leitað er tilboðs um
ráðstöfun á tryggingunum iit á
Framh. á bls 2.
Bylfing í Sýrinndi
Landið í hernaðarásiandi
Einkaskeyti til Mbl. frá NTB-Reuter.
PARÍS 25. febr. — Forseta Sýrlands Adis Skishakly, var í dag
steypt af stóli með byltingu er gerð var skömmu eftir hádegi.
Leiðtogar byltingarmanna voru 2 höfuðsmenn í sýrlenzka hernum.
— Hafa byltingarmenn náð að minnsta kosti helztu byggingum í
Aleppo á sitt vald, þar á meðal útvarpsstöðinni. í gegnum útvarps-
stöðina tilkynntu þeir í kvöld, að fyrrverandi forseti Sýrlands,
Haskem E1 Attasi hafi verið skipaður ríkisleiðtogi.
B YLTIN GARMENN
FJÖLMENNIR
Tilkynnt var og í gegnum út-
varpsstöðina að byltingarmenn
væru fjölmennir og hefði orðið
vel ágengt, sérstaklega i norð-
vestur og austurhluta landsins.
Sagt var að byltingarmenn hlytu
stuðnings yfirgnæfandi meiri-
hluta alþýðunnar til þess að
stöðva gerræði Skisahkly forséta,
sem hefði taumlaust stjórnað
landinu að eigin vild.
Fréfflir hermdu síðar, að Skis-
hakly hefði sagt af sér, til þess
að * „forða blóðsúthellingum“
eins og sagt var í afsagnarbréf-
inu.
Aðrar fregnir lierma, að
hann hafi sent skriðdreka og
flugsveitir gegn uppreisnar-
mönnunum, og komið þeim í
opna skjöldu.