Morgunblaðið - 06.03.1954, Page 5
Laugardagur 6. marz 1954
MORGZJNBLAÐIÐ
5 )
Fæst nú þegar af öllum Sheli benzín-daelum
í Reykjavík og nágrenni
ICNITION
CONTROL,.
Einkaleyfi í umsókn.
ADDITIVÉ
ENDURBÆTT „SHELL64-BENZIÍ\1
markar stærstu tímamót í benzínlramleiðslu
undanlarin 32 á»
(Tetraethyl-blý var tekið í notkun árið 1922)
z
ICNITION
AIIKiN ORKA
ÞVÐARI GAIMGUR
MEIRI EIMÐING
Allt frá árinu 1922, er fyrst var farið að blanda tetraethyl-blýi
benzín. hafa sérfræðingar leitast við að finna ráð til þess, að bif-
reiðahreyflar nýttu sem bezt þá orku, sem í þessari eldsneytistegund
felst. — Helztu vandkvæði á að ná fyllri orkunýtni í hrevflinum
hafa verið þau, að úrgangsefni, er myndast við eldsneytisbrunann,
aetjast til í brunaholinu og orsaka við sérstök skilyrði, glóðarKveikju
og skammhlaup í kertum.
Sérfræðingum Shell-félaganna hefur nú tekizt að ráða bót á
þessum vandkvæðum með uppgötvun nýs benzíníblendis, er nefnist
I.C.A. (Ignition Control Additive). — I.C.A. breytir efnasamsetn-
ingu útfeninganna og kemur í veg fyrir glóðarkveikju og skamm-
hlaup í kertum. Reyndin verður sú, að „SheH“-benzín með I.C.A.
eykur orku hreyfilsins og tryggir þýðari og mýkri akstur. Benzín-
eyðslan minnkar og ending kertanna eykst.
Frá og með deginum í dag mun allt ,,SheH“-benzín, sem afgreitt
verður af Shell benzíndælum í Reykjavík og nágrenni innihSlda þetta
nýja efni, er farið hefur sigurför um alla Norður-Ameríku og Evrópu
síðustu mánuðina.
Eingöngu „Shell“-benzín inniheldur I.C.A.
I.C.A. kemur í veg fyrir
glóðarkveikju!
Glóðarkveikja í benzín-hreyfli
orsakast af því, að glóðheitar kol-
efnisagnir í brunaholinu kveikja í
eldsneytishleðslunni áður en ngisti
kvéikikertisins nær að gera það.
Þessi of fljóta íkveikja vionur á
móti þjappslagi bullunnar og af-
leiðingin verður orkutap, óþarfa
benzíneyðsla og skaðleg ábrif á
ýmsa hluta hreyfilsins. — I.C.A.
breytir efnasamsetningu kolefnis-
útfellinganna og kemur þannig í
veg fyrir glóða? mvndun í þeim,
jafnvel hátt hitastig, og
útilokai ; a hættu á gióðar-
kveikju
I.C.A. hindrar skammhlaup
í kertum!
Þér verðið fljótlega varir við, ef
eitt kerti bilar, en þér verið ekki
varir við ef eitt eða fleiri kerti
kveikja óreglulega. Þetta á sér þó
í rauninni oft stað í hreyflinum,
er eitt eða fleiri kerti „leiða út“
vegna útfellinga, er safnast á ein-
angrun þeirra. I.C.A. dregur úr
leiðsluhæfni útfellinganna og
hindrar þannig skammhlaup í
kertum. Árangurinn verður betri
orkunýtni og minni benzínneyzla.
Hreyfillinn gengur þýðar og end-
ingartími kertanna eykst.
Árangurinn kemur í Ijés
eftir tvær áfyllingar!
í fyrsta skipti, sem þér takið „Shell“-benzín með I.C.A., eru ennþá
eftirstöðvar af hinu gamla benzíni í geyminum. Það er því ekki fyrr
en eftir tvær áfjdlingar, að þér í rauninni verðið varir við, hverju
hið endurbætta ,,Shell“-benzín með I.C.A fær áorkað. Eftir það
munuð þér finna, að hreyfillinn skilar meiri orku og géngur þýðar
en hann hefur nokkru sinni gert síðan hann var nýr. Þar eð eðlileg
kveikja og réttur bruni er skilyrði fyrir því, að þér getið ekið lengri
vegalengd á hverjum benzínlíter, munið þér fljótt komast að raun
um, að notkun ,,Shell“-benzíns með I.C.A. er leiðin til ódýrari aksturs.
— Þrátt fyrir aukin gæði er verðið óbreytt —