Morgunblaðið - 06.03.1954, Page 12
12
MORGUNBLAÐIÐ
Laugardagur 6. marz 1954
Kvenarmbandsúx
tapaðist á leiðinni frá Gagn-
fræðaskóla Austurbæjar að
Mjóuhlíð 8. Finnandi vin-
samlegast geri aðvart í
síma 81610.
50 þús. kr.
í fyrirframgreiðslu upp í
húsaleigu getur sá fengið,
sem getur leigt í vor eða í
sumar 1. fl. húsnæði með
hitaveitu við fjölfarna aðal-
götu. Húsnæðið er fyrir litla
verzlun eða hreinlegan
snyrtiiðnað og þarf að vera
ca. 50 ferm.' Tilboð leggist
inn á afgr. Mbl. fyrir 20.
þ. m., merkt: „Ábyggilegur
• —261“.
ÍBIJÐ
Óska eftir íbúð, 2 herbergj-
um og eldhúsi. Get tekið að
mér að mála íbúðina og
standsetja. Tilboð sendist
blaðinu fyrir 10. marz,
merkt: „Barnlaus — 263“.
Sem nýr
Ford
keyrður rúml. 6 þús., fæst
í skiptum fyrir annan eldri,
amerískan bíl eða nýlegan
enskan. Tilgreinið númer og
milligjöf. Tilboð, merkt:
„Ford — 25“, sendist Mbl.
fyrir þriðjudag.
TAKIÐ EFTIR
Rúmlega fertugur maður í
góðri atvinnu, sæmilega efn-
aður, vill kynnast stúlku
eða ekkju sem félaga og ef
vel semur, að stofna heimili.
Fullt nafn og heimilisfang
ásamt uppl. um ástæður
sendist Mbl., merkt: „Heim-
ili — 253“. Þagmælsku og
drengskap heitið.
Fúllegarheridur
geta allir haít, þón unnm séu
dagleg hússtörl og þvortai
Haldið höndunum hvtt- /
Kristján i i' kj? >n
hæstarét.£..-L„: acur.
Skrifstofutími H. 10- -12 og 1—5,
Austurstræti 1. — Sími 3400.
«•
Tanner-systur — Stella og Francis
Systur sem skemmt haía
luindruð þúsunda manna
„Karlrnaima-
blaðið“
NÝTT mánaðarrit hefur hafið
göngu sína og heitir það Karl-
mannablaðið, sem Skúli Bjarkan
er ritstjóri að. — í eftirmála
þessa fyrsta heftis af ritinu segir
ritstjórinn m.a. Ekki þó svo að
skilja, að hér sé eingöngu um
grínblað að ræða. Mun ritið flytja
greinar og sögur í léttum dúr, en
einnig ritgerðir um ýmis athyglis
verð mál, sem helzt verða á döf-
inni á hverjum tíma. Efnið verð-
ur valið með hliðsjón af því, að
ritið er aðallega ætlað karlmönn-
um til lesturs, eins og nafn þess
ber með sér. Erj þó kvenfólkinu
engan veginn bannað að lesa það
líka, enda ekki óhugsandi, að því
gæti verið hollt að kynna sér
hugðarefni karlmannanna frá
þeirra sjónarmiði.
í þessu hefti eru allmargar
sögur og nokkrar greinar. Hefið
er rúmlega 60 bls. að stærð.
Rafmótorar fram-
leiddir hér á landi
SAMBAND íslenzkra samvinnu-
félaga hefur fyrir nokkru byrjað
framleiðslu á rafmótorum, og er
það alger nýjung í íslenzkum iðn
aði. Undanfarin ár hafa verið
fluttir til landsins um 2000 raf-
mótorar árlega, en nú er búizt
við, að hin nýja rafmótoraverk-
smiðja geti framleitt 600 mótora,
og eru möguleikar til að auka
það magn verulega.
Hin nýja framleiðsla er starf-
rækt af Jötni h.f. í húsakynnum
við Hringbraut 119 í Reykjavík.
Nauðsynlegt var að.ráða hingað
til lands erlenda sérfræðinga til
þess að stjórna framleiðslunni, og
var ráðinn þýzkur raffræðingur,
Joachim Brúss frá Berlín.
Verksmiðjan tekur eins árs
ábyrgð á öllum rafhreyflum, sem
hún framleiðir.
Moo í ónáð
Viðtal við Tanner-systur
EINS og getið hefur verið í
fréttum eru staddar hér á
landi um þessar mundir tvær
brezkar söngkonur, Stella og
Frances Tanner. — Syngja
þær á hjómleikum Ráðningar-
skrifstofu skemmtikrafta í
Austurbæjarbíói. — Tíðinda-
maður blaðsins hitti þær sem
snöggvast að máli í fyrradag.
Stella og Frances Tanner eru
í raun og veru systur, fæddar og
uppaldar í London. — Þær eru
laglegar, smávaxnar og dökk-
hærðar ungar stúlkur, Stella 25
og Frances 27 ára.
Þær sungu fyrst saman þegar
þær voru 1 barnaskóla, en opin-
berlega ekki fyrr en eftir stríðið.
— Síðan hafa þær komið víða við,
bæði í Englandi og á meginlandi
Evrópu.
MEÐ DANNY KAY
Á s.l. sumri kom bandaríski
kvikmyndaleikarinn Danny Kay
til Englands og fóru Tanner-syst-
ur með honum í ferðalag um allt
England og Skotland. — Yngri
systirin Stella, er álitin einhver
bezta grínsöngkona Englendinga
og þykir hún slaga hátt upp í
sjálfan Danny. — í þeirri ferð
sungu þær yfirleitt ekki fyrir
færri áheyrendur en 3000! — Þær
systurnar hafa sungið á fjölda
mörgum skemmtistöðum og leik-
húsum í London. Þá hafa þær
farið tvisvar í söngferðalag til
Hollonds, ''til Parísar og Þýzka-
lands, og ráðgera að fara þangað
aftur.
Tanner-systur hafa sungið inn
á fjölda margar plötur, „The
Creep“, heitir nýjasta platan, sem
er metsöluplata í Englandi nú. —
Þá hafa Tanner-systur oft kom-
ið fram í brezka útvarpinu og
einnig í sjónvarpi.
ÖNNUR GIFT — HIN UNGFRÚ
Eldri systirin, Frances, er gift
ritstjóra brezka hljómlistarblaðs-
ins Melody Maker, Patrick Brand
en Stella er enn ógift. Þær systur
hafa áhuga á góðum bókum, —
Frances þykir skemmtilegt að
sauma föt á sjálfa sig, — og
Stella hefur yndi af ballett.
HEITARA HÉR EN í LONDON
— Við tókum með okkur heil-
mikið af nlýjum klæðnaði, sögðu
þær brosandi, — við héldum, að
hér væri kalt. En svo er miklu
heitara hér en í London!
— Hvað verðið þið lengi hér-
lendis?
— í ráði er að við dveljum hér
í 2 vikur. Hér í Reykjavík fram
að helgi, en svo förum við út á
land, líklega til Akureyrar.
— Hvernig fellur ykkur að
syngja fyrir íslendinga?
— Okkur finnst það mjög
merkileg reynsla, en vegna þess
að við þekktum ekki íslenzka
áheyrendur áður en við komum,
þá vissum við ekki hvað þeir
meintu með því að klappa „allir
í einum kór“. Við vissum ekki
fyrr en í lok hljómleikanna, að
þeir vildu fá eitthvað af lögun-
um endurtekin.
— Ætlið þið ekki að syngja
eitt íslenzkt lag hér?
— Jú, við erum að æfa það.
Það er annars dálítið merkileg
saga um það, hvernig við kom-
umst yfir þetta íslenzka lag, sem
heitir „Þú ert“, eftir Þórarinn
Guðmundsson. — Svavar Gests
var búinn að senda okkur nótur
af íslenzkum lögum, en okkur
líkaði ekki alls kostar vel við
þau. En svo sagði maðurinn minn
mér að hann ætti alltaf nokkrar
islenzkar nótur og við fórum í
gegnum þær og fundum þá þetta
gamla íslenzka lag. Og það ætlum
við að syngja. — Við gátum bara
ekki æft okkur í framburðinum
í London, því við þekktum engan
sem gat sagt okkur hvernig ætti
að bera orðin fram. Svo það varð
að bíða þangað til við komum
hingað. — Ef okkúr tekst vel upp
með þetta lag, þá er ekki úr vegi
að við syngjum það inn á plötu
þegar til Englands kemur aftur,
sagði Frances Tanner Brand að
lokum. —A. Bj.
EGGERT CLAESSEN o*
GÚSTAV A. SVEINSSOIS
hœstaréttarlögmenn.
Þórahamri við Teniplarasund.
Sími 1171.
’♦ ♦*«**♦ •** *** ♦*«
HONG KONG 5. marz. — Orðróm
ur er uppi um að Mao-Tse Tung
sé um það bil að falla í ónáð í
Kína austur. Er sagt var frá
minningarathöfn um Stalin er
þar fór fram, var hann nefndur
síðastur af mörgum klíkuforingj-
um kommúnista þar eystra.
DAIMSLEIKUR
REIÐFIRBINB^
í kvöld kl. 9.
Hljómsveit Svavars Gests.
Nýr dægurlagasöngvari kynntur, Jóhann Gestsson.-
. Aðgöngumiðasala frá kl. 7.
HLJÓMLEIKAR:
TANNER SYSTUR
K. K. SEXTETTIMN
lilUIMIMHÖRPUTRlÓIÐ
— Síðasta sinn. —
í Austurbæjarbíói
í kvöld
kl. 11,15.
Aðgöngumiðasala
í Músikbúðinni,
Hafnarstræti 8 og
Austurbæjarbíói.
LX7) MARKtl Jfcrttr g| IMð (PO
1) Þegar Gyða kemur út í hest
húsið, beygir hún sig niður til
að taka upp boginn nagla.
2) Hún verður þess ekki vör
að iinsan af kvikmyndavélinni
dettur úr vasa hennar ofan í
heyið.
3) Skömmu síðar kernur sólin
undan skýjum og skín björt og
heit yfir linsuna. Og brennigler
linsunnar dregur sólargeislana
saman með þeim afleiðingum að
reykur fer að líða hægt og rólcga
upp af heyinu.