Morgunblaðið - 17.03.1954, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ
Miðvikudagui 17. marz 1954
I dag er 76. dagur ársins.
Árdegisflæði kl. 4,26.
Síðdegisflæði kl. 16,50.
Næturvörður er í Laugavegs
Ápóteki, sími 1618.
Næturlæknir er í Læknavarð-
Stofunni, sími 5030.
I.O.O.F. 1 =1353171 >/2 f Rh.
I.O.O.F. 7 = 135317814 = 9 III.
KMR — Föstud. 19.3.20. — ,VS
•— Atkv. — Hvb.
□------------------------o
. Veðrið .
1 gær var hægviðri um land allt,
túrkomulaust, en víðast skýjað. —
? Reykjavík var hiti 8 stig kl.
14,00, 6 stig á Akureyri, 5 stig á
Galtarvita og 4 stig á Dalatanga.
:Mestur hiti hér á landi í gær kl.
14,00 mældist 8 stig í Reykjavík,
•Stykkishólmi og á Hellissandi. —
ÍMinnstur hiti mældist 3 stig á
Orímsstýðum og Egilsstöðum. —
J London var hiti 4 stig um há-
«degi, — 1 stig í Höfn, 5 stig í
París, 5 stig í Stokkhólmi, — 2
«tig í Osló og 6 stig í Þórshöfn í
J'æreyjum.
o—-----------------------a
. Messur •
Dómkirkjan: Föstuguðsþjónusta
1 kvöld kl. 8,15. Séra Jón Auðuns.
Fríkirtjan: Föstumessa í kvöld
3d. 8,30. Séra Þorsteinn Björnsson.
Laugarneskirkja: Föstuguðs-
l»jónusta í kvöld kl. 8,20. Séra
darðar Svavarsson.
Hallgrímskirkja: Föstumessa í
Scvöld kl. 8,15. Séra Sigurjón Þ.
Árnason.
Alþingi
Sameinað Alþingi: 1. Fvrir-
■epurnir: a. Vernd hugverka o. f 1.;
«ein umr. b. Greiðslugeta atvinnu-
vreganna; frh. einnar umr. 2. Sjón-
'varp; fyrri umr.
. Skipaíréttir •
Skipaútgerð ríkisins:
Hekla fer frá Reykjavík á
morgun vestur um land í hring-
ferð. Esja fór frá Reykjavík í
gærkvöld austur um land í hring-
■ferð. Herðubreið fer frá Reykja-
-vík á morgun austur um land til
Þórshafnar. Skjaldbreið er á
"Vestfjörðum á suðurleið. Þyrill er
-á Vestfjörðum á norðurleið. Bald-
Tir fer frá Reykjavík í dag til
Crilsfjarðar.
• Flugferðir .
nngfélag íslands h.f.:
1 dag er ráðgert að fljúga til
Akureyrar, Hólmavíkur, Isafjarð-
ar, sands og Vestmannaeyja. Á
morgun eru áætlaðar flugferðir
-til Akureyrar, Kópaskers og Vest-
anannaeyja. Frá Akureyri verður
flugferð til Kópaskers.
Millilandaílugvél Loftleiða
er væntanleg frá New York kl.
4 í nótt. Gert er ráð fyrir, að
vélin haldi áfram til Stavangurs,
Kaupmannahafnar og Hamborgar
■*eftir tveggja stunda viðdvöl í
Reykjavík.
Sólheimadrengurinn.
Afhent Morgunblaðinu: S. K.
'50 krónur. R. E. g. áh. 20 kr.
Leiðrétting.
1 frétt frá badmintonmótinu í
llaðinu í gær var sagt, að allir 30
lceppendúrnir hefðu verið frá
Tennis- og badmintonfélagi Reykja
víkur, en það var ekki rétt. Einn
Jteppendanna, Gerda Christensen,
var frá Skandinavisk Boldklub,
Reykjavík.
Esnerantistafélaaið Anroro
heldur mikilvægan fund í Eddu-
ihúsinu, uppi, í kvöld kl. 9. —
JRíkisstjórn Austurríkis hefur lýst
*ig reiðubúna að gera esperanto
;að skyldunámsgrein í skólum
;3andsins, ef fjögur ríki önnur gera
J>að samtímis. — Þetta nýja við-
ihorf verður rætt á fundinum og
Dag
bók
rFKosningar,r í Rússlandi
„Þegar að kjörborðinu kemur er fólkinu réttur kjör-
seðill með einu nafni prentuðu á — þ. e. frambjóð-
andans, sem miðstjórn kommúnistaflokksins hefur
SKAMMTAÐ því ............“
Á kommúnista lýðræðinu einn kosturinn er sá,
að kosning er þar leikur einn og gaman.
Menn fá þar bara miða, með einu nafni á,
svo er ekkert nema að brjóta miðann saman!
Að þetta séu einföld og örugg vinnubrögð
ég undirstrika vildi í þessu Ijóði.
Því þarna er ekki af ágreiningi saga nokkur sögð
og sérhver er þar kosinn einu hljóði.
Og eftir kjördag stjórnin gefur gleiðar skýrslur út
um glæstan „sigur“ Rauðfylkingarinnar.
Og frambjóðandinn glaður kneiíar kampavín af stút,
en „kjósandinn" — fer þögull leiðar sinnar. S.
hugsanlegar aðgerðir í málinu, og
er því nauðsynlegt, að félagar
fjölmenni. Einnig eru allir aðrir,
sem áhuga hafa á hugmyndinni um
alþjóðamál, velkomnir á fundinn.
Slysið í Sandgerði.
Nafn litla drengsins, sem
drukknaði á laugardaginn var í
Sanagerði, misritaðist í Mbl. í gær.
Hann hét Jónas Kristjón og var
ekki orðinn fjögura ára. Bróðir
hans var 4 ára, en ekki sex.
Frá afmælishátíð K.R.
í greininni í gær um setningar-
hátíðina féll af vangá niður að
geta þess, að nokkrir glímumenn
úr K.R. sýndu íslenzka glimu
undir stjórn Þorsteins Kristjáns-
sonar. Voru það vaskir og sn.jallir
glímumenn og tókst sýningin á-
gætlega.
Óháði fríkirkjusöfnuðurinn.
Félagsvist annað kvöld að Borg-
artúni 7, kl. 8. Takið með ykkur
spil.
Skipadeild S.f.S.:
Hvasafell fór frá Akranesi í
gærkvöldi áleiðis til Vestmanna-
eyja; kemur þangað í dag. Arnar-
fell er í Reykjavík. Jökulfell fór
frá New York 12. þ. m. áleiðis til
Reykjavíkur. Dísarfell ei* á Þórs-
höfn. Bláfell kemur væntanlega til
Leith í dag frá Rotterdam.
Vinningar í getraununum:
1. vinningur 378 kr. fyrir 10
rétta (3). 2. vinningur 56 kr. fyr-
ir 9 rétta (20). 3. vinningur 10 kr.
fyrir 8 rétta (114). 1. vinningur:
36, 2279, 6297 (1/10, 1/9, 3/8).
2. vinningur: 900 (1/9, 5/8), 1937,
2253, 2691 (1/9, 5/8), 2700, 2764,
100 belgiskir frankar
1000 franskir frankar
100 finnsk mörk..........
1000 lírur ...........
100 þýzk mörk.......
100 tékkneskar kr. .
100 gyllini ........
(Kaupgengi)
1000 franskir frankar nr. 46,48
100 gyllini ............ — 428,95
100 danskar krónur .. — 235 50
100 tékkneskar krónur — ?2.r,72
1 bandarískur dollar .. — 16,26
100 sænskar krónur .. — 314,45
100 belgiskir frankar.. — 32,56
100 svissn. frankar .. — 373,50
100 norskar krónur .. — 827,75
1 Kanada-dollar .........— 16,82
100 v-þýzk mörk .... — 389,35
Gullverð íslenzkrar krónu:
100 gullkrónur jafngilda 738,95
pappírskrónum.
Hurðir og glugga
— 32,67
— 46,63
— 7,09
— 26,13
— 390,65
— 226,67
— 430,35
2886, 3020 (1/9, 6/8), 3960, 4169 Aðalstöðvarinnar í Kefla
(1/9, 1/8), 5232 (1/9, 6/8), 6030, 1 ,* K 1 *
6176 (1/9, 4/8), 6218, 6324 (2/9, iVlk smiðaði Tresmiðja Hveragerð-
4/8), 6375 (1/9, 4/8), 6597, 6965 j1S’ en mnrcttingu i afgreiðslusal
(1/9, 6/8). 3. vinningur: 2, 3, 37,
66, 164, 332, 888, 897, 898, 899,
1005, 1583, 1750, 1757, 1797, 1899,
1979, 2083, 2180, 2299, 2601, 2634,
2636, 2689, 2690, 2959, 2987, 3000,
Trésmiðjan Dvergur h.f.
jfe'
. Utvarp •
18,55 Tómstundaþáttur barna og
3058, 3087, 3147, 3507, 3508 (4/8), unglinga (Jón Pálsson). 20,20 Is
3551, 3725 (2/8), 3736 (2/8), 3830 lenzzk málþróun (Halldór Hall-
Nú fer hver að verða síðastur að
sjá „Æðikollinn“, hinn ágæta
gamanleik snillingsins Holbergs.
Aðeins þrjár sýningar eru nú
eftir. I kvöld verður leikurinn
sýndur kl. 8 í Þjóðleikhúsinu.
Myndin svnir Jón Aðils sem Hol-
berg sjálfan, fyrirmannlegan,
eins og vera ber.
3926, 3969, 3976, 5061, 5135, 5230,
5564, 5565, 5696, 6034 (2/8), 6092
6167, 6178, 6182, 6217, 6396, 6521,
6548, 6899, 6901, 6904, 9966, 6967,
11463, 11469, 11473.
Þykkvbæingar
hafa skemmtikvöld í Edduhús-
inu næstkomandi laugardagskvöld
kl. 8,30.
Húsmæður!
í kvöld kl. 8,30 heldur Hús-
mæðrafélag Reykjavíkur fund í
Borgartúni 7, uppi. Verða þar
rædd ýmis áhugamál heimilanna,
t. d. um heimsendingu mjólkur-
innar, sjúkrasamlag, kjöt og á-
vexti. —■ Fjölmennið!
Breiðfirðingafélagið
hefur félagsvist í Breiðfirðinga-
búð kl. 8,30 í kvöld. Dans á eftir.
Leiðrétting.
1 blaðinu í gær var sagt frá
brúðkaupi Elínar Þórunnar Nord-
quist og Warren H. Smith. — Mis-
ritaðist eftirnafn Elinar; var hún
sögð Malmquist.
Kvennadeild
Slysavarnafélagsins heldur
fund á fimmtudagskvöldið i Sjálf-
stæðishúsinu kl. 8,30. Skemmtiat-
riði verða: Upplestur, tvísöngur
og dans.
Kvöldbænir í Hallgríms-
Idrkju
verða á hverju virku kvöldi kl.
8 e. k framvegis. (Á miðvikudags-
kvöldum eru föstumessur kl. 8,15).
Hafið Passíusálmana með.
Bæjarbók&safníð.
LESSTOFAN er opin alla rlrkt
iaga frá kl. 10—12 f. h. og frá
kL 1—10 e. h. — Laugardaga
frá kl. 10—12 f. h. o* frá h\
1— 7 e. h. — Sunnudaga frá kl
2— 7 e. h.
ÍJTLÁNADEILDIN er opin alla
virka daga frá kl. 2—10 e. h —
Laugardaga frá kl. 2—7 e. h.
Útlán fyrir börn innan 16 ára
ír frá kl. 2—8 e. h.
. Gengisskráning •
(Sölugengi):
100 svissn. frankar .. — 374,50
1 bandarískur dollar .. kr. 18,32
1 Kanada-dollar .... — 16.88
1 enskt pund .......— 45,70
100 danslcar krónur .. — 23^,80
100 sænskar krónur .. — 315,50
100 norskar krónur >— 228*50
dórsson dósent). 20,35 íslenzk tón-
list: Lög eftir Sigfús Einarsson
(plötur). 20,50 Erindi Dagur Pat-
reks helga (eftir Seamus MacCall.
— Sveinbjörn Jónsson leiklistar-
í'áðunautur þýðir og flytur). 21,15
með kvöldkaffinu. — Rúrik Har-
aldsson leikari sér um þáttinn.
22,10 Passíusálmur (27). 22,20
Útvarpssagan: „Salka Valka“ eft-
ir Halldór Kiljan Laxness; XIX.
(Höfundur les). 22,45 Undir ljúf-
um lögum: Alfreð Clausen syngur
nokkur gamalkunn lög. 23,15 Dag-
skrárlok.
Erlendar stöðvar:
Danmörk: Stuttbylgjuútvarpií
er á 49.50 metrum á tímanum
17,40—21,15. — Fastir liðir: 17,4f
Fréttir; 18,00 Aktuelt kvarter:
21,00 Fréttir. Á sunnudögum k!
17,45 fylgja íþróttafréttir á eftii
almennum fréttum.
Noregur: Stuttbylgjuútvarp ei
á 19 — 25 — 31 — og 48 m
Dagskrá á virkum dögum að mestu
óslitið frá 5,45 til 22,00. Stillið a9
morgni á 19 og 25 metra, um miðj-*
an dag á 25 og 31 metra og á 41
og 48 m, þegar kemur fram &
kvöld. — Fastir liðir: 11,00 Frétt,
ir með fiskifréttum. 17,05 Fréttir
með frétta aukurn. 21,10 Eri. út*
varpið.
SvíþjóS: Útvarpar á helztu stott,
bylgjuböndunum. Stillið t. d. á 25
m fyrri hluta dags, en á 49 m aö
kvöldi. — Fastir liðir: Kl. 11,00
klukknahringing í ráðhústurni og
kvæði dagsins; síðan koma sænskir
söngkraftar fram með létt lög J
11,30 fréttir; 16,10 barna og ungi
lingatími; 17,00 Fréttir og 'frétta*
auki; 20,15 Fréttir.
England: General Overseas Se.r
vice útvarpar á öllum helztu stutt-
bylgjuböndum. Heyrast útsending-
ar með mismunandi styrkleika hér
á landi, allt cftir því hvert útvarpa
stöðin „beinir" sendingum sínum,
Að jafnaði r.ran Lezt að hlusta á
25 og 31 m bylgjulengd. — Fyrri
hluta dags eru 19 m góðir, en þeg-
ar fer að Kvölda, er ágætt að
skipta yfir a 41 eða 49 m. Fastir
liðir: 9,30 úr forsíðugreinum b’að-
anna; 11,00 fréttir og fréttaum-
sagnir; 11,15 íþróttaþáttur; 13,00
fréttir; 14,00 klukknahringing Bxg
Ben og fréttaaukar; 16,00 fréttir
og fréttaumsagnir; 17,15 frétta-
fréttir; 20,00 fréttir; 23,00 fréttir.
Verksljórafélag
Reykjavíkur 35 ára
LAUGARDAGINN 6. þessa mán-
aðar, hélt Verkstjórafélag Reykja
víkur hátíðlegt 35 ára afmæli sitt
með borðhaldi í Sjálfstæðishús-
inu. Var fjölmenni og hófið hið
ánægjulegasta. Félaginu bárust
í tilefni afmælisins gjafir, blóm
og skeyti. Einnig voru í tilefni
afmælisins sjö af stofnendum fé-
lagsins og ritari þess gerðir að
heiðursfélögum.
Félagið hefur frá byi-jun unnið
að viðkynningu og vaxandi sam-
starfi félaga sinna. — Það hóf
snemma að stuðla að aukinni
fræðslu fyrir félaga sína með
fyrirlestrahaldi og fleiru og vinn-
ur að því að félaginu takist áður
en langt líður að koma því til
leiðar að ákveðin þekking verði
gerð að skilyrði fyrir verkstjórn.
í félaginu eru nú nokkuð á
þriðja hundrað verkstjórar og
fer félagatala stöðugt vaxandi
Núverandi stjórn skipa þessir
menn: Pálmi Pálmason form.,
Davíð Jónsson ritari og Þorlákur
G. Ottesen féhirðir.
Jdhb rnargunkaffim*
.... það var núna rétt í þessu,
sem við fengum senda retta lausn
á verðlaunakrossgálnnni.
★
Á s. 1. ári var um heim allan
haldið upp á 50 ára afmæli flug-
listarinnar. Það eru þó meira en
50 ár síðan loftbelgir urðu til, og
einn af þeim mönnum, sem var
viðstaddur, þegar fyrsti loftbelg-
urinn fór á loft í Frakklandi, var
ræðismaður Bandaríkjanna þai',
Benjamín Franklín. — Þegar
belgurinn var kominn hátt á loft,
spurði Fi'akki, sem stóð við hlið
F’ranklíns: — Segið þér mér eitt,
yðar hágöfgi. Til hvers er eigin-
lega hægt að nota svona loftbelg?
— Ég skal segja yður það, svar-
aði Franklin, ef þér viljið segja
méi', til hvers er hægt að nota ný*
fætt barn?
★
Hinn þekkti bandaríski lögfræð-
ingur, Úlarence Darrow, sem hef-
ur víst bjargað fleiri mönnum frá
gálganum og rafmagnstólnums
heldur en nokkur annar í heimin-
um, er radíkali út í yztu fingur-
góma. — Kona nokkur spurði hann
eitt sinn, hvoi’t hann væri einnig
á þeirri skoðun, að leggja ætti
hömlur á barneignir.
— Ja, kæra frú! svaraði hanra
brosandi. — I hvert skipti, sem
þessu vandasama máli skýtur upp
í huga mínum, þá get ég ekki að>
mér gert, að ég minnist þess, a<5
ég var sjötta barn foreldra
minna!!
★
Honum fannst sjálfum, að hann
væi-i „hinn mikli bjargvættur“
allra kvenna, og þegar hann hafði
tekið eftir því, að ungur maður,
sem leit ekki út fyrir að vera
1009í riddari af sömu gráðu, hafðx
starað á ungu stúlkuna í anddyri
gistihússins alllengi, gat hann ekki
á sér setið, en fór til stúlkunnar
og spui'ði: — Kæra ungfrú! Er
þessi ungi maður nærgöngull við
yður?
— Nei, svaraði hún með sinni
saklausu ungmeyjarröddu, — en
ef þér getið ekki látið vera með
að skipta yður af annarra einka-
málum, þá gæti farið svo, að hann
yrði það!