Morgunblaðið - 17.03.1954, Qupperneq 12
12
MORGVNBLAÐIÐ
Miðvikudagur 17. marz 1954
ENN eru komnar hér á markað-
inn tvær nýjar íslenzkar hljóm-
plötur. Hefur Fálkinn h. f. gefið
þær út, en H.M.V. hefur annast
upptökuna. Er hér um að ræða
tvö erlend lög og rímnalög eftir
Jón Leifs, og eru þau sungin af
Karlakór Reykjavíkur undir
stjórn Sigurðar Þórðarsonar og
eitt þeirra með einsöng Guð-
mundar Jónssonar. Lögin eru
þessi:
1. Nú hnígur sól, eftir Bortni-
anski, texti e^itir Axel Guðmunds
son Og Hraustir menn, eftir
Romberg, texti eftir J. J. Smára.
Einsöngur: Guðmundur Jónsson
með píanóundirleik Fr. Weisshap
pels. H.M.V. — JOR205.
2. Rímnadanslög — Sigiinga-
vísur, eftir Jón Leifs við ísl.
þjóðvísur og Rímnadanslög —
Dýravísur, eftir Jón Leifs við
ísl. þjóðvísur. H.M.V. — JOR206.
Sigurður Þórðarson er fyrir
löngu orðinn þjóðkunnur fyrir
starf sitt sem söngstjóri Karla-
kórs Reykjavíkur.
Hefur honum af frábærum
dugnaði og öruggri smekkvísi um
söngstjórn samfara ágætri tón-
listargáfu tekist að þjálfa svo
Karlakór Reykjavíkur að hann
hefur vakið mikla hrifningu og
öðlast óskoraða viðurkenningu
söngfróðra manna utan lands og
innan.
Meðferð kórsins á lögunum Nú
bnígur sól og Hraustir menn er
í alla staði hin prýðilegasta. Er
auðheyrt að kórinn er ágætlega
samæfður svo að öryggi og festa
er á flutningi laganna, en auk
þess eru raddirnar bjartar og
mikil fylling í söngnum. Þá er
Og einsöngur Guðmundar Jóns-
sonar í Hraustir menri mjög
glæsilegur, röddin sterk og hljóm
mikil en þó frábærilega mjúk. —
En þó að kórinn fari ágætlega
með þessi lög, þá er þó ennþá
betri og skemmtilegri flutning-
ur hans á Rímnadanslögunum.
Þessi lög Jóns Leifs eru afbragðs-
vel samin, sennilega með því
betra, sem tónskáldið hefur lát-
ið frá sér fara, þó ekki séu þau
annars sambærileg við stærri tón
verk hans, og þau njóta sín til
fullnustu í bráðsnjallri meðferð
kórsins. — í enska tímaritinu The
Gramophone, febrúarhefti þessa
árs, er minnst sérstaklega á söng
Karlakórs Reykjavíkur á þessari
plötu og farið mjög lofsamlegum
orðum um lögin og kórinn. Segir
þar meðal annars: „Næst snúum
vér oss að íslandi, sem Karla-
kór Reykjavíkur er fulltrúi fyr-
ir. Er kór þessi mjög glæsilegur
(magnificent). Syngur hann tvö
þjóðlög er bera titilinn Rímna-
danslög (H.M.V. JOR206). H.M.V.
fullyrðir að- hér sé um að ræða
frægasta karlakórinn á íslandi.
Sé þar til annar kór betri, þá
hlýtur hann vissulega að vera
góður. Þarna heyrum vér það,
sem fágætt er að fari saman,
breiðan og sterkan raddhljóm,
en þó afarmjúkan, — og anægju-
legt var að heyra hinar hárnæmu
áherzlur á „staccato“ köflunum".
Píanóundirleikur Fr. Weisshap-
pels við lagið Hraustir menn,
er einkar góður.
Upptakan á þessum plötum
hefur tekist mjög vel.
Oddvar.
PELSAR og SKINN
Kri»tinn Kri»tján*son
TJamargötu 22. — Simi 5644.
EGGERT CLAESSEN
GtSTAV A. SVEINSSON
hæstaréttarlögmenn.
Þórshamri við Templarasund.
Sími 1*71.
Geir Hallgrímsson
héraðsdómslögmaður
H&fnarhvoli — Reykjavík
Símar 1228 og 1164.
A BEZT AÐ AUGLÝSA U
T / MORGUNBLAÐIIW T
Norrœnir ræðismenn
BLAÐIÐ „Danmarks Handels o
með óvenjulega uppástungu. í
um það að norfæn samvinna hafi
á ýmsum sviðum.
Sveltir sísí- með
D
eg) pzkum konum
CAIRÖ, 16. marz. — Banda-
rísk blaðakona, ungfrú Char-
lotte Weller, kom í morgun
til Egyptalands með banda-
ríska skemmtiferðaskipinu
Independence. Er hún kom til
Kairó fékk hún að tala við
egypzku konurnar niu, sem
nú svelta sig til að mótmæla
því að konur fá ekki kosninga
rétt og kjörgengi við í hönd
farandi kosningum. Er hún
hafði rætt um stund við Doria
Shafik, foringja egypzku
kvennanna, varð hún svo
hrifin af baráttunni, að hún
ákvað þegar að flytja úr
glæsilegum salarkynnum
Semiramis-hótelsins og svelta
sig með hinum egypzku kon-
um í klefa þeirra.
— Reuter-NTB
ASalfundur knaff-
spyrnféí. Hauka
HAFNARFIRÐI — Aðalfundur
Knattspyrnufélagsins Hauka var
haldinn síðastliðinn sunnudag.
Arsskýrsla félagsins var lesin
upp, en því næst fór fram stjórn-
arkjör. Var Guðsveinn Þorbjörns
son kosinn formaður, Jón Egils-
son gjaldkeri, Gísli Magnússon
ritari, Þorsteinn Kristjánsson,
Ólafur Guðmundsson, Stefán
Egilsson og Jón Pálmason með-
stjórnendur.
Svo sem undanfarna vetur, æfa
félagsmenn handknattleik og um
mánaðamótin næstu verður tekið
til að iðka knattspyrnu innan-
húss. — G. E.
Æfifélagar ÍSÍ
hafa nýlega gerzt, þessir menn:
Jóhann Marel Jónsson, stórkm.,
Rvík og Þórarinn Gunnarsson,
gullsmiður Rvík. Eru æfifélagar
ÍSÍ nú 376 að tölu.
(Fréttir frá íþróttasambandi fs-
lands, 20. febr. 1954)
A BEZT AÐ AUGLÝSA ±
T / MORGUNBLAÐINU T
g söfarts tidende" kom nýlega
ritstjórnargrein blaðsins er rætt
eflzt mjög á hinum síðari árum,
LÍTIÐ SAMSTARF
I UTANRÍKISMÁLI
Hins vegar segir blaðið, að lít-
ið hafi orðið úr ýmsum bolla-
leggingum um það að Norður-
lönd hafi nánari samvinnu í ut-
anríkis og verzlunarmálum við
önnur lönd. — Þetta telur það
skaða, enda hljóti einhverntíma
að því að koma að Norðurlöndin
verði að taka höndum saman á
þessu sviði til þess að mynda
þannig sterkari heild út á við.
SAMEIGINLEGIR
RÆÐISMENN
Síðan kemur blaðið fram með
sína nýstárlegu tillögu. Er hún í
því fólgin að skipaðir verði sam-
eiginlegir ræðismenn Norður-
landa út um allan heim. Þ. e. að
skipaðir verði „norrænir ræðis-
menn“ eða konsúlar. Skýrir það
um leið frá því að upptökin að
þessari hugmynd eigi sænskur
maður að nafni Rolf Edberg, rit-
stjóri.
BETRI KJÖRRÆÐISMENN
Fyrst og fremst ætlast blaðið
til þess að kjörræðismennirnir
verði sameiginlegir fyrir öll
Norðurlönd. Telur það að með
því móti myndu betri menn fást
til starfans og það myndi styrkja
þessa menn að hafa öll Norður-
löndin á bak við sig.
UPPHAF \
VIÐSKIPTASAMSTARFS
En það telur að einnig gæti
komið til greina að Norðurlöndin
launuðu sameiginlega, launaða
ræðismenn. Telur það að slíkt
gæti orðið upphafið að miklu
nánara samstarfi Norðurland-
anna í viðskiptamálum.
Var eínnig hrað-
skáluueisfcari
Á SUNNUDAGINN fóru fram
úrslit í hraðskákmóti Reykjavík-
ur. Gekk þar með sigur af hólmi
14 keppenda, Ingi R. Jóhannsson,
sem fyrir nokkrum dögum varð
Skákmeistari Reykjavíkur. Hann
hlaut 22 Vz vinning af 26 mögu-
legum. Hver skákmaður lék bæði
með hvítt og svart og var því
um tvöfalda úrslitakeppni að
ræða.
í öðru sæti var Þórir Ólafsson
með 19 vinninga og 3. Jón Pálsson
með 18V2 og fjórði Guðmundur
Ágústsson með 17 V2 vinning.
VETRARGARÐURINN VETRARGAKÐURINN
DANSLEIKUR
í Vetrargarðinum í kvöld kí 9,
Hljómsveit Baldurs Kristjánssonar leikur.
Miðapantanir í síma 6710 eftir kl. 8.
V. G.
* ÆT
----BÆJARBIO-------
Séðasta stefsiuraófið
ítölsk úrvalsmynd.
Er var talin ein af 10 beztu myndunum, sem sýndar
voru í Evrópu á árinu 1952.
Aðalhlutverk: ALIDA VALLI,
hlaut heimsfrægð fyrir leik sinn í myndinni
„Þriðji maðurinn“.
Sýnd. kl. 9. Myndin verður ekki sýnd í Reykjavík.
Síðasta sinn. — Sími 9184.
Sími 9184
SONUR INDÍÁNABANANS
Bráðskemmtileg ný amerísk gamanmynd í eðlilegum lit-
um. — Aðalhlutverk Bob Hope, Roy Rogers og undra-
hesturinn Trigger. — Sýnd kl. 7.
*(
Þörscafé
DANSLEIKUR
að Þórscafé í kvöld ki. 9.
HLJÓMSVEIT Björns R. Einarssonar.
Sigrún Jónsdóttir syngur.
Aðgöngumiðar seldii frá kl 5—7.
»» 'r -» ^
MiSS SWEN'S GOING TO BE ALl.
' PIGHT IN A DAV OE TWO...
IT'S A^OSTLV SHOCK/,
MARKtTl
KÍBi U Dodð
G^J!
1) Gyða verður orðin heil heilsu
eftir einn eða tvo daga. Hún hef-
ur fengið dálítið taugaáfall.
— Það er gott, að hún er ekki
meira slösuð.
2) Hanna, þú varst sannarlega
heppin að bjarga lífi hennar.
— Það var gott að ég kom auga
á reykinn á réttum tíma.
3) — En við höfum slæmar frétt-
ir að segja þér. Við töpuðum
kvikmyndalinsunni.
— Þ iö þýðir, að við veiðuM
að hætta við kvikmyndina. .
4) En linsan liggur óskemmd rétt
hjá hesthúsinu sem brann.
Jfzi