Morgunblaðið - 25.03.1954, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 25.03.1954, Blaðsíða 4
4 MORGVNBLAÐIÐ Fimmtudagur 25. marz 1954 I dag er 84. dagur ársins. Boðunardagur Maríu. Árdegisflæði kl. 8,17. Síðdegisflæði kl. 20,39. Næturlæknir er í Læknavarð- stofunni, sími 5030. Næturlæknir er í Reykjavíkur Ápóteki, sími 1760. 0 Helgafell 59543267 — IV — V — 2. I.O.O.F. = 1353258i/2 = 9 n. Dagbóh □- -0 Veðri ð □--------------—-------□ I gær var hvöss suðaustan átt fraraan af deginum og slydda, en Bnerist síðan til suðvestan kalda *neð skúrum og sums staðar éljum. í Reykjavik var hiti 3 stig kl. 14,00, 6 stig á Akureyri, 3 stig á Ualtarvita og 3 stig á Dalatanga. Mestur hiti hér á landi í gær Id. 14,00 var 6 stig á Akureyri, en aninnstur hiti — 1 stig á Möðrudal. I London var hiti 9 stig um há- •iegið, 11 stig í Kaupmannahöfn, 12 stig í París, — 2 stig í Osló, — 3 stig í Stokkhólmi og 1 •stig í Þórshöfn, Færeyjum. • Sofnin • Bæjarbókasafnið. LESSTOFAN er opin alla virka daga frá kl. 10-—12 f. h. og frá kl. 1—10 e. h. — Laugardaga <rá kl. 10—12 f. h. og frá kl. 1--7 e. h. — Sunnndaga frá k. 2—7 e. h. ÚTLÁNADHILDIN er opin alla ■virka daga frá kl. 2—10 e. h. — Laugardaga frá kl. 2—7 e. h. Útlán fyrir börn innan 16 ára er frá kl. 2—-8 e. h. Islenzkir mennfamenn við Eyrarsund VIÐ áttum marga unga námsmenn forðum við EyrársUnd, sem land sitt vörðu í verki jafnt sem orðum af víkingslund. Nú hefur þessum menntamönnum fækkað sem maklegt er. En það er eins og þeir hafi líka smækkað, og því fer ver. Gamli. Xistasafn ríkisins er opið þriðjudaga. slaga og laugardaga frá kl. 1 «. h. og sunnudaga frá kl. 1 síðdegis. fimmtu- 3 4 • Afmæli • 85 ára e* á morgun, föstudag, tGuðmundur Jónsson Ottesen, Itóndi að Miðfelli i Þingvallasveit. • Hjónaefni • S. 1. laugardag opinberuðu trú- lofun sína ungfrú Guðrún Ásdís Hafliðadóttir, Hafliðasonar, vél- stjóra, Miklubraut 32, og Halldór Hafliðason, Haldórssonar, forstj. Gamla Bíós. Nýlega hafa opinberað trúlofun sína ungfrú Magnea Magnúsdótt- ir, Efstasundi 80, og Karl Egils- son, íshúsvegi 3, Keflavík. Hvað kostar undir bréfin? Einföld flugpósthréf (20 gr.) Danmörk, Noregur, Svíþjóð, l<r. 2,05; Finnland kr. 2,50: ftingland og N.-írland kr. 2,45; Auslurríki, Þýzkafand, Frakkland <jg Sviss kr. 3,00; Rússland, Italía, -Spánn og Júgóslavía kr. 3,25. — Bandaríkin (10 gr.) kr. 3,15; Ganada (10 gr.) kr. 3,35. — Sjópóstur til Norðnrlanda: 20 gr. hr. 1,25 og til annarra landa kr. 1,75. Úndir hréf innanlands kostar 1,25 og innanbæjar kr. 0,75. Sýningin í glugga Bóka- verzlunar ísafoldar Sýningin á smámunum þeim, er Jón Pálsson stjórnandi tómstunda Jtáttar barna og unglinga í útvarp- inu, fékk senda frá 9—14 ára stúlkum, sem á þáttinn hlusta, hefur vakið óskipta athygli. Spjaldið með sýningarmununum er í glugga Bókaverzlunar ísafold- ar og átti aðeins að vera þar um síðustu hejgi, en vegna fjölda á- skorana verður það þar út þessa viku. Spilakvöld Sjálfstæðis- félaganna í Hafnarfirði verður annað kvöld (föstudag) kl. 8,30 í Sjálf- stæðishúsinu. Spiluð verður félags- vist og verðlaun veitt. Æskulýðsfélag Laugarnes- sóknar heldur fund í samkomusal kirkj- unnar í kvöld kl. 8,30. Séra Garðar Svavarsson. Húsmæðrafélag Reykja- víkur, Borgartúni 7. I dag, fimmtudag, saumum við frá kl. 3—6. Mætið allar, sem get- ið, og hjájpið til. Húsmæðrafélag Reykjavíkur. Næsta saumanámskeið félagsins fyrir páska byrjar miðvikudaginn 31. marz. Þ'ær konur, sem ætla að sauma, gefi sig fram í simum 1810 og 5236. Konur í Kvenfélagi Bústaðasóknar. Aðalfundur félagsins er í kvöld kl. 8,30 í Aðalstræti 12, uppi. Nafnaruglinguf. í blaðinu s. I. sunnudag var sagt frá Þúsund kréina ftjöf, sem Dval- arheimili aldraðra sjómanna hafði borizt til minningar um sjófcrð fyrir 50 árum. Var sagt, að gjöfin va-ri frá Sigtirði Ólafssyni rakara- meistara, en þetla var misskiln- ingur; gjöfin vár frá Kjartani Ólafssyni rakarameistara, og er hann beðinn velvirðíngar á þessuni inistökum. Millilandaflugvél Loftleiða, sem væntanleg var hingað 5 fyrrinótt frá Bandaríkjunum, seinkaði vegna óveðurs hér. Var hún kcmin nokkuð á leið frá Gander-flugvelli, þegar hún varð að snúa við þangað. Var flugvél- in væntanjeg hingað um kl. 22 í gærkvöldi. Hún átti að halda til Kaupmannahafnar, Stafangurs og Hamborgar eftir tveggja stunda dvöl hér. Karlakór Keflavíkur. Næstkomandi laugardag heldur karlakórinn kvijldvöku í samkomu- húsinu í Njai’ðvík fyrir styrktar- félaga og gesti þeirra. Hefst hún kl. 21. — Miðar sækist í Bókabúð Keflavíkur eða Aðalbúðina í Ytri Njarðvík fyrir fimmtudagskvöld (25. þ. m.). Frá Verzlunarskólanum. Árspróf við verzjunardeild hefst fimmtudaginn 1. apríl kl. 8 ár- degis með bókfærslu í III. bekk. Fyrsta próf í II. bekk er enska, munnleg, mánudag 5. apríl kl. 8 árdegis. Fyrsta próf í I. bekk er íslenzka, skrifle^* miðvikudag 7. apríl kl. 2 síðdegis. — Þetta er hér með tilkynnt utanskólanem- endum, sem látið hafa skrá sig tij prófs upp í II. eða III. bekk. Skráningu þesari er nú lokið. — Inntökupróf upp í I. bekk fer væntanlega fram um 20. maí. -—- Verður það tilkynnt nánar siðar. Málfundafélagið Óðinn. Skrifstofa félagsins í Sjálfjtæð- ishúsinu er opin á fösludagskvöld- um frá kl. 8—10. Sími 7104. — Gjáldkeri tékur þar við ársgjöld- um félagsmanna, og stjórn félags- ins er þar til viðtals við félags- menn. Kvöldbænir í HalIgTÍms- kirkju verða á hverju virku kvöldi kl. 3 e. h. framvegis. (Á miðvikudags- kvöldum eru föstumessur kl. 8,15). Hafið Passíusálmana með. • Gengisskráning • (Sölugengi); 100 svissn. frankar .. — 374,50 1 bandarískur dollar .. 3cr, 18,32 1 ICanada-dollar .....— 16.88 1 enskt pund .........— 45,70 100 danskar krónur .. — 236,80 100 sænskar krónur .. — 315,50 100 norskar krónur .. — 228,50 100 belgiskir frankar . — 32,67 1000 franskir frankar — 46,6.- 100 finnsk mörk..... — 7,09 1000 lírur .........— 26,13 100 þýzk mörk........ — 390,6f 100 tékkneskar kr...— 226,67 100 gyllini ......... — 430,35 • Utvarp • 20,30 Kvöldvaka: a) Frú Guðrún Helgadóttir flytur erindi: Séra Jón Þorláksson á Bægisá. b) Karlakór Reykjavíkur syngur; Sigurður Þórðarson stjórnar. c) Magnús Guðmundsson frá Skörð- um les kvæði eftir Davíð Stefáns- son frá Fagraskógi. d) Einar M. Jónsson flytur síðara erindi Sitt: Um sextándu aldar hætti á Norð- urlöndum. 22,10 Passíusálmur (33) 22,20 Sinfónískir tónleikar (plöt- ur) : a) Consertino fyrir píanó og hljómsveit eftir Jean Francaix (Höfundurinn og Philharmoniska hljómsveitin í Berlín leika; Leo Borchard stjórnar). b) Sinfónía nr. ,5 op. 47 eftir Shaostakovich (Sinfóníuhljómsveitin í Phila- delphíu leikur; Stokowsky stjórn- ar). 23,15 Dagskrárlok. Erlendar stöðvar. Danmörk Danskar stöðvar útvarpa á ýmsum bylgjulengdum. Á lang- bylgjum 1224 m útvarpa þær all- an daginn; en sú stöð heyrist illa hér. Á tímanum kl. 16,40—20,15 útvarpar stuttbylgjustöð þeirra á 49,50 metrum og heyrist það vel. Dagskráin hér miðuð við það. Fastir liðir: 16,45 Fréttir, 17,00 Aktuelt kvarter, 20,00 Fréttir, 17,15 Óperettuþáttur. 18,00 Flækingurinn, smásaga frá New York eftir Johannes V. Jensen. Sjónleikurinn „Sá sterkasti" verður sýndur i Þjóðleikhúsinu í 5. sinn í kvöld. — Myndin hér að ofan er af Haraldi Björnssyni í aðalhlutverkinu. 18,30 Ferðasöguþáttur frá Síam og Indlandi. Svíþjóð útvarpar t. d. á 25 og 31 m. Fastir liðir: 10,00 Klukknahring- ing og kvæði dagsins, 10,30, 17,00 og 20,15 Fréttir. Á þriðjud. og föstud. kl. 13,00 Framhaldsaga, 10,45 Þrjár skólastúlkur í Guata mala, frásögn. 15,10 Torsten Hjs- ing syngur ensk lög. 18,50 Leikrit, Braggi nr. 17, eftir Martin Zivert. 19,50 Erindi um bókmenntir Lappa Flugvinátta. LONDON 23. marz. — Þýzka flug félagið Lufthansa hefur undirrit- að vináttu og samstarfssamning við brezka félagið BOAC. LEWIS LYE (VÍTISSÓDI) 48 dósir í kassa. Fyrirliggjandi; H. ÓLAFSSON & BERNHÖFT u Mýs og menn í síðasfa sinn fr mcrfgunáaffwÁU Leikfélag Reykjavíkur sýndi sjónleik Steinbecks „Mýs og menn“ á sunnudaginn var fyrir troðfullu húsi áhorfenda og aug- lýsti síðan tvær síðustu sýningar leiksins á þriðjudagskvöld og í gærkvöldi, en svo mikil aðsókn varð að báðum þessum sýning- | Um, að félagið endurtekur sjón- j leikinn enn einu sinni, í kvöld, og er það allra siðasta sýning, því að Erna Sigurleifsdóttir, leik- I kona, sem leikur eitt aðalhlut- ( verkið, fer utan á föstudag. Hef- , ur þá þessi ágæti sjónleikur ver- ið sýndur 23 sinnum. Það getur verið, að einhverj- um finnist ég véra á undan sanitíð minni, — en ég er alvcg viss um, að eftir 5000 ár, þá þvkir þessi standmynd nokkuð góð' ★ Lögregluþjónninn: — Þér haf- ið enga bjöllu á hjólinu yðar! 1 Hvernig ætlið þér að leiða athygli 1vegfarenda að yður? Kvenhjólreiðamaður: — Hvað er þetta! .... ég sem er í stutt- buxum! ★ Bíllinn nam staðar við landa- mærin og tollþjónninn hóf rann- sókn sína. — Það lítur út fýrir, sagði hann að lokum, að allir pappírar yðar séu í góðu lagi; — en hvernig getið þér sannað fyrir mér, að þessi kona, sem situr við hliðina á yður, sé konan yðar? Maðurinn teygði höfuðið út úr bílnum og hvíslaði: — Ég skal láta yður fá 500' krónur, ef þér getið sannað fyrir mér, að hún sé það ekki! ★ Viðskiptavinurinn: — Er þessi regnfrakki algerlega vatnsheldur? Afgreiðslumaðurinn: — Já, al- veg; —■ fyrir utan hnappagötin! ★ — Og nú, eftir að ég er búinn að bjóða þér á dýrár leiksýningar, kaffihús og skemmtistaði á hverju kvöldi í heila viku, hef ég komizt að þeirri sárgrætilegu niðurstöðu, að við eigum ekki skap saman! ★ — Mundirðu eftir að þakka fyr- ir kökuna, sem þú fékkst? — Já, mamma; ég mundi vel eftir því; en ég fékk samt ekki meiri köku! ★ Bíbí, 7 ára, kom til reiðhjóla- viðgerðamannsins til þess að ná í hjólið sitt, sem Hafði verið í við- gerð. — Hvað kostar viðgerðin? — Hún kostar einn köss. — Allt í Iagi. Amma kemur á morgun og greiðir skuldina. mína!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.