Morgunblaðið - 25.03.1954, Side 12

Morgunblaðið - 25.03.1954, Side 12
12 MORGUNBLAÐIÐ Fimmtudagur 25. marz 1954 Bridgespílarar frá Færeyjum koma hingad í dag « Keppa hér í Reykjavík og víðar FIMM bridgespilarar frá Fær- eyjum komu með ms. „Dronn ing Alexandrine“ í morgun í boði Bridgesambands fslands. Munu þeir dvelja hérlendis til 9. apríl. Bridgemennirnir eru allir frá Þórshöfn og verður því um bæjakeppni að ræða en engan landsleik. Eftirtalin bridgefélög hafa boðið Færeyingum til leiks: Akranes, Hafnarfjörður, Kefla- vík, Reykjavík og Selfoss. Mun hvert félag fyrir sig sjá um alla tilhögun keppninnar hjá sér, og spilamenn vera gestir þeirra meðan á keppni við viðkomandi félag stendur. Móti þessu lýkur með kveðjuhófi fimmtudaginn 8. apríl. Tilhögun mótsins er í aðalatrið- um þannig: Bridgefélag Reykjavíkur og bridgefélag kvenna í Reykjavík sjá um mótið í Reykjavík. Bæjar- keppni milli Reykjavikur og Þórs TIL SOLU 12 feta Hardy-laxastöng á- samt hjóli og línu, og kanadískar laxavöðlur nr. 43. Einnig Philips 4ra lampa ferðatæki, einnig fyrir straum. Allt í góðu standi. Til sýnis að Framnesvegi 23, fiskbúðinni, eftir kl. 4 e. h. í dag og næstu daga. 2|a herb. íbúð óskast á tímabilinu frá 14. maí til 1. ág. Einhver fyrir- framgreiðsla, ef óskað er. Tvennt fullorðið í heimili. Tilboð, merkt: „Engin börn — 115“, sendist Mbl. fyrir hádegi á mánudag. íbúð óskast til kau<ps milliliðalaust, ca. 80—90 ferm., helzt á hitaveitu- svæðinu. Þarf að vera laus 14. maí. Útborgun ca. 100 þús. kr. Tilboð, er tilgreini stað og verð, sendist blaðinu fyrir 31. þ. m., merkt: „24 — 107“. MÁLFLUTNINGS- SKRIFSTOFA Einar B. Guðrnundsson CuSlaugur Þorláksson Guðmundur Pétursson Austurstræti 7. Símar 3202, 2002. Skrifstoíutími: kl. 10—12 og 1—5. LILLU kryddvörur eru ekta og þess vegna líka þær bezt. Við á- byrgjumst gæði. Biðjið um LILLU-KRYDD þegar þér gerið innkaup. hafnar hefst í Tjarnarcafé föstu- daginn 25. kl. 2 e.h. og heldur áfram í Tjarnarcafé laugardaginn 27. kl. 2 e.h. Ræður Bridgefélag Reykjavíkur hverjir keppa fyrir hönd Reykjavíkur. Parakeppni með Færeyingun- um fer fram í Skátaheimilinu sunnudaginn 28. og mánudags- kvöldið 29. Parakeppni þessi er öllum bridgefélögum frjáls, og skal tilkynna þátttöku til félags- stjórnar. Verðlaun verða veitt. Mánudaginn 29. milli kl. 1—7 mun keppi í Skátaheimilinu sveit valin af Bridgefélagi Reykjavík- ur. Þriðjudaginn 30. milli kl. 1—7 verður keppt í Tjarnarcafé, bridgemeistarar Reykjavíkur, fyr irliði Vigdís Guðjónsdóttir. Selfoss: Miðvikudag 31. marz til 2. apríl dvelja Færeyingarnir í boði Bridgefélagsins að Selfossi og keppa eftir tilhögun félagsins. Akranes: Laugardaginn 3. og sunnudaginn 4. apríl keppa þeir á Akranesi á vegum bridgefélags- ins þar. Hafnarfjörður: Mánudaginn 5. og þriðjudaginn 6. apríl verða þeir gestir Bridgefélags Hafnar- fjarðar og keppa á vegum félags ins þar. Keflavík: Miðvikudaginn 7. apríl verða þeir gestir Bridgefé- lags Keflavíkur og lýkur keppni þeirra hér á landi þar. Skilnaðarhóf verður fimmtu- dagskvöldið 8. apríl, og munu ýmis af bridgefélögunum kveðja þá þar ásamt stjórn B.S.I. og verður öllum heimil þátttaka eft ir því sem húsrúm leyfir. Úfför frú Soffíu Boðsundssveit Ármanns setti íslandsmet á fyrri hluta ICR-mótsins á þriðjudag. í kvöld má búast við að sveit félagsins í 4x50 m skrið- sundi geri slíkt hið sama. í sveitinni eru Rúnar Hjartarson, Ólafur Diðriksson, Pétur Kristjánsson og Theodór Diðriksson. Seinni dagur Sundmófs KR — Vefnisprengjan Framh. at bls. 1. FULLAR BÆTUB TIL FISKIMANNANNA Sjómenn þeir, sem fyrir meiðsl um urðu við sprenginguna í Kyrrahafi, fá fullar bætur frá bandarísku stjórninni, enda þótt á daginn komi, að þeir hefðu verið innan þess svæðis, sem lýst hafði verið í banni. Bandarískir og japanskir vís- indamenn munu vinna saman að rannsókn þeirra meiðsla, sem japönsku sjómennirnir urðu fyr- ir af völdum sprengingarinnar. Mao kemur fram opiriberlega HONG KONG, 23. marz — Mao Tse-tung forseti Kína, var í dag viðstaddur fund stjórnlaganefnd- ar landsins. Hann hefur hvergi komið fram opinberlega að und- anförnu sakir veikinda. —Reuter. SEINNI hluti sundmóts KR fer fram í kvöld og hefst kl. 8,30. Ef dæma má eftir hinum góðu árangrum, sem náðust á fyrri hluta mótsins s. 1. þriðjudag, má ætla að sundmenn okkar séu nú í mjög góðri þjálfun og líklegt að höggvið verði nærri íslands- metunum, en nú þegar hafa ver- ið sett þrjú íslandsmet á KR mótinu. Auk þess verða sýndir sund- ballettar og skrautsund, en hvort- tveggja vakti mikla hrifningu áhorfenda s. 1. þriðjudag í kvöld verður keppt í þessum greinum: 100 m skriðsundi kvenna, en þar er keppt um flugfreyjubikar- inn, sem gefinn var af Rögnvaldi Gunnlauéssyni til minningar um systur hans Sigríði, sem fórst í fl'ugslysinu í Héðinsfirði. Nú- verandi handhafi er Helga Hraldsdóttir, KR. Einnig verður keppt í 100 m skriðsundi karla, 100 m bringusundi drengja, 100 m baksundi karla, 50 m bringu- sundi karla, 200 m bringusundi kvenna og 4x50 m skriðsundi kvenna. Eins og fyrri daginn verður aðeins keppt í einum riðli í hverri grein. Sáttatillaga í dönsku KAUPMANNAHOFN, 23. marz: — Sáttasemjari hefur borið fram tillögur í launadeilu þeirri, sem nú stendur í Danmörku. Fá aðil- ar frest til 8. apríl. Er búizt við, að tillögurnar hljóti samþykki. Veigamestu breytingar eru bær, að verkamenn fá greidda níu helgidaga, sem ekki eru sunnudagar, en kauphækkun nemur frá 9 og upp í 14 aura um tímann. Miðað við greidda helgi- daga næmi hækkunin þá 14—18 aurum um tímann, Ef sáttatillögunum yrði hafnað, gæti verkfall hafizt 11. apríl í fyrsta lagi. — NTB. ÚTFÖR frú Soffíu Skúladóttur á Kiðjabergi fór fram á þriðjudag- inn var að viðstöddu fjölmenni. Þegar um morguninn fór fólk að streyma heim að Kiðjabergi og varð svo margt sem húsakynni framast leyfðu. Þar var öllum borinn matur og kaffi af mikilli rausn. Séra Sigurður Pálsson í Hraun gerði flutti húskveðju og síðan var lagt á stað til kirkjunnar á Stóru-Borg og var líkfylgdin í 17 bilum, smærri og stærri. Hjá kirkjunni biðu nær 30 bílar og var þar samankomið svo mikið fjölmenni, að ekki komst helm- ingur þess inn í kirkjuna. Séra Ingólfur Ástmarsson flutti lík- ræðuna og minntist þess að hin framliðna hefði staðið fyrir búi á Kiðjabergi í 68 ár og haldið ó- skertri virðingu og skörungsskap til hinstu stundar. Hún hefði eign ast 6 börn, er öll væru á lífi og fylgdu móður sinni til grafar og væri hið yngsta þeirra um sextugt. Síðan flutti hann kvcðjuljóð frá ónafngreindum vini. Synir hinnar framliðnu báru kistuna til grafar. Að jarðarförinni lokinni var öllum boðið til kaffidrykkju í samkomuhúsinu á Minni-Borg og fór sem fyr að húsakynni voru of lítil til að rúma mannfjöldann í einu, enda mun hafa verið þarna um þrjú hundruð manna. Var það fólk af flestum eða öllum bæum í sveitinni, nágrannasveit- um og úr Reykjavík. Mun það fátítt að svo fjölmenn jarðafrör sé í sveit og bar það vott um vinsældir og virðingu hinnar framliðnu. KARLAKÓRINN FÓSTBRÆÐUR K VÖID VRKR í Sjálfstæðishúsinu sunnudaginn 28. þ. m. klukkan 9. EFNISSKRÁ: 1. Rigoletto-kórinn syngur. 2. Hreinn Pálsson syngur — Gestur Þorgrímsson hermir eftir honum. 3. Kristján Kristjánsson syngur — Gestur Þorgrímsson hermir eftir honum. ■ , 4. Gamanþáttum (sþilakvöldið). 5. Kvartett. s 6. Gestur Þoúgrímsson (gamanvísur). ■ j 7. úeikþáttur afcocktailparty). 8-. Fósttóræður'ssyngja. 9.. Dans til kL.íjl e. m. ■Vj ' - •>*»«( Aðgöngumiðar seldir í Sjáífstæðishúsinu kl. 4—7 í dag og á morgun, borð tekin frátöm leið. Pantanir í síma 2339. Indverjar ekkl með í Genf NÝJU DELHI, 23. marz — í um- ræðum um utanríkismál á Ind- landsþingi sagði Nehru forsætis- ráðherra, að Indverjar óskuðu ekki að taka þátt í Genfar-ráð- stefnunni um Asíumál. Hann kvaðst vona að hægt yrði að koma á vopnahléi í Indó-Kína áður en ráðstefnan væri haldin. —Reuter. - Flugvéiar Framh. af bls. 1. hafa ekki enn verið gefnar um flughraða, þó er það vitað að hún mun geta hafið sig á loft með 800 km hraða á klukku- stund. Hreyfillinn er 5500 hest- afla. Er það þrýstiloftshreyfill af Allison-gerð, sem knýr túrbínur og tvær flugskrúfur settar í samband við túrbínurnar. Einn flugmaður er í vélinni. Getur hann snúið sæti sínu til, eftir því hvort hann er að hefja sig á loft, flýgur láréttu flugi eða er að lenda. ^AAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAA4 iAAAAAAAAAAAAAAAAAA AAA AAAAit AAI S-*''© MABEt* SS4 AESON'S A SSXSOUS THIMG, /VMSS VAM HCCM... I'LL GO QUESTIOM f>_JANIE GILLAM > 1) — Ilvers vegna álítið þér að Hanna hafi kveikt í hesthúsinu? Var það ekki hún, sem bjargaði yður úr eldinum? 2) — Jú, víst dró hún mig út úr hesthúsinu. 3) — Það er alvarlegur glæpur að kveikja í, ég verð að yfirheyra Hönnu. 4) Seinna fær Gyða samvizku- bit, en æsir sig upp og sagir: — Hver veit, nema stelpuskját- an hafi kveikt í.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.