Morgunblaðið - 22.04.1954, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Fimmtudagur 22. apríl 1954
Kom heim á fjórum fótum!
ÍSLENZK BLÖÐ hafa áreiðan-
lega metið að verðleikum hið
góða boð danska og norska ut-
anrikisráðuneytisins um að senda
blaðamenn til Noregs og Dan-
tnerkur í stutta heimsókn í sam-
bandi við ferð forseta íslands til
þessara landa. — Gagnkvæmar
heimsóknir blaðamanna hinna
norrænu frændþjóða geta átt mik
inn þátt í að skapa aukinn skiln-
ing meðal þeirra á viðhorfum
hver annarra.
En því miður hefur einn þeirra
htaðamanna, sem utan fóru orðið
íyrir slæmu óhappi. Það er með-
zitstjóri Alþýðublaðsins, Helgi
Sæmundsson. Ilann virðist hafa
'mtsskilið gestrisni Dana svo
hrapalega, að hann hefur talið,
■að sér bæri að koma á fjórum
áóiucn aftur heim til ættlands
sfns. Þessi misskilningur Alþýðu-
blaðsritstjórans birtist í hinum
skriðdýrslegu skrifum í blaði
bans.
I gær segir hann t.d., eftir að
hafa lýst heimsóknum í ráðhús
nokkurra borga:
„Það er sárt að hugsa heim á
slíkum stöðum“!!!
Svona viðkvæm er lund Al-
þýðublaðsmeðritstjórans þegar
hann er kominn út fyrir Pollinn.
Honum finnst þá beinlínis „sárt
að hugsa heim“ vegna þess að
„höfuðborg án ráðhúss er eins og
nakin kona“, segir hann siðar í
sömu grein.
En látum nú þessa ráðhúss upp
hafningu mannsins liggja á milli
hluta. Hitt er verra, að í forystu-
grein blaðs síns í gær lætur þessi
sami blaðamaður Alþýðublaðs-
ins hreintega liggja að því, að
Alþingi og ríkisstjórn íslands
hafi tekið tilboði dönsku stjórn-
arinnar í handritamálinu með
„fljótfærni og þjóðernislegum
•«tórbokkaskap“. Ennfremur tal-
ar hann um „misskilning í sam-
-bandi við afgreiðslu þess“.
Þessi blaðamaður Alþýðu-
blaðsins lítur m. a. svo á, að
þegar ríkisstjórn íslands og
Alþingis hafa einum rómi
svarað hinu furðulega tilboði
dönsku stjórnarinnar, um að
íslendingar skuli ekkert hand-
rita sinna eignast einir, af
fullri einurð, drengskap og
hreinskilni, þá hafi þessir
málssvarar íslenzku þjóðar-
innar sýnt „misskilning“,
„fljótfærni og þjóðernislegan
stórbokkaskap“!!!
Það er aumt, að nokkur ís-
lendingur skuli geta lagzt svo
náhundflatur, enda þótt Danir
Jiafi nýlega veitt honum vel og
"tekið honum af þeirri gestrisni,
sem þéssari góðu frændþjóð okk-
ai er lagin.
En þessa gestrisni hefur með-
ritstjóri Alþýðublaðsins ekki þol-
að. Þess vegna kemur hann á
íjórum fótum heim og hefur
-árásir á stjórn og löggjafarþing
-síns eigin lands, sem haldið hef-
ur á málstað þess af festu og
tn einskilni.
Þessi framkoma Alþýðublaðs-
ins er því fráleitari sem það er í
®ötnu forystugrein að ræða um
heimsókn forseta Islands til Dan-
jnerkur. Það er rétt eins og blað-
ið teljí sjálfsagt, að hann hafi-
íarið til Danmerkur til þess að
biðja afsökunar á afstöðu íslend-
■inga til hugmyndarinnar um sam
>eign handritanna. En um þá hug-
jnynd komst hinn ágæti danski
rithðfundur, Jörgen Bukdahl, ný-
lega þannig að orði í blaðagrein,
að'Tiún væri „hvorki fugl né fisk-
ur og leysti ekki úr neinum
'vanda".
Allt sýnir þetta, að Alþýðu-
blaðið hefur ekkert lært og engu
gleymt. Það er alltaf á hnjánum
íraynmi fyrir Dönum En því fer
árqiðanlega mjög fjarri að það
látbragð skapi því þá virðingu
jneðal þeirra, sem að er stefnt.
Dapir kunna miklu betur að meta
<einurð og hreinskilni en fleðu-
Jæti og skriðdýrshátt. Þeir vita
líka fullvel að Islendingum eru
k
ekki slíkir eiginleikar í blóð
bornir.
Islenzka þjóðin metur dönsku
þjóðina mikils og vill gott eitt
við hana eiga. — En íslenzkum
mönnum finnst það áreiðanlega
hreint hneyksli þegar einstakir
blaðamenn þeirra þola ekki góð-
an viðurgerning og gestrisni í
Danmörku betur en svo, að þeir
koma heim þaðan á fjórum fót-
um og hefja beinar árásir á for-
vígismenn sinnar eigin þjóðar
vegna einarðrar og drengilegrar
afstöðu þeirra í einu viðkvæm-
asta og mikilvægasta, menningar-
máli hennar.
Reykvíkingur.
fComposition
Þetta er eitt af málverkum Bene-
dikts Gunnarssonar (Komposi-
tion) en málverkasýning hans
stendur nú yfir í Listamanna-
skálanum. Aðsókn að sýningnnni
er mjög góð og hafa 18 málverk
þegar selzt. Sýningin mun stauda
yfir út þcssa viku._____
— Kennsiuhestar
Framh. af bls. 1
aðir klárarnir öðru hverju að
hnippa hver í annan og í menn-
ina tvo, sem halda um beizlis-
taumana. En annars eru þeir
orðnir rólegir. Innan skamms eru
þeir komnir á skipsfjöl og ofan
í lest á Gullfossi. Þetta er þeirra
fyrsta sjóferð. Líklega verða þeir
sjóveikir á leiðinni. En þeir eiga
betra líf framundan en fjölda
margir aðrir íslenzkir hestar,
sem fluttir voru yfir hafið til þess
að vinna í hinum dimmu og
djúpu kolanámum Bretlands fyrr
á árum. Með þá verður farið sem
kjörgripi, enda eru þeir ekki rétt-
ir og sléttir reiðhestar. Þeir eru
kennsluhestar, sem eiga að kenna
Englendingum og Skotum hinn
„alþýðlega" íslenzka reiðskóla,
■eins og fararstjóri þeirra orðaði
það. Eftir nokkra daga verða þeir
komnir á beit í iðgrænum dölum
Skotlands, þar sem vorið kemur
■fyrr en í átthögum þeirra fyrir
norðan.
En skyldi heimþráin ekki
vakna í brjóstum þessara fallegu
skepna í hinu nýja umhverfi?
Það er ekki ólíklegt að hugur
þeirra Grána og Blakks, Kóps,
Blesa og Skugga hvarfli norður
til vatna og fjalla Skagafjarðar.
En örlög þeirra eru ráðin. Þeir
eru á útleið og þeir koma aldrei
heim aftur. Gullfoss er lagður úr
höfn, það heyrist dauft hnegg
niðri í lestinni. Það eru kennslu-
hestarnir, sem ætla til Invernes,
að kveðja.
_________________S. Bj.
AUGSBORG — Bandarískur
liðþjálfi, Abraham Thomas, hefir
verið dæmdur til dauða í Vestur-
Þýzkalandi fyrir 4 morð. Hinn
22. febrúar skaut hann 2 her-
menn ásamt 2 þýzkum stúlkum,
en önnur þeirra hafði verið frilla
hans.
Sennilega hvert
sæti skipa^
HINN ötuli og sístarfandi for-
vígismaður Barnavinafélagsins
Sumargjafar, ísak Jónsson skóla-
stjóri, skýrði blaðinu svo frá í
gærkvöldi, að Darnabókin Sól-
skin hefði selzt upp í gær og
einnig gekk sala Barnadagsblaðs-
ins mjög vel. — Á allar barna-
skemmtanirnar nema þrjár voru
allir miðarnir uppseldir. — Enn
voru í gærkvöldi fáanlegir mið-
ar á skemmtanirnar að Háloga-
landi, í Tjarnarbíói og Góð-
templarahúsinu. — Þykir þessi
mikla aðsókn að barnaskemmt-
ununum benda til, að hvert sæti
á Sllum samkomunum verði
skipað.
Sveií Jóns G. Haín-
arfjarðarmeistari
HAFNARFIRÐI — Þriðjudaginn
fyrir páska lauk meistaraflokks-
keppni Bridgefélags Hafnarfjarð-
ar. Sveit Jóns Guðmundssonar
bar sigur úr býtum og hlaut 23
stig. Auk Jóns eru í sveitinni
Einar Guðnason, Gunnlaugur
Guðmundsson, Eysteinn Einars-
son og Björn Sveinbjörnsson. —
Önnur varð sveit Ólafs Guð-
mundssonar með 18 stig, þá Árna
Þorvaldssonar með 16, Reynis
Eyjólfssonar 14, Sigmars Björns-
sonar 9, Guðm. Atlasonar 5, Pét-
urs Auðunssonar 1.
Á skírdag spiluðu Hafnfiðring-
ar við Selfyssinga og unnu á 4
borðum en töpuðu á 1. — Nokk-
ur undanfarin ár hefir farið fram
keppní milli þessara aðila og hafa
þeir heimsótt hvorn annan til
skiptis. —G. E.
Fallhlífalið loftleiðis frá
Frakklandi til Indó-Kína
■ HANOI, PARÍS, 21. aptíl.
H Orrustan um virkisbæin Dien
Bien Phu hefur ná náð ttámarki,
og þrengist hringurinn um bæ- ]
inn. Yfirmaður setuliðsins hefur
sent áskorun um, að liðsauki
komi á vettvang umsvifalaust. |
■ Tilkynnt var í París í dag,
“ að í gær hefði bandarísk
farmfluga Iagt af stað frá Orly-
flugvclli til Indó-Kína. Hetur,
hún meðferðis 200 fallhlífarher-
menn ásamt vopnabúnaði þeirra.
Verður liði þessu komið til Dien
Bien Phu eins fljótt og kostur er.
BB Lendir vélflugan utan víg-
vallanna í Indó-Kína, en
franskar vélílugur sjá um flutn-
ing hermannanna til Dien Bien
Phu. Hugmyndin er, að áfram-
hald verði á þessum flutningum.
JSgS Wilson landvarnaráðlierra
Bandaríkjanna gat um þessa
herflutninga á fundi með frétta-
mönnum í dag og sagði, að heir
væru í samræmi við stefnu Eanda
ríkjanna um varnir Suðaustur-
Asíu. — Reuter-NTB.
Lúðrosveit
hólms er 10
Stykkis-
Rússar aðiló
IJMESCO
PARÍS 21. april — í dag gerðust
Rússar aðili að menningar- og
vísindastofnun S. Þ. Hafa þá 70
þjóðir gerzt þátttakendur. Stjórn
málamenn í París eru þeirrar
skoðunar, að aðild Rússa muni
stórum auka menningartengsl
austurs og vesturs.
M. a. þykir líklegt, að Rússar
muni bjóða stórum symfóníusveit
um og kunnum leikhúsfrömuðum
til Moskvu og annarra borga og
sjálfir senda ballettflokka og
hljómlistarfólk vestur á bóginn.
—Reuter-NTB.
Happdrætti islenzkra
gelrauna
Á MÁNUDAG (2. páskadag)
lauk Happdrætti íslenzkra get-
rauna, en vegna vanrækslu
nokkurra íþróttabandalaga og
íþróttafélaga víðsvegar úti um
land að senda tímanlega skila-
grein, er ekki fært að skýra strax
frá vinningum. Eins og kunnugt
er, eru vinningar 200 talsins,
hæsti vinningur 50.000.00 kr. —
Vinningaskrá verður birt svo
fljótt sem hægt er.
Gotl úllit fyrtr afla
á Slokkseyri
STOKKSEYRI, 21. apríl — Útlit
er fyrir að aflahrota sé í vænd-
um hér. M.b. Ægir sem reri í nótt
kom að landi seinnipartinn í dag;
með 3200 fiska innanborðs, sem
er um það vil 18 tonn af slægð-
um fiski. Aðrir bátar sem reru
voru aftur á móti með litinn afla,
1—300 fiska hver, en ekki er
vitað hvort þeir voru á sömu
slóðum og Ægir. Margir bátanna
eru ekki ennþá búnir að koma
netum sínum í lag, eftir að þau
lágu í sjó tvær vikur í ógæfta-
kaflanum um daginn. Útlit er
Ifyrir að sjóveður verði í nótt.
SUMARDAGINN fyrsta árið 1944
komu nokkrir menn saman í
kaffistofu frystihúss K. St. og
stofnuðu með sér samtök um að
koma á íót Lúðrasveit. Er því
sumardagurinn fyrsti stofndagur
L. S. Var strax hafizt handa um
öflun hljóðfæra og eins fjár til
hljóðfærakaupa. — Bæjarbúar
brugðust við og styrktu þessa
hugmynd með fjárframlögum —
Áður hafði Lúðrasveit starfað í
Stykkishólmi, en var löngu liðin
undir lok. Þeir lúðrar sem til
voru eftir þessa sveit voru fægðir
upp og byrjað að blása í þá. —
Einnig varð það Lúðrasveitinni
happ að hún fékk lúðra úr Borg-
arnesi, sem þar höfðu verið ó-
hreyfðir um nokkur ár, en voru
nú til sölu. Með þessu móti var
fyrsta gangan tryggð. Á stofndegi
var kosin stjórn: Víkingur Jó-
hannsson formaður, Benedikt
Lárusson og Árni Helgason. Stofn
endur voru 12 að tölu og voru
þeir flestir strax starfandi félag-
ar. Lög félagsins voru samin að
fyrirmynd Lúðrasveitarinnar
Svanur í Reykjavik og hafa ver-
ið óbreytt. Voru þau samþykkt
á næstu fundum sveitarinnar. —
Verulegar æfingar hófust ekki
fyrr en 2. sept. 1944, og höfðu
Lúðrasveitinni þá enn bætzt nýir
kraftar. Fyrsta des. 1944 kemur
Lúðrasveitin fyrst fram opinber-
lega á skemmtun Kvenfélagsins
Hringurinn og lék þá nokkur al-
þýðulög.
SAMI STJÓRNANDI
FRÁ UPPHAFI
Stjórnandi hefur frá upphafi
verið Víkingur Jóhannsson, verzl
unarmaður. Hefur hann lagt
mikla rækt og alúð við það starf,
unnið það algerlega endurgjalds-
laust og oft við mjög erfiðar að-
stæður. Það sem hefur valdið
mestum erfiðleikum er það að
þegar búið hefur verið að æfa
veturinn hafa svo og svo margir
flutzt burt úr bænum og þá orð-
ið að sefa nýja í staðinn. Samt
hefur allt blessazt og gengið
vonum framar fram á þenrtan
dag. Lúðrasveitin hefur leikið
við fjölda tækifæra í Stykkis-
hólmi og annars staöar, farið
hljómleikaferðir og tekið þátt í
útihljómleikum með Lúðrasveit;
Hafnarfjarðar bæði í Stykkis-
hólmi og Hafnarfirði og Reykja-
vík. Lúðrasveit Reykjavíkur og
Lúðrasveitin Svanur hafa sótt
hana heim.
STYRKUR FRÁ ALÞINGI
Fjárhagur hefur lengst af ver-
ið örðugur og nú fyrir skemmstu
réðist L. S. í að afla sér nýrra
hljóðfæra, sem voru mjög dýr,
og stendur hún í nokkurri skuld
þeirra vegna. S.l. 2 ár hefur Al-
þingi sýnt henni þann sóma að>
veita 5000 króna styrk á fjárlög-
um til hljóðfærakaupanna. Æf-
ingar hafa oítast verið í barna-
skólanum í Stykkishólmi og
reynt að hafa þær tvisvar í viku.
Þess má geta að Lúðrasveít
Reykjavíkur og Hafnarfjarðar og
Lúðrasveitin Svanur hafa sýnt L,.
S. mikinn hlýhug og velvilja og
verið reiðubúnar að rétta hjálp-
arhönd þegar á hefur þurft að
halda og ekki má gleyma því að
einhver bezti velunnari hennar,,
hr. Albert Klahn hljómsveitar-
stjóri í Reykjavík, hefur reynzt
okkur sérstakur í einu og öllu,
hefur margsinnis komið og leið-
beint okkur án endurgjalds, út-
sett fjölda laga og yfir höfuð gert
allt sitt Lúðrasveitinni til fram-
gangs. Fyrir það ber fyrst og
fremst að þakka.
Stjórn L. S. skipa nú: Árni
Helgason, formaður, Bjarni Lár-
usson og Benedikt Lárusson.
Á þessum tímamótum sendir
Lúðrasveitin öllum velunnurum
sínum kærar kveðjur og þakkar
vinsemd liðinna ára.
NÝJU-DELHI, 21. apríl — í til-
kynningu indversku stjórnarinn-
ar segir, að Indland muni hafns
boði um aðild að væntanleguirí
varnasáttmála fyrir Suðvestur-
Asíu, ef til komi. Bent er á, ac9
Nehru forsætisráðherra hafi Offi
látið á sér skilja, að hann vilji
halda ríkinu hlutlausu með ölluj
og ekki gerast þátttakandi I
neinni ríkjasamsteypu.