Morgunblaðið - 25.05.1954, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 25.05.1954, Blaðsíða 4
MORGLNBLAÐIB Þriðiudagur 25. maí 1954 \ 4 I Vinsælasta „Show“-atriði Norðurlanda — SöngkvintetfBnn MOIMIM KEYS Síðasta miðnætur- skemmtunin er í kvöld í Austurbæjarbíói, THE MONN KEVS vinsælasti söngkvintett álfunnar. Sungin lög úr kvik- myndum sem MONN KEYS hafa leikið í, enn frem- ui' nokkur af þeim lög- um, sem MONN KEYS hafa sungið inn á plötur. Einnig verða sungin tvö lög á íslenzku — T I L Þ í N eftir Steingrím Sigfússon. One Man Show : ■ ■ ■ ■ ■ ■ ■ Cowboy special ■ FREDERIK Og ODDVAR — CRAZY DUETT — KYNNIR: SIGFÚS HAIXDÓRSSON Sala aðgöngumiða er í DRANGEY OG AL8TIJRBÆJ ARBÍÓ eftir klukkan 6. Notið þetta einstæða tækifæri og hlustið á beztu skemmtikrafta, sem völ er v. ■• ira ■ « ■ a •■■■ ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ ■■■«•■.•■■ >5 I Sjálfstæðisfélagið Þorsteinn Ingólfsson Kjósarsýslu ADALFUNDVR verður haldinn að Klébergi, fimrntud. 27. maí kl. 2 e.h. Venjuleg aðalfundarstörf. STJORNIN ^•••••■■•■••■■■*■■■■■•■••■•••■■•■■■■•■■■■■•■■•••■■■■■■■•o■•■■■•••■■■■■■■! ■ Fríkirkjan Hafnarfirði : ■ r \ Aðalfundur Bræðrafélags fríkirkjusafnaðarins verður ■ j S haldinn miðvikud. 26. þ. m. kl. 8,30 e. h. í Fríkirkjunni. j • ■ Venjuleg aðalfundarstörf. • Fjölmennið. J STJÓRNIN ^immmamammmmmmmmmmmmarn' '«■«■■■■■■■■■■■■■■■■■■■•■■•■■•■•■■■•■■■■■■■■■••■■■■> Verzlun ■ neðarlega við Laugaveg til sölu. — Sanngjörn lciga. — j Góður vörulager. Vil gjarnan skipta á fokheldri hæð J eða íbúð. Tilboð merkt: „333“—271 sendist Morgunbl. j j fyrir 1. júní. - UIUUUI — Dagbók - Fingrarím HELGI Benediktsson hóteleigandi og Framsóknarmaður í Vest* mannaeyjum hefur krafizt 72 þúsund kr. skaðabóta fyrir fing- urmeiðsli, sem hann telur sig hafa hlotið í viðureign við réttvísina, í Vestmannaeyjum á Framsókn fulltrúa þann, sem flokkurinn telur sinn heiðarlegasta mann, og gat sér orð fyrir vandaða viðskiptahætti. Loks fetti réttvísin fingur samt út í hann, og Framsóknarputti mannsins gekk þá úr liði. . i I Nú stendur í málinu réttvísin heldur höll, því heiðarleiki tímamannsins er strangur. En hvað skyldi kosta mikið manneskjan öll, ef metast á sjötu þúsund hans fingurspjöll? Var maðurinn ef til vill óvenju fingralangur? B-r. f dag er 145. dagur ársins. Næturlæknir er í Læknavarð- stofunni, sími 5030. Næturvörður er í Lyfjabúðinni Iðunni, sími 7911. I.O.O.F. Rb. 1. Bþ == 1035258V2 — 9 II □------------------------□ . Veðrið • I gær var austan átt um allt land og dálítil rigning sums stað- ar á Suður- bg Austurlandi. 1 Reykjavík var hiti 12 stig kl. 15,00, 14 stig á Akureyri, 8 stig á Galtarvita og 5 stig á Dala- tanga. Mestur hiti hér á landi í gær kl. 15,00 mældist á Nautabúi í Skagafirði og minnstur hiti, 5 stig, á Dalatanga. I London var hiti 12 stig um hádegi, 16 stig í Höfn, 15 stig í París, 17 stig í Osló, 22 stig í Berlín, 16 stig í Stokkhólmi, 10 stig í Þórshöfn og 16 stig í New York. □------------------------□ • Afmæli • Guðríður Hanrfesdóttir, Skúla- götu 66, varð 60 ára laugardaginn 22. maí s, 1. • Bruðkaup • Nýlega voru gefin saman í hjónaband Katrín Héðinsdóttir og Jay B. Sorning. Heimili þeira er að Stórholti 37. Laugardaginn 22. þ. m. voru gefin saman í hjónaband af séra Þorsteini Björnssyni Þorbjörg Samsonardóttir, Þórsgötu 20 B og Charles P. Maher. Nýlega voru gefin saman í hjónaband í Sauðárkrókskirkju ungfrú Ingibjörg Stephensen og Helgi Konráðs Hjálmsson. Föður- bróðir brúðgumans, séra Helgi Konráðsson prófastur gaf ’ brúð- hjónin saman. Heimili ungu hjón- anna er að Sólvallagötu 32 A, Reykjavík. Nýlega voru gefin saman í hjónaband á Sauðárkróki ungfrú Hólmfríður Jóhannesdóttir og Ás- grímur Sveinsson, kiæðskerameist ari. Séra Helgi Konráðsson gaf brúðhjónin aman. Síðast liðinn laugardag voru gefin saman í hjónaband af séra Árelíusi Níelsyni ungfrú Hjörtný Árnadóttir, SeJjavegi 13, og Stein- grímur Arason, bókbindari frá Patreksfirði. Heimili brúðhjón- anna verður að Birkimel 8 B. • Hjónaefni • Síðast liðinn laugardag opinber- uðu trúlofun sína ungfrú Margrét Jónsdóttir, Grenimel 23, og Jakob Guðvarðarson, Miðstræti 5. Síðast liðinn laugardag opinber- uðu trúlofun sína ungfrú Hulda Brynjólfsdóttir, Selfossi, og Guð- mundur Andréson, símamaður. Síðast liðinn laugardag opinber- uðu trúlofun sína ungfrú Hanna Sigríður Ásgeirsdóttir frá Siglu- firði og Sigurjón Sölvi Guðnason frá Siglufirði. Síðast liðinn laugardag opinber- uðu trúlofun sína Sesselja Berg- steinsdóttir, Skúlagötu 66, og Jó- hann Vestmann Róbertsson frá Eyði, Sandvík, Sandvíkurhreppi. Fimmtudaginn 13. þ. m. opinber- uðu trúlofun sína ungfrú Sigrún Gissurardóttir, Kjartansgötu 2, og Sigurður Jörgensson stud. oecon, Stangarholti 12. Nýlega hafa opinberað trúlofun sína ungfrú Ingibjörg Þórðar- dóttir símamær og Svanur Jónsson járnsmiður, bæði frá Vestmanna- eyjum. Nýlega hafa opinberað trúlofun sína ungfru Svana Ragnarsdóttir, Smiðjustíg, Reykjavík, og Sigur- geir Scheving, Vestmannaeyjum, Nýlega hafa opinberað trúlofun sína Ástríður Hannesdóttir, Kára- stíg 9, og B'jarni Magnússon vél- stjóri, Langholtsvegi 6. Bifreiðaskoðunin. I dag eiga bifreiðar pr. R-2401 —2550 að koma í skoðun. Pennavinur. 13 ára gömul skólastúlka í Eng- landi óskar eftir að komast í bréfa- samband við íslenzkan pilt á líku reki, sem hefur áhuga á listum, sundi og íþróttum. Nafn stúlk- unnar og heimilisfang er: Jenni- fer Margaret Alen, 4 Heath Close, Kings Norton, Birmingham 30, Warwicks, England. Sólheimadrengurinn. Afhent Morgkunblaðinu: J. S. 100 krónur. íþróttamaðurinn Afhent Morgunblaðinu: Gamall stofufélagi 25 krónur . Fjölskyldan á Flesjustöðum Afhent Morgunblaðinu: G. G. 50 krónur. Ó.I. Hf. 200 kr. Fólkið á Heiði. Afhent Morgunblaðinu: Ó. I. Hf. 100 krónur. -—• Hér með er sam- skotum þessum lokið hjá Morgun- blaðinu. Vcstf irðingafélagið í Reykjavík heldur Vestfirðingamót í Sjálf- stæðishúsinu n. k. miðvikudag (daginn fyrir uppstigningardag). Flutt verður minni Vestfjarða, Ketii Jcnsson syngur og þjóðdans- ar verða sýndir. — Allur ágóðinn af skemmtuninni rennur til byggðasafns Vestfjarða, en það er höfuðáhugamál Vestfirðingafélags- ins. Finnska iðnsýningin er opin daglega kl. 2—10 e. h, — Á helgidögum kl. 10—10. • Flugferðir • Millilandafiug. Flugféiag íslands h.f.: Gullfaxi er væntanlegur til Reykjavíkur kl. 16,30 í dag frá London og Prestvík. Pan American: Flugvél frá Pan American er væntanleg til Keflavíkur frá Hel- singfors um Stokkhólm og Osló í kvöld kl. 19,45 og heldur áfram til New York. • Skipafréttir • Eimskipafélag tslands h.f.: Brúarfoss fer' frá Hamborg í dag til Rotterdam, Hull og Reykjavík- ur. Dettifoss kom til Eaumo ! fyrradag; fer þaðan til Húsavík- ur. Fjalfoss fór frá Hull í fyrra- dag til Reykjavíkur. Goðafoss fór frá'Portland í gær til New York, Gulfoss fór frá Leith í gær til Reykjavíkur. Lagarfoss er í Reykjavík Reykjafoss fer í dag frá Akureyri til Húsavíkur. Sel- foss fór frá Gautaborg í gær til austurlandsins. Tröllafoss fór frá Reykjavík 20. þ. m. til New York. Tungufoss er í Kaupmannahöfn, Arne Prestus lestar um 29. þ. m, í Antwerpen og Hull til Reykja-i víkur. Skipaútgerð ríkisins: Hekla var á Akureyri í gær* kvöldi á vesturleið. Esja er t Reykjavík. Herðubreið er væntan-t leg í dag frá Austfjörðum. Skjald- breið fór í gærkvöldi til Breiða- fjarðar. Þyrill fór í gærkvöldi ás leiðis til Vestmannaeyja og þaðart til Holands. Baldur fór i gærkvöldt til Gilsfjarðar. I Skipadeild S.Í.S.: Hvassafell fór frá Kiei í gær* morgun til Akureyrar. Arnarfell er í Áiaborg. Jökulf. fór frá NeW York í gær til Reykjavíkur. Dísar* fell fer frá Hamborg í dag til Leith og Reykjavíkur. Bláfell fet frá Hornafirði í dag til Djúpas vogs og Breiðdalsvíkur. Litlafell er í Reykjavík. • Utvarp • 19,30 Tónleikar: Þjóðlög frá’ ýmsum löndum (plötur). 20,30 Ers indi: Kristin trú og barnavernd; II. (Gísli Jónson alþm.). 21,00 Undir ljúfum lögum: Gunnar Kristinsson syngur; Carl Billich aðstoðar og leikur einleik. á píanó. 21.30 íþróttir (Sig. Sig.). 21,45 Einsöngur: Kathleen Ferrier syng- ur (plötur). 22,10 Garðyrkjuþátt- ur: Nýjungar í garðrækt (Axel Magnússon garðyrkjukennari). 22.30 Kammcrtónleikar (plötur): Kvartett í B-dúr op. 11 eftir Josef Suk (Bæheimskvartettinn leikur), 23,00 Dagskrárlok.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.