Morgunblaðið - 25.05.1954, Side 7
Þriðjudagur 25. maí 1554
MORG U'N BLAÐIÐ
7
Svíarnsr hafa si§raS með 3
marka snun í báðum leikjunum
SÆNSKA handknattleiksliðið, Kamraterna frá Kristianstaá,
kom til Reykjavíkur á iaugardag og lék samdægurs við úrvals-
lið Reykjavíkurfélaganna á íþróttavellinum. Leikar fóru þá svo
að Svíarnir sigruðu með 15 mörkum gegn 12. — Á sunnudagskvöld
léku Svíarnir að Hálogalandi gegn íslandsmeisturunum, Ármanni,
og sigruðu enn, þá með 16 mörkum gegn 13.
ÆFA VIÐ BETRI AÐSTÖÐU
EN OKKAR MENN
Komu þessara sænsku hand-
knattleiksmeistara hafði verið
beðið með mikilli eftirvæntingu.
Liðið er eitt fremsta handknatt-
leikslið Svía um árabil og því
vel samstillt og þrautreynt. Af
samanburði við sænska liðið má
sjá að reykvískir handknattleiks-
menn eru á eftir hvað leikhraða
snertir og í því að dreifa leikn-
um um völlinn. Hafa þeir í þeim
efnum afsökun vegna þess að
þeir hafa hvorki til æfinga né
keppni nægilega stóran völl, svo
eðlilegt er að þeir standist ekki
samanburð við lið sem alltaf æf-
ir og keppir á fullstórum velli.
LEIKURINN Á
LAUGARDAGINN
Samt var leikurinn á laugar-
daginn jafn og tvísýnn. Með
nokkrum ugg sáu áhorfendur
Svíana skora 2 fyrstu mörkin og
KEPPA í KVÖLD
í kvöM keppa Svíarnir við Val,
Reykjavíkurmeistarana, að Há-
logalandi. Fyrir leikinn keppa
kvennaflokkur Vals og Fram
stuttan leik.
335 kr. fyrir 11 réita
ÚRSLIT leikjanna á 20. seðl-
inum:
Víkingur 1 — Þróttur 1 x
Ungverjaland 7 — England 1 1
Sandeford 0 — Skeid 0 x
Nordnes 2 — Larvik 3 2
Asker 1 — Sparta 2 2
Moss 2 — Lilleström 6 2
Freidig 2 — Frederikstad 4 2
Strömmen 3 — Odd 1 1
Djurgárden 1 — Degerfors 1 x
Hálsingborg 2 — Gais 3 2
Jönlcöping 2 — Malmö 3 2
Sandviken 0 — AIK 4 2
Ekki færri en 5 seðlar reynd-
ust með 11 réttum ágizkunum,
enda komu flest úrslitanna ekki
mjög á óvart. Óvæntust urðu úr-
slitin í jafnteflisleikjunum 3, og
sér í lagi jafntefli Víkings og
Þróttar. Hæsti vinningur var 335
kr. fyrir 4 af seðlunum, sem voru
með 27 og 48 raða kerfum, og
eru með 1/11 og 6/10.. Fyrir
5 seðilinn koma 275 kr.
Kðflavík vann
Akranes
í FJÓRÐA skiptið er Keflavík
og Akranes háðu sundkeppni sin
á milti sigraði sundfólkið í Kefla-
vík. Keppnin fór fram í Kefla-
vík og hlutu Keflavíkingar 45t4
stig gegn 42tá stigi Akurnesinga.
Oft hefur bæjakeppni þessi ver-
ið spennandi og tvísýn, en aldrei
eins og nú. Keflvíkingar tóku
forystun?. þegar í fyrstu keppn-
isgrein og héldu henni allt til
loka, þó oft munaði mjóu.
Bæði á Akranesi og Keflavík
er niikill fjöldi góðs sundfólks,
sem þrátt fyrir tiltólulega litla
æfingu hefur skipað sér í raðir
beztu sundmanna og kvenna ís
lands. Sundhallirnar á þessum
stöðum eiga sinn þátt í því. Það
er gott fordæmi, sem þessir bæir
hafa sýnt með því að efna til slíkr
ar bæjakeppni í því skyni að efla
áhuga æskufólks fyrir hinni hollu
sundíþrótt.
Úrslit í einstökum greinum
verða birt siðar.
Árinaim J. Lánis-
soii glímukappi
r
Islamls
ÍSLANDSGLÍMAN fór fram að
Hálogalandi á sunnudaginn. —
Þátttakendur voru 9 talsins og
urðu úrslit þau að Ármann J.
Lárusson varð glímukappi ís-
lands 1954 — lagði alla keppi-
nauta sína.
Annar varð Gísli Guðmundsson
Á, hlaut 7 vinninga, 3. Anton
Högnason Á, 6 vinninga.
Kristinn Þorkelsson
KRISTINN Þorkelsson var fædd-
ur 7. júní 1872, að Fellsenda í
Þingvallasveit, sonur hjónanna
Þorkels Kristjánssonar og Birg-
ittu Þorsteinsdóttur, sem þar
bjuggu þá. Þau hjón fluttust síð-
ar að Helgadal í Mosfellssveit.
Kristinn ólst upp í foreldrahús-
um, fyrst að Fellsenda og síðan
í Helgadal fram undir tvítugs-
aldur, en þá réðist hann til skó-
smíðanáms í Reykjavík hjá Rafni
Sigurðssyni, skósmið, sem þá var
Áke Moberg.
bjuggust við „bursti“. En úr-
valsliðið stóð sig með mikilli
prýði, jafnaði og tók forystuna.
í hálfleik stóðu leikar 8:8.
í síðari hálfleik sóttu Svíarnir
sig og náðu allmiklu forskoti, en
leiknum lauk með knöppum sigri
þeirra, 15:12.
Þó úrvalsliðinu hafi ekki tek-
izt að skora nema 5 mörk úr 11
vítaköstum er á Svíana voru
dæmd, má liðið vel við una.
Reykvískir handknattleiksmenn
eru óreyndir í keppni við þraut-
reynd lið, en þessi leikur sýnir
að þeim má fá í hendur stór verk-
efni í þeirri vissu, að þeir muni
standa sig. Bezti maður liðsins
var Karl Jóhannsson Ármanni
— eldsnöggur, liðugur og skot-
harður handknattleiksmaður. —
Hann skoraði 5 af mörkum Reyk-
víkinga. Annars var hvergi „gat“
í liðinu og allir leikmennirnir
skiluðu hlutverki sínu með sóma.
Dómari var Hannes Sigurðsson.
Var hann ákveðinn og réttsýnn
í dómum sínum og fylgdi fast
eftir hinum nýju reglum. Vita-
köstin mörgu er dæmd voru á
Svíana voru flest fyrir svipuð
brot — andstæðingur var hindr-
aður í að skjóta er að markteig
var komið. Var þar ákveðið fylgt
eftir hinum nýju reglum.
AÐ HÁLOGALANDI
Innileikurinn á sunnudags-
kvöMið var ekki síður skemmti-
legur, þó litli völlurinn þar tor-
veMaði leikmönnum mjög. —
Ármenningar tóku forystuna, en
við ramman var reip að draga,
og var leikurinn jafn og skemmtí
legur til síðustu mínútu.
Þfzka liðið er vel samæft
eftir sex vikna þjálfim
Keppa við Reykjavíkurúrval á fösfudaginn
MEÐAL farþega með Gullfossi, sem kemur hingað á fimmtu-
dagsmorgun, er úrvalslið Hamborgar í knattspyrnu. Lið
þetta kemur hingað sem kunnugt er í boði íþróttabandalags Akra-
ness, og hefur þetta litla bæjarfélag í mikið ráðizt, er þeir fyrstir
manna utan Reykjavíkur, ráðast i að bjóða hingað til lands stói-
um hópi íþróttamanna.
SAMÆFT LIÐ '
í hinum þýzka hóp er hingað
kemur eru 22 menn — 4 menn í
fararstjórn (þar með tahnn þjálf-
ari) og 18 knattspyrnumenn. í
fararstjórn eru m.a. hr. August
Ahrens og Gustav SchönfeMt,
sem er meðal forystumanna i
knattspyrnumálum Hamborgar.
Knattspyrnuliðið var valið í apríl
byrjun og hefur síðan æft af
kappi. Gísli Sigurbjörnsson, for-
stjóri, er var á ferð erlendis á
dögunum, sá liðið að æfingum og
kvað þá mjög leikna knattspyrnu
menn. Þeir hafa æft vel og sýnt
mikinn áhuga á Islandsferðinni.
DAGSKRÁIN
Ilér dveljast gestirnir frá
Ilamborg til 5. júní. — Dvöl
þeirra verður á þessa leið:
Föstudaginn 28. maí: Bæja-
keppni í knattspyrnu: Ham-
borg—Reykjavík. Reykjavík-
urliðið velur Knattspyrnuráð
Reykjavíkur.
Laugardaginn 29. maí: Farið
til Akraness og verður mót-
taka á bryggjunni þar. Síðar
þann dag fara Þjóðverjarnir
m. a. á handfæraveiðar á mið
Akurnesinga.
um. Hann var skýrleiksmaður 9
hugsun, ákveðinn í skoðunum, er*
orðvar og ádeilulaus. Um sumö
var hann nokkuð sérstæður, enj
á engan hátt yfirborðsmaður né
að allra vild. Þess naut hann bæði.
og galt.
Vandaðrf mann til orðs og æð-
is var vart að fyrirfinna. Trú-
virkni hans og orðheldni var svo,
að af bar. Sá sem að þessum.
línum stendur getur þar bezt urrv
borið eftir 20 ára árekstralaus.t
samveru og samstörf. Varð hov>-
um aldrei fullþakkað fyrir öll
þau störf, sem hann inntitaf hend*
á þessu tímabili, né heldur hitt,
hvern þátt hann átti í uppeídii
þeirra barna, sem voru honumt
samvista, því hann var barngóðiM"
og umhyggjusamur við þau einw
og bezt má vera. Má þar ura.
segja, eins og oftar, að engiira
veit hvað átt hefur fyrr en misst.
hefur, en það sem vel er gert skak
lengi muna.
— Síðustu árin dvaldist Krist-
inn á vegum barna sinna og ðó»
á Elliheimihnu Grund, 16. maí.
— Blessuð sé minning hans.
Hallur JónssoB.
Sunnudagur 30. maí: Kapp-
leikur á Akranesi. Hamborg—
Akranes. Fjallfoss fer héðan
kl. 1 e. h. og ofan að aftur kl.
8 um kvöldið.
2. júní: Nýbakaðir Reykja-
vikurmeistarar (sennil. K.R.)
keppa við Hamborgarana.
4. júní: Hamborg—Akranes
á íþróttavellinum í Reykjavik.
Milli keppnisdagana fara Þjóð-
verjarnir í ferðalög, skoða Borg-
arfjörðinn, Hitaveituna, Hvera-
gerði, Gullfoss, Geysir og Þing-
völl m.a. Heim halda þeir 5. júní
flugleiðis.
GAGNKVÆM HEIMSÓKN
Hér er um algerlega gagn-
kvæma heimsókn að ræða. Akur-
nesingar bjóða þessu þýzka liði
hingað og 28. ágúst n.k. fara þeir
utan í boði knattspyrnusambands
Hamborgar. Þetta er í 5. sinn sem
af slikum gangkvæmum heim-
sóknum verður milli þýzkra og
íslenzkra knattspyrnumanna. —
Æfinlega hafa þessar heimsóknir
yerið öllum til sóma er að þeim
stóðu, og öllum til ánægju er á
tappleikina horfa.
helzti .maður í þeirri grein í
Reykjavík, og meðal annarra
hafði Jón Brvnjólfsson leðursali
lært iðn sína hjá Rafni, en nokkiu
áður en Kristinn.
Árið 1897 giftist hann Maríu
Jónsdóttur. Þau hjónin eignuðust
7 börn, 5 syni og 2 dætur, sem
öll komust til þroska og hafa
sýnt að þau eru af góðu bergi
brotin. Af þeim eru nú 2 synirnir
dánir, en annar þeirra var Jón
Lehmann, sem mörgum Reykvik-
ingum var að góðu kunnur, hinn
var Ágúst, sem létzt eftir langa
vanheilsu á Kópavogshæli. Þau
sem eftir lifa eru Kristján, en
hann fór til Ameríku á unga
aldri; Kristín María, gift Stefáni
Ó. Bjarnasyni; Alfreð, giftur Sig-
urveigu Oddsdóttur; Ingibergur,
giftur Emilíu Þórðardóttur og
Guðrún, gift Birni Jónssyni.
Fyrstu árin eftir að Kristinn
hafði útent námstima sinn, vann
hann áfram hjá Rafni, unz hann
fluttist ásamt fjölskyldu sinni til
Fáskrúðsfjarðar í þeirri von að
þar væru betri afkomumöguleik-
ar en þá voru í Reykjavík. Á
Fáskrúðsfirði stundaði Kristinn
iðn sina i 6 ár, en fluttist þá aftur
til Reykjavíkur. Hvarf hann þá
til annarrar iðju og hafði m. a.
það starf með höndum um ára-
bil, að kveikja á götuljósum bæj-
arins, en til þess þurfti þá trú-
verðugan mann og áreiðanlegar.
Það mætti ætla að það starf hafi
ekki aðrir getað leyst betur af
hendi, því það mun ekki ofmælt
að stundvísi og áreiðanleiki
Kristins var með þeim ágætum
að vert er að ekki falli í
gleymsku. Enda auðmunað þeim,
sem höfðu af honum nokkur
kynni.
Árið 1918 missti Kristinn konu
sína og varð það mikið áfall fyrir
hann. Upp úr því bilaði heilsa
hans að nokkru leyti, svo hann
varð aldrei sami maður og hann
áður var. — .Kristinn hvarf nú
frá sínum fyrri störfum og hélt
aftur til átthaga sinna. Dvaldist
hann um nokkurt skeið hjá bróð-
ur sínum Kristjáni hreppstjóra
í Álftanesi og siðan tvö ár hjá
Einari hreppstjóra Halldórssvni
að Kárastöðum, en vorið 1928 fór
hann að Bringum i Mosfellssveit
og var þar til heimilis i 20 ár.
— Lengst af þeim tima var hann
í vegavinnu á sumrum hjá Jónasi
vegaverkstjóra Magnússyni í
, Stardal og hafði Jónas miklar
j mætur á honum fyrir iðni og trú-
mennsku eins og vert var. Lagði
hann sig jafnan allan fram í
j starfi sínu og leyfði engum að
hlutast til um athafnir sínar né
^ ákvarðanir og var alltaf sjálfum
sér samkvæmur í orðum og gerð-
Benedikt Sveinsson
bygginpmelsiari
fhnmlugQr
FIMMTUGUR var í gær Bene-
dikt Sveinsson, byggingameist-
ari, Laugateig 44.
Benedikt er Austfirðingur að
ætt, fluttist til Reykjavíkur árið
1936 og hefur síðan stundað húsa-
byggingar og trésmíði hér í bæ.
Sú er ástæða til þess að mér
þykir rétt að geta i fám orðum
um starf Benedikts og hann sjálf-
an við þessi tímamót, að ég tel,
að ef rétt er að láta mannagetið
á slíkum stundum, þá sé ástæða
til þess að þessu stinni. Ég hirði
ekki um að rekja ætt Benedikts.
Hún er þeim kunn sem um slíkl
vilja vita.
Um starfsferil skal þess getið,
að Benedikt lærði trésmíði hjá.
föður sínum, Sveini Benedikts-
syni á Fáskrúðsfirði og byggði
þar eystra ásamt föður sínum
mörg reisulegustu hús, sem þar
er að sjá.
1936 fluttist Benedikt til
Reykjavíkur og hefur síðan ver-
ið athafnamaður við byggingar
í Reykjavík og veitir nú forstöðw
fyrritækinu Benedikt & Gissur,
ásamt Viðar Thorsteinsson.
Um það bil að ég var að henda
fyrstu sporin, kynntist ég Bene-
dikt af afspurn og þá þegar era-
göngu að góðu. Síðar fékk ég
tækifæri til að reyna nokkuð rétt
mæti þeirrar spurnar og verð ég-
að viðurkenna að fáa menn heff
ég þekkt sem betur sameina með-
fædda og áunna eiginleika, sen*
gera menn þannig, að öllum, sem.
kynnast þeim, finnst þeir hafa
grætt mikið á kynningunni og
þykir jafnframt vænt um við-
komandi.
Það mundi ekki að skapi Bene-
dikts eða fjölskyldu hans, að-
mikið lof væri á hann borið við
þetta tækifæri en þó verður hamt
það að þola, að um leið og kunn-
ingjarnir óska honum til ham-
ingju við þetta tækifæri, þá
minnast þeir þess, að hann er
maður, sem okkur samíerða-
mönnum finnst alltaf vera ungur
og vilja að hann haldi áfram að
vera það, og okkur finnst að það
sé einkenni þeirra manna, sem
við viljum muna að þeir koma
alltaf fram til góðs þar sem þeir
fara og það gerir Benedikt.
Samferðamaður.
Hörður Ólafsson
Málflutningsskrifstofa.
I Laugavegi 10. Símar 80332, '7673.
HILMAR FOSS
lögg. skjalaþýð. & dóint.
Hafnarstræti 11. — Sím? 4824.