Morgunblaðið - 01.06.1954, Side 6
6
Þriðjudagur 1. júní 1954
MORGUNBLAÐIty
Sendiferðabill
með stöðvarplássi til sölu.
Til sýnis við Nýju sendi-
bilastöðina eftir kl. 7 í dag.
4000 manns sán kappleikinn á
Akranesi - en |>ar eru íbúarnir 3000
sókn Akurnesinga þung fram
undir miðjan hálfleikinn, þótt
árangur hennar í markatöiu væri
enginn. Eftir það tóku Þjóðverj-
arnir frumkvæðið í sínar hendur
— og sýndu á köflum samstillt-
an leik og góðar skiptingar. í
einu upphlaupanna tókst þeim j
að brjótast í gegn um Akranes-
vörnina og hægri miðframvörður
fékk knöttinn um 7 m frá marki.
Magnús hljóp út í því skyni að
loka markinu, en Þjóðverjanum
tókst á snilldarlegan hátt að
vippa knettinum yfir hann og
skora — 2:1.
Fleiri tækifæri fengu Þjóðverj-
ar í þessum kafla leiksins. Með
góðum staðsetningum tókst þeim
að stöðva upphlaup Akurnesinga
þegar í fæðingu og halda sókn-
arþunganum. Oft komst Akranes-
vörnin „í hann krappan“ og tvisv-
ar tókst bakvörðunum að bjarga
á marklinu.
Á síðustu mínútum leiksins
tókst Akurnesingum að breyta
vörn í sókn og þá skoraði Rík-
harður eitt af sínum snilldar-
mörkum. Hann fékk knöttinn eft-
ir innkast nálægt miðjuni velli,
óð í gegnum þýzku vörnina og
með þrumuskoti jafnaði hann
fyrir Akranes.
LIÐIN
Þýzka liðið sýndi eins og fyrr
segir betri leik nú en í úrvals-
leiknum. Staðsetningar Þjóðverj-
anna voru betri — og svo góðar
að oft lokuðu þeir eyðunum, svo
miklum erfiðleikum var bundið
að komast í gegnum vörnina.
Ahrens miöframherji var sem
fyrr bezti maður sóknarinnar, en
fékk lítt notið sín fyrir Dagbjarti,
sem var bezti maður Akraness
varnarinnar og lék af miklu
öryggi. Mikið var því leikið á
útherjana og áttu bakverðir
Akraness oft erfiðar stundir, —
en tókst þó að bægja hættunni
írá.
Akranesliðið náði sér ekki eins
upp og oft áður. Kenni ég þar
um vellinum (að minnsta kosti
fram á föstudag, er þeir fá að
sýna hvað þeir geta á Reykja-
víkurvellinum). Alltaf reyndu
þeir þó að byggja upp — og kom-
ust oft langt, áður en einhver
hlekkur b'laði. Mikið reyndi á
vörnina. Magnús gat ekki gert að
vítaspyrnunni og gerði hárrétt
með því að hiaupa út er seinna
markið kom, þó Þjóðverjanum
tækist að skora. Bakverðirnir
Ólafur og Kristinn áttu góðan
leik, þó Ahrens og útherjarnir
gerðu þeim erfitt fyrir með tíð-
um og hröðum skiptingum Dag-
bjartur var hinn öruggi miðfram-
vörður sem alltaf stóð sem klett-
ur fyrir og bjargaði oft. Guðjón
var traustur í vörn og góður
stuðningsmaður í sókn. Sveinn
sýndi frábæra knattmeðferð, en
var ekki eins góður og oft í fyrra.
Þórður naut sín alls ekki í leikn-
um, Pétur var mjög hreylanleg-
ur og sýndi oft góð tilþrif. Útherj
arnir nýttust ekki sem skildi og
Ríkharður var óheppinn með
markskot cín, en var alltaf sá sem
reyndi að byggja upp hin hröðu
upphlaup — og tókst oft vel.
A. St.
FJÖGUR ÞÚSUND manns
horfðu á leik knattspyrnu-
mannanna frá Hamborg og
Akurnesinga er fram fór á
sunnudaeinn. Það eru þúsund
fleiri, en allir íbúar þorpsins.
Mun slíkt vera heimsmet, að
áhorfendur séu fleiri en íbú-
arnir.
Geysileg eftirspurn var eftir
farmiðum frá Reykjavík til
Akraness. Fjallfoss fór fuílskip
aður, sömuleiðis Eldborg og 2
eða 3 mótorbátar. Bátar komu
og frá Hafnarfirði og Kefla-
vík og fjöldi fólks kom að í
bifreiðum. Glampandi sólskin
var á Akranesi og veðurblíða.
VÖLLURINN
Þó mikið hafi verið unnið í
knattspyrnuvellinum í allt vor
og allt gert til að gera hann sem
beztan úr garði var það samt
völlurinn sem kom í veg fyrir að
liðin gætu sýnt þann samleik,
sem þau bæði búa yfir. Eigi að
síður var heildarsvipur ieiksins
góður. Þjóðverjarnir léku betur
í þessum leik, en úrvalsleiknum
í Reykjavík, og Akurnesingar
undirbjuggu ótal skemmtileg upp
hlaup, hörð og vel hugsuð — þó
mörg þeirra næðu ekki nema upp
að vítateig Þjóðverja. Akurnes-
ingar sköpuðu fleiri skottækifæri
en Þjóðverjarnir, og vpru mjög
óheppnir að fá á sig vítaspyrnu
— eftir mjög strangan dóm, fyrir
óviljandi brot.
Akurnesingar höfðu lagt mikla
vinnu í völlinn. Hefur verið unn-
ið í honum í allt vor, svo að þar
hafa æfingar ekki farið fram.
Stóðu liðin því jafnt að vígi hvað
æfingu á vellinum snertir. Mal-
arlag hafði verið sett á völlinn,
en það rótaðist upp svo að holur
mynduðust á vellinum. Þetta
lausa malarlag hafði vægast sagt
mjög truflandi áhrif á samleik
allan.
VÍTASPYRNAN
Strax í upphafi komst hraði í
leikinn. Áttu Akurnesingar þar
frumkvæðið. Þeir voru sprett-
harðari en Þióðverjarnir og tókst
oft að byggja upp hröð upp-
hlaup — stundum með bráðfal-
legum stuttum samleik — en
flestum þeirra var hrundið er að
vítateig kom, og verulega hættu-
leg markskot voru ekki mörg. Á
13. mínútu leiksins varð annar
bakvörður Akraness fyrir því
óhappi að „kiksa“ — knötturinn
hoppaði af vellinum í hendi hans.
Algerlega óviljandi brot, og flest-
um til mikillar furðu var dæmd
vitaspyrna á Akranes, sem Þjóð-
verjar skoruðu úr.
Fyrir utan þessa vítaspyrnu
áttu Þjóðverjar í þessum hálf-
leik aðeins 5 markskot á Akra-
nesmarkið. Aðeins 1 þeírra var
hættulegt — en Magnús varði.
Iðulega tókst Akurnesingum hins
vegar að skapa hættu við þýzka
markið,. en alltaf bilaði einhver
hlekkur í samleik Akumesing-
anna, svo ekki tókst að jafna í
þessum hálíleik. Hvað mark-
tækifæri snerti, voru því úrslit
hálfleiksins næsta ósanngjörn.
MÖRKIN SKORUÐ
Akurnesingar hófu leik I síð-
ari hálfleik. Knötturinn gekk
frá manni’tíl rhafins upp hægri
kantinn — og hafnaði í marki
Þjóðverjanna eftir skot frá Pétri
Georgssyní. Hraðinn 1 leiknum
jókst eftir þetta mark og var
SUNNUDAGURINN 30. maí
1954 mun lengi verða frægur
dagur í íþróttasögu Akraness.
Þá unnu knattspyrnumenn
þessa þorps, sem teiur tæpa
3000 íbúa, þann sigur að gera
jafntefli við úrvalslið áhuga-
manna frá Hamborg — borg,
sem telur nær hálfa aðra
milljón íbúa. Þetta er í fyrsta
sinn sem bær utan Reykja-
víkur býður erlendum íþrótta-
mönnum heim. Og heimsókn-
in verður Þjóðverjum líklega
ógleymanleg, svo hrifnir voru
þeir af móttökunum — og svo
hafa Akurnesingar borið þá á
höndum sér.
Geysilegur mannfjöldi fagnaði
Þjóðverjunum er þeir komu til
Altraness á laugardag. — Ræður
voru fluttar, lúðrar blásnir og kór
söng. Þá fóru Þjóðverjarn> til
fiskveiða cg hrifust mjög af því
að fá að borða eigin afla. Eftir
leikinn í gær var efnt tii sam-
sætis fyrir hina þýzku gesti. —
Þar voru Þjóðverjarnir leystir út
með gjöfum m.a. fékk hver
þeirra litmynd af Akranesi. —
RæíUr fluttu í hófinu Guðmund-
ur Sveinbjörnsson, formaður ÍA,
Schönfelt, fararstjóri, Hálfdán
Sveinsson, bæjarstjkóri, Pétur
Ottesen, alþm., Jón Sigurðsson,
varaformaður Germanía, Gísii
Sigurbjörnsson, forstjóri og
Ragnar Jóhannesson, skólastjóri,
flutti frumort kvæði um íþróttir
og karlmennsku. — í gær fóru
Þjóðverjarnir í boði Akurnes-
inga um eina fegurstu sveit Is-
lands — Bor.garfjörð. Akurnes-
ingar buðu þeim að gista á ein-
hverju bezta hóteli á íslandi. —
Lcikurinn fór fram á stærsta
knattspyrnuvelli á fslandi — og
sitthvað fleira höfðu þeir upp á
að bjóða, sem gera móttökurnar
einhverjar þær glæsilegustu sem
erlent lið hefur átt að fagna hér
á Iandi, og hefur þó oft verið
tckið vel á mcti útlendingum áð-
ur. —
Fyrsta frjálsíþróltamót-
ið lofar góðu um sumarið
MITT í öllum skarkalanum sem varð um leik Akurnesinga og
1'Þjáðverjá á Akrartési héldu frjálsíþróttamenn fyrsta mót sitt
á árinu, og fengu gesti fáa.
GÖTT MÓT I Áldrei hefur keppnin milli félag-
OG: SKEMMTILEGT I anna verið svo jöfn. Þau unnu nú
Mót þeir'rá • var þó glæsilegt í 5 greinum hvert.
fyrir margra hluta sakir. Nýir | . Skemmtilegasta keppni móts-
menn hafa skotið upp kollinum ins var í 800 og 1500 m hlaupi
og árangur þeirra og hinna eldri milli Sigurðar Guðnasonar ÍR og
var mjög góður svo snemma árs. I Framh. á bls. 12
Teipa
óskast til að gæta 2ja barna.
Uppl. í síma 7151.
Sumsrsiígtf
Unglingsstúlka óskast til að-
stoðar konu, sem tekur að
sér verzlun úti á landi í
sumar. Uppl. í síma 2622
ki. 10—12 f. h.
Húsnæði
óskasf
hentugt fyrir hárgreiðslu-
stofu. Tilboð sendist Mbl.
sem fyrst, merkt: „Hár-
greiðslustofa — 382“.
liús t3I sölu
í Keflavík er einbýlishús til
sölu, ekki fullklárað. Skipti
á Ibúð í Reykjavík koma til
greina. Uppl. Sunnubraut •
11, Keflavík.
Vözi slúika
óskar eftir afgreiðslustarfi í
verzlun eða veitingastað. —
Tilboð sendist afgr. Mbl. f.
þriðjudag, merkt: „Af-
greiðslustörf —- 434“.
TII^DUR
Timburbrak og þakjárn úr
rifnum skúr til sölu ódýrt.
Uppl. í síma 7771.
Blússur
og peysur
í fjölbreyttu úrvali.
VerJ. JJjóttmn
Þingholtsstræti 3.
Bari^iD-
regrokápur
nýkomnar.
Rerrafrakikar
nýkomnir.
VICTOR
STÚLKA
óskast til heimilisstarfa í
einn mánuð. Uppl. í síma
81511.
fóau|T<áiik@mð'
óskast austur i Rangárvalla-
sýslu. Má hafa með sér barn.
Uppl. í síma 2946,
Stúlka óskasl
á gott heimili. Má hafa með
sér barn. Svar óskast sent
afgr. Mbl. fyrir fimmtudags
kvöld, merkt: .Heimili - 381‘.
Sumar-
ibústaÖur
við Álftavatn til sölu. Uppl.
í síma 80274 kl. 1—7 dagl.
Hafnarfjörður
Til sölu svefnherbergishús-
gögn sem ný, úr ljósu birki,
og stigin saumavél. — Allar
uppl. í síma 9369.
Afgréiðsfu-
stúlka
óskast strax.
SÖLUTURNIINN,
Vesturgötu 6, Hafnarfirði.
TIL SÖLU
vegna brottflutnings: tveir
alstoppaðir stólar, vel með
farnir. Tækifærisverð. Uppl.
í síma 7018, mili kl. 6—9.
Reykjavík —
Keflavík
2ja til 3ja herb. íbúð óskast
til leigu nú þegar. Til greina
koma skipli á íbúð í Kefla-
vík. Uppl, í síma 3282 næstu
daga.
TIL LEIGU
2 herbergi og eldhús til leigu
við Silfurtún mánuðina júní
til október. — Leigutilboð,
merkt: „Silfurtún — 377“
sendist Mbl. fyrir þriðju-
dagskvöld. — Fyrirfram-
greiðsla áskilin.
4ra—5 herb. íbúð
eða fokhelt óskast keypt. —
Allt að 200 þús. kr. útborg-
un. Tilboð sendist afgr. Mbl.
íyrir 6. júní, merkt: „366“.
Ung Slngssiúfki
óskast til aðstoðar við heim-
ilisstörf. Sérherbergi, ef ósk-
að er. Uppl. í dag í síma
3595.
Túnþökur
af góðu túni til sölu. Verð
kr. 3,00 pr.,fermeter á staðn-
um. Kr. 6,60 pr." fermeter
heimkeyrt. Upplýsingar í
síma 82032 kl. 10—12 og
1—7 daglega.