Morgunblaðið - 01.06.1954, Page 12
12
MORGUNBLABIB
Þriðjudagur 1. júní 1954
— Úr daglega lífinu
Framh. af bls. 8
irinn sjálfur. Bragi, sem er frem-
ur málstirður, reyndi þó af veik-
um mætti að skjóta inn setningu
og setningu, en oftast árangurs-
iaust og fór svo að lokum að hann
sá sitt óvænna og gafst upp fyr-
ir ofureflinu.
Ég vil nú gefa Búnaðarfélag-
inu, sem Gísli mun starfa fyrir
að þessum þáttum, en þó sér-
staklega Gísla sjálfum, það heil-
ræði, að hann leggi niður þessi
samtöl sín þangað til honum er
orðin ljós sú furðulega staðreynd,
að aðrir en hann geta líka vitað
eitthvað ofurlítið.
KIRKJUKÓR
HÚSAVÍKUR
AÐ KVÖLDI uppstigningardags
söng Kirkjukór Húsavíkur í út-
varpið undir stjórn prófastsins
þar, séra Friðriks A. Friðriksson-
ar, en milli þátta flutti prófast-
urinn snjallt erindi þar sem hann
meðal annars benti á hversu
mikla þýðingu kórsöngurinn hef-
ur haft fyrir tónlistarmenningu
þjóðarinnar fyrr og síðar.
Söngur kirkjukórsins var hinn
prýðilegasti, kórinn ágætlega
samæfður og raddirnar einkar
góðar. Séra Friðrik og kona hans
hafa mikinn áhuga á góðri tón-
list og hafa látið tónlistarmál
mjög til sín taka þar norður frá.
Séra Friðrik er auk þess skáld
mæltur vel og hefur hann ort
marga ágæta texta við þau lög,
sem kórinn syngur. Eiga þau
hjón þakkir skyldar fyrir áhuga
sinn og ágætt starf að aukinni
tónlistarmenningu í byggðarlagi
sínu og nágrenni þess.
Þetta sama kvöld las Valdimar
V. Snævarr upp sálma eftir sig.
Voru þeir allir góður skáldskap-
ur og vel kveðnir, enda er
Snævarr fyrir löngu þjóðkunnur
fyrir sálma sína.
ÚR HEIMI LISTARINNAR
í ÞÆTTI þessum, sem Björn Th,
Björnsson listfræðingur sér um,
leiddu saman hesta sína á
fimmtudaginn var þeir listmál-
ararnir Sveinn Þórarinsson og
Þorvaldur Skúlason, sem for-
mælendur hvor sinnar listastefnu,
— hinnar hefðubundnu málara-
listar og hinnar svokölluðu „non-
figurativu" listar. Þó að margt
skemmtilegt og athyglisvert
kæmi fram í þessum samræðum
listamannanna, var þó minna á
þeim að græða en búast hefði
mátt við. Kom það til af því,
að umræðuefnið var eigi nægi
iega afmarkað og umræðurnar
fóru því mjög á víð og dreif, án
þess að beinast verulega að meg-
inatriðum málsins. Björn Th.
Björnsson boðaði nánari umræð
ur um þetta merkilega efni að
hausti komanda og munu margir
bíða þeirra með eftirvæntingu.
ÖNNUR DAGSKRARATRIÐI
FÖSTUDAGINN 28. f. m. flutti
Þorsteinn Thorarensen fróðlegt
og vel samið erindi um kynþátta
málin í Ameríku og Afríku og
leiddi ljós rök að því, að þau
eru erfiðari viðfangs og fjölþætt
ari en margur ætlar.
S. 1. laugardag var fluttur leik-
þátturinn „Vökupeningar" eftir
Rósberg G. Snædal. Var hann
rislítill og endasleppur, en hafði
góðan boðskap að flytja, það sem
hann náði.
Sama kvöld var dr. Páll ísólfs-
son á ferðinni með hinn vinsæla
þjóðkór sinn. Söng kórinn mörg
lög af mikilli list. Gestur kórsins
var Baldur Andrésson tónskáld
og voru srmgin eftir hann fjögur
lög, þeirra á meðal eitt. nýtt lag,
„Syngdu góða, syngdu“, sem ekki
hefur verið sungið fyrr. Lög
Baldurs voru öll prýðisgóð, en
hið nýja lag hans þeirra mest.
— Baldur er guðfræðing-
uj - og auk þess ágætlega
menntaður tónlistarmaður, stund
Éi meðal ánnars tónlistarnám í
zkalandi urn skeið og hann er
löngu þjóðkunnur fyrir ritsmíðar
sínar um tónlist og tónlistarmál,
er birzt hafa víða í blöðum hér og
timaritum.
Að lokum las Helga Valtýsdótt-
ir leikkona upp bráðsmellna smá-
sögu „Þegar mamma ætlaði að
fara“, eftir Dorothy Thomas í
góðri þýðingu Huldu Valtýsdótt-
ur. Var lestur frúarinnar einkar
skemmtilegur, lifandi og blæ-
brigðaríkur.
Nýkomið úrval aí’
SumarhúfiiiD
á smábörn. Einnig everglaze
hattar á litlar telpur.
Verzl. HAPPÖ
Laugavegi 66.
IVIúrarar
Sá, sem vill taka að sér að
pússa risíbúð á Kópavogs-
hálsi, getur fengið íbúðina
til ieigu. Vinnan gengur upp
í leiguna. Upplýsingar í
sima 82286 frá 4—6 e. h.
þriðjudag og miðvikudag.
Hafna að lækka
hemámskostnað
BONN, 25. maí. — Hernáms-
stjórar Vesturveldanna í Þýzka-
landi höfnuðu í dag tillögu frá
Scháffer, fjármálaráðherra þýzku
stjórnarinnar, um að lækkað
verði framlag Þjóðverja til her-
námskostnaðar, en framlag þettá
hefur numið mánaðarlega þrem-
ur milljarð krónum.
FELAGSVIST
í kvöld kl. 8,30.
Stjórnandi Baldur Gunnarsson.
— Góð verðlaun. —
GÖMLU DANSARNIR
frá kl. 10,30—1. — Hljómsveit Svavars Gests.
Aðgöngumiðasala frá kl. 8. — Kr. 15,00.
Framh. af bls. 6 $í .
Svavars Markússonar KR. Sig-
urður sigraði þó örugglega • í
báðum. Þá var keppnin í 100 m
afarhröð og sama tíma fengu
Hilmar Á og Guðmundur Vil-
hjálmsson ÍR. Guðmundur hefur
litla sem enga æfingu að b|ki
og verður án efa sterkur er írátn
á sumarið kemur; hvorki Hörður
Haraldsson né Ásmundur Bjarna
son munu vinna auðvelda sigra
yfir Guðmundi og Hilmari. 'f- í
stangarstökki stökk Torfi 4 m,
í kringlukasti kastaði Þorstéinn
Löwe 47,27 m, í kúluvarpi varp-
aði Guðmundur Hermannsson
14,76 m, Ármann vann 10Q0 m
boðhlaup, en í. R. 4x100 m^boð-
hlaupið. Úrslitin verða Végna
þrengsla að bíða næsta blaðs.
Hvítasunnuferð
Heimdallar
Þeir, sem ekki hafa greitt frátekna farseðla, eru vinsamlega
beðnir að gera það í dag, annars eiga þeir á hættu að mið-
arnir verði seldir öðrum.
Skrifstofan í Vonarstræti 4 er opin í dag kl. 2—7. Sími 7103. ;
Heimdallur.
Hestamannafélagið Fákur
Hnttabúðin Jonna
er flutt á Laugavcg 27.
Mið úrval af nýjuni höttum.
Helga PaJsdóttir.
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
■ ■■■■■■■■■■■■■■■■■ ■- • ■ ■ ■ ■ ■
Blandaðir úvextir
Höfum fyrirliggjandi góðar tegundir
af þurrkuðum, blönduðum ávöxtuni.
Magnus Kjaran
umboðs- og heildverzlun.
I ^déíaaó^undur
«
! verður haidinn fimmtudaginn 3. júní kl. 8,30 e. h. í baðstofu
! iðnaðarmanna.
■
j FUNDAREFNI:
1. Kappreiðarnar 2. hvítasunnudag.
; 2. Hesthús- og hagbeitarmál.
3. Kosinn fulltrúi á sambandsfund L. H.
■
! 4. Onnur mál.
* Stjórnin.
■
«■■■■■■•■■■■■■■■■■■■"■>■ ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■•■■■■■■■■■■■■f»8««BM»HB*
DBENGVB
/ *
■
12—16 ára sem verið hefur í sveit, helzt vanur vélavinnu, ;|
■1
óskast á sveitaheimili á Norðurlandi. Uppl. Hverfisgötu 103, I
kl. 5—6 í dag. 5
<■■■•■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■.■ taBBaaaaB..ii..aaiB¥BaaBBBASBB„XpMll|lllBaa
Súðlirðingar
■ :
Farið verður í Heiðmörk til gróðursetningari í !
: ■
! kvöld. — Mætið við Varðarhúsið klukkan 8. 1
■4'
Sunnarhattar Sumarhatfar
Tökum. upp í dag fjölbreytt úrval af strá- og filthötl-
Sérstaklega mikið af fallegum hvítum höttuÁi.
um.
Hattabúðin H A D D A
Hverfisgötu 35.
LfeikskóSinn í Grænuhurg
tekur til starfa í dag.
Forstöðukonan.
Olæsiieg íbúðarhæ
Fjögur herbergi, eldhús, bað, hall og ytri forstofa, sér
inngangur og sér hiti, ásamt bílskúr og ræktaðri lóð, er
til sölu nú þegar. Þeir, sem hafa áhuga á svona íbúð,
sendi nöfn sín ásamt tilgreindri hæstri útborgun, á afgr.
Morgunbl. merkt: „íbúðarhæð —355“.
hestíunaiinafélagíð Fákur \
l
■j
Tekið verður á móti hestum félagsmanna við girðing- 3
i
■
una í Geldinganesi kl. 8—10 e. h í dag. — Hagbeit og 3
§
sókning 180 kr., borgist um leið.
STJÓRNIN 3
ATVINNA
| Reglusamur og duglegur maður með góða menntun öskar
: eftir atvinnu strax, eða sem fyrst. Tilboð merkt: Skrifstoíu-
• vihna — 378.
FORDSON
sendiierðabill
til sölu. — Nýr mótor fylgir. Uppl. á
Hjallaveg 58, kl. 6— 8 í kvöld.
■■■■■■■■■■■«■■ ■■ a ■ ■« MJJlMMJJlJAILUMJMUJiUJ
■ ■■■JUU> ■ «JLSUi ULPJL&M OAMJUUUUUI***
.9
■ ■■■■■■■■■■■■ ■»■■■■ ■•■■■■■■ ■■■ ■ ■■■■■■■■■■■«■ flJUUIiMMj