Morgunblaðið - 23.06.1954, Page 6
6
MORGVNBLAÐIÐ
Miðvikudagur 23. júní 1954
í Þ R 6 T T I R
KR hefur 4 stig eftir 2 leiki
UM 1200 manns voru mættir
suður á íþróttavelli s.l.
sunnudagskvöld til þess að
fylgjast með 4 leik íslands-
mótsins, viðureigninni milli
K. R. og Fram. Á köflum brá
fyrir skemmtilegum samleik
hjá báðum liðum, sem við höf-
um því miður fengið að sjá
alltof lítið af á þessu sumri.
Var hlutur Fram öllu meiri þó
svo færi, að þeir töpuðu Ieikn-
um. K.R.-ingar notuðu meira
langar spyrnur en stutta sam-
leikinn og fengu ekki eins
mörg marktækifæri og Fram-
arar.
í hálfleik stóðu leikar 2 mörk
gegn 2 og þetta eina örlagaríka
mark, sem K. R. skorar í síðari
hálfleiknum geta Framarar ekki
kennt neinum, nema sjálfum sér.
Haukur Bjarnason stendur úti á
vítateig, gefur knöttinn í áttina
að sínu eigin marki til Guðmund-
ar framvarðar, sem hyggst koma
honum til markvarðar, en spyrnir
svo laust, að Ólafur Hannesson,
sem stóð að baki Guðmundar
þarf ekki að taka r.ema fjögur
skref, þakka fyrir hjálpina, og
senda knöttinn í netið. Þessar sí-
felldu spyrnur að sínu eigin
marki í tíma og ótíma hafa fylgt
Framvörninni nú um skeið og
oft hefir hurð skollið nærri hæl-
um, en allt blessast þar til nú.
Vonandi verður þeim þetta óhapp
nokkur lexía. Það er vissulega að
bjóða hættunni heim, að taka
upp stuttan samleik innan síns
eigin vítateigs, þegar svangir mót
herjar eru stöðugt á næsta leiti,
og þeir eru jafnan fljótari, ef
eitthvað útaf ber. Astæðan til
þess, að ég gerist fjölorður um of-
angreint atriði, er ekki eingöngu
örlagarík úrslit þessa leiks, held-
ur hitt, að mér hefir fundizt aðrir
varnarleiksmenn en þeirra Fram-
ara hafa samskonar tilhneiging-
ar. Víst er ágætt að geta gripið
til þess ráðs að senda markverði
sínum knöttinn, en líka er varn-
arleikmönnum hollt að minnast
þess, sem frægur maður sagði
forðum: „Bezta vörnin er sókn“.
Og standa nú bezt Reykjavíkuriiða
FYRSTU MÖRKIN &
Fyrri hálfleikur var mun bet-
ur leikinn en' sá síðari. Fyrst
framanaf eru K.R.-ingar í meiri
sókn og. á 11. mínútu hefir Þor-
björn dregið Hauk með sér fram
að miðju vallarins, honum tekst
að koma góðum knetti yfir til
Ólafs Hannessonar, sem stormar
einsamall og óhindraður á geysi-
hraða upp að marki Framara. En
á vítateig lætur hann til skarar
skríða og spyrnir, en langt yfir.
Á 15. mínútu á Atli gott mark-
skot, sem markvörður átti erfitt
með. Á 20. mínútu verður Hauk-
ur Bjarnason að yfirgefa völlinn
um stundarsakir vegna meiðsla,
er hann hlaut í byltu og á meðan
hann er í burtu eða á 22. mínútu
skorar Hörður Felixson með
skalla eftir nokkurt þóf við mark
ið. Annar bakvörður Fram gerði
tilraun til að bjarga með skalla,
en varð of seinn. Á 23. mínútu
fær Dagbjartur gott tækifæri til
að skora eftir góða sendingu frá
Óskari, en honum mistekst. Á 25.
mínútu skapar Óskar sér sjálfur
gott tækifæri með því að leika á
tvo KR-inga, en spyrnan lendir
í öruggum höndum markvarðar.
Framarar hafa nú yfirtökin í
leiknum, en markið lætur standa
á sér. Á 31. mínútu jafna Fram-
arar loks. Óskari tókst að kom-
ast á milli bakvarðar K.R., sem
var að leika knettinum, og enda-
marka, gaf snöggan hæðarbolta
fyrir mark K.R. Karl Bergmann
brá skjótt við, hljóp til nokkra
metra og skallaði knöttinn í mark
K.R. Mínútu síðar eru Framarar
enn ágengir við mark KR. Þrir
leikmenn fyiir opnu marki. Krist
inn spyrnir, en markvörður ver
auðveldlega. Á 34. mínútu er
Fram dæmd aukaspyrna rétt við
vítateigshorn K.R.-inga. Gunnar,
hægri bakvörður Fram spyrnir
ve! fyrir háum bolta til Halldórs
Lúðvíkssonar, sem tekur hann
Frh. á bls. 10.
Yalur vann Yíking 1:0
ÍSLANDSMÓTIÐ hélt enn'
áfram á mánudagskvöld og
léku þá saman Valur og Vík- !
ingur. Áhorfendur voru frem-
ur fáir — en þeir sem á völl- |
inn komu sáu lélegan leik og
ósamstillt lið. Valur sigraði
Kom markið um miðjan síð-
ari hálfleik.
Leikurinn var frá upphafi þóf-
kenndur og svo til tilþrifalaus.
Það var oft eins og fyrir hreina
hendingu ef leikmönnum tókst
að leika með stuttum samleik
frá sínum vítateig að vítateig hins
— og þegar þar kom^ hópuðust
allir inn á miðjuna, svo 10—15
manna þvaga myndaðist við
,,vítaspyrnupunktinn“ og þar
lauk upphlaupunum. Þessi hæfi-
leikaskortur liðanna til að nota
kantana — sundra vörninni og
skapa marktækifæri minnir einna
helzt á fjórða flokks lið — byrj-
endur í íþróttinni, sem allir vilja
standa sem næst markinu. Slík
leikaðferð hjá meistaraflokkslið-
um er afleit. Til þeirra verður að
gera vissar lágmarkskröfur um
knattmeðferð, nákvæmni og skiln
•ing á knattspyrnu. Taflmanni er
ekki nóg að kunna mannganginn
til að tefla vel. Hann verður að
kúnna að láta menn sína starfa
saman og umfram allt að nota
taflborðið út í yztu æsar. Þegar i
fjórir framherjar (útherjar, mið-
íramherji og innherji t. d.) bruna 1
með knöttinn að marki andstæð-
ingsins á að vera auðvelt fyrir þá
að skapa gott tækifæri til marks
þegar þrír menn eru til varnar
(eins og oftast er í skyndisókn).
Hópist þeir fjórir inn á vítateig-
inn eiga þremenningarnir í vörn-
inni oftast auðvelt með að gæta
þeirra allra. Þennan leikgalla
sýna Reykjavíkurfélögin öll og
má furðulegt teljast hve lengi þau
virðast ætla að vera að átta sig
á jafn auðveldum hlut.
Leikur Vals og Víkings var
sviplaus. Víkingar sýndu rétt af
og til tilraunir til samleiks, en
Valsmenn voru mun hættulegri
við Víkingsmarkið. — Sigurhans
átti fast skot í stöng — og ýmsir
aðrir misnotuðu góð marktæki-
færi herfilega.
Víkingsliðið féll betur saman
en Valsliðið (þó engan veginn
vel). Leiðinlegra er hins vegar að
sjá 7 landsliðsæfingamenn koma í
Valsbúningi inn á völlinn og falla
ekki betur saman en raun ber
vitni. Nú voru 9 breytingar gerð-
ar á Valsliðinu frá leiknum við
Þrótt — og enn verður að breyta
ef vel á að fara —1 eða eithvað
annað að koma til. Þessi org eru
ekki viðhöfð af andúð gegn Vals-
liðinu, en allir sem opin augu
hafa hljóta að sjá, að það er að-
eins svipur hjá sjón móti Va!s-
liðum undanfarinna ára. *
A. St.
Landy segir:
r
Fo' opf
a
betri tímai4
EINS og frá var skýrt í gær setti
Ástralíumaðurinn John Landy
heimsmet í míluhlaupi og 1500
m hlaupi á mánudaginn. Mílumet
hans er 3:58,0 mín. og 1500 m
metið 3:41,8 (ekki 3:41,9 eins og
sagt var í gær).
Glympíumeisfarar í fimleikum
sýna hér á fösludagskvöld
r
Koma hingað í boði Armanns
N ÆSTKOM ANDI fimmtudags-
kvöld 24. þ.m. er væntanlegur,
með flugvél Loftleiða frá Gauta-
borg, úrvalsflokkur frá finnska
fimleikasambandinu í áhaldaleik-
Finnski fimleikameistarinn
Armo Tanner
fimi. Flokkurinn kemur hingað í
boði Glímufélagsins Ármanns í
tilefni 65 ára afmæii félagsins.
Eins og kunnugt er eru Finnar
með fremstu þjóðum heims í
áhaldaleikfimi og oft unnið
fyrstu verðlaun á Olympíu- og
alheimsmótum. Árið 1949 kom
flokkur frá finnska fimleikasam-
bandinu og sýndi hér í Reykja-
vík við mjög mikla aðsókn og
stórkostlega hrifningu. Fyrsta
sýning flokksins verður n.k. föstu
dagskvöld kl. 9 e.h: í íþróttahúsi
ÍBR við Hálogaland. Meðal fim-
leikamannanna eru bæði Finn-
lands- og Olympíumeistarar. í
leikfimisflokknum eru 8 menn
auk stjórnandans Esa Seeste, sem
var í flokknum sem hingað kom
1949 og er einn af Olympíumeist-
urunum 1948. Einn þekktasti
píanóleikari Finna fru Elsa Aro,
annast undirleik við sýningarnar,
en fararstjóri er K. E. Levalahti,
hershöfðingi, sem í fleiri ár hef-
ur verður fararstjóri Finna &
Olympíuleikum og alþjóðamót-
um. Hann var í mörg ár skóla-
stjóri á íþróttamenntasetri Finna,
Vierumáki og er einn helzti for-
svarsmaður finnskrar íþrótta-
hreyfingar um áratugi. Óhætt
mun að fullyrða að þetta sé glæsi
legasta íþróttaheimsókn til fs-
lands á bessu ári.
LANDY — á hlaupum
Landy er 24 ára gamall stúdent.
Hann tók ásamt 6 öðrum þátt í
mílukeppni í Ábo í Finnlandi. Var
þar m.a. Chataway, sá er dyggi-
legast hjálpaði Bannister til að
komast undir 4 mín. fyrstum
manna. Aðrir keppendur voru
finnskir. Finninn Kalle Kaiio
leiddi hlaupið í fyrstu En er 700
m voru búnir tók Landy foryst-
una með Chataway á hælum sér.
Frá því (700 m markinu) leiddi
Landy hlaupig og breikkaði bilið
milli sín og Chataway. Millitímar
hans voru 58,0 á 400, 1:58,9 á 800
m, 2:27,2 á 1000 m, 3:41,8 á 1500
(sem fæst víðurkennt sem heims-
met).
Landy var sem óþreyttur mað-
ur örskömmu eftir hlaupið og
sagði: „Ég get hlaupið á betri
tíma, — kannski ekki í ár, en það
kemur“. Hann þakkar Chataway
mjög veitta aðstoð vig að halda
uppi hraðanum, þó Chataway
hafi aldrei haft forystuna í hlaup-
inu. Tími Chataway var 4:04,4
mín., O. Vuorisalo, Finnl. 4:07,4,
D. Johansson Finnl. 4:07,6 mín.
Heimsmeisfarakeppnin í knaffspyrnu
SpáS að Uruguay fali
meisfarabikðrinn öðru sinni
UNDANÚRSLIT heimsmeistarakeppninnar standa nú yfir í
Sviss. Fyrsta umferðin fór sem kunnugt er fram víða um
lönd — þátttökuríkj unum raðað niður í riðla og efstu liðin mættu
síðan til „orustunnar" í Sviss, er nú stendur yíir. En þó að þangað
séu komin þau liðin er hæst urðu í hverjum riðli er bilið milli
liðanna furðu mikið og úrslit eins og 8:3 — 5:0 — 7:0 ekki óalgeng.
URSLITIN FRAM TIL ÞESSA
Fyrirkomulag keppninnar í
Sviss er þannig, að liðunum 16
að tölu var skipt í fjóra riðla. Tvö
efstu liðin áttu að komast áfram
— í næstu umferð (8 landa
keppni). Þessari riðlakeppni er
nú lokið og fóru leikar þar á
þessa leið:
16. júní
Austurríki — Skotland 1:0
Uruguay — Tékkóslóvakía 2:0
Frakkland — Júgóslavía 0:1
Brasilía — Mexiko 5:0
17. júní
England — Belgía 4:4
Ítalía — Sviss 1:2
Tyrkland — Þýzkaland 1:4
Ungverjaland — Korea 9:0
Leikir aldarinnar
í GÆR hóf Knattspyrnusamband
íslands sýningar á nýkomnum
kvikmyndum frá hinum margum-
töluðu landsleikjum milli Eng-
lands og Ungverjalands. Fór hinn
fyrri fram í Lundúnum í fyrra
og sigruðu þá Ungverjar með 6:3.
Heyrðust þá margar óánægju-
raddir í Englandi vegna hins
gamla knattspyrnustíls — langar
spyrnur, sem ekki báru árangur
gegn hinum stutta og hraða sam-
leik Ungverjanna.
Bretarnir hugðust þó hefna og
mættu ungverska landsliðinu
öðru sinni i Budapest fyrir nokkr
um dögum. Þá urðu úrslit þau að
Úngverjar sigruðu með 7 mörkum
gegn 1. Og var nú enska lands-
liðið gersamlega sigrað.
Myndirnar tekur um klukku-
tíma að sýna. Þær eru afbragðs-
góðar og sína vel snilli leikmann-
anna. Enginn skal halda að Eng-
lendingar séu lélegir knattspyrnu
menn — en eigi að síður léku
Ungverjarnir þá studur og sam-
an ef svo mætti segja. Myndirn-
ar eru stórfróðlegar öllum knatt-
spyrnuunnendum og knattspyrnu
mönnum.
19. júní
Brasilía — Júgóslafía 1:1
Frakkland — Mexiko 3:2
Uruguay — Skotland 7:0
Austurríki — Tékkóslóvakía 5:0
20. júní
Ungverjaland — Þýzkaland 8:3
Tyrkland — Korea 7:0
England — Sviss 2:0
Ítalía — Belgía 4:1
Eftir þessa umferð höfðu 6
lönd — Ungverjaland, Uruguay,
Austurríki, Brasilía, Júgóslaíía
og England tryggt sér sæti í 8
landa keppninni. En aukaleikir
verða að fara fram til þess að fá
úr því skorið hvaða lönd önnux
eiga að fylla riðilinn. Aukaleik-
irnir eru á milli Þýzkalands og
Tyrklands og hinn á milli Ítalíu
og Sviss. Þessir leikir áttu að
fara fram nú í vikunni.
LOKAÚRSLITIN NÁLGAST
Á laugardag og sunnudag fer
svo fram 8 landa keppnin og er
það útsláttarkeppni. Á sunnu-
dagskvöld verða því aðeins 4
lönd eftir. Þau sem vinna í þeim
leikjum leika til úrslita um heims
meistaratitilinn 4. júlí n.k. _
Hin tvö keppa um 3. sætið 3. júlí
Iþróttafyrirlesari brezka út-
varpsins telur að úrslitin muni
standa á milli Uruguay (núver-
andi heimsmeistara) og Ung-
verjalands. Hann spáir því — og
byggir spádóm sinn á afloknum
leikjum — að Uruguay liðið fari
heim með bikarinn öðru sinni.
En það er ekki oft sem hægt er
að byggja á spádómum þegar
knattspyrna er annars vegar