Morgunblaðið - 23.06.1954, Side 11
Miðvikudagur 23. júní 1954
MORGVNBLAÐIÐ
11
Samkór Reykjavíkur er núna kominn til Stokkhólms frá Finnlandi, þar sem hann fékk hvarvetna
binar ágætustu móttökur og prýðilega blaðadóma. Kórinn söng í Lahti 16. júní á Ieið sinni til
'Jyváskyla, en þar var hann boðinn á finnskt söngmót, sem haldið var dagana 18.—20. þ. m. — 17.
júní var kórinn á siglingu eftir Paijanne-vatni og hélt þjóðhátíðina þar. Myndirnar hér að ofan eru
íeknar við komu kórsins til Jyváskyia, en þar tók m. a. 100 manna blandaður kór á móti kórnum og
þúsundir manna. Um kvöldið sat kórinn boð kór.isambandsins þar, en kórfélagarnir gistu á einka-
Jteimilum meðan á mótinu stóð.
Hildimundur Biörnsson
vegaverkstjón 70 ára
Frá aðatfundi Kaupf.
' HILDIMT TNDUR BJÖRNSSON
yegaverksticri, varð sjötugur í
gær. Hann er fæddur 14. júní
1884 á Þingvöllum £ Helgafells-
Bveit. Foreldrar hans voru hjónin
íngibjörg Hallgrímsdóttir Jóns-
Sonar frá Vindási í Eyrarsveit
Og Björn Steinþórsson oddviti og
.Verzlunarmaður í Stykkishólmi.
Á Þingvöllum dvaldi Hildimund-
Ðr sín æsku og unglingsár í fóstn
hjá þeim hjónunum Guðmundi
lÆagnússyni og Maíthildi Hannes-
dóttur. Frá því heimili á hann
tnargar góðar minningar. enda
*nun það hafa verið í fremstu
röð heimila þar í sveit.
Hildimundur giftist hmn 25.
nóvember T 905 Ingibjörgu Jónas-
dóttur bónda á Helgafelli, í sömu
Bveit, og eignuðust þau fimm
börn, tvö þeirra misstu þau ung,
Guðmundu og Matthildi, en hin
sem upp hafa komizt, eru Björn
Vegaverkstjóri í Stykkishólmi,
giftur Elísabetu Magnúsdóttur,
Hólmfríður gift Gesti Bjarnasyni,
búsett í Stykkishólmi og Jónas
lyfjafræðingur, einnig búsettur í
Stykkishólmi.
Heimíli þeirra hjóna var hið
Snyndarlegasta og bar vott um
rausn og virðingu. Konu sína
jnissti Hildimundur 17. febrúar
1948.
Hildimundur fór snemma að
Vinna víð þau störf, er síðar urðu
lífsstörf hans. Nokkru eftir alda-
mótin var honum falin verkstjórn
Við vegalagnir og mun það hafa
Verið sjaldgæft þá, að svo ungum
tnanni væri falin þau störf.en hag
Býni og dugnaður sýndu fljótt, að
bann var vandanum vaxinn, og
,VÍða um land, þar sem torfærurn-
Br virðast erfiðar til vegagerða,
hefur Hildimundur lagt vegi, sem
verða minnisvarðar hans um tugi
ára. Þegar vegurinn yfir Fjarð-
Brheiði, milli Fljótsdalshéraðs og
Beyðisfjarðar var lagður, var
Hildimundur kvaddur til og lát-
inn framkvæma það verk; mörg-
um fannst það óvinnandi og flest-
Sr héldu að sú leið myndi ekki
Verða akfær vegna hinna gífur-
legu erfiðu skilyrða,-en vegurinn
kom og varð öllum Austfirðing-
Um til gleði og samgöngubóta.
Þær eru margar fleiri torfærur
ftáttúrunnar, sem hafa Orðið að
Víkja íyrir verkhyggni Hildi-
mundar BjörnssOnar, en yrði of
langt að telja. Nú, þegar hann
er sjötugur. vinnur hann að vega
lagningu kringum Patreksfjörð,
út Örlyshöfn og til Breiðavíkur,
víða er sú leið erfið yfirferðar
en á skömmum tíma hefur honum
tekizt að koma þessum afskekkta
hluta Vestfjarða, útnesjunum, í
samband við næstu firði og leið-
ina í þjóðbraut. Þegar Vestfjarða
leiðin verður opnuð til umferð-
ar, mun margan fýsa að bregða
sér út að I.átrabjargi og sjá hina
fögru náttúru þar, og kynnast
hinum afskekktu víkum, Látra-
vík, Breiðuvík og Kollsvík, sem
nú eru að losna úr fjarlægð sinni.
Þá gefst þeim að líta hinar tor-
færu leiðir, sem Hildimundur er
að ryðja til þjóðbrautar nú á þess
um tímamótum ævi sinnar.
í Stykkishólmi, þar sem Hildi-
mundur átti heima til ársins
1950, tók hann mikinn þátt í
félagslífi. — Hann var hrepps-
nefndarmaður þar um margra ára
timabil, tók mikinn þátt í leik-
starfsemi, hljóðfæraleik og söng.
Hildimundur var mikill glímu-
maður og íþróttamaður á fleiri
sviðum, enda rammur að afli
og fylginn sér.
Um lífsleiðina hefur Hildi-
mundur átt marga samferða-
menn. Vart mun vitað um tölu
þeirra manna, sem hjá honum
hafa starfað um lengri og
skemmri tíma, en eitt er það sam-
eiginlegt nieð þeun öllum, að
V.-HúRvefninga
IIVAMMSTANGA 18. júní: Aðal-
fundur Kaupfélags Vestur-Húna-
vatnssýslu var haldinn á Hvamms
tanga 13.—15. maí. Fundinn sátu
fulltrúar 7 félagsdeilda auk
stjórnar, endurskoðenda og fram
kvæmdastjórn félagsins.
Rekstur félagsins hafði gengið
ágætlega s.l. ár. — Sala á inn-
lendum og erlendum varningi
nam samtals 12.318,000 krónum.
! Inneign félagsmanna í innláns-
deild og viðskiptareikningum
hafði hækkað á árinu nærri 900
þúsund krónur, og er nú 4.775,000
króna. Úthlutað var ágóða til fé-
lagsmanna í stofnsjóð 3% af
ágóðaskildum vörum og að auki
1%. Allri vöruúttekt nema þess-
ari, nema þessar endurgreiðslur
alls um 237.500 krónur, og að
auki 1% af öllum útteknum vör-
um, auk þess greitt til félags-
manna 4% af ágóðaskildum vör-
um.
Samþykkt var á fundinum að
fela stjórn og framkvæmdastjóra
að undirbúa byggingu að vöru-
geymslu og verzlunarhúsa, —
einnig stækkun á frystigeymslum
og sláturhúsi. — Þá var samþykkt
að skora á framleiðsluráð land-
búnaðarins að auglýsa fyrirfram
verð á kjöti af sumarslátruðu fé,
svo að aðal verðbreytingarnar séu
bundnar fyrirfram ákveðna daga.
Úr stjórn átti að ganga Skúli
Guðmundsson alþm. og Björn Kr.
Guðmundsson, en voru báðir end-
uckosnir. — í fundarlok kom Vig-
fús Sigurgeirsson ljósmyndari og
tók kvikmynd af fundarmönn-
um og fleirum, enn fremur voru
þar sýndar kvikmyndir er Kaup-
félag Vestur-Húnvetninga hafði
látið taka s.l. ár af stofnendum
þess og ýmsu úr starfsemi félags-
ins.
þeir dá hann sem stjórnanda og
umhyggjusaman mann, bað er
bezti vitnisburðurinn, sem hver
og einn getur hlotið meðal sam-
ferðamanna sinna.
Á þessum tímamótum í ævi
Hildimundar Björnssonar, færi ég
honum mínar og okkar hér vestra
beztu árnaðaróskir, og þakkir
fyrir ljúfa og góða viðkynningu.
Ég óska þér vinur, alls hins bezta
á ókomnum árum og samferðin
með þér í lífinu verði eins björt
og heið í framtíðinni sem hingað
til. Ágúst H. Pétursson.
Síonráð Axelsson:
Lokaorð til „formanns“ Starfs-
mannafélags Keftavíkurflugvallar
ÞANN 10. þ. Q&. bar ég fram, hér
í hlaðinu, nokkrar spurningar
varðandi Starfsmannafélag Kefla
víkurflugvallar. Fyrirspurnum
þessum beindi ég til hins svo-
nefnda farmanns félagsins,
Stefáns Vaígeirssonar. í stað þess
að svara fyrirspurnum minum
um Starfsmanraafélagið hefur
„formaðurinn" kosið að skrifa
heilsíðugrein í Tímann 15. þ. m.
Grein þessi er furðuleg samsuða
af lygum og svívirðingum um
mig persónulega og kemur hvergi
nálægt efni því, sem upphaflega
var tilefni fy rri greinar minnar.
Þar sem allur almenningur og
einnig mikill fjöldi flugvallar-
starfsmanna veit lítil deili á
manni þessum tel ég rétt að
kynna hann og starfsemi hans
nokkuð fyrir lesendum, áður en
lengra er haldið.
Stefán Valgeirsson mun vera
upprunninn úr Hörgárdal, í æsku
gerðist hann meðlimur í félags-
skap ungra Framsóknarmanna í
Eyjafirði, Stefán er maður fram-
gjarn og mun honum hafa fund-
ist ástæða til að Framsóknar-
menn í Eyjafirði fengju notið
foringjahæfileika sinna. Vildi
hann í framboð, en Framsóknar-
menn höfnuðu hinu óeigingjarna
boði Stefáns. Kom þá hinn innri
maður hans í ljós. Gaf hann upp
á sitt eindæmi út yfirlýsingu þess
eínis að Félag ungra Framsókn-
armanna í Eyjafirði styddi ekki
framboð Tómasar Árnasonar, sem
nú er forstöðumaður Varnarmála-
deildar, og tilnefndur hafði verið,
sem frambjóðandi flokksins af
miðstjórninni. Framsóknarmenn
þökkuðu Stefáni lítt brjóstheil
indin, og hrökklaðist hann nú 1
annan landsfjórðung í leit að
nýju tækifæri til pólitískrar for-
frömunar.
Síðasta dag apríl mánaðar 1953
hóf Stefán Valgeirsson störf á
Keflavikurflugvelli og gerðist
hann þá þegar mjög hávaðasam-
ur og vildi láta mikið á sér bera.
Sá hann opið tækifæri forfröm-
unar, þar sem allveruleg óánægja
var meðal margra starfshópa,
vegna mistúlkunar á vinnusamn-
ingum, en ekkert starfsmanna-
félag til á flugvellinum.
Stefán réðist nú í að stofna
félag er gæta skyldi hagsmuna
flugvallarstarfsmanna. Var félags
stofnun þessari almennt fagnað
unz í ljós kom hver hinn eigin-
legi tilgangur félagsins átti að
vera. Stefán Valgeirason ál'eit
félagið strax vera einkafyrirtæki
sitt, og breytti i öllu eftir því.
Á stofnfundinum mætti hópur
manna. Var bráðabirgðastjórn
kjörin og laganefnd er gera skyldi
tillögur um lög félagsins. Þótt-
ist nú Stefán hafa náð settu
marki, en ekki hefur hann, af
einhverjum orsökum,. þorað að
halda aðalfund félagsins og ganga
löglega frá stofnun þess, þó
bráðum sé nú ár liðið frá hin-
um fyrsta fundi. Formannskan
með réttu eða röngu er Stefáni
fyrir öllu.
hefur sterkur orðrómur gengifT
um það, að ein orsök fyrir bin-
um langa drætti á aðalfundin-
um sé ef til vill sú að ekki sé
hreint mjöl í pokanum, hvað við-
víkur fjárreiðum Stapafells Og
Starfsmannafélagsins.
Flugvallarblaðið hefur tvívegií*
birt fyrirspurnir frá félögum S
Starfsmannafélaginu, þar sem,
Stefán er beðinn að gefa upplýs-
ingar um hag félagsins. Hefur
þetta farið svo í taugarnar á
bráðabirgðaformanninum aö
hann hefur talið sig ofsóttan og
lýst sjálfum sér gem píslarvættL
Lætur hann nú vaða á súðum og
slettir úr klaufunum í allar átt-
ir. Átelur mig harðlega fyrir aS
ráða kommúnista að nafni Guð-
geir Magnússon til félagsins Og
segir berum orðum að ég haíi
látið múta mér til þess, þrátfc
fyrir það að fyrir liggur vottoið
frá forstöðumanni Ráðningar-
skrifstofu Varnarmáladeildar hr.
Sigmundi Símonarsyni um það a5
nefndur Guðgeir hafi verið ráð-
inn á venjulegan og löglegan hátfc
í gegnum skrifstofu sína. Svo cr
Stefán Valgeirsson orðinn þvæld-
ur í sínum eigin lygavef að ha.nn,
veit engan vegin lengur hvnð
hann er að fara, og engin von.
að almenningur sem sér slu’if
hans botni upp eða niður í þeim.
Með öllum sínum hávaða og
stóryrðum hrekur Stefán ekkert
af því er ég hefi áður skrifað ntn
þessi mál. Með rógi sínum fellií*
hann aðeins dóm yfir sjálfom
sér. Enda þótt grein hans sé cf
til vill skrifuð efíir pöntun, sen»
einn liður í þeim pólitísku cf-
sóknum á hendur aðstandenda
Flugvallarblaðsins, sem . vakið
hafa almenna fyrirlitningu flug-
vallarstarfsmanna, þá sýnir það
aðeins enn eina hliðina á þessu
undarlega fyrirbæri, Stefánl
Valgeirssyni.
Þar sem ég hef ekki lagt i vana
minn að ræða um einkamál
manna opinberlega eða haWa
uppi njósnum um pólitíska and-
stæðinga mína mun ég láta ó-
svarað aðdróttunum Stefáns nm
persónulegan fjárhag minn, fains-
vegar hef ég gert ráðstafanir til
að hann fái að standa við að-
dróttanir sínar um einkamál mía
fyrir dómstólunum.
Ég mun svo ekki eyða frekaii
tíma mínum í ritdeilur við Stefán
Valgeirsson, tel mig hafa öðrum
hnöppum að hneppa, en ég cr
þess fullviss að flugvallarstarfs-
menn munu veita honum þá af-
greiðslu, sem hann á skilið, cf
hann nokkurntíma heldur aðal-
fund Starfsmannafélagsins á
Keflavíkurflugvelli.
Konráð Axelsson.
Afli brezkra
togara við
r
Island yekst
Samkvæmt úpplýsingum frá
varaformanni félagsins, Böðvari
Steinþórssyni er stjórn Stefáns á
félaginu með slíkum eindæmum
að félagskrá er engin til og allt
mun vera á huldu með fjárreið-
ur þess. Hafin var í fyrrasumar
útgáfa blaðsins Stapafell, og
þekktur þjóðvarnarmaður ráðinn
ritstjóri þess, enda blaðið fremur
rekið sem málgagn Þjóðvarnar-
flokksins, heldur en flugvallar-
starfsmanna. Blaðaútgáfa þessi
mun hafa verið hafin án þess
að nokkur lögleg samþykkt lægi
fyrir um útgáfu þess.
Stapafell komst í fjárhags-
kröggur og hætti að koma út, og
BREZKIR forvígismenn á sviði
togaraútgerðar, hafa oftlega látið
þess getið, að síðan íslendingar
lokuðu fjörðum og' flóum og
færðu fiskveiðilínuna utar, hafi
brezkir togarar veitt miklu minna
á íslandsmiðum en áður. — í
Fishing News, sem kom út 11.
júní, segir frá því að frá janúar
til aprílloka hafi brezkir togarar
landað alls 528,688 vættum af
fiski á móti 488,633 vættum á
fyrstu fjórum mánuðum fyrra
árs. Hér er því um 40,000 vætta
meiri afla í ár en í fyrra.
X BEZT AÐ AUGLÝSA JL
T í MORGUNBLAÐIIW ^