Morgunblaðið - 27.06.1954, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 27.06.1954, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ Sunnudagur 27. júní 1954 Hagkvæm viðskipti geta skapazt með beinum skipa- Effir Balslsv Brgsnsen rifsfjéra í London OF LÍTILL KUNNLEIKI Frá fréttaritara Morgunblaðs- ins Balslev Jörgensen ritstjóra hefur blaðið fengið eftirfar- andi grein íil birtingar. Telur greinarhöfundur að með bein- um skipaferðum á milli Reykjavíkur og Esbjerg, muni opnast leið til hagkvæmra við- skipta fyrir báðar þjóðir, Is- lendinga og Dani og leggur til að reyndir menn og gætnir frá báðum borgum, taki þessi mál til athugunar og meðferðar. Honutn farast þannig orð REYKJAVIKURGREIN í „VESTURSTRÖNDINNT* London í júní. HIÐ myndarlega og víðlesna danska blað „Vestkysten" er að- almálgagn Vinstri flokksins í Danmörku. Þar birtist nýlega skilmerkileg grein eftir danska ræðismanninn í Reykjavík, þar sem hann m. a. bendir á, að æskilegt væri að viðskiptin ykj- ust milli íslands og Danmerkur, einkum innflutningur yrði meiri frá íslandi til Danmerkur en áð- ur hefur verið. . mikil. Það helzta sem Danir heyra um Island í blöðum sín- um, fjallar um deilu þjóðanna út af hinum gömlu handritum, en blöðin eru jafnán fáorð um þær verklegar framfarir á íslandi, sem nú eru á döfinni. Frá Dana hálfu er það ljóst að Islendingum er um að kenna, hve lítið fréttist þaðan, vegna þess hve lítil áherzla er lögð á það að dreifa fróðleik um ísland meðal Dana. Greinin í „Vestur- ströndinni" bendir til að við- leitni íslendinga í þessa átt verði tekið vel á meðal Dana. Mikill meirihluti Dana elur engar óskir í brjósti um að óvin- átta haldist milli þessara þjóða. En bezta leiðin til að styrkja vináttuböndin er gagnkvæmur kunnleiki og gagnkvæm við- skipti. Það kann að vera að fljótlegra sé að fá jákvæðan árangur í þessu efni heldur en bein verzl- unarviðskipti, þar sem tilgang- urinn er að komast að varanleg- um gagnkvæmum hagnaði. Hingað til hafa viðskiptin á Frá bátahöfninni í Esbjerg, þar sem hundruðir báta liggja tíffum viff hafnargarffinn. mikla möguleika til að vera við- tökustöð íslendinga fyrir vörur sem ætlaðar eru til sölu á meg- inlandi Evrópu. Með því móti gæti komizt meiri jöfnuður á verzlunarviðskipti milli Dan- merkur og íslands, er báðir að- ilar hefðu gagn af. Um höfnina í Esbjerg er það að segja að danska ríkið hafði forgöngu um þá hafnargerð eftir að Danir misstu hertogadæmin Slesvik-Holstein árið 1864. Hún átti á þann hátt að skapa Dön- um útflutningshöfn til vesturs. íbúum bæjarins fjölgaði með æv- Þessi mynd er frá affalhöfninni, en þar gefur oftast aff líta fjölda skipa frá ýmsum þjóffum, er ver- iff er aff afgreiða effa bíffa eftir afgreiðslu. „Vesturströndin“ er í nánum tengslum við fyrrv. forsætisráð- herra Dana Erik Eriksen. Hafa greinar blaðsins því mikil áhrif meðal danskra borgaraflokka. Engum vafa er undirorpið, að grein þessi sem flytur íslenzk sjónarmið í þessum efnum, verð- ur mikið lesin víðsvegar í Dan- mörku, ekki sízt vegna þess að ritstjóri blaðsins er fyrrverandi fiskimálaráðherra Knud Ree, sem var styrk stoð dönskum fiskveiðum meðan hann gegndi ráðherraembætti. Augljóst er, að vörur sam menn geta keypt á íslandi er henta Dönum eru takmarkaðar, þar sem útflutningsvörur íslands er fiskur og fiskafurðir, en Dan- ir flytja mikið út af fiski. Þó kann að vera, að Danir geti keypt meira frá Islandi en raun er á, sé áherzla á það lögð. Á þann hátt geti opnazt möguleikar á því, að íslendingar kaupi fleiri vörur frá Danmörku. Til dæmis er hægt að benda á það, sem vakið hefur mikla athygli í Dan- mörku, að verið er að koma á fót íslenzkri framleiðslu á til- húnum áburðarefnum. Komi sú framleiðsla á fastan fót, og verði þessi íslenzku áburðarefni sam- keppnisfær við framleiðslu ann- arra þjóða, geta Danir keypt öll kynstrin af þessari iðnaðarfram- leiðslu. milli íslands og Danmerkur nær eingöngu gerzt um Kaupmanna- höfn. En tilgangurinn með þess- ari grein konsúlsins er ekki sá, að trufla þessi viðskipti, en að- allega að gera hlutaðeigendum ljóst, að fleira er í Danmörku en Kaupmannahöfn. Alveg eins og ísland er annað og meira en Reykjavík, VIÐSKIPTAHÖFNIN ESBJERG Og hafnarborgin Esbjerg á vesturströnd Jótlands hefur intýralegum hraða. Esbjerg er mesta fiskihöfn Danmerkur og þar fer fram meginhluti útflutn- ings danskra landbúnaðarvara, en íbúar e'ru þar alls um 50 þús- und. Bærinn er því á stærð við Reykjavík. íslenzkir útgerðarmenn hafa þegar komið auga á þennan fisk- veiðabæ. Margar Esbjerg-skútur eru seldar til íslands og manni skilst að um Esbjerg hafi íslenzk- ur fiskur verið seldur til megin- lands Evrópu. En æfðir verka- rnenn í Esbjerg standa vel að vígi að koma íslendingum að gagni, enda er þar mikill fisk- iðnaður og hin beztu skilyrði til að fá greiða afgreiðslu fyrir is- lenzkan fisk. FLUTNINGABÍLAR FRÁ ESBJERG TIL MEGINLANDSÞJÓÐA Englendingar hafa einnig kom- izt að raun um þetta og eru byrj-' aðir að senda fisk um Esbjerg til borga á meginlandi Evrópu. Ber það ótvíræðan vott um, að lega staðarins er hin hentugasta fyrir þessi viðskipti. í Esbjerg er af- greiðsla langferðabíla er aka víðsvegar um Evrópu m. a. til Ítalíu, Sviss, Austurríkis, Frakk- lands og Hollands og Belgíu og að sjálfsögðu um þvert og endi- langt Þýzkaland. Beinar járn- brautarferðiir eru við Þýzkalafid og aðrar Evrópuþjóðir. Vörur sem koma til Esbjerg eru t. d. samdægurs komnar til Hamborg- ar. En einkum munu það vera langferðabílarnir, sem íslending- ar geta haft gagn af. Aðallega er um að ræða flutninga á nýjum ísuðum eða frosnum fiski. Að sjálfsögðu eru flutningar þessir breytilegir þar eð fisklandanirn- ar fara eftir veiðum og veðri. Þess vegna geta menn alltaf bú- izt við, að bílarnir verði að aka meira og minna tómir aðra leið ina. En þessar samgöngur er hægt að nota fyrir saltan og frosinn fisk frá íslandi til hags- muna fyrir báða aðila. Vörubílarnir geta tekið á móti vörum til íslands frá meginland- inu séu þeir ekki notaðir fyrir venjulegar vörur. Geta þá íslenzk skip tekið vörurnar til íslands fái þau ekki annan farm í heim- leiðinni er þau hafa flutt fisk til Esbjerg. Hin stóru og hentugu kæli- og geymsluhús í Esbjerg gera það mögulegt fyrir íslenzkar verzlan- ir að leggja vörum sínum hér á land, þegar markaðsmöguleik- arnir eru góðir og geta þá náð til flestra evrópiskra neytenda- stöðva á sólarhrings fresti eða | séu 48 klukkustundir notaðar til | að koma vörunum áleiðis komast þær á því tímabili á leiðarenda til meginþorra Evrópulanda. N - NÝ VERKSVDD Hér er um að ræða verksviff er liggja í augum uppi. En ís- lendingar geta haft meiri hags- muni af viðskiptum við Esbjerg. Skip, sem til Esbjerg koma geta fengið viðgerð, vistir fyrir út- gerð sína ódýrari en í flestum öðrum borgum. Esbjerg hefur miklar veiðarfæragerðir, hreyfla- verksmiðjur og aðrar danskar vörur er hægt að kaupa þar eins vel og annars staðar. Það getur líka haft sína þýð- ingu fyrir íslendinga að skip f Suður-Ameríku ferðum koma þar jafnaðarlega við og til vestur- strandar Norður-Ameríku. Þess- ar skipferðir byggjast að veru- legu leyti á því að Danir flytja mikið út af kartöflum bæði til Suður- og Norður-Ameríku svo og fiskiðnaðarvörur til Banda- ríkjanna. Tilgangurinn með þessari grein er ekki sá að trufla venjuleg verzlunarviðskipti, heldur hinn að benda á nýja möguleika ef hentugleikar eru á að koma nýj- um viðskiptum á og mér skilst að á þeim séu möguleikar, e£ málin eru rædd niður í kjölinn. RÉTTIR AÐILAR RÆÐI MÁLIN Hvaða aðferðum á að beita verða menn sjálfir að segja sér, en mér skilst að ástæða sé til að viðræður færu fram á milli við- komandi aðila, til þess að tryggð verði meiri viðskiptasambönd á milli Reykjavíkur og Esbjerg. Réttir aðilar frá báðum stöðum ættu að koma saman, skýra sín sjónarmið, og athuga hvaða við- skipti gætu komið báðum aðilum að gagni. Ef svo reynist að hér sé um færa leið að ræða til hagsbóta fyrir báðar þjóðir, gæti svo farið að íslenzka stjórnin teldi hagkvæmt að hafa sérstak- an fulltrúa í Esbjerg er gæti með Framh. á bls. II ferðum milli Reykjo- víkur og Eskjerg Fáfræði Dana um hagi fslend- inga er sem kunnugt er ótrúlega Loftmynd frá Esbjerg. Til hægri á myndinni sést hiff mikla orkuver, sem sér bænum og miklum hluta Vestur-Jótlands fyrir raf- orku. Til vinstri og á miffri myndinni sést m. a. yfir höfnina. íbúar Esbjerg eru um 50 þús.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.