Morgunblaðið - 27.06.1954, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 27.06.1954, Blaðsíða 10
tr 10 MORGUNBLAÐIÐ Sunnudagur 27. júní 1954 Ávarp frá fjáröflunar- neind Neskirkju HIlíN 7. janúar síðastliðinn voru liðin 13 ár síðan safnaðarstarf hófst í Nessöfnuði í Reykjavík. Söfnuðurinn var þá húsnæðis- laus og er það enn. Mýrarhúsa- skóli á Seltjarnarnesi var þá eini staðurinn, sem hægt var að messa í og er það enn. Um tíma var méssað í barnaskólanum á Gríms staðaholti og í Skerjafirði, en síð- ar fékkst svo kapella Háskólans þar sem messað hefur verið til þessa og skal þess minnzt með þökkum. Vinnuskilyrði í presta- kallinu hafa samt til þessa dags verið hin erfiðustu. Húsnæði er ekkert fyrir barnaspurningar eða barnamessur, því í kapellu Há- skólans má aðeins flytja messur á helgidögum og framkvæma hjónavígslur á laugardögum. Fermingar geta ekki heldur far- ið fram, vegna þess hve litil hún er. Söngflokkur sóknarinnar hef- ur lengst af verið í vandræðum með æfingar sínar. Eins Og menn vita þá er kirkju- byggingin nú það langt á veg komin, að húsið verður fullsteypt hið ytra á næstu vikum. En bet- ur má ef duga skal. Söfnuðurinn er orðinn það stór, að brýnasta nauðsyn ber til þess að safnað- arstarfið geti byrjað hið fyrsta. Skal safnaðarfólki á það bent, að starfið fyrir æskulýðinn — starf- ið fyrir hinn mikla fjölda barna, sem er í sókninni — er mest að- kallandi. Við börnin eru allar framtíðarvonir vorar tengdar. Barnaguðsþjónustur, fermingar- undirbúningur og unglingastarf, allt þarf þetta að eignast sem fyrst samastað og helgan stað j fyrir starfið, þar sem guðstrú Og góðar dyggðir eru innrættar þeim ungu. Hin fullorðna kynslóð í Nes- sókn þarf á sama tíma, að eign- ast sem fyrst sína kirkju, svo hún geti átt frjálsan aðgang að kirkju sinni undantekningar- laust alla daga ársins með skírn- ir, hjónavígslur og aðrar helgi- athafnir. Nessöfnuður er elstur af kirkju lausu söfnuðunum hér í bæ. Það er því ekki aðeins nauðsynja- mál, heldur og nokkurt metnað- armál fyrir hann að hraða kirkju- byggingunni og verða óháður öðrum söfnuðum með kirkju til helgiathafna. Kirkjubyggingar eru dýrar, þótt ítrasta sparnaðar sé gætt. Áætlað var að kirkjan myndi kosta rúml. 1,5 milljón króna. fokheld og standa vonir til að sá kostnaður fari ekki að ráði fram úr þeirri áætlun. Er sú upphæð að sjálfsögðu talsvert innan við helming þess, sem kirkjan mun kosta fullgerð. Fljótt á litið virð- ist þetta mikið fé, en við nánari athugun er máiið auðleyst og upp hæðin ekki tilfinnanleg ef al- mennur áhugi er fyrir hendi. Bæjaryfirvöld Reykjavíkur hafa sýnt kirkjubyggingamálum bæjarins velvilja. Standa vonir til að bærinn leggi fram á næstu árum nokkurn styrk til slíkra bygginga. Einnig má nú gera ráð fyrir að ríkissjóður leysi að hluta lánaþörf safnaða er byggja kirkju á næstu árum. En í báðum þess- um tilfellum geta söfnuðir því aðeins notið þessarar fyrir- greiðslu, að þeir leggi fram eigið fé er nemi all stórum hluta kostn- aðar. Þeir sem það gera ganga fyrir. Framlög safnaða í þessu skyni byggjast á frjálsum fram- lögum einstaklinga, því að sókn- argjöld nægja aðeins fyrir rekstr arkostnaði. Málin horfað því þannig við, að á móti hverju frjálsu framlagi fæst væntanlega bæði styrkur og lán og er því miklu tapað ef fórnfýsi einstakl- inga bregst. Stöðvun kirkjubyggingarinnar í bili yrði dýr og þess utan mik- ið áfall fyrir söfnuðinn, menn- ingarlega séð. Þetta er þó, því miður, fram undan, ef hin frjálsu framlög bregðast að þessu sinni. Geri þau það hinsvegar ekki er stöðvun afstýrt og kirkjubygg- ingunni verður hraðað. Mun þá skammt til þess að hún verði fullgerð. Minnist þess, að tak- mörkuð upphæð frá hverjum gjaldenda getur þýtt upphæð er skiptir hundruðum þúsunda sam- tals. Fjáröflunarnefnd Nessóknar heitir nú á alla safnaðarmenn sóknarinnar, að sameinast og leggja hönd á plóginn. Ekki mun nefndin fara fram á ákveðna upp- hæð hjá neinum safnaðarm.anni, né heldur miða framlag hans við næstu ár, þótt hvort tveggja væri mjög ákjósanlegt, heldur vill hún leggja áherzlu á, að enginn sker- ist úr leik með þátttöku, hvort heldur hún er stór eða smá. Það er aðalatriðið og í því er mestur styrkur fólginn fyrir söfnuðinn. í fjáröflunarnefnd Nessóknar eru kosnir undirritaðir 9 menn, sem bæði svara öllum fyrirspurn- um og ætla að leita til allra hátt- virtra safnaðarmanna, 16 ára Og eldri, um fjárstyrk til kirkjunn- ar. Prentuð gjafabréf verða af- hent gefendum, undirrituð af sóknarpresti, formanni og gjald- kera fjáröflunarnefndarinnar. Bréfin hljóða á fjárhæðir, sem hér segir: Kr. 25,00, kr. 50,00, kr. 100,00 og kr. 500,00. Bréfin, eitt eða fleiri gilda sem kvittun fyrir gjöfinni. Gjaldkeri fjáröflunarnefndar, hr. Sigurður Einarsson, Hring- baut 43, veitir gjöfum og gjafa- loforðum móttöku, bæði heima hjá sér og í Verzlun Björns Kristjánssonar. svo og aðrir nefnd arme'nn. Komið verður til þeirra, sem ekki hafa látið frá sér heyra innan tveggja mánaða frá mót- töku þessa bréfs. Eyðublað undir lofuð framlög fvlgir hér með. Sameinumst öll fyrir málstað kirkjunnar, því frá henni á að koma sá boðskapur, sem samein- ar alla flokka o& allar stéttir manna. Jón Gunnarsson, 'form. Hagamel 12. Sigríður Loftsdóttir, Víðimel 47. Matthildur Petersen, Víðimel 45. Guðbjðrg Jónsdótlir frá Efri-Holtum NÝLEGA var til moldar borin að Stóradal við Eyjafjörð, frú Guðbjörg Jónsdóttir fyrrum hús- freyja að Efriholtum. Guðbjörg var Rangæingur í báðar ættir og heigaði því héraði krafta sína og störf að mestu leiti eða með öðruru orðum, hún ól þar aldur . sinn, að undanskildum tæpum 8' órum sem hún bjó í Reykjavík.: Hún lézt 26. maí s. 1. eftir nokkra vanheilsu, tæpra 69 ára að aldri. Gift var Guðbjörg Jóni Jónas-, syni frá Rimhúsum við Eyjafjörð og lifir hann konu sína ásamt 3 börnum þeirra er upp komust, eitt dó í bernsku. Lengst af -bjuggu þau hjón að Efriholtum við Eyjafjörð. Guðbjörg var trúuð kona trygg og vinföst, mjög gestrisin og hafa margir notið góðs af því, ekki sízt eftir að þau hjón fluttu til Reykjavíkur. Mér er kunnugt um að oft var gestkvæmt á heimili hennar, því þangað leituðu kunn- ingjarnir, bæði Eyfellingar og aðrir, sem erindi áttu til Reykja- víkur og dvöldu þar oft lengri eða skemmri tíma, ýmist heilir eða sjúkir, því þangað voru allir boðnir og velkomnir meðan hús- rúm leyfði og allir á heimilinu samhuga um að láta gestunum líða sem bezt. Guðbjörgu var hjúkrunar- hneigð í blóð borin, enda sagðist! hún á yngri árum sínum hafa haft sterka löngun til hjúkrunar- starfa. Ekki fóru dýrin heldur á mis við hjartagæzku hennar og umhyggju, hún lét sér mjög annt um allar skepnur sem hún hafði undir höndum meðan hún bjó í sveitinni, enda hændust að henni menn og málleysingjar, vegna ljúflyndis hennar og hjartahlýju. Guðbjörg var söngelsk og glað- lynd og bjart var ætíð yfir svip hennar, því innifyrir bjó hrein- leikinn, sem lýsti sér í ástúð og umhyggju, ’varðandi alla er ná- lægt henni voru. Legstað kaus hún sér meðal ættingja sinna, í æskudalnum sín- um, þar sem fjallablærinn frjáls og hreinn leikur nú um leiðið hennar. Guð blessi þig Guðbjörg mín. Ég þakka þér af hjarta vorgeisl- ana sem þú vafðir mig. Lifðu heil. Marta Jónasdóttir. MáMiir 0. L Olabdéflir Minningarorð HINN 4. júní síðast liðinn var til moldar borin ein af húsfreyj- um þessarar borgar, frú Málfríð- ur Ólafsdóttir frá Jófríðarstöð- um, fædd 24. des. 1879, dáin 29. maí 1954. Ég ætla mér eigi með þessum fátæklegu línum að reyna að rekja ævisögu þessarar merku konu, aðeins senda henni nokkur kveðjuorð. Geysiiegi óveður gekk ytir Winnlpegborg í BLAÐINU Lögbergi er skýrt frá því að þann 7. júní hafi geisað yfir Winnipegborg og Manitoba- fylki eitt hið mesta aftakaveður er sögur fara af. Er álitið að slíkt óveður hafi ekki komið á þess- um slóðum síðan 1918. Nam vind- ( hraðinn 75 mílum á klukkustund. [ Geysilegt tjón varð af völdum , óveðursins og er talið að það nemi hátt á fjórðu milljón dollara. I Á Portage Avenue brunnu til grunna þrjú stórhýsi, svo var hit- , inn magnaður af eldinum að 1 gluggarúður í nærliggjandi hús- um sprungu. Hefur margt fólk , misst atvinnu sína um ófyrirsjá- anlegan tíma. Víða í fylkinu skemmdust símalínur og einnig varð stórtjón á fjölda bændabýl- um. Manntjón varð ekkert svo vitað sé. Sigfús Bjarnason, Víðimel 66. Guðmundur Sigurffsson, Hringbraut 37. Kristjón Kristjónsson, Reynimel 23. Sigurjón Jónsson, Helgafelli. Guffrún Magnúsdóttir, Hringbraut 88. Sigurffur Einarsson, Hringbraut 43. Fyrir rúmum 12 árum síðan átti ég því láni að fagna að kynn- ast fyrst frú Málfríði og eftir- lifandi manni hennar Jóhannesi Kristjánssyni. Upp frá þeim tíma hófst vinskapur okkar og var óslitinn til hennar hinztu stund- ar. Frú Málfríður var ekki ein af þessum konum sem maður kynnist og gleymir með árunum, heldur önnur og miklu meiri. — Hún var ein af þeim konum, sem maður tók eftir og leit upp til. Hún var höfðingleg í framkomu, fríð sýnum, djarfmannleg, greind og hreinlynd, og sagði álit sitt um menn og málefni, hver sem í hlut átti, hún var kona sem mað- ur gat treyst bæði í gleði og sorg, og oít var flúið með vandamálin til hennar og hennar álit fengið um þau og fór ætíð vel. Eigi munu þeir fáir, sem leitað hafa hjáipar hennar, er veikindi og erfiðleikar hafa steðjað að, og fengið hennar liðveizlu, enda taldi hún aldrei sporin, ef hún gat orðið ‘öðrum að liði. Hún var hjálpsöm og hjartahlý og taldi sér það ávallt hið mesta hnoss að geta glatt og hjálpað öllum sem til hennar leituðu. Málfríður var mikilvirk og stjórnsöm húsmóðir, enda bar heimili þeirra hjóna þess glöggt merki, að þar var samtaka bæði hugur og hönd. Hjónaband þeirra var öðrum til fyrirmyndar, þar voru verkin og vandamálin í ein- ingu unnin. Ég held að þau hjón- in hafi verið gæfunnar börn, bæði fengu þau að njóta svo langra lífdaga að þeim auðnað- ist að sjá öll börn sín uppkomin og mannvænleg svo sem frekast er ákosið, sjá þau öll giftast og eignast sín eigin heimili, sjá öll barna-börnin, sem voru þeirra yndi og eftirlæti, enda löðuðust öll börn að þeim hjónum, því þau voru miklir vinir smælingj- anna. Nú á þessum tímamótum nem- um við staðar og lítum yfir far- inn veg; hversu margir munu þeir ekki vera sem minnast Mál- fríðar með söknuði samfara þökk og virðingu. Hún gerði aldrei neinn mannamun, og mat engan eftir auð og ættgöfgi. Hún var heilsteypt persóna og jöfn við alla. Það var yndislegt að heim- sækja þau hjón, enda létu þau ekkert vanta til að gera manni hverja för ógleymanlega, þar átti maður alltaf vinsemd að mæta ásamt rausn og hjartahlýju, sem einkenndi þeirra heimili, enda áleit ég alltaf heimili þeirra sem sannkallaðan sælureit. Það var einhver hslgiljómi, sem fyllti hug manns í návist þessara merku hjóna, enda á ég margar og Ijúf- ar minningar frá okkar samveru- stundum, sem ég get þakkað, en aldrei launað. Bið ég því Guð, sem öllu stjórnar, að launa þér, vina mín, allt hið góða. Faðirinn himneski, sem þú treystir og trúðir á, hann mun vel fyrir öllu sjá, á landinu fágra handan við gröf og dauða. Ég veit og trúi því að þar sértu umvafin birtu og fegurð hins eilífa lífs; þvi sagði ekki Frelsarinn: „Svo sem maðurinn sáir, svo mun hann og upp skera.“ Frú Málfríður hefur nú endað sitt lífsskeið á þessari jörð, og er nú skarð fyrir skildi við fráfall hennar, sem seint verður fyllt. En ég á eina ósk íslenzkum hús- mæðrum til handa, að þær hver og ein mættu líkjast henni sem mest og bezt, þótt ég viti að þaff sé ekki á allra færi að feta henn- ar fótspor. Ég vil svo, kæra vinkona mín, fyrir mína hönd, manns míns og barna, og systra minna, kveðja þig hinztu kveðju með innilegu hjartans þakklæti fyrir alla þína tryggð og fölskvalausu vináttU okkur auðsýnda til þinnar hinztu stundar. Eftirlifandi eiginmannl þínum og börnum og öðrum ást- vinum, sendi ég okkar dýpstu samúð. Bið ég algóðan Guð a3 styðja og styrkja þinn aldur- hnigna lífsförunaut, sem nú bíð- ur endurfunda við þig sem hann unni heitast, svo hann geti f myrkri sorgarinnar tekið sér í munn orð skáldsins og sagt: Kom huggari, mig hugga þú. Kom hönd og bind um sárin. Kom dögg og svala sálu nú. Kom sól og þerra tárin. Kom hjartans heilsulind. Kom heilög fyrirmynd. Kom ljós og lýs þú mér. Kom líf er æfin þver. Kom eilífð bak við árin. Blessuð sé minning þín, kæra horfan vina. Vinkona. psipi þjóðveginn ÉG hef oft hugsað um, hvað það ber vott um mikið kæruleysi hvað fólki er gjarnt á að fleyja allskonar rusli, var í vetur við fjölfarna götu í sjálfum höfuð- staðnum og sá iðulega fuliorðna menn að vinna við að hreinsa bréf og allskonar rusl, en þrátt fyrir það fannst mér ruslið óðara komið aftur. Sama endurtekur sig úti á landsbyggðinni, t. d. nú eftir hvítasunnuhátíðina er mikið af rusli og flöskubrotum í þjóðgarð- um, ég finn oft sárt til þess þeg- ar trjáplöntur, sem ég er nýbú- inn að setja niður, eru bældar niður, þó ég verði að viðurkenna að lítið sé gert af því að kippa þeim upp. Nokkuð ber á að fólk skreyti bíla sína með skógarhrísl- um, þó er það minna en áður fyrr, nokkur vakning er þar til bóta. Ég veit að ekki er nein skemmd að því að taka neðstu anga af skógarhríslum ef það er skorið og borið í sárið, en hætt er við að fæstir taki skógaranga með það fyrir augum að vinna gagn með því, heldur beint af hugsun- arleysi, líkt og barnið sem slítur upp blómin sér til gamans. Allt hefur þetta líf og er mikilsvert mál að umgangast náttúruna sómasamlega. Hér þarf höfuðstað urinn að ganga á undan og blöðin að gera meira að því að áminna og fræða um ýmislegt sem þessti viðvíkur. Það er síður en svö nauðsyn fyrir fólk að henda allskonar rusli, venjulega eru þetta umbúð- ir, bréf, flöskur og dósir, ávaxta- berkir o. f 1., þetta er auðvelt að hafa með sér, að brenna því úti er ekki hættulaust. Reynum að skilja hið þcgla og iotningarfulla mál náttúrunnar, sem talar cínu máli til okkar mannanna. Þingvöllum, 8. júní 1954. Jón Guffmundsson, Valhöli.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.