Morgunblaðið - 13.07.1954, Side 7

Morgunblaðið - 13.07.1954, Side 7
[ Þriðjudagur 13. júlí 1954 MORGUNBLAÐID Aðalfundur Skópaskíarfél. Samband norðlenzfcra fcvenna 40 ára Islands að HaElormssfað AÐALFUNDUR Skógræktarfél- ags íslands árið 1954 var haldinn í Húsmæðraskólanum á Hallorms stað 2.—3. júlí síðastliðinn. Fundinn sátu 43 fulltrúar frá 18 héraðsskógræktarfélögum, stjórn Skógræktarfélags íslands, skógræktarstjóri og 19 gestir. Fundinum stjórnaði formaður félagsins, Valtýr Stefánsson, en fundarritarar voru Hákon Guð- mundsson, Baldur Þorsteinsson og Björn Þórðarson. Áður en gengið var til dag- skrár minntist formaður Þor- steins Þorsteinssonar sjúkrasam- lagsgjaldkera á Akureyri, en hann var alla ævi áhugasamur skógræktunarmaður og einn af ötulustu félögum Skógræktarfél. Eyfirðinga. Sat hann flesta aðal- fundi Skógræktarfélags íslands sem fulltrúi þess. Fundarmenn heiðruðu minningu hans með því að rísa úr sætum sínum. SKÝRSLA FRAMKV ÆMD AST JÓRA Framkvæmdastjóri félagsins, Hákon Bjarnason, skógræktar- stjóri, flutti ýtarlega skýrslu um starfsemi félagsins á liðnu ári og um framtíðarhorfur í skógrækt- armálum. Tillögur aðalfundarins 1953 höfðu allar fengið afgreiðslu og má þar meðal annars.geta þess að efnt var til sérstaks fundar á síðástliðnum vetri með full- trúum frá 17 skógræktarfélögum. Á þeim mundi var ákveðið um helztu framkvæmdir félaganna á þessu vori og starfsaðferðir sam- ræmdar. Kvað skógræktarstjóri fund þennan hafa orðið til mikils gagns og sjálfsagt að framhald verði árlega á slíkum fundum. Þá benti skógræktarstjóri á að ein tillaga aðalfundarins 1953 þar sem héraðsskógræktarfélögin voru hvött til þess að útvega sér a. m. k. 30 ha land til þess að koma sér upp samfelldum skógi hefði strax borið árangur, þar sem væru kaup Skógræktar- félags Árnesinga á jörðinni Snæ- foksstöðum í Grímsnesi, en þar er kjarrlendi mikið. Af öðrum störfum stjórnarinn- ar milli aðalfunda gat skógrækt- arstjóri þess m. a., að undirbún- ingi að skiptiferð milli Noregs og íslands hefði verið að fullu lokið, þegar Norðmenn urðu að hætta við hana af óviðráðanleg- um orsökum. Þá vék skógræktarstjóri að fjárþröng skógræktarinnar í land inu og þá alveg sérstaklega að uppeldisstöðvunum. Nú væri upp eldi trjá plantna komið í 1 millj. plantna en markið væri 2 millj. árlega, en til þess skorti tilfinn- anlega aukið rekstursfé til upp- eldisstöðvanna. Hefir stjórn fél- agsins unnið ötullega að því að fá úr þessu bætt og orðið nokkuð ágengt, en hvergi nærri svo nægi. Gjaldkeri félagsins, Einar G. E. Sæmundsen, las upp reikn- inga Skógræktarfélags Islands og Landgræðslusjóðs fyrir árið 1953, Og voru þeir síðan bornir undir atkvæði og samþykktir. Formaður lýsti þvínæst tillög- um sem fram höfðu komið og urðu nokkrar umræður um þær, en þeim síðan visað til allsherj- arnefndar. STARF HÉRAÐSSKÓG- RÆKTARFÉLAGANNA Þá fluttu fulltrúar héraðsskóg- ræktarfélaganna skýrslur um starfsemi félaga sinna. Kom ljóst fram, að öll hafa félögin stór- aukið framkvæmdir sínar á þessu ári og mörg tvöfaldað tölu gróð- ursettra trjáplantna eins og t. d. Skógræktarfélag Suður-Þingey- inga, sem á þessu vori gróður- setti 67 þúsund trjáplöntur, en girðingar þar í sýslu munu vera um 100 bæjarskóga. Fundurinn sendi stjórn Kaupfélags Borgfirð- inga þakkir fyrir hið myndar- lega átak í þágu skógræktar, er félagið samþykkti á s. 1. vori að minnast 50 ára afmælis síns með því að láta gróðursetja um 50 þúsund trjáplöntur árlega í Norð- tunguskóg næstu 10 ár undir um- sjón Skógræktarfélags Borgfirð- inga. Skógræktarfélag Eyfirðinga gróðursetti á þessu vori 94 þúsund plöntur, en Skógræktarfélag Reykjavíkur um 125 þúsund. Þessi félög starfrækja einnig upp eldisstöðvar sem kunnugt er. Skógræktarfélag Borgfirðinga hef ir líka farið inn á þá braut og er nú að koma á fót uppeldisstöð í Norðtunguskógi. Af skýrslum félaganna má greinilega ráða að áhugi fyrir skógrækt fer hvar- vetna vaxandi og sjálfboðaliðs- starfið er orðið svo mikið á veg- um þeirra að ekki mun óvarlegt að meta það allt á 700 þúsund krónur sé miðað við núverandi kaupgjald. AUKIN GRÓÐURVERND Að loknum skýrslum félaganna síðari fundardaginn skilaði alls- herjarnefnd áliti um framkomnar tillögur. Framsögumaður var Ármann Dalmannsson. Samþykkt var svohljóðandi tillaga um gróðurvernd: Aðal- fundur Skógræktarfélags íslands haldinn að Hallormsstað 2. og 3. júli 1954 skorar á Alþingi að stefna í hvívetna í löggjöf að aukinni verndun jarðvegs og gróðurs og að taka stefnuskrár- ákvæði þess efnis í stjórnskipun- arlög lýðveldisins. Fylgdi svo- hljóðandi greinargerð: Jarðvegur og gróður landsins eru verðmæti, sem velferð hverrar kynslóðar byggist á. Þessi verðmæti, sem íbúum landsins eru fengin í hend ur frá náttúrunni, er hverri kyn- slóð skylt að varðveita og skila þeim í hendur niðja sinna. Veðr- áttu og jarðvegi er þannig háttað hér á iandi, að sérstök ástæða er til þess að staðið sé vei á verði um verndun jarðargróðurs. Af þessum sökum er eðlilegt og æski legt að sett sé í stjórnarskrá ís- lenzka lýðveldisins stefnuskrár- ákvæði um eðlilega og skynsam- lega notkun gróðurs landsins. MEIRI FRÆÐSLA UM SKÓGRÆKT Samþykkt var áskorun til fræðslumálastjórnarinnar um að aukin verði fræðsla um skógrækt í skólum landsins og að varið verði tilteknum tíma á vori hverju til gróðursetningar. Þá voru samþykktar tillögur um að Skógræktarfélag íslands vinni að því að unglingar á aldr- inum 13—15 ára verði ráðnir á vori hverju 4—6 vikur til skóg- græðslu og ennfremur að fara þess á leit við viðkomandi yfir- völd að hluti af verkefni vinnu- skólanna verði jafnan gróðursetn ing trjápiantna. Þá voru samþykktar sérstakar tillögur um fjáröflun fyrir skóg- ræktina og stjórn félagsins falið að vinna að því máli. Fundurinn mælti með því að uppeidisstöð í Vestfirðingafjórð- ungi verði veittur fjárhagslegur stuðningur, þegar er aukin fjár- veiting gerir það mögulegt. STJÓRNARKJÖR Úr stjórn félagsins áttu að ganga Einar . E. Sæmundsen og H. J. Hólmjárn, en voru báðir endurkosnir. Aðrir í stjórn féiags ins eru Valtýr Stefánsson, Her- mann Jónasson og Haukur Jör- undarson. í Varastjórn var end- urkjörinn Ingvar Gunnarsson. Endurskoðendur voru endurkjörn ir þeir Halldór Sigfússon og Kol- beinn Jóhannsson. í IIALLORMSSTAÐASKÓGI Báða fundardagana var farið AÐALFUNDUR Sambands norð- lenzkra kvenna var haldinn hér á Akureyri dagana 1,—4. júlí s. 1. Sambandið er um þessar mundir, 40 ára og var í því tilefni sér- j staklega vandað til þessa fundar j og í sambandi við hann opnuð 1 sýning gamalla íslenzkra muna ' í Húsmæðraskólanum á Akureyri ^ við hátíðlega athöfn að viðstödd- , um forsetahjónunum. í S.N.K. er samtals 8 sambönd kvenfélaga í ’einstökum héruðum allt vestur frá Strandasýslu og austur í Norður-Þingeyjarsýslu, en í öll- um félögum sambandsins eru um 2000 félagskonur. Þennan aðalfund sátu fulltrú- ar frá öllum samböndunum auk ýmissa gesta, sem boðnir voru í tilefni afmælisins. Meðal gesta var frú Bodil Begtrup sendiherra Dana hér á landi og færði hún sambandinu kveðju frá Dansk Kvindésamfund. Aðalfundinn setti formaður sambandsins frk. Halldóra Bjarna dóttir með ræðu í Húsmæðraskól- anum á Akureyri, en þar var þingið haldið. Bauð hún gesti velkomna og minntist forsetans, sem opnað hafði sýningu þá er fyrr getur. Á fundinum voru rædd ýmis áhuga og baráttumál kvenna og flutt erindi, bæði íróð- leg og skemmtileg. Ennfremur gerði fundurinn ýmsar ályktanir, er hann beindi til Alþingis og ríkisstjórnar og ýmissa opin- berra stofnana. Erindi fluttu frk. Dómhildur Jónsdóttir og frk. Steinunn Ingimundardóttir, báð- ar kennarar við húsmæðraskól- ann á Laugalandi, um heimilis- þrif og heimilistæki, frk. Dóm- 'hildur Arnaldsdóttir ljósmóðir um heilbrigðismál, Halldóra Gunnlaugsdóttir húsfreyja á Ærlæk um uppeldismál og frú Elísabet Friðriksdóttir um oln- bogabörn mannlífsins. Miklar og fjörugar umræður urðu um erindin. Fundurinn gerði ýmsar sam- þykktir. Má þar til nefna áskor- un til framleiðsluráðs landbúnað- um Hallormsstaðarskóg undir leiðsögn Guttorms Pálssonar, j skógarvarðar og Sigurður Blön- dal, skógfræðings. Gaf þar að líta ýmislegt af því sem merkilegast | er í skógræktarmálum landsins. Höfðu margir fulltrúanna ekki 1 komið þarna áður og undruðust mjög hinn mikla þroska, sem er- | lendur barrgróður ýmissa teg- unda hefir náð. En þeir fulltrú- anna sem sátu aðalfund Skógrækt ' arfélags íslands árið 1948 á Hall- ormsstað kom öllum saman um j að gróskan í siberiska lerkinu í | Guttormslundinum hefði farið • fram úr öllum vonum. Lerki þetta var gróður sett 1938 og er hæsta réð nú 7,70 m. en meðalhæð 4,51 (m. Hið sama má reyndar segja um aðra lundi erlendra trjáteg- unda. Vöxtur þeirra er svo örugg- ur og jafn að undrun sætir, ekki sízt þegar haft er í huga að sum- 1 Urin 1948—1953 hafa verið ó- venjuköld og hvert vorið öðru verra á Austurlandi. Ferðir þess- ar um Hallormsstaðarskóg voru því fulltrúunum sannkölluð opin berun og munu áreiðanlega efla þá til enn meiri dáða í skógrækt. arins um lækkun á þeim tegund- um innlendra matvæla, sem safn- ast hafa fyrir í landinu og liggja undir skemmdum, mótmæli gegn fegurðarsamkeppnum og ályktun um flutning Húsmæðrakennara- skóla íslands til Akureyrar svo og allmargar fleiri samþykktir. Úr stjórn sambandsins átti að ganga frú Elísebet Friðriksdóttir j gjaldkeri, sem nú er flutt burt af sambandssvæðinu, en í hennú ar stað var kosin frú Jónína Stein. þórsdóttir. Aðrir í stjórn eru frk. Hallaóra Bjarnadóttir formaður og frk. Svava Skaftadóttir ritari Fulltrúar bjuggu í heimavist Menntaskólans á Alíureyri Og snæddu þar einnig. Fundinum var slitið með kaffi- samsæti í heimavistinni fyrra sunnudag og var þar sungið og margar ræður fluttar. — Vignir, OhuiLnianlesrar fianiíarir n 't hernaðartækni nútínans HERNAÐARTÆKNI heimsins fer sífellt vaxandi. Hún er meira að segja komin á svo hátt stig, að visindamennirnir eru fainir að geta látið vopnin „hugsa“. Bandaríkjunum og Englandi er þafl engin launung lengur, að tekist hefur að framleiða flugskeyti sem stjórnast af nokkurs konar rafeindaheila. Þessi flugskeyti geta leitað að, elt og ráðizt á farartæki í loftinu. Það er álit manna a3 þessi flugskeyti verði í framtíðinni mikilvægasta vörnin móti hin- um ægilegu kjarnorkusprengjum. Flugskeyti þessi ná svo mikl- um hraða, að þau fara þrisvar sinnum hraðara en hljóðið, eða 2400—3600 km á klukkustund. Og með leiðsögn þar til gerðra radartækja geta flugskeytin fundið kjarnorkusprengjuflug- vélar, löngu áður en þær nálgast fyrirhugaðan árásarstað. „SPÖRVINN“ OG „ROTTUHUNDURINN“ Innan Atlantshafsbandalagsins, hefur uppfinning þessi vakið ( mikinn áhuga, þar sem augljóst er, að hún er mjög mikilvæg j hvað loftvörnum viðkemur. 11 Hollandi er mikill áhugi ríkjandi fyrir „hugsandi flugskeytum“ og í Danmörku hefur málið mjög1 verið til athugunar. — Fyrir j skömmu síðan gerðu Bandarík-; in opinskátt um tvær nýjar teg- undir þessara flugskeyta, sem hafa vérið nefnd „Spörvinn“ og „Rottuhundurinn“. Áður höfðu Bandaríkin skýrt frá svipuðum flugskeytum sem nefnd voru þar „Nike“. í Bandarikjunum er álit- ið, að þessi vopn geti komið í veg fyrir fjölda árása kjarnorku- sprengnaflugvéla. Það er banda- ríski flugherinn sepi hefur tekið þe"ssi nýjustu flugskeyti í notkun. ÞRISVAR SINNUM HRAÐARA EN HLJÓÐID „Spörvinn“, nær þrisvar sinn- um meiri hraða en hljóðið. Flug- skeytið vegur 130 kíló og spring- ur allt samstundis. Eftir spreng- inguna leitar hvert sprengju- brot, — stjórnað af rafeindaheil- anum, flugvélarinnar sem árásin hefur verið ákveðin á. „Rottu- hundurinn-1, er stærra flugskeyti og vegur 1 14 tonn. Þessi flug- skeyti eru svipuð að lögun og þýzku sprengjurnar V-2. Þeim 'er skotið ivr venjulegri sprengju- byssu og hraði þeirra ev tvöfalt meiri en hljóðSins. Rottuhundur- inn finnur einnig sjálfur fórnar- dýr sitt, eftir rafeindaheila og radar. Hvernig sem flugvélarn- ar fara að, geta þær ekki komizt undan árásum flugskeytanna eftir að þær eru komnar í skot- færi við þau. Að vísu gætu flug- áhafnir flugvélanna með ein- hverju móti reynt að koma rugl- ing á radar flugskeytanna, cn flugvélin væri samt sem áður dauðadæmd, eftir að hún er um- kringd hóp af þessum óhugnan- legu flugskeyta. ÞURFA EKKI AÐ SJÁ ÓVININN Flugskeyti af spörvagerðinni eru fest undir vængi þrýstilofts orustuflugvéla og um leið og radarstöðin á jörðinni verður vör við fjandsamlegar fluvélar i mörg hundruð kílómetra fjar- lægð, er flugskeytunum skotið’. Orustuflugvélarnar eru sendar á. vettvang til að mæta óvinaflug- vélunum og skjóta flugskeytun- um venjulega áður en þær vita nákvæmlega hvar þær eru. Flug- skeytin leita síðan óvinaflugvél- ina uppi. Rottuhundurinn aftur á móti, verður var við radar- áhrif frá óvinaflugvélinni og geysist að henni. Tortíming flug- vélarinnar er óhjákvæmileg. DÝRMÆT AUGNABLIK Þar sem hinar þrýstiloftsknúm* orustuflugvélar ná ekki meiri hraða en um 900 km á klukku- stund, er hvert augnablik dýr- mætt, eftir að þess hefur orðið vart að óvinaflugvél sé í nándL En það tekur aðeins örfá augna- blik, að koma flugskeytunum af stað og þau þjóta gegnum himin- geiminn með þrisvar sinnuirt meiri hraða en hljóðið. Á her- æfingu sem nýlega átti sér stað við Miðjarðarhafið, kom það i ljós að sprengjur - sem eru af tegund B-50 sem fljúga með 1000 km hraða á klukkustund, upp- götvast ekki fyrr erj þær eiga eftir 8 minútur í skotmark. Onn- ur tegund sprengna sem er B-41 eru oft alls ekki séð eða ekki fyrr en þær eiga eftir 214 mínúttt á árásarstað. MIKIÐ ÖRYGGI Með uppfinnignu þessar flug- skeyta, hefur skapazt svó mikið1 Framh. á bls. 12

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.