Morgunblaðið - 13.07.1954, Side 14

Morgunblaðið - 13.07.1954, Side 14
MORGVNBLAÐIÐ Þriðjudagur 13. júlí 1954 ] 1 14 Framhaldssag an 82 „Ég veit það. Mér var það bara vkki ljóst í dag, en ég skil það iiúna. Ég ætlaðist til of mikils af þér. Mig langaði bara að segja þér það. Ef þú verður kyrr, skal ég ekki fara fram á meira. Við ekulum bara vera vinir.“ Hún hafði alltaf talað eins og upp úr lélegum reyfara. Hann y ppti öxlum óþolinmóður. „Ég sé til.“ „Ég skal loft því, Douglas. Ég *kal ekki fara fram á neitt,“ Hann gekk niður brekkuna og leyndi að fylgja stígnum. Ljósið ióll á lítinn runna sem var hálf- : ifinn upp. Hann gekk í kring um hann. Átti hann að vera kyrr? Ifann var óákveðinn. John hafði sagt margt við hann sem honum 1-ótti vænt um að heyra og ekkert alvarlegt hafði komið fyrir Silvíu því skyldi hann ekki vera kyrr? t'ví skyldi hann fara út í óviss- uua. Það var betra að vera hér en vita ekkert um framtíðina. .. Eða átti hann að fara? Ef hann ■ ðeins hefði einhvern til að segja aór, hvað hann átti að gera. Ein- hvern sem sagði: „Gerðu þetta, /erðu hitt.“ Hann þekkti varla stíginn heim að húsinu sínu. Hann var þak- ian gróðri og yfir hann lágu brotn ar greinar. Hann gekk hægt og velti því fyrir sér um leið hvort húsið hefði eyðilagst í óveðrinu. Það hafði staðið í skjóli vegna }>ess að vindurinn hafði komið ’ iandan við hæðina. En hann hafði ekki komið að því síðan iiann lagði af stað til að leita að f.ílvíu .. og gluggarnir höfðu ekki verið lokaðir. Ef vindurinn liefði staðið beint á opna glugg- /na gat það eins verið fokið út í huskann. Honum mundi standa iiæstum á sama. Hann hafði að- eins notað það sem afsökun til að 1 omast út og fá sér frískt loft og til að reyna að taka einhverjar ákvarðanir. Loks datt honum gott ráð í hug. Hann ætlaði að nota sömu aðferð eins og hann notaði stund- um þegar hann var barn. Hann ætlaði að láta fílinn ákveða íyrir sig. Éf fíllinri stæði á borðinu eins og hann hafði skilið við hann, þá ætlaði hann að vera kyrr. Ef vindurinn hafði snúið honum eða velt honum níður á gólf, þá færi hann .... allt var betra en að vera óákveðinn. Bjarminn af lampanum féll á þrepin fyrir neðan svalirnar. Hann sparkaði þurt ruslinu sem eafnazt hafði saman fyrir fram- an dyrnar. Stólarnir á svölunum höfðu oltið um koll, en þeir voru þar þó allir. Gluggarnir voru heilir. Hann opnaði dyrnar og fór inn. Tjöldin voru dregin fyrir gluggana . . þau höfðu ekki verið •dregin frá síðan frú Pawley dró þau fyrir. Blöð lágu á víð og "dreif um gólfig en annars var allt óbreytt. Hann gekk að borðinu. Fíllinn stóð nákvæmlega eins og hann hafði skilið við hann. „Jæja, ég verð þá kyrr“, hugs- aði hann. Hann tók flösku út úr skápn- um og fékk sér romm í glas. Svo fór hann að velta því fyrir sér, hvert harin ætti að fara I fríið. Hann gæti farið til Montego Bay og horft á hvernig ríka fólk- ið keypti sér sólskinið fyrir „sterlingspund. Hann gæti farið út á bát með gleri í botninum til að horfa á kóralrifin. Tekið ýms- ar ákvarðanir fyrir næsta skóla- íimabil. Sennilega mundi Silvía ekki vera hjá þeim. En Rosemary mundi vera og John. Réttast væri að hæna John ekki of mikið að I sér. Slíkt gat verið óhollt. En ! hann varg að vera mildari við ! hann en Silvíu. Þegar hann hafði lokið við rommið, fékk hann sér nýjar birgðir af sígarettum, setti hler- ana fyrir gluggana og hélt aftur upp í skólahúsið með ljóskerið. Ennþá bar ekkert á óveðrinu. Ljósin voru slökkt á flugvellin- um, en hann sá ljósin í Kingston greinilega. Dyrnar á skólahúsinu stóðu opnar. Hann skellti þeim á eftir sér, fór inn í bókasafnið og settist í stólinn við borð sitt. „Sáuð þér húsið mitt í trénu?“ spurði John. „Nei, ég sá það ekki.“ „Ég vildi að þér hefðuð athugað það. Ég er svo hræddur um að það hafi fokið.“ „Þú sérð það strax í fyrramál- ið.“ Fimm mínútum síðar heyrðist aftur í veðrinu. Það var eins og húsið hristist þegar fyrsta vind- hviðan skall á hliðinni. Það var engu líkara en þau væru á skipi sem lægi stjórnlaust í ólgusjó. „Nú get ég farið að sofa“, sagði John. „Ég var bara að bíða eftir því að það byrjaði aftur.“ Douglas kveikti sér í sígarettu. Flest börnin voru orðin uppgefin af taugaæsing og voru farin að reyna að sofa. En Rosemary lá með opin augun náföl í framan. Duffield dottaði í stólnum og Morgan svaf fram á hendur sér á borðinu fyrir framan Douglas. Pawley hallaði sér upp að bók- unum með lokuð augun, og frú Pawley gaut augunum til hans við og við og brosti lítið eitt. Hann hafði ekki sagt henni enn að hann mundi vera kyrr. Hann ætlaði ekki að gera það fyrr en næsta dag. Hann kveikti sér í annarri sígarettu með stubbnum af hinni og hugsaði um Silvíu. Hvað mundi verða af henni? Hún mundi komast að raun um það að hún mundi ekki eignast barn, eins og John hafði komizt að raun um að hann var ekki með holdsveiki .. en það var aðeins önnur hlið málsins. Að öðru leyti var hún þar komin sem hann hafði sett hana. Allt það góða á milli þeirra var glatað og hann hafði fyrirgert rétti sinum til að hjálpa henni frekar. Hann var j henni ekki til meira gagns núna en faðir hennar. Því það var ekki hægt að fletta við og byrja á ný, : þegar um börn var að ræða: „Hvað er að Silvíu“, spurði John. „Ég hélt að þú værir sofandi, John.“ „Ég var næstum sofnaður. Er hún mikið veik?“ „Hún er það.“ „Ég vona a<5 henni batni. Mér var illa við hana fyrst, en svo er hún bara ágæt. Ég lofaði henni ! að koma upp í húsið mitt í trénu, hvenær sem hún vildi. Er hún svo veik að hún geti dáið?“ „Nei“, sagði Douglas. „Hún deyr ekki.“ „Hún var svo hrædd þegar frú Morgan fór með hana þarna inn.“ „Hún hefur verið hrædd við veðrið.“ „Ég skil ekki, hvers vegna hún hefði átt að vera hrædd við það. Hún er hugrökk af stelpu að vera. Hún var duglegri en nokkur hinna að klifra upp í húsið mitt.“ Hann leit á öskubakkann hjá Douglas. „Þér eruð svei mér bú- inn að reykja margar sígarettur.“ „Eitthvað verð ég að gera.“ Hann var næstum búinn með aðra sígarettuna, þegar hann fór allt í einu að hugsa um það að dyrnar á 'skólahúsinu höfðu stað- ið opnar þegar hann kom aftur. „John“, sagði hann. „Fór nokk- ur héðan út meðan hléið vár á veðrinu?“ „Einhver fór fram á salernið.“ „Enginn annar?“ „Jú, frú Pawley.“ Hann vissi að frú Pawley hefði ekki skilið dyrnar eftir opnar .. hann hafði heyrt þær skellast á eftir henni, þegar hann var á leið inni niður brekkuna. Hann stóð á fætur. ; Af sérstökum ástæðum er KZ 3 flugvél til sölu strax. j Tilboð merkt KZ 3, sendist Mbl. fyrir n.k. laugardag. ■ Uppl. í §íma 6801 í kvöld og annað kvöld milli 6 og 7. í Lokað vepa sumarleyfa ■ \ til 3. ágúst m m j Nærfataeína- og j prjónlesverksmiðjan h.í ■ m : Sokkaverksmiðjan h.f. ■ ■ : Bræðraborgarstíg 7 ■ — Morgunblaðið með morgunkaffina — NÝSENDING Skozkar peysur mikið úrvafl GULLFOSS Aðalstræti. TIL BILDUDALS í tilefni af 100 ára afmæli P. J. Thorsteinssonar útgerð- armanns frá Bíldudal svo og afhjúpun minnismerkis um þá sem fórust með Gyðu, fer m. s. Esja til Bíldudals að kvöldi þess 23. þ. m. og verður á Bíldudal í tvo daga. Kemur til Reykjavíkur aftur að morgni þess 26. þ. m. Þeir, sem hafa hugsað sér að taka þátt í þessu ferða- lagi, ættu að tryggja sér far strax, þar sem líkur eru fyrir að fleiri vilji fara en komast með skipinu. Farið fram og til baka með I. farrýmisfæði kostar á I. farrými 2ja manna klefar kr. 575.00, 4ra manna klefar kr. 490.00 á öðru farrými 2ja manna klefar kr. 490.00 og 4ra manna klefar kr. 375.00 Sama fæði verður fyrir bæði plássin. Einnig verða seldir farmiðar á III. farrými og kostar það fram og til baka með I. farrýmisfæði kr. 250.00. Panta má farmiða í síma 5805 frá kl. 10 til 12 og frá kl. 2 til 5 næstu daga. Þeir, sem ekki hafa sótt pantaða farmiða fyrir n. k. laugardag eiga á hættu að farmiðarnir verði seldir öðrum. 10 BLÁ GILLETTE BLÖÐ í Gillette málmhylki Bláu rakhlöðin með heimsins beittustu egg * Bláu Gillette blöðin gefa yður bezta rakst- urinn og eru þar að auki ódýrustu blöðia miðað við gæði og endingu. Úr málmhylkj- unum eru blöðin sett beint í rakvélina á þægilegan hátt. Sérstakt hólf fyrir notuð blöð. Kaupið því Gillette blöð í málm- hylki strax í dag. Gillette blöðin eru algjörtega •líuvarin. 10 blaða málmhylki kr. 13,25. Bláu Gillette Blöðin ¥1*

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.