Morgunblaðið - 24.07.1954, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 24.07.1954, Blaðsíða 10
10 MORGUTSBLAÐ1Ð Laugardagur 24. júlí 1954 Arndís Þorsteinsdóttir: Við þurfum ú útréttri hönd krist- innur kirkju uð huldu ÞAÐ er gott og sanngjarnt, að stjórnmálablöðin vilji gefa kost á að ræða málefni kirkjunn- mál, standa svo hliðstæð í þjóð- lífinu og eiga að gera það; og þurfa þess með, að um þau sé hugsað og rætt með alúð og virðingu. Margt er nú líka ritað 1 og rætt um þessi aðalmál á dag- skrá þjóðarinnar, og kennir þar ýmsra grasa. Og sumt allfurðu- legt, svo sem ýmislegt er snertir skilning á kristindóminum. Og ,penni ég ekki að leggja orð í .þann belg. Hins er að geta, að margar >igóðar og vekjandi hugleiðingar ?, um andleg mál, koma oft í blöð- .,unum. Og er það vel. Ef vera • :imætti að unnt væri að vekja ';safnaðarvitundina og tilgang ; -kirkjunnar, og minna sjálfa mig og aðra er söfnuði kirkjunnar til- vheyrum, að rifja upp nokkrar 'aðalskyldur vorar og afstöðu til • ' kirkju- og safnaðarmála yfirleitt. ■A 'ii' ‘ KIRKJAN EP. LIFANDI * SAMFÉLAG ALLRA ;; Kirkjan er ekki bara stéttarfé- lag presta. Þó að þeirra sé for- • ystan, heldur lifandi, starfandi samfélag allra þeirra, er kirkj- ,'iunni tilheyra, með ábyrgð og >/skyldum. Án þeirrar samvinnu • rog samþjónustu getur ekki verið • ■neitt verulegt safnaðarlíf að ' rræða. Þó að mest sé undir forystu- 1 mönnum kirkjunnar komið fer ■ illa á því að fjölmennasti hópur- *’inn skerist úr leik með því að "’láta sig málefni kirkjunnar litlu ''skipta ’ Þó að ríkinu beri skylda til þess að vernda hag kirkjunnar _ rog sjá henni fyrir starfsskilyrð- um. Leysir það söfnuðina engan ' veginn frá skyldum sínum Við ,,}cirkjuna. Það er eðlilegast að allt við- ^hald og fegrun kirkjunnar, utan ,-pg innan, svo og umhverfi, hvíli rrá söfnuðinum. *■ Kirkjan er til orðin vor vegna. »Og allir sannir vinir hennar þrá tog óska að sjá sem ríkastan ávöxt *iaf starfi hennar. Það er mikill skortur á lif- rænni menningu meðal fólks, að i sinna ekki málefni kirkjunnar ! betur en raun ber - vitni. Allt I áhugaleysi og tómlæti gagnvart kirkjunni er versti óvinur krist- indómsins. Og kemur harðast ■niður á þeim, sem kirkjunni er vsérstaklega trúað fyrir, æskunni. tSem nú er í hættu stödd vegna •‘óhollra utanaðkomandi áhrifa. t. ^ÁBYRGÐ ‘hvílir Á ÖLLUM Vandamál æskunnar er vanda- ;inál vor allra. Ábyrgð hvílir á Bllum. Börnin verða að geta lært áf oss hinum eldri að kristindóm- ’urinn er oss hjartfólgið alvöru- mál. Alvara og ábyrgð hvílir yfir rframtíðinni, en það er ekki sama TOg sorg eða vonleysi. Alvöruleysi og deyfð hæfir ekki kirkju Krists. ,Þar sem alvaran er, þar er kraft- urinn og starfið. Það er beinlínis ógnun við sjálf stæði þjóðarinnar ef kirkjan 'inissir hina uppvaxandi kynslóð írá áhrifavaldi kristindómsins. 'pn svo getur farið, ef vér van- rækjum sjálfsögðustu skyldur vorar. Um það hefur oft verið kvart- að, að kirkjan sinnti ekki nógu mikið líknarstörfum. Enda er það eitt af aðalskilyrðum kristinnar trúar, að trú og verk fari saman. Þó að aðalstarf kirkjunnar verði- ávallt að gera menn andlega heil-‘ brigða, sem er öruggasta leíð til •sjálfsbjargar og lausnar á fátækra vandamálinu. ÞÁ hinuín fyrstu tímum kristn- ínnar Var engin séreign innan; safnaðarins, heldur allt sameigin- legt. En snemma voru líknar- störfin og fátækrahjálpin skilin frá aðal guðsþjónustunni Og fengin í hendur sérstakri nefnd innan safnaðarins. Svo postularn- ir gætu gefið sig óskiptir að guðsþjónustunni. Og sýnir það vel, hve viturlega þeir hafa skipu lagt safnaðarstarf frumkristninn- ar. Það starf eiga söfnuðirnir að annast nú í samráði við prest- ana. __ KRISTINDÓMURINN SÉ í HEIÐRI HAFÐUR Á HEIMILUNUM Það hefur orðið mikil breyting á heimilis- og trúarlífi voru á síðari tímum. Einkanlega síðan fólkið fór að flytja úr sveitunum til kaupstaðanna. Við það kom los og rótleysi á hugina, ýmsir hollir og góðir heimilissiðir hafa týnst. Heimilisguðræknin hefur að miklu leyti og sumsstaðar alveg verið lögð niður. Og krist- infræðsla barna fengin skólunum í hendur. Síðar hefur kirkjan klofnað frá heimilunum. Meðan kristindómurinn var í heiðri hafður á heimilum, bjó æskan við meira öryggi en nú. Það er víst týnt úr málinu, gamla orðið: „Heimilisfesta“. En það átti við meðan kristin trú var fastur liður í daglegu lífi. Og fólkið, ungir og gamlir, áttu sameiginlegt öryggi innan heim- ilisins. Það samlíf og samhyggja, sömu áhyggjur og áhugamál, tengdu fólkið nokkurskonar fjölskyldu böndum. Þannig voru það lengi fram eftir tímum heimilin, er voru aðaltengiliðurinn milli hins innra og ytra lífs þjóðarinnar. Á heimilunum var lifað og starfað. Þar voru guðsþjónustur haldnar daglega að vetrinum og sumsstaðar allt árið. Þar var fyrstu frækornum trúar og sið- gæðis sáð í barnshjartað. Þar var barnaskólinn, þar lærðu börnin að lesa og draga til stafs. Og þar var gróðrarreitur æskunnar, í leikjum og starfi. Þegar þessi verndarmúr heim- ilanna var brotinn niður, afkristn aðist þjóðin svo, að hún hefur ekki beðið þess bætur. Alþýða var ekki eins menntuð þá og nú. En kristin trú var öfgalaus og sjálfsögð í meðvitund fólksins. Og skapaði hið trausta almenningsálit sem nú vantar. Þegar vér lítum aftur í tíma hinnar fyrstu kristni hér á landi, horfum vér undrandi og spyrj- andi: Hver var sú lífstaug og menning er þróast gat og haldið velli, gegnum aldirnar, og þrosk- að og mannað þjóðina á hverju sem gekk? KRISTIN KIRKJA HEFUR VERIÐ LEIÐARLJÓS ÞJÓÐARINNAR Sterkasti þátturinn í þjóðlífi voru er frá kristni og kirkju runninn, beinlínis og óbeinlínis. Með kristnitökunni rann upp frelsisöld yfir ísland. Þar var lagður hornsteinn að öllu því bezta, í erfð og ávöxtun. Enda vitrir menn og framsýnir þar að verki, er sáu og skildu að vopna- frægð fornaldarinnar, sem kölluð er guliöld, var óðum að fölna. Og ekki þýddi að sletta þar ,,nýrri bót á gamalt fat“. Lýðveldinu unga var hætta bú- in, nema stjórnarskráin væri endurnýjuð. Og það var gert, ó giftusamri stund. Síðan hefur kristin kirkja stað- ið með þjóðinni og verið leiðar- um Mörtu Jónsdóttur ljósið og eldstólpinn, sem markað hefur leiðina og gjört ávallt rat- ljóst og meira en það. Þaðan lagði bjarmann út í nístandi kuldann og myrkrið, mót hvers konar kúgun, niðurlægingu og örbyrgð. Frá þeirri lífsuppsprettu streymdi þrek og baráttukjarkur gegnum þjóðlífsins æðar allar, þegar mest hefur reynt á Með þetta í huga, er það skilj- , anlegt, hvað það var, sem hélt uppi andlegum viðnámsþrótti og i hvatti til dáða. Það var þessi innri eldur, er ávallt hefur logað á arni ís- lenzkra heimila og aldrei slokkn- að. Meðan prestarnir lifðu og störf- uðu meðal fólksins í strjálbýlinu, færðu þeir hressandi lífsloft með sér inn á heimilin. Stunduríi fóru prestar fótgang- andi, jafnvel yfir fjallvegi, um hávetur, með hempuna á baki fylgarmannsins til þess að flytja fólkinu huggunar og uppörvun- arorð. Loginn frá kirkjunni brann á kertinu í litlu stofunni, meðan presturinn hafði guðræknisstund með heimilisfólkinu, við hús- vitjun. Þá var kirkjan sannkölluð þjóð kirkja, og prestarnir þjóðkirkju- prestar. VERIÐ SANNKRISTIN ÞJÓÐ Það er talað um, að land vort sé lítið og þjóðin fámenn. Og hafi því lítið að segja og litlu hlutverki að gegna, meðai hinna stóru þjóða heimins. En smáþjóð getur látið rnikið gott af sér leið með því einu að gefa gott fordæmi. Hún getur ávallt fylgt góðu heillavænlegu málefni fram til sigurs, með festu og djörfung, án allra stóryrða. Hún getur verið klettur í haf- róti veraldarinnar og látið öld- urnar brotna á sér, án þess að brotna sjálf. Hún getur það sem öllu máli skiptir, verið sannkristin þjóð, og þar með lagt mikinn skerf til friðarmálanna, og á þeim eina grundvelli varðveitt sjálfstæði sitt og þjóðarheiður. Því hefur verið kastað fram, af ábyrgðarleysi, að vegna þess að landið er hrjóstrugt og þjóðin fá- menn sé réttast að færa byggðina saman og flytja fólkið sem mest til kaupstaðanna. Þetta er hin mesta fjarstæða. Hver einasti blettur landsins, milli hafs og heiða, á að vera byggður og búsetinn, embættis- mennirnir dreifðir um landið ásamt bændaskörungunum, eins og áður var. Fjölga kirkju, þar sem þær hafa verið lagðar niður eða flutt- ar burtu, svo að kirkjusöngur og klukknabljómur berist hvern helgan dag um allt ísland, frá hreinum, hlýjum og vistlegum : kirkjum. En nú er landið að dragast saman og minnka, með því að þjappa saman kirkju og mennta- setrum, hverfur fólkið úr sveit- unum. Bændur yfirgefa fagrar og kostamiklar ábýlisjarðir. Óðaistryggðin grætur í geislum kvöldsólarinnar á gluggarúðum yfirgefinna ættaróðala og tómum ■ kirkjum , eða aðeins rústum. Á þeirri braut má alls ekki halda áfram. Vér. lifum nú á gæfuríkum tíma. Allar dýrmætu framfarirn- I ar er komið hafa yfir landið á stuttum tíma, stórstígar og hrað-j fara eins og gróðrarregn á ,vor-: degi, eru meiri en orð fái.þakkað.; J í sveitum landsins biða ótak- Framh. á bls. 12 í DAG verður Marta Jónsdóttir jarðsungin í Reykjavík. Þó að það falli í minn hlut að minnast hennar í kirkjunni, langar mig til þess að biðja blaðið fyrir nokkrar línur, til minningar um hana, — eða öllu heldur til að frambera þakkir frá mér og mín- um fyrir margra ára vináttu. Minning þessarrar mætu og góðu konu varðveitist betur í hugum niðja hennar og ástvina, en í þess- um fóu og fátæklegu línum. í þessum mánuði eru 26 ár síðan við hjónin heimsót'tum þau Ara Stefánsson og Mörtu Jóns- dóttur, er þá bjuggu í Laufási við Stöðvarfjörð. Þetta var hvor- tveggja í senn, brúðkaupsför okk- sr hjónanna og ferð heim í prestakallið, þar sem ég átti að taka við starfi á æskustöðvum mínum sern aðstoðarprestur föð- ur mínSr.Við komum til Stöðvar- fjarðar, gangandi frá Hafnar- nesi, og dvöldum þar í nokkra daga við fögnuð og gleði. Æskan réði ríkjum á heimilinu, ekki í andstöðu við hina eldri, heldur í fögru samræmi við hefð og háttu foreldranna. Hófstilling og starf- semi, trú og kærleikur, alvara og gaman. Hver var nú þáttur Mörtu Jónsdóttur í öllu þessu? Þessa sumardaga kynntist ég henni fyrst, og hygg ég, að fundum okkar hafi ekki fyrr borið saman. En þegar ég nú rifja upp við- kynninguna við hana, öll þau ár, sem síðan eru liðin, finn ég, að mynd hennar hefir aldrei breyzt minnstu vitund í huga mínum síðan ég sá hana fyrst. Hún var þá orðin þroskuð kona, húsmóðir um margra ára skeið á barn- mörgu heimili, hafði reynt bæði sælu og sorg, — hafði öðlast þá stillingu og mótun hugsunarinn- ar, sem aðeins fæst við djúpa íhygli raunhæfrar sálar, sem kann að aðgreina kjarna frá hismi. Marta var í rauninni til- finningarík, en hún hafði tamið sér það vald yfir sjálfri sér, orð- um sínum og framkomu, að aldrei hrökk henni misjafnt orð af vörum, hvorki við nokkurn mann né um. Móðurlegan mynd- ugleik átti hún, samfara frábærri prúðmennsku í fasi og framkomu. Sú prúðmennska var ekki utan- aðlærð, heldur innan að, því að vinsemd hennar og látleysi gerði framkomu hennar við mennina fagra og hlýja, án þess að hún veitti því athygli sjálf. Yfirbragð hennar var hýrt og glatt. Marta Jónsdóttir var ekki eitt í dag og annað á morgun. Einn af henn- ar fegurstu eðliskostum var tryggðin. Vináttan var fölskva- laus, og skapgerðin of traust til þess, að sviftivindar hins daglega lífs gætu nokkuru breytt. Minn- ing Mörtu Jónsdóttur vekur hjá mér hugsun um hljóðlátan og yfirlætislausan mátt hinnar kyrr- Íátu piildj,. i Mavt.a Jópsdóttir hét réttu nafni, Martína, og var það nafn dregi.ðl'af nafni Marteins móður- föður her.par. En frá upphafi vega yar hún aldrei annáá nefnd en Marta, og munu flestir hafa álitið, að hún héti svo. Hún var fædd á Gestsstöðum í Fáskrúðs- firði 16. febr. 1876. Foreldrar hennar voru Jón bóndi Sigurðs- son og seinni kona hans Oddný Marteinsdóttir. Ólst hún upp hjá þeim til tvitugsaldurs, ásamt stórum systkinahóp. Hin eina, sem enn er á lífi, af 13 systkinum, er Sigurbjörg Jónsdóttir, gift kona á Síöðvarfirði. — Skömmu eftir tvítugt réðst Marta til þeirra hjónanna Karls kaupmanns Guð- mundssonar og frú Petru á Stöðvarfirði, og var hjá þeim barnfóstra. Þessi vistráðning varS örlagarík fyrir Mörtu. Sama árið réðst þangað vinnumaður, lítið eitt yngri en hún, Ari Stefánsson frá Þverhamri í Breiðdal. Hugir þeirra hneigðust saman, og hinn 3. nóv. 1900 voru þau gefin saman í Stöðvarkirkju. Hófst þar eitt hið farsælasta hjónaband, sem ég hefi haft sagnir af. Meira en hálfrar aldar sambúð sannaði betur og betur með hverjum degi, hve traustur kærleikur tengdi þau saman í upphafi. Þau bjuggu fyrst í 1 ár á Bæjarstöðum í Stöðvarfirði, síðan réðust þau um 3 ára bil til sinna gömlu hús- bænda, Karls og Petru, sem þau voru í ævilöngu vinfengi við. — Síðan bjuggu þau 9 ár á Einars- stöðum, og loks 14 ár í Laufási í Stöðvarfirði, en þar byggðu þau upp frá grunni. Hafa þau hjón jafnan verið kennd við Laufás, einnig eftir að þau fluttust hing- að til Reykjavíkur, en það var árið 1928. Orsökin til þess, að þau f-luttu suður, var aðallega sú, að Ari átti um tíma við að stríða veikindi í hægri handlegg, og varð að hætta sjómennskunni og annarri erfiðisvinnu, sem búskap hans austurfrá var samfara. Börn þeirra Ara og Mörtu urðu 7 að tölu, og eiga 5 dætur þeirra heima í Reykjavik, en ein dóttir féll frá um tvítugsaldur, og eina soninn misstu þau hjónin á fyrsta aldursári. Hefir það ekki verið lítils Virði fyrir hinn stóra ást- vinahóp Mörtu að fá að njóta samvista við hana, og sjálf fylgd- ist hún af innilegum áhuga með liðan þeirra allra. Heimili þeirra Ara og Mörtu í Laufási var víðfrægt fyrir gest- risni og hjálpsemi við ferðafólk. Hinn sami svipur hélt áfram að vera yfir heimilinu hér í Reykja- vík. Það voru ekki sízt gamlir Austfirðingar, sem þangað lögðu leiðir sínar, enda hygg ég, að ekki sé of mælt, að Marta hafi alla sína ævi hugsað um Stöðv- arfjörð sem heimili sitt og heima- byggð, enda þótt heimilið væri henni kært, hvar sem það var staðsett. Ég vil enda þessar línur með því að endurtaka þökk mína til Mörtu Jónsdóttur, fyrir hennar tryggu vináttu við okkur hjónin. Eg tel hvern mann vera að auð- ugri, sem henni hefir kynnst. Og þar sem maður hennar hefir um margra ára skeið verið meðhjálp- ari Hallgrímskirkju, og heimili hennar því verið sérstaklega tengt kirkjunni, flyt ég henni einnig þakkir af saínaðarins hálfu fyrir þann þátt, sem hún hefir átt í starfinu. Jakob Jónsson. ■k 'k 'k k k k k k k k k k'trkr M M kkkkkkkkkk k k ORGUNBLAÐIÐ ★ ★ MEÐ ★ ★ ORGUNKAFFINU ★ ★ ★ ★★★★★★★★■ílf

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.