Morgunblaðið - 20.08.1954, Side 4
4
MORGVNBLAÐIÐ
Föstudagur 20. ágúst 1954
232. dagur ársins.
Næturlæknir er í læknavarðstof-
nnni, sími 5030.
Næturvörður er í Lyfjabúðinni
Iðunni, simi 7911.
Apótek. Holtsapótek og Apótek
Austurbæjar eru opin alla virka
daga til kl. 8 og laugardaga til
kl. 4. — Holtsapótek er ennfremur
opið á sunnudögum kl. 1—4.
D
ag
b ók
Höskuldsson les). 22,25 Dans- og
dægurlög: Leila Negra syngur
(plötur). 23,00 Dagskrárlok.
o-
-□
Veðiið
1 gær var sunnan átt um allt
land, skýjað og lítils háttar rign-
ing sums staðar á Suður- og Vest-
urlandi, en léttskýjað á Austur-
landi.
1 Reykjavík var biti kl. 3 í gær-
dag 14 stig, á Akureyri 20 stig, á
Dalatanga 13 stig og á Galtarvita
17 stig.
Mestur hiti var á Akureyri og
Egilsstöðum, 20 stig, en minnstur
í Vestmannaeyjum, 11 stig.
1 London var hiti á hádegi í gær
14 stig, í París 14 stig, í Berlín
20 stig, í Stokkhólmi 19 stig, í
Kaupmannahöfn 21 stig, í Osló
15 stig, í Þórshöfn í Færeyjum
13 stig og í New York 22 stig.
D---------------------□
• Brúðkaup •
I dag verða gefin saman í hjóna-
band af séra Sigurjóni Árnasyni
ungfrú Dagbjört Kristjánsdóttir,
skrifstofumær, frá Djúpavogi, og
Ingi Björn Ársælsson, stúdent, frá
Bakkakoti á Rangárvöllum, bæði
til heimilis að Hamrahlíð 5,
Reykjavík.
Hjónaefni
S. 1. föstudag opinberuðu trú-
lofun sína ungfrú Jónína Nielsðn,
hjúkrunarkona, frá Seyðisfirði, og
Gunnlaugur Guðmundsson, póst-
afgreiðslumaður, frá Isafirði.
■» Flugferðir «
Millilandaflug:
Loftleiðir h.f.:
Hekla, millilandaflugvél Loft-
leiða er væntanleg til Reykjavík-
ur kl. 19,30 í dag frá Hamborg,
Kaupmannahöfn, Osló og Staf-
angri. Flugvélin fer til New York
kl. 21,30.
Flugfclag íslands h.f.:
Millilandaflugvélin Gullfaxi fer
til Oslóar og Kaupmannahafnar'
í fyrramálið kl. 8,00. Vélin er’
væntanleg aftur til Reykjavíkur á
sunnudagskvöld kl. 18,00.
Innanlandsflug:
1 dag er ráðgert að fljúga til!
Akureyrar (3 ferðir), Egilsstaða,
Fagurhólsmýrar, Flateyrar,
Hólmavíkur, Hornaf jarðar, ísa-
f.iarðar, Kirkjubæjarklausturs,
Patreksf jarðar, Vestmannaeyja
(2 ferðir) og Þingeyrar.
• Skipafréttu: *
Eimskipafélag íslands h.f.:
I Brúarfoss fór frá Bremen í
fyrradag til Hamborgar. Dettifoss
verður í Reykjavík í dag. Fjallfoss
fór í gær frá Reykjavík til Vest-
mannaeyja, Aðalvikur, Siglufjarð-
ar, Akureyrar og Húsavíkur. Goða-
foss er í Reykjavík. Gullfoss kom
til Reykjavíkur í gærmorgun frá
Leith og Kaupmannahöfn. Lagar-
foss fór frá Akranesi 12. þ. m. til
New York. Reykjafoss fer frá
Reykjavík í dag til Hull, Rotter-
dam og Hamborgar. Selfoss fór
frá Vestmannaeyjum 14. þ. m. til
Grimsby, Antwerpen, Hamborgar
og Bremen. Tröllafoss fór frá
Gautaborg í fyrradag til Flekke-
fjord og Hamborgar. Tungufoss
fór frá Antwerpen í gærmorgun
til Reykjavíkur.
Skipiiútgerð rikisins:
Hekla er í Gautaborg á leið til'
Kristiansand. Esja er væntanleg.
til Reykjavíkur árdegis í dag að
austan úr hringferð. Herðubreið
kom til Reykjavíkur kl. 1 í nótt;
frá Austfjörðum. Skjaldbreið er á
Vestfjörðum á suðurleið. Þyrill er
væntanlegur til Reykjavíkur síð-
degis í dag frá Rotterdam. Skaft-
fellingur fer frá Reykjavík síð-
degis í dag á leið til Vestmanna-
eyja.
Skipadeild S.Í.S.:
Hvassafell er í Reykjavík. Arn-
S
s
s
ZEISS IKON — skuggamyndavélar
fyrir skóla og áhuga-ljósmyndara.
Ljóssterkar — myndskírar.
SPORTVÖIíUIIÚS REYKJAVÍKUR
SIAM-TEAK
Vér útvegum SÍAM—TEAK í öllum venjulegum
stærðum gegn nauðsynlegum leyfum.
Afgreiðsla: Af lager í Kaupmannahöfn.
Einkaumboð á íslandi fyrir
DET ÖSTASIATISKE KOMPAGNI A/S
Ludvig Storr & Co.
Kórona
Jarðarberjasaft í hálfflöskum.
Hindberjasaft í hálfflöskum,
Litað sykurvátn (jarðarberjabragð)
í hálfflöskum.
^Áf. ÍÁen,eclil?tóó(m fs? (Lo. L.f.
arfell fór frá Raufarhöfn áleiðis
til Kaupmannahafnar í gær. Jök-
ulfell fór 13. þ. m. frá New York
áleiðis til Reykjavíkur. Dísarfell
fór 16. þ. m. frá Reykjavík áleiðis
til Bremen, Hamborgar og Rotter-
dam. Bláfell er í flutningum milli
Þýzkalands og Danmerkur. Litla-
fell fór frá Reykjavík áleiðis til
Akureyrar í gær. Jan er í Reykja-
vík. Nyco lestar sement í Álaborg.
Hvað kostar undir bréfin?
Einföld flugpóstbréf (20 gr.):
Danmörk, Noregur, Svíþjóð kr.
2,05; Finnland kr. 2,50; England
og N.-lrland kr. 2,45; Austurríki,
Þýzkaland, Frakkland og Sviss kr.
3,00; Rússland, Italia, Spánn og
Júgóslavía kr. 3,25. — Bandaríkin
(10 gr.) kr.í 3,15; Canada (10 gr.)
kr. 3,35. — Sjópóstur til Norður-
landa (20 gr.) kr. 1,25 og til ann
arra landa kr. 1,75.
t
Heimdellingar!
Skrifstofan er opin milli kl. 2
og 3 virka daga.
• Gengisskraning •
(Sölugengi):
1 gterlingspund .... kr. 45,70
1 bandarískur dollar .. — 16,32
1 Kanada-dollar ....— 16,70
100 danskar krónur .. — 236,30
100 r.orskar krónur .. — 228,50
100 sænskar krónur .. — 315,50
100 finnsk mörk.....— 7.09
1000 franskir frankar . — 46,63
100 belgiskir frankar . — 32,67
100 svissn. frankar .. — 374,50
100 gyllini ........— 430,35
100 tékkneskar kr...— 226,67
100 vestur-þýzk mörk . — 390,65
1000 lírur..........— 26,12
GullverS íslenzkrar krónu:
100 gullkrónur jafngilda 788,95
pappírskrónum.
Málfundafélagið Óðinn.
Skrifstofa félagsins í Sjálfstæð
ishúsinu er opin á föstudagskvöld
um frá kl. 8—10. Sími 7104. —
Gjaldkeri tekur þar við ársgjöld
um félagsmanna, og stjóm félags
ins er þar til viðtals við félags
menn.
Minningaspjöld Krabba-
meinsfélags íslands
fást hjá öllum póstafgreiðslum
landsins, öllum lyfjabúðum í
Reykjavík og Hafnarfirði (nema
Laugavegs- og Reykjavíkurapó-
teki), Remedia, verzluninni Há-
æigsvegi 52, elliheimilinu Grund
og skrifstofu Krabbameinsfélag-
anna í Blóðbankanum, Barónsstíg,
sími 6947. Kortin eru afgreidd í
gegn um síma.
• Söfnin a
Listasafn ríkisins
j er lokað um óákveðinn tíma.
Safn Einars Jónssonar
| er opið sumarmánuðina daglega
frá kl. 13,30 til 15,30,
, Þjóðminjasafnið
er opið sunnudaga kl. 1—4 og
þriðjudaga, fimmtudaga og laug-
ardaga kl. 1-—3.
Sólheimadrengurinn.
I Afhent Morgunblaðinu: V. 25
^ krónur. Lauga Ben. 50 krónur.
, Leiðrétting.
I í tilkynningu um systkinabrúð-
kaup á fimmtudaginn hér í blað-
inu misritaðist bæjamafnið. Það
I á að vera Hofsstaðir.
I
Lamaði íþróttamaðurinn.
j Afhent Morgunblaðinu: J. B. D.
j 50 krónur.
! Frá Bæjarbókasafni
i Reykjavíkur.
! Útlán virka daga er frá kl. 2—
10 e. h. Laugardaga kl. 1—4. Les-
stofan er opin virka daga kl. 10—
12 og 1—10. Laugardaga kl. 10
—12 og 1—4. Lokað á sunnudög-
um yfir sumarmánuðina.
• Útvarp •
19,30 Tónleikar: Harmonikulög
(plötur). 20,20 Útvarpssagan:
Þættir úr „Ofurefli“ eftir Einar
H. Kvaran; I. (Helgi Hjörvar).
20,50 Tónleikar (plötur): Stef og
tilbrigði úr svítu nr. 3 í G-dúr eft-
ir Tsehaikowsky (Symfóníuhljóm-
sveit Lundúna leikur; Sir Landon
Ronald stjórnar). 21,10 Úr ýmsum
áttum. — Ævar Kvaran leikari
velur efnið og flytur. 21,30 Tón-
leikar (plötur): Polonaise-Fanta-
sie í As-dúr op. 61 eftir Chopin
(Artur Rubinstein leikur á píanó).
21,45 Frá útlöndum (Jón Magnús-
son fréttastjóri). 22,10 „Á ferð og
flugi“, frönsk skemmtisaga;
XXIX -— sögulok (Sveinn Skorri
Skemmfiferð á veg-
um Ferðaskrlfsfohi
EFNT verður til skemmtiferð-
ar n.k. sunnudag. Farið verð-
ur í bíl að Laugarvatni, síðan
á hestum inn Laugardal og
austur með hlíðum Biskups-
tungna að Geysi í Haukadal.
Þessi leið er talin með fallegrl
og beztu hestaleiðum, sem
völ er á hér nærlendis. Kunn-
ugur maður verður með hest-
ana, sem getur útskýrt það,
sem fyrir augum ber. Lagt
verða til öll reiðtygi. Að Geysi
verður viðstaða þar til kl. 7
um kvöldið og verður þá ekið
tii Reykjavíkur og komið
þangað um kl. 9,30 um kvöld-
ið.
Einnig verður hin vanalega
Geysis og Gullfoss ferð á
sunnudagsmorgun. Ekið verð-
ur um Hreppa til Reykjavík-
ur.
PLENTOGRAF — spritt-fjölritarar,
með sjálfvirkri vökvadælu.
SPORTVÖRUHÚS REYKJAVÍKUR
Atlas
vatnshelda gólfdúkalímið er komið aftur.
Hlálning & JárnvÖrur
ÍMi til söln
Fyrsta fl. íbúð í kjallara á hitaveitusvæðinu (Melun-
um) laus til íbúðar 14. maí n. k., er til sölu nú þegar,
íbúðin er 3 herb. með 2 eldhúsum, gæti verið út af fyrir
sig 2 herb. og eldhús og 1 herb. og eldhús. Útborgun
ca. 30 þús. — Nánari uppl. veittar þeim, er senda nafn
sitt í lokuðu umslagi til afgr. Mbl. fyrir 25. þ. mán.,
merkt: „Hagkvæmt“ —479.
íýsMtrað dilkakjöt j
í heildsölu og smásölu. i
■
Á<\jötuerzliA,nin (JÁiírfeíl :
■
Sími 82750. ■
til leigu.
^ÁHmenna J3ycjcjincj-aféiacj-i^ 1i.f.
Sími: 7490.