Morgunblaðið - 25.08.1954, Qupperneq 12
12
MORGUTSBLAÐIÐ
Miðvikudagur 25. ágúst 1954
l w hL, , WBl m> - • -gjgl "f- f" &
- Edinborgarfiátíðin
Framh. af bls. 9
Bem sýnir „Le Bourgois Gentil-
homme“.
Loks má minnast á leikrit eft-
ir bandaríska skáldið Thornton
Wilder, sem heitir „The Match-
maker“ og verður sýnt á hátíð-
inni. Þetta er ný gerð af leikriti,
serg. sýnt var fyrir nokkrum ár-
um- í Ameríku, en hlaut þá hina
verstu dóma. Við skulum vona,
að allt fari betur þetta sinn,
o—®—o
Aðalframlag Skota til þessarar
hátiöar verður hljómverkasam-
steypa eftir Edinborgarbúa, Ro-
beÁ Kemp, og kallar hann það
„Hail Caledonia“. Þar verða
skozkir söngvar, sekkjapípuleik-
arar, kórar og dansendur — og
œtti það að verða forvitnislegt
þcim, sem ekki þekkja til skozkr-
ar þjóðlistar.
o—•—o
í konunglegu skozku akademí-
unni verður sýning á verkum
Cézannes, og er það talin full-
komnasta sýning á verkum hans,
sem nokkru sinni hefur verið
haldin. í fyrra var sýning á verk-
um Renoirs og enn fyrr á verk-
um Degas, svo að nú hafa verið
sýnd málverk hinna þriggja stór-
tneistara impressjónista-hreyfing
arinnar. Það var vel til fallið að
láta Cézanne koma síðastan, því
að hann blés nýju lífi í hreyf-
ínguna, þegar hún var að staðna.
Af öðrum merkisatriðum má
nefna leik tíu ára drengs, Allans
Schiller, sem leikur einleik í Con-
certo fyrir píanó og hljómsveit í
G. K. 453 eftir Mozart. Sir John
Barbirolli telur hann vera bezta
píanóleikara, sem hann hafi
nokkurn tíma heyrt. Á laugar-
daginn leikur Allan með National
Youth Orchestra of Great
Britain.
( Edinborgar-hátíðinni verður
ekki fulllýst nema minnzt sé eitt-
hvað á öll þau atriði, sem áháð
samtök annast og hátíðarnefndin
hefur engin afskipti af. Þrír
flokkar ungra leikara koma frá
háskólunum í Oxford og Cam-
bridge. Þeir koma þaðan á far-
aildsfaeti og sníkja sér far eftir
því sem bezt gengur, sofa í yfir-
fullum, þægindasnauðum her-
bergjum, setja leikrit á svið í
vesaldarlegum húsakynnum —
framúrskarandi góðir.
á boðstólum Shake-
Sþeare og kabarett-sýningar, og
allt, sem þeir gera, er innblásið
af ástríðu á list og hlífðarlausri
yinnu.
Og hvarvetna um Edinborg
getur að líta yfirlætislausar sýn-
ingar, sem veita listunnendum
mi^inn unað, þótt hvergi sé
þeirra við getið í leikskrám há-
tíðarnefndar. Þær setja svip sinn
á borgina, sem kastar drunga-
légum hversdagsham um þrjár
vikur ár hvert og verður hátíðar-
tjorg í orðsins fyllstu og beztu
merkingu.
o—•—o
I Að lokum vil ég geta eins at-
rjiðis, sem mér þykir miður. Þeg-
ör hátíðin er liðin, gagnrýnend-
ur eru horfnir til Lundúna og
meginlandsins, og Edinborg hef-
ur brugðið hátíðabúningi, þá
verða hr1,tnir hér hljómleikar,
sem allir fslendingar verða stollt-
ir að sjá: Karlakórinn Fóstbræð-
ur "kemur hér fram 24. septem-
ber. Illt er til þess að vita, að
þeir koma ekki, meðan hátíðin
er, því víst er um það, að sjaldan
hfefur svo góður kórsöngur heyrzt
á; Skotlandi. Við skulum vona, að
Mtíðadagskráin næsta ár taki
með að minnsta kosti einn kór
frá íslandi, þegar Fóstbræður
hafa kynnt hér ágæti íslenzkrar
sönglistar.
Magnús Magnússon.
og j eru
Þeir hafa
Drottningarmaðurinn kominn
heim.
LONDON, 23. ágúst. — Philip
drottningarmaður kom í gær
heim úr ferðalagi sínu til Kanada
og dvelzt nú með konungsfjöl-
ekyldunni í Balmoral-kastala.
—Reuter-NTB
Súkkulaðlmjólk
,FRÁ því er sagt í norsku bún-
aðarblaði, áð nijólkurbúið á
Kristjánssandi sé farið að fram-
leiða súkkulaðimjólk til sölu. Er
vara þessi seld sem þorstadrykk-
ur, í lokuðum flöskum, og nefnd
Cmocomelk shake. Er drykkur-
inn talinn líklegur til að keppa
við gosdrykki og öl.
Ætli þetta sé ekki þess vert, að
íslenzku mjólkurbúin kynni sér
það?
Varps
Framh. af bls. 1
Herlið var kallað út og stend-
ur það vörð við allar opinberar
byggingar. Flestar búðir í borg-
inni voru opnar, en settu hlera
fyrir glugga því að búizt er við
róstum í borginni í kvöld.
HERINN HAFÐI
YFIRHÖNDINA
Það er flugherinn brasilíski,
sem átti aðalþáttinn í að reka
Vargas frá völdum. Fyrir rúmri
viku var háttsettur flugforingi
myrtur og lá Vargas og lífvörð-
ur hans undir grun um að hafa
verið þar að verki. Það var loks
í morgun, sem stjórnendur land-
hersins gengu í lið með flug-
hersmönnum og kröfðust þess að
Vargas léti af embætti.
★ Vargas var 71 árs að aldri.
Hann kom fyrst til valda
1930 er hann gerðist einræðis-
herra með byltingu og var svo
fram til ársins 1945, er hann
var sjálfur rekinn frá völdum
með byltingu. Árið 1950 var
hann kosinn forseti með yfir-
gnæfandi meirihluta at-
kvæða.
Heimla nýjar
kosningar
BONN, 24 ágúst — Ollenhauer
foringi þýzkra jafnaðarmanna
sagði á blaðamannafundi í dag,
að ef Frakkar neituðu að sam-
þykkja aðild að Evrópuhernum,
þá bæri Adenauer forsætisráð-
herra siðferðileg skylda til að
láta nýjar kosningar fara fram
í Vestur-Þýzkalandi. Þátttakan í
Evrópuhernum var eitt aðalmál-
ið í síðustu kosningum, sagði
Ollenhauer og ef ekkert verður
úr stofnun hans. þá hafa kjósend
ur veitt Adenauer fylgi á röng-
um forsendum. —Reuter-NTB.
-- Y.-lslendingur
Framh. af bls. 2
hvílíkt feikna átak hefur átt sér
þar stað.
ÁNÆGJULEG
HEIMKOMA
— Hafið þér ferðazt mikið um
hérna?
— Ég er búinn að fara austur
til Hveragerðis, Selfoss, Tuma-
staða, Múlakots, upp á Skeið, í
Biskupstungurnar, að Laugar-
vatni, til Geysis, á Þingvelli og
svo upp á Akranes um Hvalfjörð.
Þetta hefur verið mjög ánægju-
legur tími fyrir mig, og ég er
þakklátur öllum þeim sem hafa
gert mér þennan tíma ógleym-
anlegan og sendi þeim mínar
kærustu kveðjur. Þótt ég sé bú-
inn að eyða flestum árum nín-
um í Vesturheimi. þá hefði mér
þótt góð tilhugsun að eyða síð-
ustu æfiárum mínum hér heima
á fslandi, en ág á nákomnustu
ættingja mína vestra og þess
vegna verður það afl sterkara.
En glaður er ég að sjá ísland nú.
Við þökkum Ófeigi fyrir
ánægjulega samræðu og vonum
að hann eigi farsæla æfidaga fyr-
ir höndum um leið og við kveðj-
um hann og óskum honum farar-
heilla til ættingja sinna í Vestur-
heimi. Þá vonum við einnig að
þetta verði ekki síðasta ferð hans
heim til íslands.
M. Th.
Framh. af bls. 9
komust sættir á og tóku íslend-
ingarnir þá aftur upp vinnu og
einnig eftirlitsmaðurinn sem vik-
ið var frá. Á meðan verkfallið
stóð yfir, voru amerískir bifreiða
stjórar látnir taka upp akstur í
staðinn fyrir þá íslenzku, en
seinna um daginn kom í ljós að
þeir höfðu ekki allir meirapróf
og þar með ekki réttindi til þess
að aka vögnunum.
STRÆTISVAGNARNIR
STÖÐVAÐIR
Var hringt til Hallgríms Dal-
bergs, formanns vinnumálanefnd
ar utanríkisráðuneytisins, og brá
hann við og fór strax suður á
Keflavíkurflugvöll til þess að
rannsaka málið. Gerði hann lög-
reglustjóra vallarins boð um
þetta og voru allir strætisvagn-
arnir stöðvaðir í vallarhliðinu og
bifreiðarstjórarnir amerísku þar
látnir sýna ökuskírteini sín og
þeir sem ekki höfðu meirapróf
látnir fara af vögnunum.
HEIMTA BROTTREKSTUR
AMERÍSKA YFIRMANNSINS
Talsverð gremja mun hafa ver-
ið í íslenzku strætisvagnastjór-
unum út af atviki þessu, og skrif-
uðu þeir allir undir skjal þess
efnis að ameríska yfirmanninum
sem réð brottrekstri íslendings-
ins, yrði vikið frá störfum.
- Úr daglegð lífinn
Framh. af bls. 8
þeim hafi litist á slíkar fullyrð-
ingar, er flóðin miklu komu nú
fyrir stuttu.
Ef til vill væri mest virði fyrir
ykkur, að leyta uppi ykkar eigin
flokksbr., leiðtoga demokrata-
flokksins I Kína, sem hafa verið
settir á fram til þessa, vegna
gagnsemi þeirra við útbreiðslu
sósíalisma. Spyrjið þá samt, ekki
hvort þeir álíti ekki mögulegt að
taka völdin eftir kosningarnar í
ár, en reynið að komast eftir því
í hverju starfsemi þeirra er frá-
brugðin því, sem kommúnistum
er þóknanlegt. Það yrði lær-
dómsríkt tækifæri til að kynn-
ast hvernig hið „nýja lýðræði"
er í framkvæmd.
Átthagafélag Sandara j
M
I*
efnir til berjaferðar n. k. sunnudag. Farið verður í S
gott berjaland. Þátttaka tilkynnist í símum 7194, ;;
5213 og 80932, eigi síðar en íyrir föstudagskvöld 5
•
og verða þar veittar nánari upplýsingar um ferðina. S
:
v
■
!•■■ ■ ■■•■■■■■ a aa ■■■■■•«•« ■«'■•■••••• a aa a ■ ■ ■•■* a a ■ aaa ■■■■■ B ■■■■ B ■ aiif
■ ■■■■■■ ■•■Baaii ■■■■•■■■■■ ■■■■■■■■■ mmiDiDiKiM saa omkiimmk ■■■■¥WM|
fyrir færeysku knattspyrnumennina verður haldinn
í Breiðfirðingabúð í kvöld kl. 9.
Aðgöngumiðar frá kl. 8.
Dansað til klukkan 2.
BREFRITARI
Stúlka, sem getur annast sjálfstætt bréfaskriftir á
ensku, óskast til að taka að sér bréfaskriftir 2—3 í viku
2 tíma í senn. — Tilboð merkt: „Bréfritari — 59“, send-
ist blaðinu fyrir 28. ágúst.
1BU0 OSKAST
á leigu nú þegar eða á næstunni. — Mikil fyrirfram-
greiðsla. — Uppl. í síma 82259 eftir kl. 18 í kvöld.
OPftíUM I DAG
MED FYRSTU
HAUSTVORURNAR
GULLFOSS
AÐALSTRÆTI
MARKtJS Eítír Eá Dodd —?
1) Markús horfir á með skelf-*' 2)
ingu, þegar Jonni Malotto ogthann.
allt hundaækið hverfur niður í *
gljúfrið.
Jonni, Jonni, hrópar
3) — Markús, kastaðu til mín^J 4) En þegar Markús lítur í
snæri. Ég get ekki haldið mér^kringum sig, sér hann að Tommi
uppi lengur. ker horfinn og með honum öll
..“reipi. _ ... a