Morgunblaðið - 26.08.1954, Síða 1
16 siður
Eftir Briisselfundinn hélt Mendes France til Englands. Þar tók
Winston Churchill á móti honutn og bauð hann velkominn. Mendes
France fór til Bretlands með flugbátnum „Biggin Hiil“.
Tvö flugslys á mánudaginn
Haag 23. þ. m. Reuter-NTB.
VÖ flugslys hafa orðið með stuttu millibili eftir helgina, og
hafa kostað 32 menn lífið. Á mánudaginn fórst hollenzk far-
þegaflugvél yfir Norðursjó og skömmu seinna fórst önnur farþega-
flugvél, bandarísk, með þeim afleiðingum, að 11 manns létu lífið.
HOLLENZK <®
SKYMASTERVÉL
Hollenzka flugvélin sem var
Skymastervél frá flugfélaginu
K.L.M. fórst yfir Norðursjó á
mánudagsmorgun. Var flugvélin
á leið frá New York til Amster-
dam, er hennar var saknað og
hófu leitarskip og flugvélar þeg-
ar leit að vélinni. Fannst fljót-
lega brak á floti og logandi ben-
síngeymir, sem bentu til hver ör-
lög flugvélarirmar hefðu orðið.
ANNAÐ SLYS
SKÖMMl' SEINNA
Skömmu seinna var tilkynnt
frá Mazon City í Bandaríkjun-
um, að farþegaflugvél hefði far-
izt skammt suður af borginni og
með henni 11 manns, farþegar og
áhöfn.
Verkfai! í Hul!
LONDON, 25. ágúst — Verkfall
hefur nú skollið á hjá hafnar-
verkamönnum í Hull í Englandi
og skipaafgreiðsla lömuð af þeim
orsökum. Fulltrúar frá verka-
mannasambandinu reyndu í dag
að telja verkamennina á að
hverfa til vinnu, en málamiðlun-
artillögum þeirra var hafnað.
Verkfall þetta hófst fyrir viku
vegna deilu sem kom upp
er skipa skyldi upp kornvörum
úr skipum með handafli. Um
4000 manna taka þátt í verkfalli
þessu. —Reuter-NTB.
Fréttir í stuttu
máli
PARÍS 25. þ. m.
Mendes-France hefur lýst þvi
yfir á fundi frönsku hermála-
nefndarinnar, að stjórn hans
muni ekki biðjast lausnar þótt
tillögur hans um varnarsáttmála
Evrópu yrðu ekki samþykktar í
neðri deild fransl^a þingsins. —
Hann lýsti því ennfremur yfir að
Bretar og Bandaríkjamenn væru
reiðubúnir að veita Vestur-
Þýzkalandi fullkomið sjálfstæði,
ef samningurinn um Evrópuher-
inn færi út um þúfur.
LONDON 25. ágúst.
Brezka sendinefndin, sem er á
ferðalagi um Kína, heimsótti
Mao Tse-tung forseta kommún-
istastjórnarinnar í Kína í gær-
kvöldi og sat kvöldverðarboð hjá
honum.
Er þetta í fyrsta sinn sem vest-
rænir stjórnmálamenn njóta
gistivináttu kommúnistaleiðtog-
ans eftir valdatöku kommúnista
í Kína.
Var birt tilkynning að boðinu
loknu og sagt að hið bezta hefði
farið á með Attllee og Mao.
Mao hefur leitað hófanna hjá
Attlee, um að hann beiti áhrif-
um sínum í þá átt, að fá Banda-
ríkin til að viðurkenna stjórn
kommúnistanna og hætti að láta
7. flota sinn verja Fonnósu.
— Reuter.
Ameríkanar sýna
listaverk
WASHINGTON, 25. ágúst. —
Streibert, framkvæmdastjóri
amerísku upplýsingamálaskrif-
stofunnar tilkynnti í dag að nú
á næstunni yrði hafizt handa um
sýningu á beztu málverkum ame-
rískra listmálara í 64 löndum.
Myndirnar, sem sýndar verð-i,
eru eftirlíkingar 41 frægra
mynda, og eiga að sýna hápunkt
amerískrar málaralistar frá því
seint á 17. öld fram til vorra
daga. Myndir þessar voru valdar
af sérstakri nefnd frá Lista-
! mannabandalagi Bandaríkjanna.
36 listamenn eiga myndir á sýn-
ingu þessari, og af þeim eru sex
núlifandi málarar.
Brasilíubúar syrgja
hinn látna forseta
Lik hans flutt til fæðingarbæjar hans
London 25. þ. m. — Reuter.
Lí K Vargas forseta Brasilíu, sem framdi sjálfsmorð í gærmorgun,
hefur nú verið flutt í flugvél frá höfuðborginni Rio de Janeiro
til San Borgia, sem er fæðingarbær forsetans.
Forsefi Bandaríkjanna sfað-
t
feslir lö|in m að banna
siarfsesni kommúnisfa
Dauðarefsing við njósnum á friðartjmum
Washington, 25. ágúst.
EISENHOWER forseti Bandaríkjanna staðfesti í gær lagafrum-
varp það, sem þingið hefur samþykkt um að svipta komm-
únistaflokkinn þar í landi öllum lagalegum réttindum. Lög þessi,
sem kölluð eru Kommúnistaeftirlitslögin árið 1954, svipta Komm-
únistaflokkinn öllum lagalegum grundvelli og fyrirskipa að skrá
hjá löggæzluvaldinu nöfn allra meðima hans. En það eitt út al
fyrir sig, að vera meðlimur, er ekki lögbrot.
-----------------------OÖFLUGRA VOPN
Eisenhower sagði við þetta
tækifæri að lög þessi miðuðu að
því, að fá löggæzlu Bandaríkj-
anna öflugra vopn í hendur i
baráttunni gegn kommúnista-
ógnuninni. Hann bætti við að lög
þessi væru einn þáttur í ákvörð-
un bandarísku þjóðarinnaar a3
afnema með réttlætanlegum að-
ferðum, og í samræmi við stjórn-
skipunarlög landsins, þann fé-
lagsskap, sem skipulagður væri
í þeim tilgangi, að mynda sam-
ræmi til þess að steypa hinu
ameríska stjórnskipulagi af stóli
með ofbeldi og lögleysum.
ÞÚSUNDIR MANNA <^~
FYLGDU GRÁTANDI . . .
Líki forsetans var ekið á fall-
byssuvagni til flugvallarins og
gekk núverandi forseti Brasilíu
í broddi fylkingar, en hersveitir
stóðu heiðursvörð allt í kring Á
eftir komu síðan þúsundir áhorf-
enda, margir þeirra með tárin í
augunum.
ÁTTA DAGA SORG
Borgarstjórinn í Sao Paulo,
næst stærstu borgar landsins,
hefur fyrirskipað opinbera sorg
í átta daga og vinnustöðvun á
öllum opinberum stöðum og
byggingum þann dag, er jarðar-
förin fer fram.
DEILUEFNIN GLEYMD
Borgarstjórinn beindi þeirri
áskorun til þeirra, er nú sitja að
völdum, að halda á lofti hugsjón-
um og fyrirtælunum hins látna
forseta. Hann bað einnig and-
stæðinga Vargas að láta öll deilu-
efni við hinn látna vera gleymd
og grafin með honum.
Varnarbandaleg
KAIRO, 25. þ. m. — Egyptaland
og írak hafa komið sér saman
um að styðja núverandi varnar-
bandalag arabisku ríkjanna með
víðtækara hernaðarbandalagi
ríkjanna í Vestur-Asíu. Tyrk-
land og Pakistan munu geta tekið
þátt í þessu varnarbandalagi, ef
þau æskja þess síðar, segir í til-
kynningu frá Bagdad.
• Ennfremur segir í tilkynn-
ingum um þetta efni, að írak!
muni ekki verða aðili að hern- ■
aðarbandaiagi Tyrkja og Pakist-
an í þess núverandi mynd. Sam-!
komulag náðist um þetta atriði ■
í viðræðum milli Sýrlandsstjórn-,
ar og íraks fyrir nokkru.
ÆTLAR AÐ ÞURRKA UT
VERKALÝÐSFÉLÖG
KOMMÚNISTA
Forsetinn sagði ennfremur að
bandaríska þjóðin gerði sér ljóst,
að með því að banna starfsemi
kommúnista í verkalýðsfélögum
á annan hátt en þann, sem stjórn-
skipunarlög leyfa, væri verið að
stofna löggjafarstarfsemi þjóð-
arinnar í voða. í útvarpi sínu
til bandarísku þjóðarinnar á
mánudaginn, lét hann svo um
mælt, að hann hefði einsett sér
að þurrka út slíka kommúnista-
starfsemi, en jafnframt halda
sér innan takmarka stjórnar-
skrárinnar með allri virðingu
fyrir mannlegum réttindum.
DAUÐAREFSING
Á FRIÐ ARTÍMUM
Forsetinn hefur ennfremur lýst
því yfir að hann muni staðfesta
lög, sem leggja dauðarefsingu
við njósnum á friðartímum.
Indlsnd lekur ekki
r
i
um ðryggisbandalag
'uðaustur-Asíu
þjóðanna
LONDON, 25. ágúst. — Pandit
Nehru, forsætisráðherra Ind-1
lands, hefur lýst yfir að Indland
muni ekki senda neinn fulltrúa 1
á ráðstefnu þá, sem haldin verð-
ur í næsta mánuði á E'ilippseyj- j
um og á að ræða um varnar- ;
bandalag Suðaustur-Asíu.
• Hann lýsti því yfir á þing-
fundi, að það væri skoðun ind-
versltu stjórnarinnar, að sameig- ^
inlegt varnarbandalag Súðaustur- t
rikjanna mundi verða til að auka j
enn meir viðsjár milli þjóðanna,
og þannig ekki gera armað en
auka á ófriðarhættuna í heirnin-
um.
Pinay vill gefa Evrópu
her 18 mán. reynslu
Síðasta tilraun til að fá hann samþykktan
í franska þinginu
París 24. ágúst. Einkaskeyti frá Reuter,
FORGÖNGUMENN og fylgjendur Evrópuhersins í franska þjóð-
þinginu hafa nú byrjað sameinað átak til að reyna að bjarga
honum heilum í höfn. Hafa þeir borið fram tillögu um að franska
þingið samþykki aðild að Evrópuhernum með því skilyrði að bann
starfi fyrst í eins konar reynslutíma í 18 mánuði. Eftir þann tíma
skuli taka samninginn til endurskoðunar og breyta honum í sam-
ræmi við fengna reynslu.
PINAY HEFUR FORUSTUNA
Þingmenn þeir sem bera fram
tillöguna eru úr mörgum flokk-’
um, jafnaðarmanna, sósíalradi-
kalir, úr kristilega flokknum og
hægri menn. Sá sem forgöngu
hefur um þetta er Antoine Pinay,
fyrrum forsætisráðherra.
VANDAMÁL
STJÓRNARINNAR
Umræður um Evrópuherinn
fara fram í franska þjóðþinginu
leftir fjóra daga. Stjórnin kom
saman á ráðuneytisfund í dag til
að ræða hvernig leggja eigi þetta
vandamál fyrir þingið. Álíta
menn að stjórnin geti ekki leng-
ur verið hlutlaus í þessu máli.
I Andstæðingar Evrópuhersins
jlýstu því yfir i dag, að frum-
varpið um aðiíd að honum yrði
ifellt. Segja þetr að að minnsta
; kosti 338 af 626 þingfulltrúum
muni greiða atkvæði á móti hon-
um.