Morgunblaðið - 26.08.1954, Síða 11
' Fimmtudagur 26. ágúst 1954
MORGIJTSBLAÐIÐ
11
ÍÞRÓTTIR
Akureyringar leika knattspyrnu á
í FYRRASUMAR var á Ak-
’’ 1. ureyri tekinn í notkun ný-
gerður grasvöllur. Er vöilur-
inn miðsvæðis í bænum og í
alla staði mjög vel gerður.
Mun völlurinn vera einhver
bezti eða ef til vill bezti völl-
ur landsins nú. Á honum eru
laus mörk, svo ekki sé völl-
urinn traðkaður niður með ó-
hæfilegri notkun og við hlið
hans æfingavöllur vel sléttur
og mjúkur — án grass. Gæta
Akureyringar hins nýja gras-
vallar mjög vel í alla staði og
er gerð vallarins og meðferð
þeim til sóma.
★ ÁHORFENDASVÆÐI
VANTAR
En þó völlurinn hafi verið til-
búinn í fyrra, er enn ýmislegt
ógert á íþróttasvæðinu. Tiifinn-
anlega vantar háa girðingu um-
hverfis völlinn, svo hægt sé að
hafa einhverjar tekjur af því sem
þar fer fram. Völlurinn nýji er i
byggður neðan við Brekkugötu. j
Þar í brekkunni er hægt með til- j
tölulega lítilli fyrirhöfn að koma j
fyrir ákjósanlegum áhorfenda-
bekkjum. Það verk virðist í fljótu
bragði ekki umfangsmeira en ;
það, að ungir félagar íþróttafé- |
laganna á Akureyri gerðu það í j
sjálfboðavinnu. Að því loknu yrði
yöllur þeirra í einu og öllu til
íyrirmyndar. Það sem sagt vant-
ar aðeins herzlumuninn.
Á ÞÓR SIGRAÐI 1:0.
Fyrir rúmri viku sá ég á Akur-
eyri leik milli K.A. og Þórs —
leik, sem lauk með sigri Þórs 1:0.
Leikurinn var daufur og þóf-
Kfenndur og án mikilla tilþrifa.
Bæði liðin eru sundurlaus og
virðast æfingalítil, leikmennirnir
finna illa hvorn annan, skipulag
vantar í leikinn svo eðlilegt er,
að allt fari í handaskolum. Á
leikmönnunum er mjög mikill
styrkleikamundur og það út af
fyrir sig er mjög bagalegt. Ekki
þarf þó lengi að horfa á leik
nyðra til þess að sjá að þar eru
á ferðinni efni í afbragðsgóða
knattspyrnumenn.
Akureyringar sendu Iið til
Reykjavíkur til keppni í 1. fl.
mótinu. Það lið stóð sig með mik-
illi prýði, komst í úrslit, en tap-
aði þar fyrir KR með 3:1. Margir
Reykvíkingar þekkja því til leik-
manna Akureyringa nokkuð Þeir
geta teflt fram allsæmilegu úr-
valsliði, en í tvö góð lið eiga þeir
ekki menn — ekki ennþá.
* LIDIN
Meginstyrkur KA liggur í fram
línunni — og þá aðallega í vinstri
sóknarvæng. Ragnar Sigtryggs-
sön v. innherji er bezti framherji
Akureyrar nú. Hann er fljótur og
byggir vel upp, og skotharður.
Við hlið sér hefur hann tvo ágæta
menn Björn Olsen útherja, sem
er eldsnöggur, en nolikuð mis-
tækur og Baldur Árnason mið-
framherja, liðlegan leíkmann.
Vörn liðsins leikur hins vegar
mjög óskipulega. Bakverðirnir,
sérstaklega Einar Einarsson, eru
seinir, en hætta sér þó mjög fram
bezta grasvelli landsins
Þar er áhuginn mikill, en löng braut
framundan til vegs og frama.
á eftir framherjunum, og eru svo
lengi að komast aftur í sínar stöð-
ur. Slíkur leikur er oft afdrifa-
ríkur. Framverðirnir megna ekki
að bæta fyrir „afglöp“ bakvarð-
anna. í markinu er þjálfari liðs-
ins, Einar Helgason. Með hinum
opna leik varnarinnar lendir
Ragnar Sigtryggsson, bezti
framherji Akureyrar.
hann oft í erfiðri aðstöðu —
bjargar oft vel með úthlaupum,
því hann er sterkur og fljótur til,
en þó úthlaup séu góð, þá er allt
bezt í hófi og öruggur leikur
milli stanganna er ákjósanlegri
en úthlaup í tíma og ótíma.
Þórsliðið er alger andstaða KA-
liðsins. Þar er leikur varnarinnar
sterkur og bezti maður liðsins er
miðframvörðurinn Arngrímur
Kristjánsson, sem stöðvaði hverja
sóknartilraun KA-tríósins af ann
ari. Hann ásamt Ragnari er í sér-
flokki af knattspyrnumönnum
Akureyrar í dag. Leikur hliðar-
framvarðanna er ekki sterkur og
framlínan er sundurlaus og á
erfitt með að hrinda í fram-
kvæmd því sem hún hefur hug á,
— undantekning er þó markið,
sem Guðm. Georgsson skoraði
með góðu skoti í síðari hálfleik.
Þórsliðið bjó þó yfir ákveðnari
vilja og slíkt er alltaf mikilvægt
í leik.
+
En nú er æska Akureyrar hef-
ur fengið svo góðan völl til um-
ráða, sem raun ber vitni, ætti
þess ekki að verða langt að bíða,
að þar komi upp sterkt kapplið.
Undirstaða þess að sterk lið komi
upp, eru góð vallarskilyrði. Þá
undirstöðu er að finna á Akur-
eyri — hitt á að koma frá leik-
mönnunum sjálfum. Með rnciri
æfingu, ákveðnari vilja og betra
skipulagi munu Akureyringar ná
langt í knattspyrnu. Þangað verð
ur gaman að koma og horfa á
kappleiki — sitjandi á áhorfenda
bekkjum, sem íþróttafélagsmenn
sjálfir byggðu í sjálfboðavinnu í
þakklætisskyni fyrir að fá til af-
nota og eígnar bezta knattíg>yrnu
völl landsins.
— A. St.
AelksEáOizstsi
BRÉFIÐ sem hér fer á eftir
barst Íþróttasíðunni í gær.
Það er birt hér, þó ritstjórn-
in sé algerlega á öndverðum
meið yið bréfritarann. Rit-
stjórnin telur að sá andi sem
þetta bréf er ritað í sé íþrótt- I
unum skaðlegur. Orðalag eins
og að manninum hafi verið
vísað út af „algerlega að
ástæðulausu" .... og .... „að
búið var að áminna þennan
mann tvisvar áður er algert
aukaatriði“ og fullyrðingar
eins og að „hér var um víta- J
verð mistök að ræða“ miða i
aldrei til lausnar neinum
vandamálum og verða ekki
íþróttunum til framgangs. ■
Svo hart er að orði komizt að
furðulegt er, ef dómarinn ósk- j
ar ekki rannsóknar á gerðum
sínuni; Þar við bætist að full-
trúi íþróttasíðunnar telur að
farið sé með rangt mál í bréf-
inu þegar talað er um hvernig
dómarihn hóf leik eftir að
vísað úfi af
leikmanni KR var vísað út af
vellinum. En hér er bréfið: ^
Hr. ritstjóri:
Ég var einn af þeim mikla
fjölda, er lagði leið sína út á
íþróttavöll til þess að sjá úrslita-
leik fslandsmótsins á milli Akra-,
ness og KR, og ég hafði mikla j
ánægju af að sjá hann, því þetta !
var tvímælalaust bezti kappleik- |
ur ársins, þar sem tvö innlend
lið léku. Það var reglulega gam- I
an að sjá, hve bæði liðin léku
vel og drengilega. Þess vegna
kom það mér á óvart, er dómari
leiksins greip inní er 10 mín.
voru eftir af leik og visaði ein-
um af liðsmönnum KR út af vell-
inum, algjörlega að ástæðulausu,
því þarna var aðeins um venju-
lega baráttu um knöttinn að
ræða, þar sem báðir aðiljar vildu
ná tökum á honum, ef þess væri
nokkur kostur, og í því augna-
miði teygja þeir sig í hann eins
Framh. á bls. 12
EvrópsiBfisiðlaraitiótið
Asmyndur k©mst
í undanúrslit
Zalopek-hjónin melstarsr
EVRÓPUMEISTARAMÓTIÐ í frjálsíþróttum var sett í^Bern í
Sviss í gær með mikilli viðhöfn. Gengu nær þúsund keppendur
fylktu liði inn á leikvanginn í stafrófsröð ríkjanna. Var nokkur
úrkoma er aetningin fór fram, en veður að öðru leyti gott. Burg-
leigh lávarður forseti alþjóða-frjálsíþróttasambandsins flutti setn-
ingarræðuna, en forseti Sviss setti síðan mótið.
í gær fóru fram undanrásir
i 100 m hlaupi. í 8. riðli hljóp
Ásmundur Bjarnason og varð
hann annar í sínum riðli á 11,1
sek. Kemst hann þar í undan-
úrslit. í skeytum þeim er Mbl.
barst er ekki minnzt á Guð-
mund Vilhjálmsson, og þar
með hefur hann ekki komizt
í undanúrslitin.
Undankeppni fór og fram í
þrístökki. Komust 9 menn í
úrslit og er Vilhjálmur Einars
son ekki á meðal þeirra. Er
því ekki kunnugt um hve
langt hann stökk.
KEPPNISGREINAR
Auk þessara greina fór fram
keppni í 800 m hlaupi (undan-
rás), 800 m hlaupi kvenna (und-
anrás), 10 km hlaupi, spjótkastj,,
kvenna, 400 m hlaupi (undanrás),
110 m grindahlaupi (undanrás),
hástökki kvenna (forkeppni) og
maraþonhlaupi.
Urslit í maraþonhlaupi urðu
þau að Karvonen Finnlandi sigr-
aði, næstir komu Rússarnir Grisl-
hav og Filin. í 10 km hlaupi varð
Zatopek Evrópumeistari og í
spjótkasti kvenna Zatopekova
Tékkóslóvakíu.
Úrslit frá deginum í gær:
10 km hlaup: Evrópumeistari
Zatopek Tékkóslóvakíu 28:58,0'
2. Kovacs Ungverjal. 29:09,8 (?)',
3. Schabo Ungverjal. 29:29,2, 4.
Schade Þýzkal. 29:52,8, 5. Miha-
Fra-nh. á bls. 12
I gær kom 3. flokkur KR heim úr keppnisför sinni til Danmerkur
þar sem þeir sigruðu á eins konar Norðurlandamóti 3. flokks. Al’s
léku drengirnir 10 leiki. Unnu þeir 6 þeirra, gerðu 3 jafntefli og
töpuðu 1 leik og Skoruðu 28'mörk gegn 11. Hér er skrá yfir alla
leiki drengjanna ytra.
4. ágúst í Hilleröd K.R. —- FIF 0—0
7. — í Karise K.R. — Karise Idr. Klubb 6—0
8. — í — K.R. — VIF frá Stockholm 5—0
9. — í — K.R. — MSS frá Helsingfors 5—4
12. — í Bagsværd K R. — VIF frá Stockholm 4—0
14. — í — K.R. — MSS frá Helsingfors 3—0
14. — í — K.R. — BIF frá Bagsværd 2—1
15. — í — K.R. — SIF frá Stavanger 1—1
16. — í Malmö K.R. — Malmö FF 1—4
19. — í Bagsværd K.R. — AB Kaupmannahöfn 1—1
Malmö FF stýrkti lið sitt með 3 mönnum úr 2. flokki.