Morgunblaðið - 10.10.1954, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 10.10.1954, Qupperneq 8
8 MORGVTSBLÁÐIÐ Sunnudagur 10. okt. 1954 imtMðfrife Útg.: H.í. Árvakur, Reykjavík. Framkv.stj.: Sigíús Jónsson. Ritstjóri: Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.) Stjórnmálaritstjóri: Sigurður Bjarnason frá Vigur. Lesbók: Árni Óla, sími 3045. Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson. Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla: Austurstræti 8. — Sími 1600. Áskriftargjald kr. 20.00 á mánuði innanlands. í lausasölu 1 krónu eintakið. Hversvepa ráðgera þeir þing- meirihluta Sjálístæðisflokksins EF athugaðar eru umræður um íslenzk stjórnmál á því sumri,1 sem nú er liðið kemur það í ijós, I að í gegnum þær gengur einn rauður þráður: Ráðagerðir and- stæðinga Sjálfstæðisflokksins um að líklegt sé, að þess sé ekki langt að bíða að hann fái hreinan meiri hluta á Alþingi. Þetta verður m. a. greinlega Ijóst af grein, sem formaður Fram sóknarflokksins ritaði í blað sitt 17. júní s.l. Þrátt fyrir það, að formaðurinn vandi Sjálfstæðis- mönnum ekki kveðjurnar og noti þjóðhátíðardaginn til miður há- tíðlegra hugleiðinga ,verður auð sætt, að undiralda bollalegginga hans er óttinn við vaxandi fylgi og traust Sjálfstæðisflokksins. Á flokksþingi Alþýðuflokksins í siðasta mánuði snérist svo meg- inhluti setningarræðu hins frá- farandi formanns flokksins um þá stórkostlegu sókn, sem Sjálfstæð- isflokkurinn væri í. Til þess að stöðva hana væri eiginlega ekk- ert ráð nema helzt það, að Alþýðu flokkurinn, Framsókn og „Þjóð- vörn“ tækju höndum saman við kommúnista. Loks lýsir Tíminn því svo yfir 2. þ. m. að 9 þing- sæti Framsóknarflokksins í eftir töldum kjördæmum séru í bráðri hættu fyrir sókn Sjálfstæðis- flokksins: f Mýrasýslu, Dalasýslu, Vestur- ísafjarðarsýslu, Vestur-Húna- vatnssýslu, báðum Múlasýslum og Austur-Skaptafellssýslu. Hvað felst nú eiginlega í þessum ráða- gerðum andstæðinga Sjálfstæð- ismanna um væntanlega stórsigra flokksins á næstunni? Fyrst og fremst það, að þeir hafa gert sér það ljóst, að með- al alls almennings í landinu ríkir mjög aukinn skilningur á hinu þjóðnýta starfi, sem Sjálf stæðisflokkurinn hefir unnið í þágu lands og lýðs undanfarin ár. Tortryggni gagnvart flokknum meðal hinna vinn- andi stétta, hefur minnkað að miklum mun og hræðslan við „Íhalds-Grýiuna“ er horfin. — Fólkið dæmir Sjálfstæðisflokk inn með öðrum orðum eftir verkum hans en ekki eftir sleggjudómum óbilgjarnra andstæðinga hans. í öðru lagi ræður það miklu um ótta andstæðinganna við meirihluta Sj álfstæðisf lokksins, að stöðugt fleiri kjósendur öðlast þá sannfæringu, að samstjórnar- skipulagið sér að ganga sér til húðar í landi okkar. Nauðsynlegt sé að fá einum flokki meirihluta aðstöðu til þess að heilbrigt stjórnarfar geti skapazt í land- inu. Og nú trúir fólkið því, að Sjálfstæðisflokkurinn geti öðlast þingmeirihluta. í síðustu kosning um vann hann 4 ný kjördæmi og örlitlu munaði að hann ynni sex þingsæti til viðbótar. í bæj- arstjórnarkosningunum, sem fram fóru um síðustu áramót, vann flokkurinn svo stórsigur, ekki sízt hér í Reykjavík, þar sem hann bætti við sig mikið á fjórða þúsund atkvæðum frá þingkosn- ingunum. Við þetta bætist svo enn það, fið andstæðingarnir vita, að í öll- um kjördæmum landsins hafa menn verið að yfirgefa raðir þeirra undanfarna mánuði og ganga í lið með Sjálfstæðismönn- um. Andstæðingar Sjálfstæðisflokks ins gera sér Ijóst, að þetta ger- ist vegna þess, að fólkið byggir auknar vonir á því, að Sjálfstæð- isflokkurinn beri hagsmunamál þess fram til sigurs, stuðli að bættri aðstöðu þess í.lífi og starfi. Það er ákaflega þýðingarmik- ið fyrir þróun íslenzkra stjórn mála, að örugg meirihluta- stjórn geti sem fyrst skapast í landinu. Þjóðin þarf að vita hvar hún stendur á hverjum tíma, hverja hún á að draga til ábyrgðar fyrir það, sem miður fer í opinberu lífi henn- ar og hverjum hún ber að þakka það, sem vel er unnið. Hún hefur alltaf möguleika til þess að skipta um forystu, fá nýjum mönnum og flokkum forystuna, ef hún teldi að meirihlutastjórn Sjálfstæðis- fIokksins hefði brugðist trausti sínu og vonum. Alþýðusambands- kosningarnar KOMMÚNISTAR láta blað sitt bera sig mjög mannalega yfir því að þeir séu að vinna á í Al- þýðusambandskosningunum. En hvar hafa þeir eiginlega unnið á? Það væri fróðlegt að fá þeirri spurningu svarað. Þeir hafa e. t. v. fengið tvo eða þrjá fulltrúa kjörna í félögum, sem áður kusu lýðræðissinna. En lýðræðissinnar hafa einnig fengið kjörna full- trúa í nokkrum verkalýðsfélög- um, sem kusu kommúnista á síð- asta þing sambandsins. Það er athyglisvert, að á þeim stöðum, sem kommúnistar segja nú að „samfylking“ sé milli þeirra og Alþýðuflokksins, voru yfirleitt kosnir kommúnistar við síðustu kosningar. Á það t. d. við verkalýðsfélögin á Akureyri og á Siglufirði. Og þar sem komm únistar hafa yfirtökin hleypa þeir yfirleitt ekki fulltrúum frá öðr- um flokkum inn á framboðslista sinn. Þannig framkvæma þéir sína margumtöluðu „einingu verkalýðsins." Það er þannig auðsætt, að kommúnistar hafa síður en svo unnið á við þessar kosningar til Alþýðusambandsþings. Eina von þeirra um áhrif og völd í heildar- samtökum verkalýðsins byggist á því, að nægilega margir Hanni- balar nái kosningu og fáist til þess að svíkja launþegasamtökin í hendur hinnar rússnesku fimmtuherdeildar. En ennþá er allt á huldu um það, hve margir vilja verða til slíks óhappaverks.' I Mikill meirihluti lýðræðis-' sinnaðs fólks í verkalýðsfélög- unum hefur starfað saman gegn kommúnistum eins og áður. Og Alþýðublaðið hefur tekið eindregna afstöðu gegn allri samvinnu við kommún- ista í verkalýðsmálum. Ekkert aðhaf zt við norska skipið KEFLAVÍK: — Enn er veður svo hvasst, að ekki hafa verið að- stæður til að gera tilraun til að gera tilraun til að ná norska skip inu, Magnhild út af strandinu. Botn skipsins rnun eitthvað hafa orðið fyrir skemmdum og leki í sikipinu er um botngeyma. Strax og veðrinu slotar, mun mjölið sem í það er komið, verða tekið úr því, skipið létt svo sem kostur er og síðan gerð tilraun til að ná því á flot. Ef það tekst, sem menn eru vongóðir um, verð- ur skipið dregið til Reykjavíkur til viðgerðar. BERLIN, 5. okt. — Borgarstjóri V-Berlínar féllst á það í dag að leyfa kommúnistaflokknum að taka þátt í bæjarstjórnarkosning um í des. n.k. Flokkurinn hefur ekki haft menn í framboði til bæjarstjórnarkosninga síðan 1946. — Ekkert bæjarfélag leggur eins mikið íram til stuðnings fólki í húsnæðisvandræðum og H.-vík EINS og skýrt var frá á bæjar- stjórnarfundi s.l. fimmtudag leit- uðu alls 204 fjölskyldur eftir að- stoð bæjarins um s.l. mánaða- mót út af húsnæðisvandræðum. Meiri hluti þessa fólks þurfti svo ekki aðstoðar við, heldur fékk íbúðir af eigin rammleik. Það gerist algengt að þegar fólk fær uppsagnir á húsnæði, þá spyrst það fyrir hjá Reykjavíkurbæ en fær svo íbúðir síðar á venjulegan hátt. Ýmsar tekjuháar og vel efn- um búnar fjölskyldur leita til bæjarins á þennan hátt en vita- skuld er það ekki bæjarfélagsins hlutverk að leggja fram fé fyrir slíkt fólk. Allar slíkar fyrirspurn- ir og eftirgrenslanir eru innifald- 1Jelvahandi óhripar: Dúfufréttin vakti óhug. MARGIR Reykvíkingar lásu með nokkrum óhug og undr- un fréttina um drukknuðu dúf- una, sem birtist hér í blaðinu í fyrradag, enda er hér um ein- stakt atvik að ræða. Sumir eiga jafnvel bágt með að trúa að slík fúlmennska hafi hér verið að verki, sem gefið er í skyn í frétt- inni. Færi betur að svo væri — eh því miður virðist full ástæða til að ætla að rétt sé þar til getið. Fuglasnörur í görðum. MAÐUR nokkur sem býr í einu úthverfi bæjarins hringdi í okkur á ritstjórninni þennan sama dag, sem fréttin birtist og fórust honum orð eitthvað á þessa leið: „Ég hefi iðulega séð stálp- aða krakka leggja fuglasnörur í húsagarðana heima hjá sér. Þeir virðast komast upp með þetta óátaldir af foreldrum sínum og sætir það ekki lítilli furðu. Þá hefi ég og ósjaldan séð væng- stifðar dúfur flöktandi um — og þá jafnan gert Dýraverndunar- félaginu eða lögreglunni aðvart. tí' Fordæmi hinna fullorðnu. JÁ, víst er það ljótt afspurnar og því hörmulegra, sem það kemur greinilegar í ljós, að hinir fullorðnu gera sig samseka í ófétishættinum. Maður reynir oft að hugga sig við það, að verkn- aði eins og dúfumorðið, sem að ofan greinir, megi telja til af- sakanlegra barnabreka og ung- gæðisháttar. Að vísu er slíkt alls ekki gild afsökun. — Ungur nem- ur, gamall temur — segir gamla máltækið og við hverju getum við ekki búizt af börnum og ungl- ingum í þessu efni, sem alast upp við skeytingarleysi og harð- brystni gagnvart hinum mállausu dýrum, sem eru að meira eða minna leyti komnir upp á náð mannanna. Það verður því aldrei ofhrýnt fyrir foreldrum og öðru fullorðnu fólki að inn- ræta börnunum frá því fyrsta nærgætni og elsku til dýranna •— með því er um leið hlúð að ýms- um hinum göfugustu hvötum, sem með manninum búa. Fékk reyniberjaklasa í andlitið. ÞETTA er nú eitt með því lak- ara, sem ég hefi komizt í“ — sagði ung stúlka við mig á föstu- dagskvöldið — nýkomin að utan. „Ég fékk stærðar reyniberjaklasa beint framan í mig, er ég í mesta grandleysi gekk á götunni. Ég vissi ekki hver ósköp höfðu dunið yfir, hafði einhver gefið mér svona hressilega á hann — og þá fyrir hvað í ósköpunum? — Nei, ég sá í næstu andrá fagurrauðan reyniberjaklasann við fætur mér — og ég þóttist vel hafa sloppið, en anzi var þetta harkalegt samt.“ Ég trúði stúlkunni mæta vel — þetta voru engin smáræði, sem á gengu í höfuðskepnunum á föstu daginn — og víst er um það, að margur reyniberjaklasinn hefir losnað af sínu móðurtré þann óveðurs daginn. Gul og sölnuð trjálaufin feyktust í hundraða — og þúsundatali eftir götum og gangstéttum — enginn griður gefinn fyrir hinum grálynda hauststormi. Alþingi kemur saman. JÁ, þetta er allt í áttina — vetur gamli þokast nær og nær — hlutirnir færast í sínar vissu vetrarskorður. í gær kom hið háa Alþingi saman til reglulegs fund- ar og mun setjast á rökstóla eftir helgina. Nóg verða vandamálin til að fást við sem áður og nóg verður vafalaust um deilumál eins og fyrri daginn. Vafalaust vilja allir háttvirtir þingmenn láta sem mest gott af sér leiða fyrir land og lýð — maður sem með öðruVísi hugarfari er í þingsali kominn er þingmannsstöðunnar óverðugur. Annars mætti ætla að hið nýbyrj- aða Alþingi verði sæmilega rólegt — kosningar eru engar á næstu grösum til að ýta undir ybbingar hinna ýmsu stjórnmálaflokka, þess betra tóm ætti að gefast til að beita sér friðsamlega að þeim vandamálum, sem bíða úrlausnar Alþingis. Til þess eru lög, boðorð séu haldin. ar í tölunni 204, sem nefnd er að ofan. Niðurstaðan hefur orðið sú, að um 20 fjölskyldur eru eins og stendur í húsnæðisvandræðum af þeim, sem til bæjarins hafa leitað og getur það ekki talist óeðlilegt enda ekki liðnir nema 9 dagar af október. VANDRÆDIN — PÓLITÍSK NAUÐSYN KOMMÚNISTA Kommúnistar eru að reyna að gera sér mat úr vandræðum fólks hér í bæ út af húsnæði. Álasa þeir bæjarfélaginu fyrir þessi vandræði og er það auðvitað gert í pólitískum tilgangi. En það sanna er, að ekkert bæj- arfélag á landinu gerir neitt svipað því eins mikið til að létta vandræði út af húsnæðisskorti eins og .Reykjavík. Vill Þjóðviljinn ekki til dæmis npplýsa hvaða flokksbróðir eða hálfbróðir þeirra í Kópavogs- hreppi hefur gert í þessu efni? Það mun reyndar vera svo sem ekkert. Vandræði, hvort sem eru hús- næðisvandræði eða önnur eru pólitísk nauðsyn fyrir kommún- ista og í rauninni kæra þeir sig alls ekkert um að úr vandræð- unum sé bætt. Sig. Guðgeirsson kommún- isti kom fram með fyrirspurn á síðasta bæjarstjórnarfundi um það hve aðstoð bæjarins við fólk í húsnæðisvandræð- um hefði kostað mikið. Auð- vitað var spurt í þeim tilgangi að gagnrýna svo á efíir hve aðstoðin hefði verið dýr. Þann ig er það hjá kommúnistum, að í Þjóðviljanum er látið heita svo að hjálpa eigi en svo má hjálpin eða aðstoðin ekk- ert kosta, þegar á reynir og bæjarfélaginu svo álasað fyrir of mikla aðstoð, eins og dæm- in hafa sýnt! Bæjakeppnin: Hörður Felixsson skýrir mál sitt IGREIN Ríkharðs Jónssonar í Morgunblaðinu föstudaginn 8. okt. um bæjarkeppnina Reykja vík-Akranes er vikið nokkrurn orðum að viðskiptum okkar Rík- harðs á leikvellinum og einnig að framferði mínu eftir leikinn. Þar eð ég veit, að sumt af þvl, sem um mig er sagt í greininni, er á misskilningi byggt, vil ég ieiðrétta þann misskilning með mestu vinsemd. Ríkharður segist harma það, að ég skyldi láta eitt dagblaðanna hafa það eftir mér, að hann hafi slegið mig hnefahögg. Ég get fuil- vissað hann um, að þessi tilvás- un blaðamannsins er alveg út í hött og alls ekki eftir mér höfð. Þar eð slúðursögur um aðdrag- anda þessa umtalaða „áreksturs" okkar Ríkharðs hafa flogið um bæinn undanfarna daga, vil ég taka fram eftirfarandi: — Ég veit ekki til þess að okkur hafi farið neitt á milli fyrir þennan atburð, eins og margir halda fram. í árekstrinum hlaut ég högg undir bringspalirnar og stóð á öndinni um stundarsakir. Ég get ekkert um það sagt, hvort ég hlaut þetta högg af olnboga Ríkharðs eða á einhvern annan máta. Að öðru leyti álít ég, að dómarinn sé sá aðilinn, sem bezta aðstöðu hafði til að fylgjast með Framh. á bls. 12.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.