Morgunblaðið - 01.12.1954, Side 2
Miðvikudagur 1. des. 1954
MORGUNBLAÐIÐ
I aflampagerBsn á Suður- j Fimleikafélag Hafnar
götu 3 20 ára í dag
Elgendurmr byjurðu í litlum ukúr, en hafa j
nú komið upp verksfcsðí búið fisll-
kornnum véíum
IDAG ER EITT vel þekkt verzlunarfyritæki bæjarins, Raf-)
lampagerðin á Suðurgötu 3, 20 ára. Þótt segja megi að fyrir- '
tækið sé ungt að árum, er það ótrúlega vel þekkt af bæði Reyk-
víkingum og öðrum landsmönnum, og er það vegna hinna alkunnu
vörugæða þess. f
BYRJUÐU MEÐ LITIÐ
Eigendur Raflampagerðarinnar
eru Kristþór Alexandersson og
Þorsteinn Hannesson. Stofnuðu
þeir fyrirtækið 1. des. 1934, og
þá af heldur litlum efnum, en
juku bráðlega starfsemina eftir
því sem árin liðu. Báðir voru
þeir málarar áður en þeir lögðu
þetta starf fyrir sig, en á þeim
árum var heldur lítið að gera við
þá iðn, sérstaklega að vetrinum,
og fóru þeir félagar þá að búa til
lampaskerma og lampa í frí-
stundum sínum. Gekk það til svo
í eitt ár, en þá stofnuðu þeir
Raflampagerðina.
FYRST f LITLUM SKÚR
Fyrsta húsnæði Raflampagerð-
arinnar var lítill skúr að Þórs-
götu 26. En bráðlega óx fyrir-
tækið upp úr þeim húsakynnum
og næsta aðsetur þess var að
Hverfisgötu 4, þar sem það leigði
húsnæði hjá Garðari Gíslasyni.
Hafði það þar allgóða aðstöðu og
var þar um hríð. Þó kom þar að
framleiðslan var orðin það mikil,
að enn varð að færa út kvíarnar.
SUÐURGATA 3
Þá réðust þeir Kristþór og
Þorsteinn í að kaupa húsið Suð-
urgötu 3, þar sem Raflampagerð-
in nú hefur aðsetur sitt. Hafa
þeir búið vel um sig þar, komið
upp verkstæði með fullkomnum
vélum, rúmgóðum vinnustofum
og smékklegri verzlun. Er jafn-
an mikið að gera við verzlunina
og hefur þegar bezt hefur geng-
ið 12 manns verið starfandi við
fvrirtækið.
ALLAR HÚSVÉLAR
Auk þess að í verzluninni eru
seldar allar tegundir rafmagns-
lampa, Ijósakrónur, skermar og
fjarSar 25 éra
HAFNARFIRÐI — Fimleikafélag
Hafnarfjarðar átti 25 ára aímæli
29. október s.l. og verður þess
minnst með hófi í Alþýðuhúsinu
n.k. laugardag 4. des. Hefst það
með sameiginlegu borðhaldi kl.
7 síðd.
Á þessum 25 árum, sem félagið
hefir starfað hefir það staðið í
fremstu röð hérlendra íþrótta-
félaga. Hafa íþróttamenn FH jafn
an staðið sig með prýði á íþrótta
mótum og félagið eignast marga
íslandsmeistara. í upphafi voru
eingöngu iðkaðir fimleikar og
frjálsar íþróttir, einkuru hlaup
og stökk, en síðar knatts) 'yrna og
handknattleikur. Á síðs :i árum
hefir félagið einkum gutið sér |
góðan orðstír í frjálsum íþróttum !
og handknattleik. — Margir hafa
lagt gjörva hönd á félagsstarfið,
og er þá helzt að nefna þá Hall-
stein Hinriksson kennara og
Gísla Sigúrðsson lögregluþjón,
sem hafa verið driffjöðrin í
allri starfsemi félagsins frá upp-
hafi og eru það enn.
Næstu daga verða ýmsir verð-
launagripir, myndir o. fl. til sýnis
í verzlun Geirs Jóelssonar. —
Núverandi formaður Fimleika-
félags Hafnarfjarðar er Valgeir
Óli Gíslason. — G. E.
Þorsteinn Hannesson.
//
Maður slasas! er
fflr hann
í GÆR var slökkviliðið kvatt
þrisvar á vettvang. Var í tveim
tilfellum um eld að ræða, en slys
í eitt skiptið. Var fyrsta útkallið
að Bústaðaveg 6. Hafði kviknað
þar í strauvél. Tókst fljótlega að
slökkva eldinn sem var aðeins
í vélinni sjálfri. Urðu engar
skemmdir á húsinu.
VARÐ UNDIR MOLDAR-
BAKKA
Um miðjan dag í gær, var
slökkviliðið beðið um aðstoð við
að flytja slasaðan mann, er slas-
azt hafði við vinnu sína. Var það
Guðmundur Þorsteinssorf til
heimilis að Háteigsveg 19. Hafði
hann verið að vinna við skurð-
gröft, er moldarbakki féll yfir
hann. Var hann þegar fluttur á
Landsspítalunn. Kom þar í ljós
að hann hafði viðbeinsbrotnað og
rifbeinsbrotnað á nokkrum rifj-
um. Spurðist Mbl. fyrir um líðan
hans á Landsspítalanum seint í
gærkvöldi, og var hún sæmileg.
ELDUR f PORTI
í gærkvöldi klukkan rúmlega
8, var Slökkviliðið kvatt að
Bankastræti 2. Var þar um að
ráeða eld í kassadrasli inni í
pprti. Var eldurinn slökktur þeg-
ar og hlutust eingar skemmdir
af honum.
Þorsteinn Hannesson
allt þar að lútandi, hafa eigend-
urnir aukið við verzlunina öllum
tegundum húsvéla, svo sem kæli-
skápum, hrærivélum o. s. frv. —
Einnig postulíns- og glerbúsáhöld
um og ýmissum öðrum varningi
til híbýlaprýði.
Starfsemi Raflampagerðarinn-
ar hefur verið allt frá upphafi
mjög farsæl og má vænta að svo
verði í framtíðinni.
Tiið
Framh. af bls. 1
ekki bætt sambúð okkar við þær,
á kostnað bætts samkomulags við
vestænar þjóðir", sagði marskálk
urinn.
Tito flutti þessa ræðu í Trieste.
Hann tilkynnti einnig að hann
teldi að jafnvægi væri nú í valda- .
átökunum i Evrópu og að hann
myndi ekk\ gerast aðili að At-
lantshafsbandaláginu, né öðrum
samsteypum í Evrópu, sem rask-
að gætu þessu jafnvægi.
Hýr lasknir og Ijós-
móðir í Ámeshreppl
GJÖGRI, Árneshi'eppi, 11. nóv. —
Frú Jensína Óladóttir, fyrrver-
andi ljósmóðir lét af störfum frá
1. okt. s.l. Hún hefir verið starf-
andi Ijósmóðir hér í Árneshreppi
aldarfjórðung. Mikilhæf, vinsæl
mjög og heppin í starfinu. Við
ljósmóðurstarfinu tekur ungfrú
Guðfinna Jónsdóttir frá Reykja-
nesi.
í haust fengúm við ungan
lækni, Skúla Helgason. Situr
hann í Djúpavík. Læknar hafa
unað illa hér norðan Trékyllis-
heiðar.
Tíðarfarið var mjög hagstætt
og gott framan af sumrinu eða
þar til seint í júní, svo og ein
vika í ágústmánuði var góð. Þess
utan má heita að tíðin hafi verið ;
hin versta. í sumar var oft alhvít
jörð niður í sjó, þó það þvatraði
af á daginn.
Heyfengur var þó nokkur að
nafninu til, en mikið af heyi og
sumt stórskemmt. Vothey með
meira móti. Kýr komu inn á fulla
gjöf um 12. sept. og muna elztu
menn varla eftir slíku.
Sumstaðar fór sauðfé á gjöf um
20. október og var bá ekki um
beit að ræða nema fjörubeit.
Gæftir hafa verið afar slæmar
og ekki gefið á sjó nema dag og
dag með löngu millibili, en þá
hefir fiskast sæmilega,
— Regina.
Alltaf gaman að fara
meb ný hlutverk"
Þorsfeinn Hannesson áperusöngvari fer
með aðaíhlutverk í óperunni Paliacci
ÞORSTEINN HANNESSON óperusöngvari er fyrir skömmu kom-
inn hingað til lands. Mun hann syngja hlutverk Canios í óper-
unni Paliacci (Bajazzo) eftir Leomcacallo, sem Þjóðleikhúsið hyggst
sýna nú um jólin. Þorsteinn mun halda hljómleika fyrir norðan, á
Siglufirði og Akureyri, og ef til vill í Reykjavík.
MALENKOV og Molotoff og
fleiri ráðherrar Sovétríkj-
anna brugðu venju undan-
farinna ára og heimsóttu á
sunnudaginn sendiherra
Júgóslava í Moskvu í tilefni
af þjóðhátíðardegi Júgóslava.
Samspil við þessa heimsókn
kom frá leppríkjum komm-
únista, en þar var þenna
sama dag mælzt til vináttu
við hina útskúfuðu Komin-
formþjóð. Hafa Júgóslavar
annars vegar og Pólverjar og
Tékkar hins vegar skipzt á
ambassadorum.
Hjálparbeiðni
AÐFARANÓTT sunnudagsins 21.
nóvember brann braggi F3 í
Camp Knox. Hjónin þar, Jens
Pálsson og Guðbjörg Gísladóttir
bjuggu út braggann sjálf að inn-{
an og var Jens búinn að eyða í (
það vinnu og fé og var að endaj
við þetta verk, sem búið var að j
taka langan tíma þegar eldurinn
eyðilagði braggann, öll búsáhöld
og öll föt að mestu. — Konan
meiddist í þessum eldsvoða og er
nú á sjúkrahúsi. — Börn þeirra
eru tvö, 12 ára og 5 ára. Þau
sluppu ómeidd. Hjón þessi eru
algjörlega eignalaus.
Morgunblaðið hefur góðfúslega
lofáð að taka við samskotum frá
þeim sem vildu minnast fjöl-
skyldunnar í þessum bágindum.
'• Jón Thorarensen.
SÖNGVARARNIR HEIM,
ER TAKMARKIÐ
Guðlaugur Rósinkranz þjóð-
leikhússtjóri bauð blaðamönnum
í gær á’ fund með Þorsteini
Hannessyni óperusöngvara. Kvað
þjóðleikhússtjóri það vera sér
mikla ánægju að hafa fengið Þor-
stein til þess að syngja í óperu í
Þjóðleikhúsinu. Sagði hann það
vera takmark Þjóðleikhússins að
fá sem flesta af hinum ágætu ís-
lenzku söngvurum til þess að
syngja á sviði Þjóðleikhússins.
Og vonandi yrði ekki langt þang-
að til Þjóðleikhúsið hefði aðstöðu
til þess að ráða í sína þjónustu
þá ísl. söngvara, sem til þessa
hefðu orðið að starfa að list sinni
erlendis.
SUNGIÐ í 15 ÓPERUM
Þorsteinn Hannesson sagði það
ekki síður vera sína ánægju að
fá tækifæri til þess að syngja
hér á landi í óperu.
Þorsteinn hefur verið fastráð-
inn söngvari, hetjutenor, hjá
Covent Garden óperunni í Lond-
on síðan 1948. Hefur hann sungið
þar aðalhlutverk í 15 óperum.
Hefur hann öðlazt mikinn frama
þar og orðinn vel þekktur í Eng-
landi fyrir söng sinn. Hann- er
ættaður frá Siglufirði og hóf
söngnám sitt hjá Sigurði Birkis
söngmálastjóra. Síðan fór hann
utan til Englands og stundaði
nám þar. Þegar Þorsteinn hafði
lokið námi sínu fékk hann at-
vinnuleyfi til þess að syngja við
Covent Garden óperuna. Annars
er ákaflega erfitt að fá atvinnu-
leyfi í Englandi fyrir söngvara.
Mun Þorsteinn vera eini erlendi
söngvarinn við Covent Garden,
sem hefur verið þar fastráðinn
um lengri tíma. En ekki hefur
hann verið fastráðinn við óper-
una þetta ár, söng þar sem gestur
s.l. vor. Þess vegna hefur honum
reynzt það kleift að koma hingað
til íslands og syngja hér, því það
er ekki mögulegt að fá sig lausan
hjá hinum erlendu óperum í 2—3
mánuði á miðju leikári.
20—30 ÓPERUR Á ÁRI
Þorsteinn sagði, að við Covent
Garden væri árlega fluttar 20 til
30 óperur og sífellt verið að
skipta um viðfangsefni. Sama
óperan væri að jafnaði ekki flutt
nema 5—10 sinnum í röð, en síð-
an lögð til hliðar og tekin upp
aftur síðar á árinu eða ekki fyrr
en næsta ár. Þorsteinn hefur að-
allega sungið óperur eftir Vagn-
er. Hann sagði að uppáhaldshlut-
verk sitt væri Florestan í Fidelioi
eftir Beethoven.
AÐ BRÆÐA SNJÓINN ....
— Ég hef aldrei sungið Canicl
(í Paliacci) fyrr, sagði Þorsteinn,
en það er alltaf gaman að fara
með ný hlutverk. Og það ætti að
geta náð mesta hrollinum úp
fólkinu að hlusta á tvær suðræn-
ar og heitar óperur svona S
skammdeginu og bræða snjóinni
— ef það verður þá nokkur snjórt
um jólin!
Óperan Paliacci, sem einnig eu
kunn undir nafninu Bajazzo,
verður frumsýnd á annan dag
jóla. Með önnur aðalhlutverk
fara hin sænska óperusöngkona
Stina-Britta Melander, sem fer
með hlutverk Neddu og Guð-
mundur Jónsson óperusöngvari,
sem fer með hlutverk Tonio. —•
Leikstjóri verður Simon Edward-
sen, en hann hefur stjórnað öllutn
þeim óperum, sem Þjóðleikhúsið
hefur sett á svið.
FORSALA Á MIÐUM
Þjóðleikhússtjóri gat þess sér-
staklega að sú venja væri höfð í
Þjóðleikhúsinu að strax á haust-
in, þegar hann hefur skýrt frá
því hver verði viðfangsefni leik-
hússins á haustinu og fyrri hluta
vetrar, að þá sé hægt að panta
miða á sýningar á þeim. Sagði
| hann, að talsvert væri nú þegar
selt af miðum á tvær fyrstu sýn-
ingar óperanna, og bað fólk að
nota sér þessa forsölu miða sem
allra mest. Það væri til þæginda
fyrir báða aðila.
Lagarfoss lestar fiskimjöl
á Akranesi
AKRANES, 27. nóv. — Lagar-
foss kom í morgun og lestaði
bér 100 lestir af fiskimjöli. Hefur
hann undanfarið lestað fiskaf-
urðir á höfnum úti á landi. Héð-
an fer Lagarfoss til Reykjavíkur
og Hafnarfjarðar og þaðan til
Rússlands. — Oddur. ,