Morgunblaðið - 04.12.1954, Síða 2
2
MORGVNBLAÐiÐ
Laugardagur 4. desember 1954
— Ræða borgarstjóra um ijárhagsóætlun Reykjavikur
Framh. af bls. 1
\ millj., sem bæjarstjórn
1 ákvað að hækka áætlunina
um í júlímánuði, samtals
90.4 millj.
1955: skv. frumv. 98.4 millj.
Hér er því um að ræða hækk-
va um 8 milljónir á heildarupp-
hæð útsvaranna frá því, sem á-
hveðið var í ár, eða tæp 9%.
Þessi hækkun útsvara er
nauðsynleg af ýmsum ástæð-
um, sem ég mun greina nán-
ar í sambandi við gjalda-
áætlunina. En ég vil taka það
skýrt fram, að ég geri ráð fyr-
ir að nota megi sama útsvars-
stiga árið 1955 til að ná inn
þessari upphæð eins og not-
aður var í ár. Vegna h’ækk-
aðra tekna, bæði hjá fyrirtækj
um og einstaklingum, tel ég
að svo megi verða. Þessi 8
milljón króna hækkun á heild-
arupphæð útsvaranna mun því
væntanlega ekki þýða neina
! hækkun útsvara á gjaldend-
1 um, miðað við sömu tekjur.
tJXSVARSSTÍGINN HEFUR
EARIÐ LÆKKANDI
Síðustu ár hefur útsvarsstig-
inn í Reykjavík verið lækkaður.
Arið 1953 var persónufrádráttur
hækkaður verulega og ýmsar
fleiri útsvarslinanir gerðar. í ár
var enn gerð veruleg lækkun á
útsvarsstiganum.
Til skýringar vil ég nefna
útsvar verkamanns með venjú
leg verkamannslaun, sem er
I kvæntur, með 3 börn.
1952 eru meðallaun verka-
• manns áætluð 30.400 kr.
(Jtsvar 1940 kr.
1953 áætluð laun 32.600.
Útsvar 1670 kr.
1954 áætluð laun 36.470 að
meðtöldum fjölskyldu-
bótum. Útsvar 825 kr.
,Ég mun þá víkja að nokkrum
liðum í gjaldaáætluninni.
KOSTNAÐUR VIÐ STJÓRN
KAUPSTAÐARINS
I. liður fjaílar um stjórn kaup-
Staðarins. Á þeim kostnaðarlið
verða litlar breytingar, nema
laun í skrifstofu bæjarverkfræð-
ings, sem hækka um ca. 400 þús.
krónur.
Ástæðan til þeirrar hækkunar
er fyrst og fremst veruleg hækk-
un á launum verkfræðinga, skv.
samkomulagi, sem gert var í
haust. Auk þess er gert ráð fyrir
nokkurri aukningu starfskrafta
(2 verkfr.).
Manntalsskrifstofan lækkar
hins vegar úr kr. 450 þús. í 250
þús. vegna þeirra breytinga, er
orðið hafa á starfssviði hennar.
I>ar sem ekki er komin næg
reynsla á hið nýja fyrirkomulag
við manntal og ekki heldur vitað,
að hve miklu leyti bærinn þarf
að hafa með höndum afgreiðslu
flutningstilkynninga o. fl„ þykir
ekki fært að gera ráð fyrir frek-
ari lækkun að sinni.
LÖGREGLUÞJÓNAR
Samkvæmt 1. gr. 1. um lög-
reglumenn nr. 50/1940, getur
ríkisstjórnin að fengnum tillög-
um bæjarstjórnar fyrirskipað,
að í bæjum, þar sem eru 1000
íbúar eða fleiri, skuli vera allt
að 2 starfandi lögregluþjónar á
hverja 1000 íbúa.
Hinar 17. júlí . 1942 ályktaði
bæjarráð, að það gæti fallizt á,
að lögregluþjónum bæjarins yrði
fjölgað svo, að 2 komi á hvert
þúsund íbúa, og var það síðan
fyrirskipað af ríkisstjórninni.
Nú eru bæjarlögregluþjónar
96 hjá lögreglustjóra og 19 hjá
sakadómara, en í áætlun er mið-
að við 120, svo sem vera ætti.
eldfæraeftirlit
. Vegna fyrirmæla í hinni nýju
bfunamálasamþykkt um aukið
eftirlit með olíukynditækjum,
réyndist nauðsynlegt að ráða
nýjan starfsmann til að annast
þetta eftirlit. Auk þe§s,hefur ein-
- manni; ep - áéuk -starfaði í
varðliðinu, verið falið að fara
með almennt eldvarnaeftirlit. í
síðustu fjárhagsáætlun var gert
ráð fyrir auknu eftirliti, sem
komið hefur til framkvæmda á
þessu ári, að nokkru leyti, en
það verður nú enn aukið. Þessi
liður hefur því hækkað.
BARNASKÓLAR —
LJÓS OG HITI
Hækkun á þessum lið stafar
af fjölgun skólanna og nokk-
urri hækkun rafmagnsverðs. —
Hækkun á ræstingarkostnaði
stafar af auknu skólahúsrými,
enda hefur sá liður reynzt heldur
lágt áætlaður undanfarið.
BÆJARBÓKASAFN
Hækkun á þessum lið úr 750
þús. í 850 þús. er vegna aukins
starfsliðs, er nauðsynlegt var
vegna endurskipulagningar safns
ins og aukins húsrýmis. Aðsókn
að safninu hefur stórlega aukizt
og er því óhjákvæmilegt að
hækka þennan lið, eins og fyr
getur.
SKEMMTIGARÐAR
Þessi liður hefur reynzt of lágt
áætlaður undanfarin ár og hækk-
un því um 100 þús. krónur. í
áætlunarupphæðinni er fólginn
bæði stofnkostnaður nýrra
skemmtigarða og rekstur þeirra,
sem fyrir eru. Endurbótin á
Hljómskálagarðinum verður þó
dýrust. Nefnd manna hefur gert
ýtarlegar tillögur um endurbæt-
ur á garðinum og hefur verið
hafizt handa um að framkvæma
þær á þessu ári og verður haldið
áfram á næsta ári.
ÍÞRÓTTASVÆÐI
Sá liður hefur í framkvæmd
reynzt of'lágt áætlaður, og verð-
ur því naumast hjá því komizt
að hækka hann úr 175 þús. í 225
þús. krónur.
SORPIIREINSUN —
SORPHAUGAR
Eftir ósk borgarlæknis hefur
verið tekinn upp nýr liður,
„sorphaugar", en í ráði er, að
framvegis verði sorpið grafið,
þ. e. a. s. þar til fyrirhuguð sorp-
eyðingarstöð kemst upp. Kostn-
aður við sorphauga var áður tal-
inn með sorphreinsun, en sá lið-
ur hefur einnig verið hækkaður
vegna fólksfjölgunar og útfærslu
byggðarinnar. Á síðasta ári komu
fram nýjar tillögur um fyrir-
komulag sorpeyðingarinnar og
var fyrri áætluninni þá frestað,
en búast má við að þeim verði
ekki breytt. Við 2. umræðu verð-
ur að samþykkja framlag til
sorpeyðingar.
HEILSUVERNDARSTÖÐ,
HJÚKRUNARDEILD
Hér er í áætluninni um raun-
verulega nýjan lið að ræða,
hjúkrunardeildina, sem er í
heilsuverndarstöðinni. Er hann
að upphæð kr. 600 þúsund. Er
gert ráð fyrir, að deildin taki til
starfa á næstu mánuðum og má
áætla, að þar geti orðið á árinu
um 17 þús. legudagar. Óvarlegt
mun vera að áætla halla af þess-
ari starfsemi pr. legudag minni
en um 35 krónur, sérstaklega á
því ári, sem starfsemi hefst. Hér
er um bráðabirgðaráðstöfun að
ræða þar til bæjarspítalinn kemst
upp.
HEILSUVERND
Hér er um nýjan lið að ræða,
sem felur í sér greiðslur vegna
heilsuverndarstarfsemi þeirrar,
sem verður rekin í heilsuvernd-
arstöðinni. Ber þá að athuga, að
niður fellur liður í síðustu fjár-
hagsáætlun, að upphæð kr. 280
þús., er greiddur var til Hjúkr-
unarfélagsins Líknar vegna
heilsuverndarstarfseminnar. Enn-
fremur fellur niður liður,
sem var styrkur til áfengisvarna-
stöðvar. Kostnaður við hrein-
lætis- og heilbrigðismál hækkar
í heild um 1.4 millj. krónur. Þess
má geta að framlag til „Líknar",
280 þús. krónur, fellur nú niður
Gunnar Thoroddsen,
borgarstjóri.
með því að Heilsuverndarstöðin
tekur við hlutverki þess félags.
Þakkaði borgarstjóri „Líkn“ ágæt
störf í þágu bæjarins.
SLYSAVARÐSTOFA
Vegna nýs fyrirkomulags og
mjög aukinnar starfsemi á þessu
sviði, þegar til starfa tekur hin
nýja slysavarðstofa í heilsuvernd
arstöðinni, hefur liður þessi ver-
ið hækkaður um 155 þús. krónur.
ALMANNATRYGGINGAR
Áætlað er, að gjöld skv. þess-
um lið hækki um tæpa V2 millj.
kr., eða kr. 488.000.00 — þar af
eru kr. 290.000.00 hækkun á fram
lagi til Sjúkrasamlags Reykja-
víkur og kr. 100.000.00 hækkun á
framlagi til almannatrygging-
anna. — Þetta eru eins og margt
fleira, lögákveðin útgjöld, sem
bæjarstjórn getur engin áhrif
haft á og er þýðingarlaust að
áætla þau lægri en efni standa
til.
FRAMFÆRSLA
Gert er ráð fyrir, að þessi lið-
ur hækki frá fyrri áætlun um
kr. 1.415.000.00.
Styrkur til manna 16—60 ára
hækkar um kr. 200.000.00. Veldur
því eingöngu hækkun á húsnæð-
iskostnaði, því að nú verða færð
á þennan lið öll útgjöld vegna
herskálaíbúða, sem styrkþegar
hafa til afnota, en ekki á sér-
stakan lið, óviðkomandi fram-
færslumálum, eins og áður var.
Húsaleiga hefur og hækkað nokk
uð, en hún er mjög stór liður í
heildarframfærslukostnaðinum.
Væri þessum ástæðum ekki til
að dreifa, myndi þessi liður
lækka verulega.
Styrkur til manna 60 ára og
eldri hækkar um kr. 500.000.00
og styrkur til sjúkra manna og
örkumla um kr. 300.000.00. Um
95% af þessum útgjöldum, sem
hækka samtals um kr. 800.000.00,
eru daggjöld gamalmenna og ör-
yrkja á hælum og elliheimilum
og hluti bæjarsjóðs af sjúkra-
húskostnaði berkla- og geðveik-
issjúklinga, að því leyti sem
tryggingarfé og greiðslur samkv.
lögum um ríkisframfærslu sjúkra
manna og örkumla hrökkva ekki
til. Nýlega hafa bætzt við tvær
stofnanir, sem taka við slíku
fólki, þ. e. Sólvangur í Hafnar-
firði og elliheimilið í Hveragerði.
Elliheimilið Grund hefur verið
stækkað og á árinu 1955 bætast
við um 40 sjúkrarúm í Heilsu-
verndarstöðinni. Ósamið er við
Starfsstúlknafélagið Sókn, en
hækkun á kauptaxta félagsins
hefur óhjákvæmilega í för með
sér hækkun á daggjöldum þess-
ara stofnana. — Með tilliti til
þessa þótti ekki varlegt að áætla
þessi útgjöld lægri.
Liðurinn framfærslulán o. fl.
er hækkaður um kr. 400.000.00.
— Er þar farið eftir reynslu árs-
ins 1954, en á því ári hefur fram-
færslunefndin veitt mikið af lán-
um til manna, sem ekki eru á
framfæri. bæjarins, -vegna húe-
næðisvandræða o. fl., og má gera
ráð fyrir, að haldið verði upp-
teknum hætti þar um.
SUNDLAUG VESTURBÆJAR
Bæjarráð skipaði tvær nefndir
til þess að hrinda byggingu sund
laugar í Vesturbænum í fram-
kvæmd, fjáröflunarnefnd, er nú
hefur lokið störfum og afhent
söfnunarfé að upphæð kr.
150.000.00 til byggingarnefndar,
er enn siiur að störfum. Bygg-
ingarnefnd hefur haldið fjölda
fjölda funda til undirbúnings að
byggingu laugarinnar. Samkv.
tillögu nefndarinnar hefur bæj-
arráð samþykkt að velja lauginni
stað við Hagamel. Unnið er að
teikningu laugarinnar og mun
henni lokið fyrir áramót og mun
þá bæjaráði'verða afhent teikn-
ingin ásamt greinargerð bygg-
ingarnefndar. Bæjarstjórn hefur
árin 1953 og 1954 áætlað 75.000
krónur hvort árið til byggingar-
innar og hefur fé það verið lagt
til hliðar. Ef bæjarstjórn sam-
þykkir að veita kr. 300.000.00 til
byggingarinnar á árinu 1955
verður handbært fé til þess að
hefja framkvæmdir kr. 600.000.00
að viðbættum 40%, er íþrótta-
sjóður ríkisins mun greiða til
verksins.
Fyrir þessa upphæð telur
byggingarnefnd að takast
megi að steypa sundlaugar-
þróna og gera búningsklefa
og önnur mannvirki, er laug-
inni tilheyra, fokheld á ári.
Fyrirhugað er að hefja bygg-
ingu sundlaugar Vesturbæjar
strax næsta vor, ef nauðsynleg
fjárfestingarleyfi fást.
STRÆTISVAGNAR
REYKJAVÍKUR
Að meðtöldum 4 strætisvögn-
um, sem teknir verða í notkun
næstu daga hafa 17 nýir vagnar
verið keyptir frá því sumarið
1951. Auk þess hefur dieselvélum
verið komið fyrir í 4 vögnum,
sem áður höfðu benzínvélar.
4 nýjum leiðum hefur verið
bætt við á tímabilinu, þannig,
að nú eru þær samtals 18.
Auk þess hefur verið aukið við
nokkrar af eldri leiðunum.
Sumarið 1951 var samtals ek-
ið á dag ca. 4.470 km„ en nú
ca. 5.800 km„ eða sem næst
% lengri leið.
40 vagnar eru nú í leigu
S.V.R., þar af 23 á föstum
leiðum.
Æskilegt væri að 4 nýjar leiðir
yrðu teknar upp á næsta ári,
þ.e. a. s. í syðstu hagana og Æg-
issíðu, Smáíbúðar- og Bústaða-
hverfi, í Vogana og leið til að
tengja saman úthverfin. Sú leið
yrði í framkvæmd þannig, að^ek-
ið yrði úr Kleppsholti um Voga-,
Smáíbúðar-, Bústaðav.,- Hlíðar-
og Hagahverfi og Skjólin og'
sömu leið til baka. Þá er gert
ráð fyrir, að reynt verði að kom-
ast af með 2 vagna til endurnýj-
unar þeim eldri.
Samtals er þá þörf fyrir 6 nýja
vagna á árinu 1955, en verð hvers
þeirra er nú sem næst 450 þús.
kr. Samtals fyrir 6 bíla ca. 2.700
þús krónur.
Auk þeirra liða, sem getið hef-
ur verið hér að framan, talaði
borgarstjóri um nokkur fleiri at-
riði í sambandi við fjárhagsáætl-
unina.
★
Á eftir ræðu borgarstjóra töl-
uðu þeir Ingi R. Helgason (sós.)
og Þórður Björnsson. Þjóðvarn-
armaðurinn og Alþýðuflokks-
mennirnir töluðu hins vegar ekki.
Ræður þeirra Inga og Þórðar
fóru nokkuð á víð og dreif, en
þeir boðuðu, að við 2. umræðu
myndu þeir bera fram breyting-
artillögur við frumvarpið.
Borgarstjóri tók síðan til máls.
Hann gerði að umtalsefni það,
sem ræðumennirnir tveir höfðu
sagt um það, sem þeir kölluðu
„skrifstof ubáknið“. Borgarst j óri
benti á að ræðumenn hefðu eng-
ar tilraunir gert til þess að finna
orðum sínum stað, en slíkt tal
um. skrifstofubákn, hjá -bænum
væri nú orðið slitið slagorð. Borg-
arstjóri benti á, að ef litið væri
á fjárhagsáætlunina, þá væri
það einkum einn liður, sem hækk
að hefði viðvíkjandi stjórn bæj-
arins, en það er kostnaður við
skrifstofu bæjarverkfræðings. —-
Borgarstjóri kvaðst vilja spyrja
fulltrúa minni hluta flokkanna
hvort þeir vildu fækka verkfræð-
ingum eða lækka laun þeirra til
að draga úr þessum lið. Hann
kvað bæjarverkfræðing telja sig
þurfa að fá 5 nýja verkfræðinga,
ef vel ætti að vera. Ef kostnaður
við verkfræðingastörfin yrði
skorinn niður myndi það hafa í
för með sér töf á framkvæmdum,
en það væri í ósamræmi við sí-
felldar kröfur minnihluta flokk-
anna um meiri og hraðari fram-
kvæmdir.
AF IIVERJU HÆKKAR
FJÁRHAGSÁÆTLUNIN?
Af gefnu tilefni dró borgar-
stjóri saman aðalástæðurnar fyr-
ir því af hverju fjárhagsáætlun-
in þyrfti að hækka og er það í
14 liðum:
1) Stríðsgróðaskattur 1 millj.
kr. fellur niður.
2) Ágóðahlutdeild brunatrygg-
inga, fellur niður vegna
breytts skipulags. Hún nam
kr. 150 þús.
3) Laun hækka á skrifstofu
bæjarverkfræðings, sem nem
ur kr. 400 þús.
4) Löggæzla hækkar um kr. 200
þús„ en það er lögbundið.
5) Barnaskólarnir. Kostnaður
við þá hækkar um 500 þús.
krónur og er bað óviðráðan-
legt.
6) Bæjarbókasafnið. Útgjöld
hækka um kr. 100 þús„ sem
leiðir af því að safnið hefur
fengið nýtt húsnæði og þarf
aukna starfskrafta.
7) Skemmtigarðar og leikvellir.
Sá liður hækkar um 250 þús.
kr. Bæjarbúar munu vafa-
laust ekki telja það eftir,
sem gert er til fegrunar í
bænum.
8) Sorphreinsun og sorphaugar.
Hækkun kr. 600 þús. vegna
útþenslu bæjarins og fjölg-
unar bæjarbúa.
9) Framlög til bjargráðasjóðs,
byggingarsjóðs verkamanna
og eftirlaunasjóðs hækka um
225 þús. kr. Þessi framlög
eru að verulegu leyti lög-
bundin og með öllu óhjá-
kvæmileg.
10) Framlög til Tryggingastofn-
unarinnar og Sjúkrasamlags-
ins auk iðgjalda til almanna
trygginga hækka um 450 þús.
kr. og er það lögbundið.
11) Framfærsla. Þessi liður er
lögboðinn og er hverju bæj-
arfélagi skylt að sjá sóma-
samlega fyrir þurfamönri-
um. Hækkun á þessum lið
nemur 1.400.000,00.
12) Götur og holræsi, hækkun
um kr. 800 þús., sem er aðal-
lega viðhald gatna.
13) Sundlaug Vesturbæjar. — Sá
liður nemur kr. 225 þús, og
mun enginn ágreiningur vera
um nauðsyn þessa máls.
14) Framlag til íbúðarhúsabygg-'
inga, hækkun 2.5 millj. kr.
og er það stærsti liðurinn.
Eins og nú er háttað í hús-
næðismálunum mun ekki
vera ágreiningur um þennan
lið.
Hækkunin á öllum framantöld-
um liðum nemur alls 8.8 millj.
króna, sem er nokkru meira en
heildarhækkun fjárhagsáætlun-
arinnar. — Borgarstjóri varpaði
fram þeirri spurningu til minni-
hluta flokkanna hverja af þess-
um hækkunum þeir teldu að
væru úr hófi fram og beiddist
skýrra svara.
Á eftir ræðu borgarstjóra tóku
þeir aftur til máls Þórður Björns-
son og Ingi R. Helgason og voru
þær ræður allar stuttar.
Að loknum þeim umræðum var
fj árhagsáætluninni vísað til 2.
umcæðu......... , ___........