Morgunblaðið - 09.12.1954, Page 2

Morgunblaðið - 09.12.1954, Page 2
18 M O R G V N B L'ÆÐ 1 Ð Fimmtudagur 9. des. 1954 Hluti hinna gríðarstóru raf.ækjaverksmiðga í Siemensstadt. Frh. af bls. 17. fráskilið sveitunum í kring, hvað viðvíkur þörfum hennar á við- skiptum. Allar landbúnaðaraf- urðir og hráefni til iðnaðar verður því að flytja frá Vestur-Þýzka- landi, en iðnaðurinn hefur frá striðsiokum risið furðufljótt upp aftur. Er óhætt að segja, að aðal- lega sé hér um að ræða fram- leiðslu rafvéla og annarra raf- magnstækja, enda er sú fram- leiðsla Berlínar þekkt á heims- markaðnum og má í því sam- þandi nefnda Siemens-verk- smiðjurnar, sem ég hygg að marg ir kannist við. Auk þeirra eru liér líka stærstu rakvélablaða- verksmiðjur Þýzkalands, hinar rimfangsmiklu DeTeWe síma- verksmiðjur, auk margra fleiri, sem of langt yrði upp að telja. X.jósasta dæmið um enduriðn- væðingu Vestur-Berlínar er þó liin afarstóra rafstöð í Spandau, sem kennd er við hinn nýlátna borgarstjóra, prófessor Ernst jReuter, en hann var aðalatkvæða maðurinn um byggingu hennar Hún var reist 1950 og nefndist áður Kraftwerk West. Þessi þýð- ingarmikla rafstöð hefur gert Vestur-Berlín óháða sovétsvæð- inu, en áður fyrr fékk hún alla araforku þaðan. Þetta var alls ekki lieppilegt því að þess er skemmst að muna þegar Rússar settu á aðflutningsbannið 1943, varð Berlín einnig rafmagnslaus. IÐN- OG ATÓM- SÝNINGAR Áður fyrr voru hinar fjöl- breyttu vörusýningar Berlínar víða þekktar og má segja að svo sé enn. Fara þær fram í gríðar- stórum sýningarskálum um- hverfis hinn risaháa „Funkturn“ eða loftskeytaturn, en hann er líkur Effeilturninum að tvennu leyti; fyrir að vera byggður úr járngrindum og ásamt Branden- burgertor er hann nokkurskonar „symbol" Berlínar. Þarna rekur bver sýningin aðra allan ársins hring og hvaðanæfa streyma sýn- ingargestir að. Núna nýlega fóru þarna fram tvær miklar sýningar, iðnsýning og veitinga- og mat- Teiðslusýning. Var mér sérstak- lega hugsað til veitingahúsanna okkar heima í sambandi við þá .síðari, því að ólíkt hærri kröfur ■eru gerðar hér á því sviði, enda kannske aðstæður aðrar. Þá stendur yfir um þessar mundir atómsýning, sem eins og nafnið bendir til fjallar um kjarnorku- vísindi, eða um notkun kjarn- orku á friðsamlegan hátt í þágu framfara og meríningar. Voru ^ýndar þarna tvær kvikmyndir til skýringar á grundvallaratriðum atómvísinda auk þess sem fjöl- mðrgum tækjum er þarna smekk lega komið fyrir, sem notuð eru við rannsókr.ir í þossari grpin. Er sýningin i álla staði hin merki legasta og mjög til hennar vandað. MARGVÍSLEGAR SKEMMTANIE Hcr í Vostur-Bcrlln e.r um auð- ugan garð að gresja á sviði skemmtana. Ný ieikhús hafa ver- ið reist og önnttr vcrið iagfærð eftir þöríum. Hér koma fram snjöiluslu ieikarar Þýzkalands óg mörg góo leikrit eru hér vel á svið sett. Einnig gefst fól-ki kost- ur á að sjá það nýjasta úr kvik- myndaheiminum og kvikmynda- húsin eru vart teljandi. Við Kurfúrstendamm, eina fegurstu götu borgarinnar, standa flest I Eitt hinna nýrri fjölbýlishúsa hinna stærri kvikmyndahúsa, þar sem venjulega eru sýndar 1. fl. mynriir. Þessa dagana er !t. d. verið að sýna þýzka mynd í einu þeirra, sem mjög mikla eftirtekt hefur vakið. Þetta er myndin 08/15. Um efnið hirði ég ekki að ræða írekar þar eð það birt- ist sem neSímmálssaga í ein- hverju Reykjavíkurbiaðanna ekki alis fyrir löngu. Mynd þessi er mjög vel leikin og í alla staði prýðiiega gerð. Vonandi gefst ts- lenzkum kvikmyndahúsgestum kostur á að sjá h'ana innan skamms. BLÓtVHÆST MENNTNGARLÍF ! I V BI RLÍN Menntamálin hafa eftir hörm- unar eftirstríðsáranna að mestu | komist í fast horf hér í Berfín. Háskólarnir og þá einkum Uni- versitat Unter den Linden og Technische Hochschule urðu fyrir I töluverðum skemmdum í stríð- inu. Eftir striðið var því strax | hafizt handa að myndun háskóla • og tókst það furðufljótt fyrir j dugnað prófcssora og stúdenía. Tekníski háskólinn, sem er ál brezka hernámssvæðinu fékk nafnið Technische Universitat, þar eð við hann var bætt forn- menntafræðilegri deild. Universi- tát Unter den Linden, sem nú ber að vísu nafn stofnanda síns Humboldt, féll við skiptingu borgarinnar, 1943, í hlut austur- svæðisins og starfar nú í anda stjórnarvaldanna þar. Þetta leiddi til réttmætrar kröíu pró- fessora og stúdenta um byggingu nýs, óháðs háskóla fyrir Vestur- Berlín, sem nú hefur verið full- nægt. Fyrir 5,5 milljón marka fjárveitingu Ford-stvrktarsjóðs- ins í Bandaríkjunum, hefur tek- izt að koma á fót nýtízku háskóla, sem þegar er orðinn einn af stærstu háskólum Þýzkalands, þrátt fyrir að hann sé sá yngsti. Þrátt fyrir erfiðar aðstæður í fyrstu lét hann ekki bugast, en Freie Universitát, en svo er skól- inn nefndur, tók til starfa hinn harða aðílutningsbannsvetur 1948. Hann telur nú um 6000 stúdenta og 250 próíessora og dosenta við 6 deilriir, sem læra og kenna í anda vestrænna hug- sjóna. Eins hátt og Universitát Unter den Linden stóð áður á menntasviði Berlinar, stendur Freie Universitát nú. Aðeins um 60 útlendingar stunda nám við F. U. eins og hann er nefndur í dagiegu tali, en yfir 2000 stúdent- ar af austur-svæðinu stuhda þar nám, því að yfirieitt hefur Vest- ur-Berlín mikið aðdráttarafl fyr- ir þá stúdenta er heima eiga austur frát Ekki er hlutfallstalan lægri við hina háskólana hér í Vestur Berlín, svo sem við T. U., stj órnmálaháskólann, listaháskól- ann og kennaraháskólann. Aðeins hér í Berlín gefst íbúum sovét- skipulagsins kostur á að stunda nám við vestræna skóla og kynn- ast vestrænni menningu og virð- ist þetta tækifæri vera notað til hlítar. HAGSTÆÐ G J ALÐEYRISK A UE Það er yfirleitt ekki neinum erfiðleikum bundið að ferðast miBi Austur- og Vestur-Berlínar, og gerir fólk mikið af því. Sjald- an kemur til toíl- eða vegabréfs- skoðunar, enda væri það erfitt og vandasamt verk Ef farið er austur fyrir verður maður að vísu að undirbúa sig ofurlítið, þ. e. a. s. maður verður að skipta vestur-þýzkum mörkum yfir í austur -þýzk. Þetta eru samt ákaf lega hagstæð kaup fyrir Vestur- Berlínarbúann, þar eð hann fær 4 M. 70 pf. fyrir hvert vestur- mark. Aftur á móti er verðlag og kaup manna í markatöln ekki miklu hærra. Samt sem áður virð ist fátækt fólksins vera mun meiri austur þar, ef dæma mætti eftir klæðaburði og öðru því líku. Ekki er hægt að verzla Frh. á bls, 28. Reynið því OXYDOL FÆST ALLSSTAÐAR Allir verða ánægðir, ef því þá verður tauið ljómandi hreint. Séðar húsmæður nota þvl ávallt OXYDOL það gerir þvottinn tandur hreinan og hlífir höndum og hörundi. OXYDOL er notað við þvottinn — „BATHETTES" BAÐKÚLUR gera baðvatnið mjúkt, þerra hörundið eftir baðið og auka yellíðan. — „Bathettes“ baðkúlur gera húðina dásam- lega mjúka. — Stór askja af ,,Bathettes“ baðkúlum er glæsileg jólagjöf frá vini til vinar. Seymour umboðið Tannlæknar segja að Hin virka COLGATE-froða ler um allar tann- * holur — hreinsar matarörður, gefui ferskt bragð í munninn og varnar tannskemmdum. HELDUR TÖNNUNUM MJALLHVÍTUM GEFUR FERSKT MUNNBRAGÐ HREIN8DN tanna IVfEO STOÐVI BEZT TANN- SKEIVflHDIR! COLGATE TANN- KREIVII LIIIUUM...........

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.