Morgunblaðið - 28.12.1954, Qupperneq 16
Veðurúllit í dag:
Sunnan eða Suð-vestan stinn-
ingskaldi. — Skúrir.
295. tbl. — Þriðjudagur 28. desember 1954.
áukakosning
í Skotlandi. Sjá grein á bls. 9.
Vestmannaeyjatogari seldur
r
til Olafsfjarðar og Sauðárkróks
Ríliið snaraði út fyrir Norðlendinga
AÞORLÁKSMESSU seldu Vestmannaeyingar ríkinu togara sinn
Vilborgu Herjólfsdóttur, fyrir 5,7 millj. kr., og er togaraútgerð
frá Vestmannaeyjum þar með úr sögunni í bili. Hinn togarinn,
sem Bæjarútgerð Vestmannaeyja átti, var seldur á fyrra ári til
Hafnarfjarðar. — Ólafsvíkingar og jafnvel fleiri munu stofna
hlutafélag um togarann.
ÓLAFSFJÖRÐITR OG
SAUÐÁRKRÓKUR
Olafsfirðingar vonast til að þeir
muni taka við togaranum
skömmu eftir áramótin. Enn sem
komið er, hefur ekki verið end-
anlega gengið frá stofnun hluta-
íélagsins, og til mála kemur, að
fyrirtæki og einstaklingar á
Sauðárkróki, verði aðilar 'að tog-
araútgerðinni, sagði Marteinn
Friðriksson kaupfélagsstjóri í
símtali við Mbl. í gærkvöldi. —
Hann ásamt bæjarstjóranum, As-
grími Hartmannssyni, tóku þátt
í samningaumleitununum í sam-
bandi við togarakaupin.
ERFIXT AÐ MANNA SKIPIN
Kaupfélagsstjórinn lét þess
getið, að það myndi jafnvel verða
nokkrum erfiðleikum bundið að
inanna togarann í vetur með
mönnum einvörðungu úr Olafs-
firði, því sjómenn þar væru bún-
ir að ráða sig á vertíð suður á
land og Olafsfjarðarbátar stunda
róðra fyrir sunnan.
Blllaus leigubílsljóri
fékk Dodgeim
LEIGUBÍLSTJÓRI, er vegna
fótameins getur vart stundað
aðra vinnu en bílakstur, hlaut
hinn stórglæsilega Dodge-bíl í
happdrætti Fatlaðra og lamaðra,
sem dregið var í á aðfangadag
jóla.
Maður þessi er Sigmundur
Ágúst Sigfússon bílstjóri á Karla-
götu 2, sem hlaut jólaglaðning sem j,ann stóð ásamt forsetahjónunum í stúku þeirra
þennan, en billmn er af nyjustu
gerð, og kom á miða nr. 7910. —
Svavar Pálsson, formaður Félags
fatlaðra og lamaðra, afhenti hin-
um heppna bílstjóra bílinn á jóla-
dag.
Sigmundur hafði keypt miðann
um kvöldið fyrir Þorláksmessu í
happdrættisbílnum, þar sem hann
stóð á bílastæðinu við Austur-
stræti.
í fyrrakvöld var frumsýning í Þjóðleikhúsinu á óperunum tveimur „II Pagliacci“ eftir Leon Cavallo
og „Cavaliera Rusticana“ eftir Masgagni. Var húsið þéttskipað áhorfendum, er tóku sýningunni með
miklum fögnuði. — Forseti íslands og frú hans voru viðstödd og voru gestir þeirra Pétur Jónssoa
óperusöngvari og kona hans. Ávarpaði formaður þjóðleikhúsráðs, Vilhjálmur Þ. Gíslason, Pétur
Jónsson og þakkaði honum merkilegt brautryðjendastarf á sviði óperusöngs. Hylltu leikhúsgestir hann
síðan með ferföldu húrrahrópi. — Óperusýning þessi þótti takast ágætlega, enda Iétu leikhúsgestir
í ljós mikinn fögnuð. — Myndin er tekin er Ieikhúsgestir risu úr sætum sínum og hylltu Pétur, þar
—• Ljósm. Mbl. Ól. K. M.
H afnarfjarðarkirkja
tekin í notkun að nýju
Hafnarfirði.
RÉTT áður en aftansöngur hófst í Hafnarfjarðarkirkju á aðfanga-
dagskvöld, en hún var þá tekin í notkun að nýju eftir gagn-
gerðar breytingar og lagfæringar, gerði sóknarpresturinn, séra
Garðar Þorsteinsson, grein fyrir framkvæmdunum.
HEILDARSVIPURINN
HINN SAMI
Gat hann þess, að vegna komu
hins nýja orgels, sem væntanlegt
er í kirkjuna, hefði söngloftið
verið stækkað að mun og styrkt.
Teikningu af þessum breytingum
hefði Eiríkur Einarsson arkitekt
ahnazt, en hann hafði yfirumsjón
með breytingunum. Hefði Einar
lagt höfuðáherzlu á, að breyting-
in skerti ekki heildarsvip frum-
teikningarinnar, sem Rögnvaldur
heit. Ólafsson teiknaði. — Vél-
smiðja Hafnarfjarðar annaðist
að styrkja undir söngpallinn. —
Verksmiðja Reykdals annaðist
trésmíði. — Kirkjan var máluð
hátt og lágt, og annaðist það verk
Júlíus Þorkelsson málarameist-
ari og synir hans. Jón Björnsson
málarameistari og Gréta Björns-
son listmálari ráðlögðu um lita-
val og endurbættu og bættu við
skreytingum á veggjum kirkj-
unnar, sem þau hjón höfðu gert í
upphafi. Rafvirkjarnir Þorvaldur
og Jón önnuðust raflögn.
KIRKJAN ÖLL
HIN GLÆSILEGASTA
Sóknarprestur þakkaði öllum
þeim, sem á einn eða annan hátt
höfðu unnið við kirkjuna, fyrir
vel unnin störf. Færði hann Gesti
Gamalíelssyni, formanni sóknar-
nefndar, þakkir fyrir hið mikla
starf hans í þágu kirkjunnar í
sambandi við breytingarnar. Þá
gat hann þess, að kvenfélag kirkj
unnar hefði gefið henni samfellda
gólfábreiðu af vönduðustu gerð
á allt gólf kirkjunnar utan
bekkja, í kór og á söngloft. Var
þetta gjöf kvenfélagsins til kirkj-
unnar í tilefni 40 ára afmælis
hennar, sem var 20. desember
síðastliðinn. Þessa afmælis verð-
ur annars ekki minnzt fyrr en
við vígslu his nýja orgels. Gólf-
ábreiða þessi er gerð af Teppa-
gerðinni í Reykjavík og er ís-
lenzkur vefnaður. Einnig þakkaði
sóknarprestur kvenfélaginu fyrir
þá ákvörðun þess að gefa 50
fermingarkyrtla, sem verða til-
búnir til notkunar við fermingar
að vori. — Þá þakkaði hann marg
ar góðar gjafir í orgelsjóðinn,
sem kirkjunni hefði borizt að
undanförnu. Gat hann þess jafn-
framt, að á Þorláksmessu hefði
borizt tilkynning símleiðis frá
orgelverksmiðjunni, sem smíðar
orgelið, að það yrði tilbúið til af-
hendingar í næsta mánuði.
Því næst lýsti séra Garðar Þor-
steinsson yfir þvi, að kirkjan
væri nú tekin í notkun að nýju.
Að dómi þeirra, sem skoðað
hafa kirkjuna, hefur lagfæringin
tekizt afar vel, og er hún nú að
áliti margra ein fegursta kirkja
landsins. — G. E.
Fiskaflinn nær 32
þús. lestum meiri
en í fyrra
SAMKVÆMT skýrslu Fiskifélags
Islands uvar fiskaflinn á öll
landinu 30. nóv. s. 1. 370.576 smál.,
en var á sama tíma í fyrra
338,739 lestir, þannig að hann er
nú 31,8 þús. lest meiri nú en þá.
Aflinn skiptist þannig:
Síld: smál.
Isvarin til útflutnings .. 508
Til frvstingar ........... 7.295
Til söltunar ............ 18.372
I bræðslu ................ 21.815
Síld, samtals 47.990
Annar fiskur:
Isvarinn til útflutnings .. 7.610
Til frystingar ..........173.420
Til herzlu .............. 49.372
Til niðursuðu .............. 279
Til söltunar ............ 83.863
I fiskimjölsvinnslu ....... 5.277
Annað ..................... 2.765
Annar fiskur, samtals 322.586
Aflamagnið er miðað við slægð
an fisk með haus, nema fiskur til
mjölvinnslu og síld, sem er vegið
upp úr úr sjó.
•—Reuter.
ískyggilegur samdráttur á
sparifjársöfnun landsmanna
Hætt við að erfitt verði að hamla móti
verðbólgu ef segja Fjármáiatiðindi
I
FJÁRMÁLATÍÐINDUM, sem út komu í gær, í grein um pen-
ingamarkaðinn, er þess getið, að alvarlega teikn séu nú á
lofti, þar eð samdráttur hafi orðið í sparifjársöfnun landsmanna
frá því í ágúst. Segir blaðið, að sparifjáraukningin hafi fairð
minnkandi með hverjum mánuði, og í nóvember s.l. hafi spariféð
lækkað um 12 millj. kr. Er það í fyrsta skipti sem spariinnlán
lækka síðan í október 1952. — Síðan segja Fjármálatíðindi um
þetta:
„Það er að vísu eðlilegt að
sparifjáraukningin sé minnst
síðustu fjóra mánuði ársins,
enda er þá neyzla með mesta
móti, en umskiptin eru að
þessu sinni svo mikil, að sú
spurning hlýtur að vakna,
hvort ekki sé um dýpri or-
sakir að ræða. í fyrra jukust
spariinnlög um 40 millj. kr.
frá júlílokum til nóvember-
loka, en í ár hefur spariféð
aðeins aukizt um 0,3 millj. kr.
á sama tíma. Slík breyting
gæti boðað vaxandi vantrú
manna á gjaldmiðlinum og
nýjan ótta við verðbólgu. —
Einnig er vafalítið, að mikið
Bæjarstarísmenn
fá launauppbót
Á FUNDI sínum á Þorláksmessu
samþykkti bæjarráð að greiða
launauppbót til starfsmanna1
sinna. Tillagan um þetta er sam- j
þykkt var, hljóðar svo:
„Á árinu 1955 skal greiða á
laun fastra starfsmanna 23%
launauppbót í stað 10—17%, sem
greitt hefur verið skv. samþykkt
bæjarráðs 2. ágúst 1951.
Þá er og samþykkt að greiða
uppbót á laun fastra starfsmanna
fyrir mánuðina okt.—des. 1954
Stefnir kominn út með
fjölbreyttu efni
DESEMBER-HEFTI Stefnis, tímarits SUS er komið út mjög fjöl-
breytt og skemmtilegt að vanda. Er það nú borið út til áskrif-
enda, en verður einnig selt-í lausasölu í öllum bókaverzlunum.
í tímaritinu eru bæði smásog-
ur, greinar og kvæði. Þar er m.
a. að finna nýtt kvæði eftir
Gunnar Dal, er nefnist Nótt í
grasgarðinum. Grein er eftir
Önnu Larsson, sendikennara,
um sænska skáldið Bellman. —
Brot úr óprentaðri skáldsögu,
eftir Indriða G. Þorsteinsson. —
Gamankvæði skemmtilegt um
„nafnana".
Þá er í Stefni mjög merkileg
grein eftir Knud Hansen skóla-
stjóra Askov-lýðskólans um
„Harðstjórn trúarinnar". — Hið
unga og efnilega skáld Hannes
Pétursson, þýðir kvæði eftir
Rainer Maria Rilke og Stefan
George.
Með þessu er aðeins fátt eitt
talið af hinu fjölbreytta efni
ritsins, sem mun vera eitt út-
breiddasta tímarit hér á landi.
Enn má telja grein eftir Stein-
grím Sigurðsson, smásögu eftir
Alberto Moravia, kvæði eftir
Matthías Jóhannesson og Þor-
stein Thorarensen og kvikmynda
þáttur eftir Jón Júlíusson.
Árgangurinn af Stefni kostar
aðeins 25 kr., en eintakið kr.
8,50 I lausasölu. ’ <
fé er nú ðregið úr bönkum og
sparisjóðum til bílakaupa og
til að kosta hinar stórauknu
húsbyggingar, sem nú eiga sér
stað.
★
Hætt er við, að erfitt verði
að hamla á móti verðbólgu.
ef þessi óheillaþróun stöðvast
ekki, þegar kemur fram á
næsta ár. Fjáríesting er nú
gífurleg í þjóðfélaginu, og
hlýtur hún óumflýjanlega að
leiða til verðbólgu, ef spari-
fjársöfnunin dregst saman tið
Iengdar.“
Hreinskilinn fjármálaráðherra
BERLÍN — Fritz Scháfer kvað
vera hreinskilinn maður. Er hann
var beðinn um skilgreiningu á
hugtakinu peningar, svaraði
hann: „Peningar eru nokkuð, sem
því miður fer langan krók á leið-
inni frá vasa borgaranna í ríkis-
kassann."
Skákelnvfgiö
AKÐKETRI
m
A B
C D E F
RETKJAVÍK
40 leikur Akureyringa
' f 8-Í5
G H
3