Morgunblaðið - 17.02.1955, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 17.02.1955, Blaðsíða 2
2 MORGVNBLAÐIÐ Fimmtudagur 17. febrúar 1953 eildurlöggjöf um kostuu Framh. af bls. 1 STOFNKOSTNAÐARHLUTI RÍKISSJÓÐS Og enn segir í 3. gr. frumvarps- ins: Ríkissjóður greiðir helming stofnkostnaðar við heimangöngu skóla barnafræðslustigs og gagn- tfræðastigs. Skólastjórabústaði við heimangönguskóla barnafræðslu- stigs greiðir ríkissjóður þó að þremur fjórðu hlutum. Stofnkostnað heimavistarskóla barnafræðslustigs og gagnfræða- stigs svo og húsmæðraskóla greið ir rikissjóður að þremur fjórðu Mutum. Hinn hluta stofnkostnaðar greiða hlutaðeigandi sveitarfé- lög. Ef tvö eða fleiri sveitarfélög — eða hlutar úr þeim — standa •að sama skóla, þá skulu þau, ef ekki verður samkomulag um ann að, greiða sinn hluta stofnkostn- aðar í réttu hlutfalli við saman- lagðan tekju- og eignarskatt íbú- anna eftir meðaltali 5 síðustu ára. í heimavistarskólum barna- íræðslustigs og gagnfræðastigs, svo og húsmæðraskóla, teijast íbúðir skólastjóra, kennara. nem- enda og starfsfólks til skólahús- næðis og byggingarkostnaður þeirra til stofnkostnaðar. Hverj- um heimangönguskóla barna- iræðslustigs skal fylgja íbiið skólastjóra. Heimavistarskólum barnafræðslustigs skal einnig tfylgja íbúð skólastjóra svo og íbúðir kennara og annars nauð- synlegs starfsfólks. Ef bú er rek- ið í sambandi við gagnfræðastigs skóla, skal bújörð ásamt nauðsyn- legum húsum til búskapar teljast til stofnkostnaðar. Fullnaðargreiðsla á framlagi ríkisins er bundin því skilyrði, að mannvirkin séu tekin út af trún- aðarmanni ríkisins. Skal þess gætt við úttektina og þegar úr- skurðaðir eru stofnkostnaðar- réikningar, að ekki séu samþykkt ar lélegar byggingar né heldur íburður eða annar stofnkostnað- ur fram yfir það, sem ráð er gert tfyrir í áætlunum þeim, sem stað- tfestar hafa verið. FRAMLAG ÚR RÍKISSJÓÐI TIL KAUPA Á SKÓLABÍL Þá er að lokum ákvæði um það, að þar sem svo hagar til við barnaskóla og gagnfræðastigs- skóla, að akstur nemenda til og tfrá skólastað getur komið í stað heimavistar eða stuðlar að því að sameina skólahverfi eða fámenna skóia, skuli greiða framlag úr ríkissjóði til kaupa á skólabifreið, «r nemi þremur fjórðu hlutum kostnaðarverðs. BÆTT ÚR ÓVISSU Sú grein er gerð fyrir þessum ákvæðum, að á undanförnum ár- Tim hafa ýmsar skólaframkvæmd- 'ir haft það í för með sér, að kröf- ur á hendur ríkissjóði vegna stofn kostnaðar hafa að meira eða minna leyti komið eftir á. Hefur því skort yfirlit um fjárþarfir í þessu skyni, kröfur safnazt sam- an ár frá ári og mjög verið um- deilt, hvers eðlis þær væru, hvort þær væru eiginlegar réttarkröf- ur eða ekki. Úr þessu verður að ráða bót og viðurkenna að fjár- veitingarvaldinu sé skylt að standa við þær skuldbindingar, sem lögboðin fræðsla leggur því á h^rðar. Með þetta fyrir augum erul sett ákvæði um að Alþingi ákveði fyrirfram í hverjar skóla- tframkvæmdir skuli ráðizt, enda sé ríkissjóður ábyrgur fyrir þeim tframlögum og greiðslum, sem af þeim stofnframkvæmdum leiðir. Með ákvæðum fræðslulaganna Tim" hlutdeild ríkissjóðs í stofn- kostnaði skóla, ýmist að helm- ingi eða þremur fjórðu hlutum, befur ríkið mikilla hagsmuna að gæta um það, að allt viðhald eign anna sé í góðu lagi Kostnaðar- samt hefur það reynzt, þegar þu^t hefur að endurbyggja skóla vegna ónógs yiðhalds árum sam- an. í frumvarpi þessu er gert ráð fyrir því, að hvor aðili, ríki og sveitarfélag, viðhaldi sínum hluta í eigninni, þ. e. greiði viðkalds- kostnað í sama hlutfalli og stofn- kostnað. Sama máli gegnir um greiðslu húsaleigu, ef aðilar geta ekki byggt, eða ef þeim þykir hagkvæmara að taka húsnæði á leigu til skólahaldsins í stað þess að byggja. FÖST ÁÆTLUN Ákvæðum frumvarpsins er ætlað að miða að því, að í fram- tíðinni verði farið eftir fastri áætlun um allar stofnkostnaðar- framkvæmdir í samræmi við þarfir á hverjum stað og eftir því, sem fé verður veitt til slíkra fram kvæmda. Framhald þeirra skóla- framkvæmda, sem þegar er byrj- að á og ekki lokið, falla að sjálf- sögðu undir ákvæði 3. mgr. 2. gr. Hitt er svo mál fyrir sig, hvemig lokið verði greiðslu á þeim kröf- um, er þegar hafa safnazt fyrir. í frumvarpi þessu er ákveðið að skólar lúti yfirstjórn mennta- málaráðuneytisins, enda þótt ein stakir skólar geti að sjálfsögðu heyrt undir önnur ráðuneyti eft- ir því, sem ákveðið er við starfs- skiptingu milli ráðuneyta, s. s. nú er um húsmæðraskóla í sveitum, er heyra undir landbúnaðarráðu- neytið. KENNARAR STARFSMENN RÍKISINS í 2. kafla frumvarpsins eru ýtar leg ákvæði um rekstrarkostnað við skólahald og skal nú skýrt stuttlega frá þeim. Sú aðalregla er kveðin upp að fastir kennarar við barnaskóla, gagnfræðastigsskóla og hús- mæðraskóla eru starfsmenn rík- isins og taka laun samkvæmt launalögum. ÝTARLEGAR ÁKVARÐANIR UM KENNARAFJÖLDA Tölu fastra kennara við barna- skóla skal miða við það, að 40 börn komi á hvern kennara, sem kennir fulla kennslu í 9 mánuði, en 5 börnum færra fyrir hvern mánuð, er hann kennir skemur. Sérkennurum í sundi og handa- vinnu skal ætla sem næst helm- ingi færri börn. Við sköla gagnfræðastigsins skal miða tölu fastra kennara í fyrsta lagi við árlegan starfstíma skóla, í öðru lagi við nemenda- fjölda og í þriðja lagi við það hversu verknámið er mikið. Ýtar lega er kveðið á um þessa reglu í frumvarpinu. Er bað aðalregla að í bóknámsskóla skuli vera 30 nemendur á .kemjara, en. í .Verk- námsskóla 15'neméndúr. Er'hem- endatalan stigbreytileg þar á milli, eftir því hve verknámið er mikill hluti kennslunnar. í húsmæðraskóla skal miða tölu fastra kennara við 1) árlegan starfstíma skóla, 2) nemenda- fjölda og 3) hvort skóli er heima- vistarskóli eða heimangönguskóli. Aðalreglan verði sú, aö í heima- vistarskóla séu 12—-16 nemendur á hvern kennara, en í heiman- j gönguskólum komi 16—-20 nem- endur á kennara. Húsmæðraskóli verði ekki starfræktur með færri nemendum en 15 í deild. REYNT AÐ TRYGG.7A SKÓLUM OG NEMENDUM SEM JAFNASTAN RÉTT Um þessi atriði, þ. e. tölu nem- enda á kennara segir m. a. í greinargerð: Að því er tekur til gagnfræða- stigsskóla, þá er í 55. gr. laga nr. 43/1946 ákveðið, að miða skuli tölu fastra kennara við það, að 20—30 nemendur komi á hvern kennara, eftir því, hve verknám er mikið. Nauðsynlegt er að ákveða þetta nánar, til þess að samræmi náist milli hinna ýmsu gagnfræðastigsskóla. Þá er og ákveðið í nefndri 55. gr. laga nr. Tugmilljónum króna kastað á glæ til að standa undir sukki v/ð Skipaútgerðina ÞaÖ er skylda Alþingis að láta rannsaka rekstur hennar og gera tillögur til úrbóta REKSTURSHALLI af Skipaútgerð ríkisins fer hraðvaxandi með hverju ári sem líður. Er fyrirsjáanlegt ef ekkert verður að gert að ríkissjóður verður að kosta tugmilljónum króna á næstu árum til Skipaútgerðarinnar vegna lélegs reksturs hennar. Þetta er svo stórkostlegt vandamál að það er skylda Alþingis að reyna að finna leiðir til úrbóta. Þannig fórust Gísla Jónssyni orð er hann flutti framsöguræðu á Alþingi í gær fyrir þingsályktunartillögu um breytta skipan strandferða. Tillagan er á þá leið að Alþingi álykti að kjósa tvo menn hlut- bundinni kosningu í sameinuðu Alþingi til þess að framkvæma á því athugun, hvort tiltækilegt sé með breyttri skipan á rekstri strandferða á vegum Skipaútgerðar ríkisins að draga úr kostnaði af þeim rekstri, án þess að á nokkurn hátt verði skert sú þjónusta, er strandferðirnar veita landsmönnum nú. MEIRI HLUTI ÞINGS VILL RÍKISÚTGERÐ Gísli Jónsson rakti það að fyrr í vetur hefði Alþingi fellt tillögu um að fela Eimskip og SÍS að annast strandferðir. Þessi tillaga hefði ekki einu sinni fengið þing- lega meðferð, þar sem hún var felld eftir 1. umræðu og ekki einu sinni tekin til athugunar af þing- nefnd. SKYLDA HINS SAMA MEIRIHLUTA Með þessu hefði meiri hluti þings ins sýnt þann vilja sinn að strand ferðirnar yrðu áfram reknar af ríkinu. Ef það væri vilji meirihlut ans, þá réði hann því. En hitt leiddi af þeirri ákvörðun, að sá hinn sami meirihluti bæri ábyrgð og skyldu til að reyna að bæta úr því ófremdarástandi sem væri á rekstri skipaútgerðarinnar. ÞREFALT FRAM ÚR FJÁRLÖGUM Gísli kom með það dæmi úr rík- isreikningi 1953, að þá hefði fram- lag til reksturs Skipaútgerðarinn- ar verið áætlað á fjárlögum 3,6 millj. kr. En í stað þess hefðu þessi útgjöld numið 9,7 milljón kr. Eða næstum því þrefaldri á- ætlun á fjárlögum. Aukagreiðslur hefðu samkv. þessu numið 6 millj. kr., sem hefði verið greitt utan fjárlaga. Endurskoðunarmenn ríkisreikn- inganna gerðu harðorða athuga- semd við þetta og spyrja m. a. sér- staklega um hvort ráðherra hefði gefið heimild til þessa. Fjármálaráðherra hefur ekki svarað þeirri fyrirspurn. Hið eina sem hann gerir skv. þessari at- hugasemd er að leggja fram bréf frá Skipaútgerðinni, sem gefur enga skýringu á þessari framúr- greiðslu, hvað þá að þær séu til- lögur til úrbóta. ÞARF AÐ RANNSAKA REKSTURINN Þessi dæmalausa aðferð við fjár reiður Skipaútgerðarinnar sýnir, svo ekki verður um villzt, að það verður að rannsaka ofan í kjölinn rekstur þessarar ríkistofnunar og koma með raunhæfar tillögur til úrbóta. Hefði það verið mjög til bóta ef tillagan um að Eimskip og SÍS tælci strandferðirnar að sér, hefði að minnsta kosti kom- izt í nefnd svo að þar mætti þá rannsaka reksturinn. Kvaðst Gísli sérstaklega undrast það að Jörund ur Brynjólfsson sem er endurskoð unarmaður, skyldi greiða atkvæði á móti því á sínum tíma. Gísli Jónsson rakti í ræðu sinni gang strandsiglinganna. — Kom hann víða við og var ræða hans fróðleg og mjög athyglisverð. RÁÐSLAG SKIPAÚTGERÐARINNAR Hann sýndi mönnum margt furðulegt við ráðslagið og sukkið við stjórn Skipaútgerðarinnar. — Skýrði hann t. d. frá því að við Skipaútgerðina hefði verið starf- andi eftirlitsmaður með vélum og verkfærum og hefði hann haft 45 þús. kr. laun á ári. En rétt um sama leyti og landhelgisgæzlan var tekin frá Skipaútgerðinni og verkefni eftirlitsmanns minnkaði, var sú undarlega ákvörðun tekin af forstöðumönnum Skipaútgerðar innar að bæta öðrum eftirlitsmanni við, sem hefur 40 þús. kr. árslaun. Nú skyldi maður halda að í þessa stöðu til eftirlits með vélum hefði verið valinn tæknilega kunnandi maður. En það var öðru nær. í það var skipaður gamall kaupfé- lagsst.ióri utan af landi. Það er ekki að furða þótt reksturshalli Skipaútgerðarinnar sé mikill og fari vaxandi ef ráðslagið er slíkt á fleiri sviðum. FRAMSÓKNARÞINGMAÐUR BER AÐ ÓSANNINDUM ' Skúli Guðmundsson (hinn aftur- haldssami þingmaður Vestur-Húna vatnssýslu), tók til máls með gusti miklum. Hann kvaðst ætla að kveða niður staðhæfingu Gísla. um að Skipaútgerðin hefði orðið að greiða skaðabætur vegna spreng- ingar í olíuflutningaskipinu Þyrli. En Gísli hafði lesið upp greinar- gerð frá forstjóra Skipaútgerðar- innar um þetta, þar sem þessi op- inberi starfsmaður efaðist um að dómur Hæstaréttar í þessu máli væri rétturU Skúli sagði að hér væri rafigt með farið hjá Gísla. Hér væri um að ræða, skaðabætur í sambandi við kaup á Þyrli. Gísli svaraði því þá aftur með því að lesa orðrétt ummæli forst.iór ans. Bauð hann að lána Skúla skýrsluna til lestrar, svo að hann væri elcki að fleipra um það sem hann hefði ekki hugmynd um. 48/1946, að ríkissjóður greiði styrk til stundakennslu hlutfalls- lega fyrir þá nemendur, sem um- fram eru þá tölu, sem ætluð er föstum kennurum, en í fram- kvæmdinni hefur ríkissjóður ver- ið látinn greiða alla stunda- kennslu að hálfu. Ákvæði 7. og 10. gr. frv. miða að því að mynda fastar reglur um þessi efni í sem fyllstu samræmi við ákvæði 55. gr. laga nr. 48/1946. Ákvæði frv. um kennaralaun úr ríkissjóði eru sniðin í sam- ræmi við ákvæði núgildandi laga um það efni, en reynt að tryggja skólum og kennurum sem jafn- astan rétt hlutfallslega, miðað við árlengan starfstíma og nemenda- fjölda. Jafnframt eiga ákvæði frv. ag tryggja það, að ekki sé farið út fyrir þau takmörk um hlutdeild ríkissjóðs í greiðslu kennaralauna sem lögin gera ráð fyrir. Meðal annars eiga ákvæði. frv. að koma því til vegar, að greiðsla kennaralauna úr ríkis- sjóði, þegar um fámenna skóla er að ræða, verði aðeins hlutfallsleg, miðað við nemendafjölda og starfstíma. r- SÉRSTÖK STÖRF OG FORFALLAKENNSLA Næst koma ákvæði um það að skólanefnd geti með samþykki menntamálaráðuneytisins, að fengnum tillögum fræðslumála- stjóra, námsstjóra og fjármála- eftirlitsmanns skólans ákveðið að kennurum séu falin sérstök störf í þágu skólans, þar með talin um- sjónarstörf í heimavistarskólum gegn því að lögboðnum kennslu- stundum þeirra sé fækkað sem því nemur. Þá er ákvæði um það að þegar fastir kennarar eru færri en nem- endafjöldinn segir til um, en nem endafjöldi þó minni en svo, að skólinn eigi kröfu á kennara til viðbótar og má þá greiða úr ríkis- sjóði fyrir stundakennslu í réttú hlutfalli við þann nemendafjölda, sem umfram er. Kostnað við for- fallakennslu greiðir ríkiss.jóður vegna þeirra kennara er hann launar í sömu hlutföllum og laun þeirra. LAUN NÁMSSTJÓRA Ríkissjóður greiði að öllu leyti laun námsstjóra og kostnað af námseftirlitinu. Laun fræðslufull trúa í Reykjavík greiði ríkissjóð- ur að hálfu og endurgreiði l.ostn- að af störíum hans sem náms- stjóra að fjórða hluta. Laun ráðs- konu í heimavistarskólum gfeiðir ríkissjóður að öllu leyti. SKIPTING VIDHALDSKOSTNAÐAR Ákvæði er um það, að þegar húsnæði er tekið á leigu til skóla- halds skuli húsaleiga greild af ríkissjóði og sveitarfélögum í sama hlutfalli og stofnkostnaður, Ríkissjóður og sveitarfélög greiði viðhaldskostnað á eignum skól- anna í sömu hlutföllum og stofn- kostnað. Áætla skal viðhalds- kostnaðinn og leita samþykkis menntamálaráðuneytisins um all ar viðhaldsframkvæmdir, sem áætlaðar eru yfir 20 þús. kr. Ef þessum skilyrðum er ekki full- nægt, er viðhaldskostm,'hirinn ríkissjóði óviðkomandi. UPPIIITUNARKOSTNAÐ UR Þá er ákvæði um það, að þegar heimavistarskóli gagnfræ'ðastigs eða húsmæðraskóli nýtur ekkí jarðhita til upphitunar, þá greiði ríkissjóður % hluta upphitunar- kostnaðar. Að lokum er svo kveðið á að sveitarfélög greiði annan kostn- að af barnaskólahaldi en hér hef- ur verið talinn, en ríkissjóður endurgreiði þeim fjórða hluta kostnaðarins. En annan kostnað af skólahaldi gagnfræðastigs- skóla og húsmaeðraskóla greiðir ríkissjóður að hálfu en sveitar- félög að hálfu. I

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.