Morgunblaðið - 09.03.1955, Side 11
Miðvikudagur 9. marz 1955
MORGVNBLAÐIÐ
11 '
lleildverzlun ÁRIM JÚMSSCMAR H.f.
Aðalstræíi 7
Símar 5805, 5524, 5508
SÉRLEVFISHAFAR
Getum útvegab
langferðabifreiðagrindur t.il afgreiðslu
strax.
yfirbyggðar langferðabifreiðir til af-
greiðslu í maí.
Leitið upplýsinga
Sueima,
& ~y)í
ueima (/-Jjömóóoyi C9~ ^y^ócjeiróóo'/i
SÍMAR: 3175 og 6175.
4. Eru mjög hentug og létt í moðferð.
5. Broína ekki né beiglast.
6. Eru mjög hentug í kæliskápa þar sem inni-
haldið tekur ekki í sig bragð eða keim af
öðrum mat sem er í skápnum, þar sem ílátin
eru loftþétt.
íslenzkar húsmæður, sem reynt hafa þessi matarílát, eru
sammála um að PLAST-matarílát séu það bezta, hrein-
legasta, þægilegasta og ódýrasta sem völ er á.
Heildsölubirgðir:
FLEX
Það sem PLAST matarílát hafa
framyfir cnnur matarílát er:
1. Eru með öllu loftþétt og geyma því matinn
og matarleifar mikið betur en önnur ílát sem
notuð eru.
2. Eru mjög auðveld í hreinsun og þvotti.
3. Skilja ekki eftir matarleifar eða skemmdan
mat cftir þvott.
Bezt að auglýsa í Mor gunblaðinu
„Ævintýri á gönguför"
sýnt í Hverager&s
LAUGARDAGINN 5. þ.m. frum-
sýndi Leikfélag Hveragerðis sjón
leikinn Ævintýri á gönguför eftir
J. C. Hostrup.
Hostrup mun vera mest þekkt-
ur fyrir sína stúdentagamanleiki
Ginboerne 1844 og Spurr í
Tranedans 1846. Ekki er undir-
rituðum kunnugt um hvort þessi
leikrit hafa verið þýdd á íslenzku,
en til gamans má geta þess að
Gerboerne voru leiknir á dönsku
um eða eftir 1920 á Seyðisfirði.
Leikfélag Hveragerðis er ungt
að árum en hefir þó ráðist í
erfiðustu viðfangsefni svo sem
Fjalla Eyvind, Á útleið og Húrra
krakki, og nú sem fyrr segir
Ævintýri á gönguför, og má segja
að það hafi tekizt með þeim ágæt-
um sem bezt yerður á kosið bæði
hvað leik og söng snertir.
1 Með hlutverk Skrifta-Hans fer
Gunnar Magnússon. Gunnar er
að gömlu kunnur og hefir farið
með mörg stór hlutverk. Gerði
Gunnar þessu góð skil og er það
dómur þeirra sem sáu að þar
hafi Gunnari tekist með ágætum,
naut hann sín vel og hafði hylli
áhorfanda frá fyrst til síðast. Þá
var gerfið mjög gott.
i Krans kammerráð lék Ragnar
G. Guðjónsson af sinni alþekktu
kímni. Hér hefir Ragnar enn einu
sinni sýnt að hann er ágætur
gamanleikari, enda vakti hann
kátínu í hvert skipti sem hann
sást.
I Helenu konu hans leikur Guð-
| rún ívarsdóttir. Gerir hún þessu
góð skil, leikur hún af miklum
þrótti og myndugleik.
Svale assisor er í meðferð Gests
Jónssonar heilsteypt og virðuleg
persóna, enda er gerfið gott og
nýtur hann sín mjög vel.
Láru dóttur hans leikur Stein-
unn Jóhannesdóttir. Er leikur
hennar mjög góður og eðlilegur,
er festa og vilji í leik hennar.
Með hlutverk Jóhönnu bróður-
dóttur hans fer Guðrún Lund-
holm. Er þetta stærsta hlutverk
hennar og kom.hún mjög á óvart.
Var leikur hennar mjög skemmti
legur og léttur. Héldust í hendur
góð söngrödd og gáski, sem gerði
leik hennar mjög góðan.
Theodór Halldórsson leikur
Ejbæk. Gerir hann þessu góð skil
• og er leikur hans eðlilegur og
heilsteyptur.
| Með hlutverk Herlöv fer Gest-
ur Eyjólfsson. Er hann léttur og
i lipur sem Herlov.
| Vermund leikur Sigurjón Guð-
mundsson. Fer hann vel með hlut
verk sitt, svipbrigði góð og söng-
ur, enda hefur Sigurjón leikið
mörg ár.
j Jóhannes Þorsteinsson leikur
Pétur bónda og ferst það prýði-
lega.
1 Leikstjórn hafði á hendi Indriði
ÍWaage og ber leikurinn þess
glögg merki að um góða leik-
j stjórn var að ræða.
I Leiktjöldin málaði Höskuldur
Björnsson og er það unnið af
frábærri vandvirkni og smekk-
vísi.
! Er þessi sýning Leikfélaginu
til mikils sóma og hefir þeim
| bætzt góður hlekkur í starfsemi
' sína.
1 Var sýningunni forkunnarvel
tekið og leikendur ákaft hylltirj
að leikslokum.
Georg B. Michelsen.
Hvg.
STJÓRN Styrktarsjóðs stúkunn-j
ar Fróns nr. 227 efndi til skemmtij
samkomu í Templarahöllinni s. 1.!
fimmtudagskvöld til ágóða fyrirj
hana. Var þar fjölmenni, enda
varð fjárhagslegur árangur góð-i
ur. Það var auðséð, að samkomu-'
gestir höfðu gert sér fulla grein;
fyrir mannúðarstarfi því, er
þarna er unnið. Auk ánægjunn-
ar, sem því fylgir að leggja góðu
málefni lið, nutu menn þar og
ágætra skemmtiatriða.
Skemmtunin hófst á því, að
tvær kornungar stúlkur, þær
Edda Eyfeld og Hanna María
Tómasdóttir, lásu kvæði og gam-
ansögur. Leystu þær báðar verk-;
efnin vel og smekklega af hendi,
og var þeim þakkað með lófa-
taki.
Þá kom það skemmtiatriðið,
sem beðið hafði verið eftir með
mestri eftirvæntingu, en það var
einsöngur Guðrúnar Á. Símonar.
Er ekki að orðlengja það, að hún
söng sig þegar inn í hjörtu áheyr-
enda, með hinni yndislegu rödd
sinni, frábæru raddbeitingu og;
túlkun og fáguðu framkomu,
enda ber hún þegar flest eða öll
sérkenni hinna þroskuðu, há-
menntuðu söngkvenna á söng-
pallinum. Eftir að söngkonan
hafði lokið hinni prýðilega sam-
settu söngskrá, varð hún að'
syngja aukalög. Listakonuna að-
stoðaði hinn bráðsnjalli og vin-
sæli undirleikari, Fritz Weiss-
happel. Að sjálfsögðu var slfk-
um listamönnum ákaft fagnað,
en kosið hefðu áheyrendur, að
þessi heillandi ánægjustund
hefði mátt vara nokkru lengur.
Var nú sezt að kaffiborðum,
og köku- og matarbögglarnir,
sem samkvæmisgestir höfðu
keypt fyrr um kvöldið, á hinu
vel heppnaða bögglauppboði,
opnaðir, og skemmtu menn s-ér
við fjörugar samræður.
Er staðið var upp frá borðunt,
var sýnd bráðskemmtileg kvik-
mynd. Eftir það hélt hver heirn
til sín, glaður og ánægður.
Var samkoma þessi í alla staði :
hin náægjulegasta, og stúkunni
Fróni til sóma.
Samkvæœisgestur.
öé8ur gl!i í Homaf.
HÖFN í Hornafirði, 2. marz: —
í Hornafirði voru gæftir góðar
í febrúar. Samanlagt fóru 5 bátar
83 róðra og var heildarafii þeirra
482 smálestir. Frá áramótum hafa
þeir samanlagt farið 151 róður og
er heildaraflinn 872 lestir af
slægðum fiski með haus. Frá ára;
mótum er aflinn þannig: Hæstur
er Gissur hvíti með 225 lestir í
36 róðrum, Helgi með 207 lestir
í 36 róðrum, Sigurfari með
181% lest í 34 róðrum. Hvanney
með 158 lestir í 25 róðrum og
Hrollaugur með 101 lest í 20
róðrum. Er meðaltal 5% lest í
róðri. — Gunnar.